Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Side 34
Ágætur vinur minn heldur því fram, að banna eigi framsókn-armönnum allan málflutning
nema í apótekum og þá einungis eft-
ir að hafa framvísað vottorði frá geð-
lækni. Og þessi vinur minn gerir þá
kröfu að ég yrki um þetta svo sem
eina vísu. Hann vill helst af öllu hafa
það níðvísu, enda veit hann sem er,
að um sumt verður aldrei ort neitt
nema sem níð og í þeim efnum er
Framsóknarflokkurinn til stakrar fyr-
irmyndar.
Mér er bæði skylt og ljúft að
minna þjóðina á, að þessi svokall-
aði bændaflokkur okkar Íslendinga
hefur, allt frá því er sá merki maður
Steingrímur Hermannsson fór þar
úr forustuhlutverki, átt einn flott-
asta niðurgang sem sögur fara af.
Daginn sem Halldór Ásgrímsson
tók við stjórn, breyttist ásýnd flokks-
ins frá því að vera hvítþvegin kór-
drengjafylking yfir í það að verða
hið sóðalegasta þjófafélag. Í slagtogi
við sjálfstæðismenn, náði Framsókn
svo að koma fólki einsog Finni Ing-
ólfssyni og Valgerði Sverrisdóttur að
kjötkötlum. Finnur situr uppi með
milljarða sem hann gaf sér á meðan
hann var ráðherra. Svo á hann líka
í Frumherja, fyrirtæki sem skoðar
bíla. (En við það fyrirtæki skipti ég
aldrei). Valgerður situr uppi með það
að hafa verið í fylkingarbrjósti þegar
Kárahnjúkakjaftæðið fór á kopp.
Að hafa hugmyndaflug til að
stofna stjórnmálaflokk sem fyrst og
fremst vill standa vörð um það loforð
að leyfa bændum að vera í sveitum
landsins, sama hvað það kostar okk-
ur hin, er náttúrlega algjör snilld. Og
maður spyr sig: Af hverju er ekki fyrir
löngu búið að stofna Afætubanda-
lagið eða Sægreifaflokkinn?
Reyndar er það nú svo að Afætu-
bandalagið og Sægreifaflokkurinn
eru til á Íslandi, réttu nöfnin eru bara
ekki í hávegum höfð.
Ef ég segi ykkur einsog er, þá
hélt ég að ég ætti ekki eftir að upp-
lifa neitt í líkingu við þá hræsni sem
fyrirfinnst í samfélagi dagsins í dag
á Íslandi. Hér erum við með ríkis-
stjórn sem reynir af veikum mætti
að halda hriplekri þjóðarskútu á
floti. Og í stjórnarandstöðu erum við
með fólk sem reynir að koma í veg
fyrir að stjórnin nái að vinna sín verk
af heilum hug. Stjórnarandstaðan
gagnrýnir allt sem stjórnin gerir. En
í stjórnarandstöðu fara fremst þeir
flokkar sem eyðilögðu okkar ágæta
samfélag með græðgi, óhófi og spill-
ingu.
Ég hef um Ásmund Einar sagt:
– Hann er í flórinn sokkinn
og hefur núna lag sitt lagt
við litla þjófaflokkinn.
34 | Umræða 10.–14. júní 2011 Helgarblað
„Það er bara kjaftæði.
Þeir myndu aldrei fokking
þora því.“
n Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, foringi
Black Pistons hér á landi sem nú heitir
Outlaws Prospect, um það hvort
samfangar hans á Litla-Hrauni kalli hann
„Nunnuna“. – Vísir
„Það gengur
ekki allt upp.“
n Fyrirsætan Kristrún
Ösp Barkardóttir um
sambandsslit sín og
Sveins Andra Sveinssonar
lögfræðings. Hún segir engin illindi vera
þeirra á milli enda sofi þau enn í sama
rúmi. – DV
„Með því að vera fyrri til
færði hann umræðuna að
þeim atriðum
sem hann vill
tala um.“
n Andrés Jónsson
almannatengill um
PR-stríð Geirs Haarde vegna máls
hans sem er fyrir landsdómi. Andrés segir
hann hafa áhrif á umræðuna með því að
hafa boðað til blaðamannafundar og
tekið af skarið. – DV
„Þá verða
vínber að vera
svo fersk, að
þegar þau eru
hrist slitna þau
ekki úr klasanum.“
n Úr kröfulista Eagles. – Fréttablaðið
Ofbeldi auðmanna
Bókstaflega
Forarpyttir Framsóknar
Skáldið skrifar
Kristján
Hreinsson
„Reyndar er það
nú svo að Afætu-
bandalagið og Sægreifa-
flokkurinn eru til á Íslandi,
réttu nöfnin eru bara ekki
í hávegum höfð.
Blásaklaus Geir
n Einhverjir hafa undrast þá konung-
legu meðferð sem Geir H. Haarde fær
í fjölmiðlum og sérstaklega á vegum
ríkisins. Geir er
sakborningur,
grunaður um stór-
fellda vanrækslu
í embætti sem
forsætisráðherra.
Hann er þannig
talinn bera hvað
stærsta ábyrgð
á hruni Íslands.
Hver ríkisfjölmiðillinn af öðrum hefur
tekið gagnrýnislaus viðtöl við Geir þar
sem sakleysi hans er uppmálað. Hin
grjótharða Þóra Arnórsdóttir, spyrill
Kastljóss, sem ekki kallar hvað sem
er ömmu sína var á sömu blíðu nót-
unum. Fátt um gagnrýnar spurningar.
Menn velta fyrir sér hvort aðrir grun-
aðir fái svipað kjass í framtíðinni.
Samstaða sakamanna
n Meðal áköfustu stuðningsmanna
sakborningsins Geirs H. Haarde,
er annar grunaður einstaklingur. Á
fremsta bekk
á stuðnings-
mannafundi
Geirs í Hörpunni
sat Ingvi Hrafn
Jónsson, sjón-
varpsstjóri ÍNN,
sem er rétt eins
og fallni foringinn
fyrir dómi. Ingvi
er þó ekki grunaður um aðgerðaleysi
heldur þær vafasömu aðgerðir að hafa
haldið eftir 10 milljónum frá skatt-
inum og hefur hann lýst yfir sakleysi.
Spurt er hvort Ingvi muni einnig efna
til stuðningsmannafundar í Hörpu
vegna ofsókna.
Basl á Eyjunni
n Sá öflugi útgefandi, Björn Ingi
Hrafnsson, er sagður hafa nokkrar
áhyggjur af vefmiðlinum Eyjunni,
sem hann keypti fyrir nokkru. Þeir
umdeildu blaðamenn, Eiríkur Jóns-
son og Jakob Bjarnar Grétarsson,
voru fengnir til liðs við vefsíðuna
með tilheyrandi kostnaði. Auk þess
var Illuga Jökulssyni snarað um
borð við hlið Karls Th. Birgissonar
ritstjóra. Það breytir ekki þeirri
stöðu að aðsóknin minnkar stöðugt
og náði hún í upphafi vikunnar
sögulegu lágmarki síðari tíma.
Bloggarar hafa flúið vefinn í kippum
og eftir stendur baslið eitt.
Árni á spena
n Árni Páll Árnason efnahags-
ráðherra er í frekar slæmum
málum eftir að Stöð 2 upplýsti
að hann hefði
fengið verktaka-
greiðslur hjá
Íbúðalána-
sjóði upp á 40
milljónir króna.
Guðlaugur
Þór Þórðarson
alþingismaður
kallaði eftir
upplýsingunum sem treglega
gekk að fá fram. Hluti milljónanna
var greiddur eftir að Árni Páll
varð þingmaður. Það telst vera
vafasamt en þó löglegt. Víst er að
ráðherrann hugsar Guðlaugi Þór
þegjandi þörfina fyrir hnýsnina.
Sandkorn
tRyGGvAGötu 11, 101 ReykjAvík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
Ritstjórnarfulltrúi:
jóhann Hauksson, johann@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Svarthöfði
Þingmaðurinn fyrrverandi og auðmaðurinn, Gunnlaugur Sigmundsson, vill að fátæk-
ur bloggari og fjölskyldumaður, Teit-
ur Atlason, greiði sem nemur fjórum
milljónum króna fyrir ærumeiðing-
ar. Tilefnið er að Teitur gaf til kynna í
bloggfærslu að pólitísk áhrif Gunn-
laugs hefðu tryggt honum eignarhald
á fyrirtækinu Kögun. Allt er umdeilan-
legt sem sagt er og skrifað. Það er sjálf-
sagt og eðlilegt að Gunnlaugur, eins og
allir aðrir, fái leiðréttingu sinna mála
og afsökunarbeiðni ef mál eru þann-
ig vaxin. En það er óboðlegt að hann
komist upp með að steypa bloggar-
anum í fjárhagslega glötun. Það eru
engin rök fyrir því að Teitur greiði sem
nemur rúmlega árslaunum sínum
fyrir þau ummæli sem fram eru bor-
in, eins og Gunnlaugur krefst í stefnu
sinni. En auðmaðurinn er í raun að
krefjast þess að ungur fjölskyldumað-
ur verði gerður gjaldþrota. Það versta
er að málsóknin skiptir þann ríka
engu fjárhagslegu máli, hvort sem
hann vinnur eða tapar. Hann á mikið
meira en nóg og getur eytt milljónum
í að berja á öðrum. Aftur á móti eru
allar líkur á því að Teitur muni þurfa
að leggja út verulega fjármuni, jafn-
vel þótt hann vinni málið. Fyrir því eru
fordæmi. Blaðakonan Erla Hlynsdótt-
ir sem náði í undirrétti að verjast að-
för dópsmyglara þurfti samt sem áður
að greiða hundruð þúsunda króna
vegna varnarinnar. Teitur gæti því ver-
ið dæmdur til að tapa, hvernig sem fer
fyrir dómi.
Það eru fleiri auðmenn sem hafa
lagt upp í málssóknir gegn venju-
legu launafólki. Útrásarvíkingurinn
Pálmi Haraldsson, kenndur við Fons,
er með tvö meiðyrðamál í gangi á
hendur Svavari Halldórssyni, frétta-
manni Ríkisútvarpsins, þar sem hann
vill peninga í bætur fyrir frétt sem
hafi skaðað æru hans. Jón Ásgeir Jó-
hannesson, dæmdur athafnamaður,
vill sömuleiðis fá peninga frá Svav-
ari ríkisstarfsmanni vegna æruskaða.
Þriðji útrásarvíkingurinn, Hreiðar Már
Guðjónsson, áður einn nánasti sam-
starfsmaður þess umdeilda Björgólfs
Thors Björgólfssonar, er með tvö mál
í gangi gegn starfsmönnum DV og
krefst milljóna vegna umfjöllunar um
krónuviðskipti hans og samskipti við
kunna braskara. Hann hafði hótað að
lögsækja DV í nokkrum löndum vegna
umfjöllunarinnar sem átti að hafa
stórskaðað hann. Hann endaði þó á
lögsókn í Reykjavík.
Augljóst er að mönnum með fortíð
hefur vaxið kjarkur og áræði eftir því
sem lengra líður frá hruni. Nú er kom-
ið að upprisu þeirra sem vilja ganga á
milli bols og höfuðs á fjölmiðlamönn-
um. Eignalítið fólk er lögsótt, gjarn-
an af skrúðkrimmum, með það fyr-
ir augum að steypa því í fjárhagslega
glötun og ná þannig fram hefndum.
Fjöldi mála í dómskerfinu einkennist
af því ofbeldi sem reynt er að ná fram
í krafti auðs. Almenningur á Íslandi
hlýtur að þurfa að taka afstöðu til þess
sem er að gerast með það fyrir augum
að stöðva þá aðför sem hinir ríku gera
að tjáningarfrelsinu. Gott fólk verður
að taka saman höndum gegn föntum
sem beita fjárhagslegu valdi sínu gegn
venjulegu fólki. Gjaldþrot bloggara
og blaðamanna í þágu hefnigjarnra
eignamanna mun engum gera gott.
Fjölmiðlar mega ekki láta þagga nið-
ur í sér með þessum hætti. Íslend-
ingar verða að standa vörð um tján-
ingarfrelsið.
Hræsni er tegund af lygi. Hún er það ástand manns, að þykjast hafa skoðanir, eiginleika, gildi
og trú, sem hann fylgir síðan ekki sjálf-
ur. Stundum, þegar valdamenn setja á
svið skrípaleik fyrir skrílinn, sést glitta í
hræsnina bak við tjöldin.
1. Moldríki fram-
sóknarmaður-
inn Gunnlaugur
M. Sigmunds-
son, faðir Sig-
mundar Davíðs
framsóknarfor-
manns, hefur
stefnt bloggaranum Teiti Atlasyni fyrir
meiðyrði, með þeim orðum að Teitur
sé „galinn maður“. Algengasta merking
orðsins „galinn“ er að einhver sé „geð-
bilaður“. Gunnlaugur beitir fjárhags-
legu ofurefli sínu gegn tekjulitla blogg-
aranum til að draga hann fyrir dóm
fyrir meiðyrði, og lætur um leið meið-
yrði falla um hann. Hinn meinti meið-
yrti stefnandi er sjálfur orðinn meið-
yrðir, og þarf af leiðandi hræsnari.
2. Sjálfstæðismenn
kvarta undan póli-
tískum réttarhöld-
um yfir Geir Ha-
arde, á sama tíma
og Sjálfstæðisflokk-
urinn kaus einn all-
ur og óskiptur eftir hreinum flokkslín-
um í kosningu Alþingis um ákæruna
á hendur ráðherrunum fjórum, enda
samsekur Geir.
3. Geir H. Haarde stýrði Íslandi og Ís-
lendingum í mesta efnahagshrun
sem þjóðin þekkir, frá því að einhver
stærstu eldgos samtímasögunnar
ollu uppskerubresti, fjöldadauða og
fjárdauða í svokölluðum Móðuharð-
indum í lok átjándu aldar. Þegar Geir
notar orðin „hneisa“ og „skrípaleikur“
á hann ekki við það sem gerðist á hans
vakt og það sem almenningur þurfti
að líða fyrir. Hann á við að hann sé
dreginn til ábyrgðar, samkvæmt lögum
sem forveri hans í formannsstóli kom
í gegn á síðustu öld. Geir leigir sal í
tónlistarhöllinni Hörpu á 270 þúsund,
til þess að kvarta undan kostnaði við
málsvörnina. Talandi um skrípaleik.
4. Æviráðni há-
skólaprófessorinn
Hannes Hólm-
steinn Gissurarson,
einn harðasti frjáls-
hyggjumaður Ís-
lands fyrr og síðar,
hefur í áratugi lifað
nánast alfarið á ríkisfé, sem hefur rat-
að til hans fyrir tilstuðlan stjórnmála-
flokksins sem hann styður opinberlega
í öllum umræðum.
5. Björn Bjarna-
son, fyrrverandi
ráðherra Sjálf-
stæðisflokks,
hefur gefið út
bókina Rosa-
baugur yfir Ís-
landi. Þar kennir
hann fyrirtæk-
inu Baugi nánast alfarið um efnahags-
hrunið, sem varð eftir tæplega tveggja
áratuga samfellda valdatíð Sjálfstæðis-
flokksins. Hann gagnrýnir fjölmiðla-
menn sem störfuðu á fjölmiðlum í
eigu Baugs. Hann hefur hins vegar
aldrei gagnrýnt að Davíð Oddsson,
fyrrverandi leiðtogi Sjálfstæðisflokks,
hafi sjálfur verið ráðinn ritstjóri dag-
blaðs af hagsmunaaðilum í þjóðfélag-
inu, sem Sjálfstæðisflokkur hefur stutt
í áraraðir.
6. Steingrím-
ur J. Sigfússon
vildi kasta Al-
þjóðagjaldeyr-
issjóðnum úr
landi, en komst
svo til valda og
hóf samstarf við
hann. Steingrím-
ur má eiga að hann viðurkenndi að
hafa haft rangt fyrir sér. Alvöruhræsn-
arar hafa aldrei rangt fyrir sér.
BoðBerar hræsninnar
„Mönnum með
fortíð hefur vaxið
kjarkur.
Leiðari Reynir Traustason ritstjóri skrifar