Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Page 26
26 | Fréttir 10.–14. júní 2011 Helgarblað
Lán til endurbóta
og viðbygginga
Íbúðalánasjóður veitir lán til endurbóta á húsnæði að innan og utan.
Meðal annars eru veitt lán til lóðarframkvæmda og viðbóta við húsnæði.
Lán geta numið allt að 80% af framkvæmdakostnaði. Hámarkslán eru
20 milljónir og lánstími 5 til 40 ár. Sömu vextir eru á þessum lánum og
almennum lánum Íbúðalánasjóðs.
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
„Karl Rúnar á ekkert land hér – og
ef að hann telur sig eiga það þá á
hann að sækja það löglega en ekki
vaða hér upp með frekju og yfir
gangi,“ segir Markús Ársælsson,
kartöflubóndi í Þykkvabæ og sveit
ungur Karls Rúnars Ólafssonar.
Karl Rúnar hélt því fram í mánu
dagsblaði DV að hann hefði ver
ið að störfum á sinni eigin land
spildu þegar hópur manna veittist
að honum. En samkvæmt dómi
Hæstaréttar frá árinu 2010 er hóp
ur bænda í Þykkvabæ þinglýstur
eigandi jarðarinnar og Karl hafði
ekki afnot af henni.
Markús segir að dráttarvél Karls
hafi verið notuð til skemmdar
verka sem unnin voru á tveimur
kartöflugörðum í Þykkvabæ, þar á
meðal hans eigin.
Átök í kartöflugarði
Á miðvikudaginn í þar síðustu
viku kom einnig til átaka á milli
Karls Rúnars annars vegar og
annarra kartöflubænda í Þykkva
bæ hins vegar þar sem Karl Rúnar
var að ljúka niðursetningu á land
spildu á svokölluðu Borgartúns
nesi í Þykkvabæ. Feðgarnir Birkir
Ármannsson og Ármann Ólafsson
voru þar á traktorum og að sögn
Karls óku þeir traktorum sínum á
niðursetningarvél hans. En feðg
arnir hafa aðra sögu að segja. Þeir
segja tjónið vera algjörlega vegna
athæfis Karls sjálfs og ekki af þeirra
völdum.
Umdeild spilda
Atvikið var afleiðing áralangrar
deilu um spilduna sem staðsett er
á Borgartúnsnesi. Í stuttu máli til
heyrði umræddur kartöflugarður
jörðinni Háfi í Þykkvabæ sem Karl
Rúnar á nú og keypti af foreldrum
sínum fyrir þó nokkrum árum. En í
sölusamningi á milli fyrri eiganda
jarðarinnar, Jóns Sigurðssonar, og
foreldra Karls, kemur fram að und
anskilin sölunni sé „óuppmæld
spilda í Borgartúnsnesi, þar sem
Þykkvabæingar hafa verið og eru
með garðafnot.“
Spildan er þessi umræddi kart
öflugarður samkvæmt feðgunum
og öðrum sveitungum sem fóru
til þess að tala við Karl Rúnar hið
umrædda miðvikudagskvöld. Þá
hafa feðgarnir ásamt öðrum feng
ið eignayfirlýsingu á spildunni
þinglýst. En Karl Rúnar telur sem
svo að hann eigi spilduna þar sem
hann sé eigandi Háfs.
Frekja og yfirgangur
„Karl Rúnar á ekkert land hér,“ segir
Markús Ársælsson, sem er bóndi í
Þykkvabæ og hefur afnot af spildu
á Borgartúnsnesi. „Þessi spilda var
seld undan Háfi löngu áður en Karl
keypti Háf, og ef hann telur sig eiga
eitthvað í henni þá skal hann bara
sækja það löglega en ekki vera með
þennan yfirgang,“ segir Markús enn
fremur og bendir á að Karl Rúnar
hafi ekki getað sýnt fram á lögvarið
eignarhald á spildunni. „En hann
hóf ræktun á landinu samt sem
áður.“
Fyrir tveimur árum sáði Karl
korni í landið í óþökk þeirra sem
höfðu haft afnot af því síðustu 60 ár
eða svo. Markús tætti uppskeruna –
enda hefur hann, að eigin sögn, af
not af jörðinni og Karl ekkert tilkall
til hennar. „Hann kærði mig fyrir
það – að tæta uppskeru á landi sem
ég hef afnot af – og ég var náttúru
lega sýknaður af þeirri kæru,“ segir
Markús.
Tæplega hálfrar milljónar tjón
Markús sýndi blaðamanni hvar
dráttarvél Karls Rúnars á að hafa
unnið gríðarlegar skemmdir. Í tveim
ur kartöflugörðum í Þykkvabæ hafði
verið rótað upp með stórri vinnu
vél. „Ég get ekki sagt hver stjórnaði
henni, en ég get sagt að þetta var
dráttarvélin hans Kalla sem var not
uð í þetta,“ segir Markús og bendir á
að skemmdirnar á hverjum garði fyr
ir sig hlaupi á tæplega hálfri milljón.
„Ég fékk tilboð frá verktaka um við
gerð á garðinum. Það hljóðaði upp á
422.000 krónur.“
Þar er um gríðarlegt tjón að ræða
og í ljósi þess að kartöflugarðarnir
eru lífsviðurværi bændanna er þetta
alvarleg aðför að afkomu þeirra,
sama hver ber ábyrgð á skemmdar
verkunum sem hafa verið kærð til
lögreglu.
Hafði unnið í spildunni
Tildrög atburðanna á miðvikudags
kvöld voru þau að Birkir Ármanns
son, annar feðganna, hafði lokið við
að undirbúa spilduna í Borgartúns
nesi undir kartöflurækt. Daginn eftir
hóf Karl niðursetningu í landinu
sem Birkir var búinn að undirbúa
en þá var hinn síðarnefndi í jarðar
för í bænum. Markús segir Karl hafa
nýtt sér vinnu Birkis á landspildunni.
„Hann vissi að Birkir væri að vinna
þarna. Af hverju stoppaði hann ekki
vinnuna, fyrst að hann heldur því
fram að hann eigi jörðina?“ Þegar út
spurðist að Karl væri að hefja niður
setningu á jörðinni þá mættu þó
nokkrir sveitungar Karls á svæðið,
þar á meðal Birkir og faðir hans, Ár
mann.
Segir menn hafa mætt vopnaða
Lýsing Karls á atburðinum var væg
ast sagt ógnarleg: „Þarna var kominn
stór hópur fólks, á annan tug manna.
Konur, menn og krakkar og sumir
hverjir með járnstikur,“ segir hann og
bætir við að menn hafi haft í morð
hótunum við hann. Aðra sögu segja
feðgarnir tveir. „Þetta er náttúru
lega bara rangt hjá Karli,“ segir Birk
ir í samtali við DV. „Við fórum þarna
til þess að tala við hann.“ Karl seg
ir Birki hafa reynt að rífa sig úr trak
tornum og ætlað að beita hann of
beldi en það segir Birkir vera helbera
lygi. Slíkt hið sama eigi við um morð
hótanirnar.
„Algjörlega fráleitt“
Sigurbjartur Pálsson, stjórnar
maður í Bændasamtökunum og
landeigandi, var einn þeirra sem
fór með feðgunum til þess að ná
tali af Karli. Aðspurður hvort Karl
færi með rétt mál um að þeir hefðu
verið vopnaðir sagði hann það ekki
svo. „Nei. Það er algjörlega fráleitt.
Það var enginn annar ásetningur
en að spyrja hann hvað hann væri
að gera þarna,“ segir Sigurbjartur
við blaðamann. „Þeir ætluðu að
reyna að stoppa hann vegna þess
að þeir vildu tala við hann. Hann
var að setja niður kartöflur í garð
lendi sem að þeir eiga.“ Hann seg
ir einnig að Karl sjálfur hafi vald
ið þeim skemmdum sem urðu á
tækjum hans. „Í öllum tilfellum
þar sem að vélarnar nudduðust
saman var það vegna þess að Karl
ók á þá.“
Segir hina bændurna
öfundsjúka
Karl sagði í samtali við DV á sunnu
daginn að samkeppnin væri hörð í
kartöflubransanum og taldi það
líklegast hafa sitt að segja í við
brögðum bræðranna. „Ég er nokk
uð stór í kartöfluræktinni og það fer
fyrir brjóstið á sumum,“ sagði hann
við blaðamann. Hann taldi því öf
und eiga sinn þátt í meintu andófi
gegn sér. Markús er þó á öndverð
um meiði og segir enga öfund vera
á ferð. „Það er enginn öfundsjúkur
hér út í Karl. Það skiptir engu
hversu stór hann er og þrátt fyrir
að hann haldi það þá er enginn hér
sem öfundar hann,“ segir Markús.
Undarlega farið með
staðreyndir
„Mér þykir Karl fara undarlega
með staðreyndir,“ segir Markús
enn fremur um frásögn Karls. Karl
rak dómsmál vegna spildunnar
fyrir þó nokkrum árum og í kjöl
far þess að hann vann ekki það
mál töldu Markús og aðrir bændur
í sveitinni að Karl myndi láta þar
við sitja. DV hefur undir höndum
sölusamninginn sjálfan þar sem
umrædd spilda er undanskilin
sölunni á Háfi. „En hann heldur
bara áfram og olli áðurnefndum
skemmdum á garðinum mínum og
garði annars bónda. Hann fór yfir
strikið,“ segir Markús Ársælsson,
kartöflubóndi.
„Hann er bara
að reyna að
eyðileggja fyrir okkur, ég
sé enga aðra ástæðu fyrir
þessu.
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
„Hann fór yfir strikið“
n Áralöng deila um kartöflugarð n Karl Rúnar hefur tapað dómsmáli
n Sakaður um að hafa valdið gífurlegum skemmdum á görðum annarra
Markús Ársælsson Hefur átt í langri
deilu við Karl Rúnar vegna landspildunnar.
Skemmdir Markús segir dráttarvél Karls
Rúnars hafa verið notaða til skemmdarverka
þeirra sem hér sést að voru unnin á garði hans.
Karl Rúnar Ólafsson Sagði menn hafa
veist að sér og valdið milljónaskemmdum á
vél sinni.