Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Side 28
28 | Erlent 10.–14. júní 2011 Helgarblað
„Að lýsa Ann Dunham sem venju-
legri hvítri konu frá Kansas veitir þér
álíka miklar upplýsingar og ef þú
segðir son hennar vera stjórnmála-
mann sem hefur gaman af því að
spila golf.“ Þetta segir blaðamaður-
inn Janny Scott, sem lauk nýverið við
ævisögu Ann Dunham, móður Bar-
acks Obama. Scott varpar ljósi á ein-
staka konu sem fór sínar eigin leið-
ir en hingað til hefur lítið verið rætt
og ritað um Dunham. Obama sjálfur
skrifaði til að mynda æviminningar
árið 1995 undir titlinum Draumar
handa föður mínum (Dreams for
My Father), sem mörgum þykir gefa
til kynna að forsetinn hafi að nokkru
leyti afneitað arfleifð móður sinnar,
sem hann þekkti auðvitað mun bet-
ur. Föður sinn hitti Obama aðeins
einu sinni eftir að hann komst til vits
og ára. Obama, eða „Barry“, eins og
móðir hans kallaði hann alltaf, hef-
ur þó sagt í viðtölum: „Starf mitt sem
stjórnmálamaður mun ávallt grund-
vallast á því sem hún kenndi mér.“
Fór óhefðbundnar leiðir frá
byrjun
Stanley Ann Dunham fæddist í Kan-
sas árið 1942. Foreldrar hennar
voru þau Madelyn Payne og Stanley
Dunham, en Ann var skírð í höfuð-
ið á föður sínum. Faðir Ann var tal-
inn dreyminn ævintýramaður, sem
ákvað að skrá sig í herinn eftir árás
Japana á Pearl Harbour. Átti það eftir
að greiða götu hans í skóla í Berkeley
í Kaliforníu eftir að stríðinu lauk, og
þangað flutti fjölskyldan árið 1946.
Stanley Dunham var því miður ekki
mikill námshestur og gafst upp á
náminu án þess að ljúka við gráðu.
Fjölskyldan fluttist til smábæjarins
Mercer Island, í úthverfi Seattle, þar
sem Stanley hóf störf sem húsgagna-
sölumaður.
Ann hóf nám við Mercer High
School sem þá var nýstofnaður og
hafði talsvert aðrar áherslur en aðrir
gagnfræðaskólar. Þar komst hún í
kynni við kennara sem átti eftir að
hafa mikil áhrif á hana, Jim Wich-
terman, en hann átti síðar eftir að
verða sakaður um að vera komm-
únisti – sem var glæpsamleg ásök-
un í Bandaríkjunum þá, og jafnvel
enn. Wichterman lagði fyrir nem-
endur sína lesefni sem unglingar
áttu kannski ekki að venjast. Ekki
aðeins voru þeir farnir að lesa frjáls-
lynda heimspekinga eins og Hobbes,
Locke og Mill, heldur einnig Marx,
Sartre og Camus. Dunham þreifst vel
í tímum hjá Wichterman og var þá
þegar farin að synda á móti straumn-
um, ef svo má segja, en mikla athygli
vakti að hún sagðist vera trúleysingi,
sem var einkar fátítt í hinum kristi-
legu Bandaríkjum eftirstríðsáranna.
Flutningur til Hawaii
Árið 1960 fluttist Dunham-fjölskyld-
an til Hawaii, þar sem Stanley fékk
tækifæri til að reka sína eigin hús-
gagnaverslun. Madelyn hóf störf í
Hawaii-banka, en þar átti hún eft-
ir að verða brautryðjandi síðar meir
með því að verða fyrsta konan til að
gegna stöðu aðstoðarforstjóra.
Þegar Ann Dunham hóf nám við
Hawaii-háskóla var skólinn í mikilli
gerjun. Lyndon B. Johnson, þá þing-
maður og síðar varaforseti og for-
seti, hafði þá fengið samþykkta 10
milljóna dala áætlun til að styrkja
menningartengsl Bandaríkjanna
og Asíu, sem varð til þess að Aust-
ur-vestur-stofnunin var sett á lagg-
irnar við skólann. Þar gátu nemend-
ur tekið námskeið í hindí, sanskrít,
indónesískum tungumálum, sem
Ann og gerði. Fjölmargir nemendur
skólans voru skiptinemar af erlendu
bergi brotnir, flestir frá Asíu. Banda-
rískir nemendur voru hvattir til að
blanda geði við skiptinemana og öf-
ugt, því aðeins með slíkum samskipt-
um myndu nemendurnir læra á, og
kunna að meta, framandi menning-
arheima. Einn þessara skiptinema
átti reyndar ekki rætur að rekja til
Asíu, heldur Afríku – Kenía nánar til-
tekið. Sá maður var Barack Obama
eldri, sem heillaði Ann upp úr skón-
um. Þau byrjuðu saman í október
árið 1960, þegar Ann var ekki orðin
18 ára. Hún varð ófrísk í nóvember og
þau ákváðu að gifta sig á laun, þó að
Stanley og Madelyn hafi lagt blessun
sína yfir sambandið þegar þau fréttu
af því. Þegar Obama eldri og Ann
Dunham giftust var hjónaband milli
kynþátta ennþá bannað með lögum
í 20 ríkjum Bandaríkjanna.
Fjarbúðin gekk ekki
Hjónabandið átti hins vegar ekki eftir
að verða langlíft. Obama yngri fædd-
ist í ágúst 1961, en þá var þegar far-
ið að hrikta í stoðum hjónabandsins.
Obama eldri var Ann ótrúr og að lok-
um fór svo að hann fluttist til Massa-
chussetts til að nema við Harvard-
háskóla. Eftir að Ann frétti að Obama
væri byrjaður að búa með annarri
konu, ákvað hún loks að sækja um
skilnað.
Ann hafði þá þegar hitt tilvonandi
seinni eiginmann sinn, jarðfræði-
nema frá Indónesíu, Lolo Seotoro.
Dóttir þeirra, og þar með hálfsystir
forseta Bandaríkjanna, Maya, sagði
eitt sinn að móðir sín hefði heillast
af Lolo „vegna þess að hann leit svo
tignarlega út í stuttbuxum á tennis-
velli.“ Eitthvað hlýtur að hafa verið
meira á bak við samband þeirra Lolo
og Ann, að minnsta kosti nóg til þess
að þau giftu sig árið 1964 og fluttu
síðan saman til Indónesíu árið 1967,
eftir að Ann hafði lokið við BA-gráðu
í mannfræði.
Ástfangin af Indónesíu
Ann Dunham var sem áður segir ekki
aðeins hrifin af Lolo Seotoro í stutt-
buxum. Hún féll kylliflöt fyrir indó-
nesískri menningu sem hún átti
síðan eftir að rannsaka með hléum
út ævi sína. Lolo fékk starf hjá olíu-
fyrirtækinu Union Oil, bandarísku
fyrirtæki sem flutti út olíu frá Indó-
nesíu. Vegna starfsins þurfti Lolo í
raun að venjast glanslífi Vesturlanda,
með tilheyrandi kokteilboðum og
tengslamyndun fyrirtækjaheimsins.
Þetta var heimur sem Ann þekkti, en
fyrirleit á sama tíma. Að lokum varð
starf Lolo bitbein hjónabandsins,
á meðan Ann vildi frekar eyða tíma
sínum með fátækum almúganum
og grennslast fyrir um hvern kima
indónesískrar menningar, var Lolo
fastur í kokteilboðum þar sem aðr-
ar hefðarfrúr „voru til fyrirmyndar“,
og drukku kampavín eiginmönnum
sínum til samlætis.
Með Barry til Hawaii
Ann ákvað að flytja aftur til Hawaii
með 10 ára son sinn árið 1971. Þar
hóf Barry Obama loks nám í banda-
rískum skóla og Ann skráði sig í
meistaranám í mannfræði. Engan
þarf að undra að umfjöllunarefni
hennar í meistaraverkefni sínu var
indónesísk menning. Hún var sér-
staklega heilluð af vefnaðariðn, sem
er einstök í þessum heimshluta, og
taldi nauðsynlegt að flytja aftur til
Indónesíu til að kynnast henni betur.
Upp frá því bjó Barry Obama hjá afa
sínum og ömmu.
Samferðamenn Dunham segja
hana hafa verið einstaklega færan
mannfræðing. Að komast inn í fram-
andi menningarhópa sem utanað-
komandi aðili er ekki öllum gefið,
þá sérstaklega þegar um er að ræða
hvíta konu frá Vesturlöndum. Ann
átti þó gott með að öðlast traust inn-
fæddra, þrátt fyrir hleypidóma og
tungumálaörðugleika. Hápunktur-
inn á fræðimannsferli hennar er tví-
mælalaust þegar hún varði doktors-
ritgerð sína við Hawaii-háskóla árið
1992, Surviving Against the Odds:
Village Industry in Indonesia, en
hún var loks gefin út í bókarformi
árið 2009.
Fjölbreyttur starfsferill
Ann Dunham var kona sem fór sann-
arlega sínar eigin leiðir, sérstaklega
í ljósi aðstæðnanna sem hún bjó
við – hvort sem var í Indónesíu eða
Bandaríkjunum. Starfsferill hennar
var fjölbreyttur, náði allt frá ensku-
kennslu fyrir fátæka Indónesa, til
ráðgjafarstarfa fyrir Rakyat-bankann
í Indónesíu og Alþjóðabankann sjálf-
an. Þar sem Dunham var einn helsti
sérfræðingur um iðnað sem var smár
í sniðum, meðal annars vefnaðar-
iðnað í smáþorpum, urðu rannsókn-
ir hennar og ráðgjöf einn helsti hvat-
inn að míkrólánunum svokölluðu
– sem Grameen-bankinn og Moha-
med Yunus áttu síðar eftir að hljóta
Nóbelsverðlaun fyrir að veita.
Árið 1994, þegar Dunham bjó enn
í Indónesíu, fann hún fyrir miklum
magaverk – sem reyndist vera leg-
hálskrabbamein. Ann Dunham lést í
Honolulu á Hawaii í nóvember 1995,
tveimur vikum fyrir 53 ára afmæli
sitt.
Fór sínar eigin leiðir
n Ann Dunham, móðir Baracks Obama Bandaríkjaforseta, var kona sem átti ævintýralega ævi
n Hún fór ævinlega sínar eigin leiðir og þótti sjálfsagt að synda á móti straumnum
Fjölskyldumynd Lolo, Ann með Mayu
í fanginu, og Barry. Það er óneitanlega
svipur með mæðginunum.
„Starf mitt sem
stjórnmálamaður
mun ávallt grundvallast á
því sem hún kenndi mér.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is