Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Page 31
Viðtal | 31Helgarblað 10.–14. júní 2011 einfaldasta lausnin er að vísa þess­ um gesti á dyr heldur gengur út með honum, leiddur af Bakkusi, yfirþjóni djöfulsins. Ég segi að Bakkus sé yfir­ þjónn djöfulsins því hvergi er eyði­ leggingin meiri. Hugsaðu um ógnina sem marg­ ir búa við. Alla sem búa við kvíða í dag því þeir óttast að handrukkarinn komi. Alla sem eru kvíðnir yfir því að þurfa að útvega sér efni í dag. Eru gjaldþrota eða í fangelsi. Það er nátt­ úrulega ekkert jafnrétti í þessu,“ segir hann hikandi. „Það eru bara strákar í fangelsi.“ Hann þagnar eitt augnablik en bætir því svo við að stelpurnar fari aðrar leiðir. „Þær selja líkama sinn. Strákarnir síður en það þekkist líka.“ Gætum grætt mikið „Svo er það hin nýja vá, kannabis, sem er dregið upp sem lausnar­ inn,“ segir hann hugsi. „En þegar ég kem inn á meðferðarstöðvar og ræði við fólk kemur mörgum saman um það að þetta sé hættulegasta efnið. Því það er svo mikil lygi fólgin í því. Það er dulbúið, sagt að það sé nátt­ úrulegt, en það fer líka í heilann og veldur þunglyndi og andfélagslegri hegðun. Lygarnar eru miklar í kringum öll þessi efni. Kannski af því að það eru svo miklir peningar í húfi. Þetta er stór hluti af efnahagskerfinu. Það er allt gert til þess að fá nýja neytend­ ur. Alveg eins og maður sem selur fisk gerir allt til að selja fiskinn sinn gerir maður sem er að selja vín allt til að selja vínið. Ef einhver deyr af völdum þess þarf hann að fá nýjan kaupanda. Markaðurinn er ungling­ arnir og börnin, neytendur framtíð­ arinnar. Yfir hvítasunnuna munu vænta­ lega margir fá sér í glas, líkt og aðra frídaga. En fyrir hundrað árum var samþykkt á Alþingi Íslendinga að banna neyslu áfengis í þessu landi. Ástæðan var ekki sú að Íslendingar væru fasistar heldur var áfengið búið að eyðileggja svo mikið. Bindindi var eitt af stefjum kvennabaráttunnar sem og verkalýðsbaráttunnar því fólk sá hvaða ógn stafaði af áfenginu. Sá sem myndi tala um áfengisbann á Ís­ landi í dag yrði talinn geggjaður. Ef íslenska þjóðin gæti verið edrú í þrjá mánuði myndi hún græða mikið.“ Drykkjan eins og trúarathöfn Í allri umræðu um hrunið skortir alla gagnrýni á áfengisneysluna að mati Karls Valgarðs. „Brennivínsveislum var slegið upp og því er jafnvel haldið fram að kókaín hafi komið við sögu. Kókaín gerir mennina geggjaða og lætur þá halda að þeir séu guðir. Áfengi getur gert það líka. Það hefur ekki verið skoðað hver var leiðarstjarna samfélagsins fyrir hrunið. Það var gullið, Mammon og Bakkus. Hámarki náði veislan þegar við fórum að borða gull á búðingi. Þetta var dýrkun. Í Gamla testament­ inu segir að Drottinn sé þinn Guð og að þú skulir ekki aðra guði hafa og í upphafi fjallræðunnar varar Kristur við því að menn þjóni Mammoni. En menn gerðu sér kálf úr gulli og dönsuðu í kringum hann. Fólk talar stundum um að það sé búið að koma sér vel fyrir í heiminum en áttar sig ekki á því að heimurinn er búinn að koma sér fyrir í því, efnishyggja og nautnasemi. Slíkt endar með dauða, andlegu svartnætti. Ef Guð er dauð­ ur þá er allt leyfilegt. Þá þurfum við ekki að svara fyrir það frammi fyrir neinum. Í stúkunum í gamla daga og í ung­ mennafélögunum var gengið út frá spurningunni, hvernig verður lífið gleðilegt? Við þurfum að spyrja okk­ ur að því hvernig barnið okkar geti eignast gott og fallegt líf. Hvað skap­ ar gleði í lífinu? Er það stundin þegar hinn gullni bikar er við hönd, krist­ alsglasið fyllt gylltum vökva eða er það eitthvað annað? Vínið hefur víða guðlegan sess. Fólk horfir til þess að setjast niður og drekka, eiga sam­ félag. Þetta er eins og trúarathöfn. Þar sem andinn er vínandinn,“ seg­ ir hann með áherslu. „Spirit,“ bæt­ ir hann við og slær höndunum upp í loft. „Heilagur andi. Þetta er kallað vínandi af því að þetta skapar ákveð­ inn anda.“ Var í herbergi Bakkusar „Íslendinga skortir upp til hópa trú,“ segir hann rólegri og sýpur á kaffinu. „Það eru til alls konar skilgreining­ ar á manninum sem heimspeking­ ar, listamenn og aðrir leika sér með. Hvað er maðurinn? spyrja þeir og koma með ýmis svör: Maðurinn er félagsvera, dýr samfélagsins, maður­ inn er það sem hann borðar, maður­ inn er það sem hann hugsar, mað­ urinn er það sem hann gerir og þess háttar. Einn þeirra segir að maðurinn sé það sem hann trúir á, birtingar­ mynd trúar sinnar. Ef einhver hlakk­ ar til þess eins að eiga góða stund með strákunum með bjór yfir bolt­ anum, ef það er kikkið í lífi hans þá er það hans trú. Sá hinn sami getur sagt að hann trúi á Jesúm, Búdda eða hvað sem er en það eru bara orð. Á meðan ég var enn að drekka trúði ég á Guð en það var bara trúar­ lega falleg hálfvelgja. Guð var alltaf að banka á dyrnar en ég var í her­ bergi Bakkusar og hleypti honum ekki inn. Guð er góður möguleiki er minn möguleiki í dag. Nú erum við í vanda vegna brennivíns og gulldýrkunar og fólk telur sig vera fórnarlömb glæpa­ manna. Margir tóku lán í góðri trú en skoðuðu þeir trú sína? Voru þeir í góðri trú? Ég held ekki. Þessi góða trú var vond því hún var drifin áfram af græðgi. Ég á heima á Íslandinu góða, sagði fólk. En ég held að það yrði þjóðinni til góðs ef hún gæti til­ einkað sér þá trú sem feður hennar höfðu og gaf þeim kraft og hugrekki til að komast úr þrælahlekkjunum.“ Gríðarleg reynsla að takast á við handrukkara Honum er mikið niðri fyrir þegar hann segir að við þurfum að taka okkur verulega á og útskýra það fyr­ ir börnum og unglingum hvað alkó­ hól er hættulegt efni. „Samkvæmt umræðunni virðist transfita vera hættulegri en borðvín. Sömuleið­ is virðist sykur og gos hættulegra en bjór. Spurðu þrettán ára krakka hvort hann ætli að reykja. Hann segir nei. Ef þú spyrð aftur á móti hvort hann ætli að drekka segir hann já, það kemur að því. Af hverju? Fólk er að horfa á eftir börnunum sínum hverfa fjór­ tán, fimmtán og sextán ára í heim fíkniefnanna. Margir neita að trúa því að þetta sé að gerast, telja sér trú um að þetta geti ekki komið fyrir barnið þeirra, þetta sé misskilningur, bara smá fikt. Skömmin er til staðar af því að þetta tengist siðferðinu. En sá sem byrjar að neyta kanna­ bis í dag stingur öðrum fætinum inn í hinn svarta heim Íslands, heim­ inn þar sem svartur á leik. Fólk sem kemst í snertingu við heim handrukkaranna öðlast gríðarlega reynslu. Þessi heimur er svo öflugur. Auðvitað er erfitt fyrir foreldra að horfa upp á það að lögreglan taki barnið þeirra, setji það í handjárn og leiði það í burtu. Um leið er það ákveðin lausn og þú finnur fyrir létti.“ Hann tekur dæmi af stúlku sem deyr vegna þess að það er eitrað efni í umferð. „Fjölmiðlar birta þá fréttir af því að lögreglan sé að rekja slóð­ ina en svo gerist ekkert. Þetta er svo öflugur heimur. Ég vil samt taka það fram að ég upplifi lögregluna sem hjálparann. Þar er fólk sem skilur al­ vöru þessa máls.“ Sárt að sjá sorgina Hann lítur á klukkuna og sér að hann þarf að fara að drífa sig. Hann er að fara að kistuleggja klukkan tólf. Bakkus sigraði þann slag. „Það hafa svo margir strákar dáið, hengt sig eða skotið sig. Síðan líða dagarnir hver á fætur öðrum og við gleymum þessu. Skeytingarleysið er mikið og við hugsum ekki um þetta. Um daginn dó stelpa. Í fyrradag dó strákur af of stórum skammti. Ég var að tala við kærustuna hans í gær uppi á spítala. Tveimur dögum fyrr var annað atvik. Þar áður enn ann­ að atvik. Í þessum mánuði hafa fjór­ ir dáið svo ég viti til. Allt var þetta óendanlega verðmætt fólk sem féll vegna vímuefna,“ segir hann þungur á svip. „Hvar byrjar þetta? Fáðu þér einn kaldan. Þetta byrjar þar. Núorðið byrja sumir reyndar með kannabisi. Enda eru það skila­ boð úr skemmtanabransanum að það sé ekkert mál að fá sér jónu. En það er sárt að sjá fólk sem er kom­ ið í fjötra þess. Það á að vera gott og hugvíkkandi en smám saman einangrast fólk og efnin hætta að gefa því kikk. Það hættir ekki þar heldur fær sér önnur efni sem gefa kikk. Það alvarlegasta sem ég sé er sorgin í kringum þennan sjúkdóm. Fólk er að deyja. Á síðasta ári dóu margir af völdum þessa sjúkdóms.“ Togað úr víti og til lífsins En þetta er ekki vonlaust segir Karl. Því það sem er svo frábært við þenn­ an sjúkdóm að hans mati er hvað batahorfurnar geta verið góðar ef sjúklingurinn er jákvæður. „Ég vil að það komi fram að núna á þess­ um degi eru mörg þúsund Íslend­ ingar sem hafa losnað við áfengi úr lífi sínu og eiga mjög gott líf. Hér er fjöldi fólks að vinna gott starf, bæði á Hlaðgerðarkoti, Krísuvík og hjá SÁÁ og Samhjálp. Þar er fólk togað út úr víti og til lífsins. Trúin á Guð felur í sér mikla frels­ un. Hún er öflugt tæki í batanum og varðar leiðina til nýs lífs. Nú er búið að leggja starf mitt niður vegna nið­ urskurðar í kirkjunni, sem er miður því ég hef aldrei haft eins mikið að gera í mínum prestsstörfum frá því að ég var prestur á Ísafirði. Ég hef til dæmis farið reglulega inn á með­ ferðarstofnanir með fyrirlestra, ann­ ars vegar um afsiðun alkóhóls og hins vegar um sorg og alkóhólisma. Þar hef ég bent fólki á að það sé ekki þar inni til að laga sitt líf, heldur til að öðlast nýtt líf sem byggir á nýjum sjónarmiðum og öðrum viðmiðum. En því meiri sem meðvirknin er í umhverfinu því minni eru líkurnar á bata.“ Gleðin innra með okkur Hann hallar sér aftur í sætinu. „Meðvirkni þýðir að fólk gengur inn í sjúkdóminn og niður með alkó­ hólistanum, fer að virka með hon­ um. Þú leggur ekki í að segja neitt, ætlar bara að sjá til hvað gerist. Þegar hann heldur áfram byrjar þú og hann afsakar sig. Þú samþykkir afsakanirnar en veist undir niðri að það er ekki rétt. Hann heldur áfram og nú biðst hann afsökunar. Síðan fer hann að réttlæta sig og þú tekur þátt í því. Þú felur vand­ ann fyrir öðrum. Fyrir vikið stækk­ ar æxlið. Ég held að allir Íslending­ ar glími við meðvirkni. Mörg þúsund Íslendingar eru með kvíðahnút vegna fíkniefna, hvort sem það er vegna þeirra eig­ in neyslu eða einhvers sem þeir elska. Þú veist um nokkra sem hafa farið illa út úr þessu. Það vita allir um einhvern. Fólk hefur misst svo mikið, fjölskylduna, eigurnar og æru sína. Okkur stafar meiri ógn af alkóhóli en fjármálum. Ekki það, meðvirknin er víðar. Sumir þekkja til dæmis menn sem höguðu sér ósæmilega í bankakerfinu en vor­ kenna þeim. Ef við getum átt heilbrigt líf hér verður fólk hugdjarfara í baráttunni fyrir réttlætinu. Þetta snýst allt um viðhorf. Við þurfum að sýna fólki að við höfum ekki umburðarlyndi fyrir því að fimmtán ára börn fari á fyllerí. Og hvaðan kemur víman þá? Það sem veitir okkur gleðina? Það á að vera inni í okkur. Aflgjafi gleð­ innar á að vera innra með okkur sjálfum og með andlegu athæfi get­ ur hún vaxið og dafnað. Við getum öðlast þakklæti fyrir það að vera börn lífsins,“ segir hann að lokum. „Við eigum ekki að bíða eftir lífinu.“ „Auðvitað er erfitt fyrir foreldra að horfa upp á það að lög- reglan taki barnið þeirra, setji það í handjárn og leiði það í burtu. En um leið er það ákveðin lausn og þú finnur fyrir létti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.