Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Síða 25
kerfi án þess að við höfum mikið um það að segja.“ Í skýrslu rannsóknarnefndar Al- þingis er sagt frá fundi Geirs og Gord ons Brown, þáverandi forsæt- isráðherra Bretlands, hinn 24. apríl 2008. Í skjali sem forsætisráðuneytið tók saman um fundinn kemur fram það viðhorf Geirs að vandi Íslands væri aðallega ímyndarvandi. Á með- an Geir taldi vandann hins vegar ímyndarlegs eðlis vofði yfir „stórfelld hætta“, eins og saksóknari segir. Rannsóknarnefndin taldi hins vegar að um það leyti hefði hann haft fullt tilefni til þess að fylgja því eft- ir og fullvissa sig um að unnið væri með virkum hætti að flutningi Ice- save-reikninga Landsbankans úr útibúi bankans í Bretlandi yfir í dótt- urfélag. Það gerði Geir ekki og fyrir það þarf hann einnig að svara fyrir hjá landsdómi. Nefndin telur einn- ig að sumarið 2008 hefði ríkisvaldið undir forystu hans átt að stuðla að framgangi málsins. Lykilmaður Geir hafði verið einn af innstu kopp- um í búri hjá Sjálfstæðisflokknum í 26 ár áður en hann hrökklaðist úr embætti forsætisráðherra. Geir var pólitískt skipaður aðstoðarmaður fjármálaráðherra á árunum 1983 til 1987. Þegar hann tók við sem að- stoðarmaður var hann einnig for- maður Sambands ungra sjálfstæð- ismanna en því embætti gegndi hann til 1985. Hann var kjörinn inn á Alþingi árið 1987 og komst fljótt til metorða innan flokksins og í upp- hafi síns annars kjörtímabils var hann orðinn þingflokksformaður. Því starfi gegndi hann til ársins 1998 þegar hann tók við sem fjármálaráð- herra. Geir var fjármálaráðherra til ársins 2005 þegar hann tók við emb- ætti utanríkis ráðherra áður en hann varð svo forsætisráðherra árið 2006. Geir var því algjör lykilmaður í þeim breytingum og umskiptum sem ís- lenskt samfélag tók á þeim tíma. Geir hefur allt frá því hann hóf þátttöku í stjórnmálum aðhyllst frjálshyggjustefnu sem felur í sér að lágmarka afskipti hins opinbera og treysta frekar á frjáls viðskipti og sjálfsprottnar venjur. Frjálshyggju- menn aðhyllast það að markaður- inn muni leysa vandamál sín sjálfur, þar af leiðandi sé ekki þörf á hörð- um og beinum ríkisafskiptum. Geir tilheyrði frægum hópi frjálshyggju- manna, sem gaf út tímaritið Eim- reiðina þar sem sú stjórnmálastefna var boðuð. Þeir menn sem voru með Geir í Eimreiðarhópnum, eins og hann hefur verið kallaður, kom- ust flestir til metorða í samfélaginu og nokkrir urðu fyrirrennarar Geirs í starfi forsætisráðherra. Meðal þeirra sem voru í hópnum með Geir voru Davíð Oddsson, Þorsteinn Pálsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Kjartan Gunnarsson. Boðaði frjálshyggjuna Spyrja má hvort ástæða þess að Geir situr nú á sakabekk fyrir stórfellda vanrækslu, sé einmitt sú að hann fylgdi aðeins eftir þeirri stjórnmála- skoðun sem hann aðhylltist og felur í sér að lágmarka beri afskipti ríkis- ins af frjálsum markaði. Varð hug- myndafræði Geirs til þess að hann varð ákærður? Gunnar Helgi Krist- insson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir ekki hægt að útiloka að stjórnmálaskoðun Geirs sé ástæðan fyrir meintu sinnu- leysi hans í aðdraganda hrunsins. Hann telur það þó ekki vera nær- tækustu ástæðuna heldur einfald- lega þá að Geir hafi vanmetið hlut- verk sitt sem forsætisráðherra. Það sé að minnsta kosti skilningurinn sem Gunnar Helgi dregur af rann- sóknarskýrslu Alþingis. Geir hafi ein- faldlega fylgt þeirri stefnu og hefð sem mörkuð hafði verið af fyrirrenn- urum hans. „Nærtækari skýring væri að mínu viti að hann hafi túlkað hlutverk sitt í samræmi við þær hefðir sem hafa myndast hér um það hvernig ríkis- stjórnir vinna,“ segir hann. „Ég les skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þannig að það sé hæpið að skilja ís- lenska stjórnsýslu þannig að forsæt- isráðherra hafi jafnlítið hlutverk og hann telur.“ Gunnar Helgi segir hefð- ina sem hann vitnar til hafi verið við lýði í íslenskum stjórnmálum mjög lengi. Leyfðu hefðinni að festast í sessi Ef litið er til fyrirrennara Geirs í emb- ætti forsætisráðherra má sjá að með- limir Eimreiðarhópsins gegndu því embætti í um 20 ár á tímabilinu 1987 til 2009. Þorsteinn Pálsson var í emb- ætti forsætisráðherra 1987 til 1988 og Davíð Oddsson, sem síðar varð bankastjóri Seðlabanka Íslands, var í embættinu 1991 til 2004. Það er því ekki hægt að sjá annað en að einmitt þessir menn hafi átt stærstan þátt í að festa hefðina sem Geir fylgdi í sessi. „Ég hugsa að það mætti alveg færa rök fyrir því að þessi hefð hafi verið látin óáreitt lengur heldur en efni stóðu til vegna þess að það var mjög mikið á dagskrá að losa fram- kvæmdarvaldið við verkefni frek- ar en að styrkja það,“ segir Gunnar Helgi. „Þessi hefð á sér djúpar ræt- ur í íslenskri pólitík. Geir var ekki að finna neitt upp. Hans málsvörn hef- ur verið sú að hann hafi túlkað hlut- verk sitt í samræmi við það sem verið hafði. Það er umdeilanlegt og í sjálfu sér er það gagnlegt að landsdómur fjalli um það hvort sú túlkun standist eða ekki.“ Stóðu ekki fyrir nauðsynlegum umbótum „Ég tel að sá valdahópur sem ráðið hefur hér á landi talsvert lengi hafi haft þá sýn á framkvæmdarvaldið að það þyrfti ekki að hlúa mikið að því, það þyrfti ekki að hugsa mikið um vinnubrögðin þar og hvernig það starfaði vegna þess að það væri hvort eð er markaðurinn sem ætti helst að sjá um flesta hluti,“ segir Gunnar Helgi og vísar þar til forvera Geirs í starfi forsætisráðherra. „Það kann að vera að það hafi gert það að verkum að menn hafi vanrækt það umbóta- starf sem ég held að hafi verið þörf fyrir innan framkvæmdarvaldsins.“ Gunnar Helgi segir að það hafi hugs- anlega verið stjórnmálastefnan sem Geir fylgdi sem hafi því fest hefðina í sessi. Hann segir að Geir hafi í raun fylgt þeim hefðum sem ríkt höfðu um störf forsætisráðherra löngu áður en hann kom til sögu. Fréttir | 25Helgarblað 10.–14. júní 2011 FARÐU AFTUR Í BÍÓ Í FYRSTA SINN www.bioparadis.is hverfisgötu 54 / 101 reykjavík „Ég les skýrslu rannsóknarnefnd- ar Alþingis þannig að það sé hæpið að skilja ís- lenska stjórnsýslu þannig að forsætisráðherra hafi jafnlítið hlutverk eins og hann telur.“ „Menn hafa verið að líkja hruninu við sjóslys. Venjulega þegar sjóslys eiga sér stað þá eru haldin sjópróf þar sem skip- stjórinn þarf að mæta fyrir sjórétt og gera þar grein fyrir ákvörðunum sínum áður en til óhappsins kom.“ n Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við HÍ – DV 4. október 2010 „Það hafðist þingmeirihluti fyrir því að ákæra Geir en ekki aðra. Maður veit eiginlega ekki hver sú meinta aðför ætti að vera.“ n Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við HA – DV 8. júní 2011 „Geir H. Haarde er sekur um glæp- samlegt aðgerðaleysi. Það segja skýrslurnar. Fréttir þess tíma sögðu hið sama. Strandkapteinninn tók ekki á vandræðum, sem hrönnuðust upp. Hann fór út úr eðlilegu samráðsferli. Hélt ráðherrum utan ferilsins, þótt þeir ættu að vera innan hans. Reyndi að halda öllu óveðrinu leyndu og að ljúga heima og erlendis.“ n Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri – jonas.is 8. júní 2011 „Nú krefjast þeir Atli, Steingrímur og Ögmundur þess, að Geir H. Haarde sæti tveggja ára fangelsi fyrir að hafa verið pólitískur andstæðingur þeirra, því að auðvitað vita þeir jafnvel og aðrir, að Geir framdi engan glæp, braut engin lög. Sök hans er sú ein að vera í röngum flokki.“ n Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ – pressan.is 8. júní 2011. „Auðvitað hefði ég viljað að til þessa þyrfti ekki að koma enda var atkvæði mitt á þann veg.“ n Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra – blaðamanna- fundur 7. júní 2011. „Geir er að niðurlægja sjálfan sig með yfirlýsingum um að þetta séu pólitísk réttarhöld.“ n Þór Saari alþingismaður – DV.is 6. júní 2011. „Pólitískum réttarhöldum fylgja venjulega mannréttindabrot. En kannski skiptir persónan og einstaklingurinn Geir H. Haarde ekki vinstri græna máli – hann er jú sjálfstæðismaður.“ n Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir alþingismaður – pressan.is 6. júní 2011. Orðrétt um Geir Haarde Var það rétt ákvörðun að ákæra Geir Haarde? „Nei, það var ekki rétt ákvörðun.“ Elsa Þorkelsdóttir 58 ára lögfræðingur „Nei.“ Halldór Jónsson 58 ára prestur „Ég veit bara ekkert um það.“ Anna Kristín Gunnlaugsdóttir 18 ára nemi „Það var ekki rétt ákvörðun.“ Ingibjörg Finnbogadóttir 31 árs nemi „Nei, alveg handviss um það.“ Kjartan Jón Bjarnason 20 ára nemi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.