Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Side 24
24 | Fréttir 10.–14. júní 2011 Helgarblað Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætis- ráðherra, fjármálaráðherra, utanrík- isráðherra og formaður Sjálfstæðis- flokksins, situr nú á sakamannabekk. Geir er ekki ákærður fyrir það sem hann gerði heldur er hann ákærður fyrir það sem hann gerði ekki. Inn- takið í málinu gegn Geir er að hann hafi klúðrað fyrirbyggjandi aðgerð- um í aðdraganda hrunsins með að- gerða- og framtaksleysi sínu. Þannig hafi hann gerst sekur um stórkost- lega vanrækslu. Á herðum Geirs hvíldi meginábyrgðin á því að tryggja efnahagslegan stöðugleika, að því leyti sem sú ábyrgð var falin ráðherr- um. Í fyrsta lið ákæru saksóknara Al- þingis gegn honum segir að Geir hafi: „Sýnt af sér alvarlega vanrækslu á starfskyldum sínum sem forsætis- ráðherra andspænis stórfelldri hættu sem vofði yfir íslenskum fjármála- stofnunum og ríkissjóði, hættu sem honum var eða mátti vera kunn- ugt um og hefði getað brugðist við.“ Á meðan þessi „stórfellda hætta,“ vofði yfir íslensku hagkerfi í upp- hafi árs 2008 og fram á haust, talaði Geir stöðuna hins vegar niður meðal annars á þeim forsendum að: „Mikil opinber umræða getur verið óheppi- leg, skapað óraunhæfar væntingar og þar með jafnvel haft neikvæð áhrif.“ Illa upplýstir ráðherrar Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþing- is er komist að þeirri niðurstöðu að Geir hafi sem forsætisráðherra ekki gripið til viðhlítandi ráðstafana í að- draganda falls íslensku bankanna í samræmi við það sem tilefni var til. Geir hafi með athafnaleysi sínu látið hjá líðast að bregðast við yfirvofandi hættu á viðeigandi hátt og því sýnt af sér vanrækslu í skilningi laganna. Geir vildi þó ekki kannast við að- gerðaleysi sitt og sagði á vormánuð- um 2008 að unnið væri baki brotnu að því að greiða úr vandanum. „Slíkar aðgerðir eru þess eðlis að undirbún- ingur þeirra tekur langan tíma og ekki er hægt að flytja af þeim fréttir frá degi til dags. Mikil opinber umræða getur verið óheppileg, skapað óraunhæfar væntingar og þar með jafnvel haft nei- kvæð áhrif. Stuttar boðleiðir og skjót ákvarðanataka eru óumdeilanlega meðal helstu styrkleika íslensks við- skiptalífs og stjórnsýslu. Þetta getur á hinn bóginn líka verið veikleiki þeg- ar við gerum kröfu um sama hraða í mun stærri kerfum og leyfum okkur að verða óþolinmóð gagnvart lengri boðleiðum og seinvirkari ákvarðana- ferlum en við erum vön.“ Á meðan Geir talaði um stuttar boðleiðir og skjóta málsmeðferð gagnrýndi rannsóknarnefnd Alþing- is hann harkalega fyrir það hversu illa upplýst ríkisstjórnin væri og fyr- ir það hversu ómarkvissar aðgerð- ir samráðshóps um efnahagslegan stöðugleika voru. Í skýrslunni segir um kvöldið örlagaríka þegar Glitnir var yfirtekinn af íslenska ríkinu: „Það er lýsandi fyrir það hversu lít- ill undirbúningur lá fyrir og hversu ráðherrar voru illa í stakk búnir til að taka jafnafdrifaríka ákvörðun og Seðlabankinn fól þeim þetta kvöld, að þegar Össur Skarphéðins- son mætti til fundarins mun hann hafa lýst því fyrir fundarmönnum að hann hefði „akkúrat ekkert vit á bankamálum.“ Ráðherra bankamála, Björgvin G. Sigurðsson, var ekki einu sinni látinn vita og hann frétti ekki af falli Glitnis fyrr en Jóhanna Sigurðar- dóttir hringdi í hann og spurði hvort hann vissi hvað væri að gerast uppi í Seðlabanka.“ Vanræksla Þrátt fyrir að Geir hafi fullyrt að boð- leiðirnar væru stuttar og unnið væri baki brotnu þá komust rannsóknar- nefnd Alþingis og saksóknari Alþing- is að allt annarri niðurstöðu. Geir er ákærður fyrir að hafa látið undir höf- uð leggjast að hafa frumkvæði að því með eigin aðgerðum eða tillögum til annarra ráðherra að innan stjórn- kerfisins væri unnin heildstæð og fagleg greining á þeirri fjárhagslegu hættu sem ríkið stóð frammi fyrir. Auk þess er hann ákærður fyrir að hafa vanrækt að gæta þess að störf og áherslur samráðshóps stjórnvalda um fjármálastöðugleika og viðbúnað væru markvissar. Í rannsóknarskýrslunni er starf samráðshópsins gagnrýnt harðlega. Vorið 2008 fjölgaði fundum hópsins eftir því sem staðan varð alvarlegri en um sumarið fækkaði fundum hópsins aftur án þess að nokkur rök- studd skýring hafi verið fyrir því. Svo virðist sem hópurinn sem átti að verjast hruni hafi farið í sumarfrí. Í skýrslunni segir „að um allnokk- urt skeið hafði það ekki getað dulist þeim sem áttu sæti í hópnum hversu alvarlegur vandi steðjaði að íslensku fjármálakerfi.“ Geir átti öðrum fremur að bera ábyrgð á því að starfshópurinn virk- aði sem skildi og að forgangsröðun hans væri rétt. Í byrjun árs 2008 telur rannsóknarnefndin að hann hafi átt að vita af hinni grafalvarlegu stöðu sem upp var komin og hún hefði gefið honum fullt tilefni til að hafa frumkvæði að því að láta ríkisvaldið bregðast við þeim með sérstökum aðgerðum. Að minnsta kosti hefði hann átt að kalla eftir frekari gögnum og tillögum um hvort nauðsyn væri á sérstökum aðgerðum frá stofnunum ríkisins. Nefndin telur að verulegir annmarkar hafi verið á starfi hópsins og að Geir hafi borið ábyrgð á því þar sem ríkir almannahagsmunir knúðu á um að hann hefði þegar frumkvæði að aðgerðum ríkisvaldsins og jafnvel sérstakri lagasetningu til að draga úr stærð bankakerfisins. Spurning um ímynd Geir firrar sig allri ábyrgð fyrir lands- dómi og neitar sök í öllum ákærulið- um. Svo virðist sem hann telji ekki að hann hefði getað afstýrt hruninu eða að minnsta kosti mildað það sem for- sætisráðherra. Fyrir það er hann hins vegar ákærður. Geir talaði reglulega um að rót vandans væri alþjóðleg. Í ræðu sinni á ársfundi Seðlabankans 28. mars 2008 talaði Geir um „tíma- bundið andstreymi“, og „óróleikann á alþjóðamörkuðum“. Í ávarpi sínu á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins 18. apríl 2008 talaði Geir um „alþjóðlega vinda sem skekja okkar eigin hag- Kerfið átti að laga sig sjálft n Geir taldi að vandi Íslands fyrir hrun væri slæm ímynd n Átti að bregðast við grafalvarlegri stöðu en gerði allt of lítið n Átti að halda ríkisstjórninni upplýstri en bankamálaráðherra vissi ekki af yfirtöku Glitnis n Prófessor telur aðgerðaleysið geta skýrst af stjórnmálaskoðunum Geirs Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is „Það þyrfti ekki að hugsa mik- ið um vinnubrögðin þar og hvernig það starfaði vegna þess að það væri hvort eð er markaðurinn sem ætti helst að sjá um flesta hluti.“ Þetta þurfti til að vekja landsdóm Danmerkur Erik Ninn-Hansen, fyrrverandi dómsmálaráðherra Danmerkur, var dreginn fyrir landsdóm þar í landi árið 1995 en þá hafði dómstóllinn legið í dvala í 80 ár. Svipuð lög gilda um danska landsdóminn og þann íslenska. Ráðherrann þurfti að svara til saka í svokölluðu Tamílamáli og var á endanum sakfelldur fyrir að hafa af ásettu ráði vanrækt skyldur sem hvíldu á honum samkvæmt lögum og eðli stöðu hans. Ráðherrann fékk fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi. Málið snerist um að Ninn-Hansen taldi sig hafa pólitískan meðbyr til að stöðva meðferð 140 umsókna um dvalarleyfi í Danmörku frá fólki í Srí Lanka sem tengdist Tamílum sem bjuggu í landinu. Danska þingið ákvað að draga hann fyrir landsdóm vegna málsins. Ver sig Geir neitar öllum sakargiftum og telur enga aðra leið hafa verið færa. Á sakamannabekk Geir Haarde þarf að svara fyrir meinta vanrækslu sína fyrir landsdómi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.