Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Qupperneq 40
40 | Minning Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kgk@dv.is 10.–14. júní 2011 Helgarblað
Oddgeir H. Steinþórsson
Húsasmíðameistari f. 13.4. 1931 – d. 31.5. 2011
merkir íslendingar
Jónas fæddist á Skála-nesgrund við Seyðis-fjörð, sonur Guð-
mundar Jónassonar,
útgerðarmanns í
Brimneshjáleigu
við Seyðisfjörð,
og k.h., Valgerð-
ar Hannesdóttur
húsmóður.
Jónas lauk
kennaraprófi
frá Kennara-
skóla Íslands
1920, stund-
aði framhalds-
nám við Kenn-
araháskólann í
Kaupmannahöfn
og sótti íþróttanám-
skeið í Reykjavík. Hann
kenndi við Bændaskól-
ann á Hvanneyri og Barna-
skólann á Norðfirði og unglinga-
skólann þar, var framkvæmdastjóri
Fóðurmjölsverksmiðju Norðfjarðar,
eftirlitsmaður sveitarstjórnarmál-
efna á árunum 1939–52, skrifstofu-
stjóri félagsmálaráðuneytisins 1946–
53, framkvæmdastjóri Sambands
íslenskra sveitarfélaga 1945–67 og
forstjóri Bjargráðasjóðs
1952–67. Hann var for-
maður Verkalýðs-
félags Norðfjarðar
1924–28 og 1929–
37, ritstjóri Jafn-
aðarmanns-
ins á Norðfirði
1927–37 og
Alþýðublaðs-
ins í Reykja-
vík 1939, odd-
viti Neshrepps
í Norðfirði
frá 1925, síð-
ar bæjarfulltrúi
í Neskaup-
stað og forseti
bæjarstjórnar og
alþingismaður fyrir
Alþýðuflokkinn á tím-
um Stjórnar hinna vinn-
andi stétta 1934–37.
Jónas gegndi áhrifamiklum trún-
aðarstörfum við lagasetningu um
tryggingar- og velferðarmál. Hann
beitti sér fyrir aðstoð við drykkju-
sjúka og nútímalegri viðhorfum til
drykkjusýki, og var mjög áhugasam-
ur um austræna dulspeki og egypska
spádómsfræði.
Jónas Guðmundsson
Alþingismaður og ritstjóri f. 11.6. 1898 – d. 4.7. 1973
Merkir Íslendingar
Merkir Íslendingar
Kristinn fæddist á Helgustöðum við Reyðarfjörð.
Hann var sonur
Andrésar Runólfs-
sonar, bónda þar,
og f.k.h., Maríu
Níelsdóttur
Beck. Kristinn
var fjórmenn-
ingur við þá
bræður, Ey-
stein Jónsson,
ráðherra og
formann Fram-
sóknarflokks-
ins, og dr. Jak-
ob, sóknarprest
í Hallgrímskirkju,
föður Þórs veður-
fræðings, Svövu rit-
höfundar og Jökuls
leikritaskálds, föður Ill-
uga, Hrafns og Elísabetar.
Kristinn nam í Flensborg,
lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1922, mag. art.-prófi
í íslenskum fræðum frá Háskóla Ís-
lands og stundaði framhaldsnám í
bókmenntum í Kiel, Berlín og Leipzig.
Hann kenndi um skeið við Kvenna-
skólann, Iðnskólann og við Alþýðu-
skólann á Hvítárbakka en sneri sér
fljótlega að bókaútgáfu og átti eftir að
verða, ásamt Ragnari í Smára, þekkt-
asti bókaútgefandi þjóðarinnar á 20.
öld.
Kristinn var ritstjóri Sovétvinar-
ins 1933–36, Rauðra penna 1935–
39 og Tímarits Máls og menningar
1940–70. Hann var forstjóri bókaút-
gáfunnar Heimskringlu og síðan for-
stjóri Máls og menningar frá stofnun
1937 sem hann stýrði með miklum
menningarbrag og af fádæma dugn-
aði og hagsýni. Auk þess að vera
dugandi forstjóri var Kristinn
þingmaður fyrir Sósíal-
istaflokkinn á árunum
1942–46 og áhrifamik-
ill bókmenntafræð-
ingur. Í þeim efnum
var hann nestor
kommúnista og
fleiri vinstri-
manna. Hann
samdi yfirlitsrit-
ið Íslenzkar nú-
tímabókmenntir
1918–1948 sem
var mikið lesið.
Auk þess hafði
hann feikilega
mikil áhrif á ís-
lenskar bókmennt-
ir og skáldskap
vinstrimanna með
útgáfu sinni. Meðal
fjölda vildarvina Kristins
var Þórbergur Þórðarson
rithöfundur.
Kristinn sinnti auk þess ýmsum
opinberum trúnaðarstörfum, sat m.a.
í Menntamálaráði 1943–46, í Íslensk-
dönsku samninganefndinni 1945–46,
í bankaráði Búnaðarbankans 1945–
49 og í Útvarpsráði 1949–53. Hann
átti sæti í alþingissögunefnd og bygg-
ingarnefnd Þjóðminjasafnsins og var
í skiptanefnd skáldastyrks og lista-
manna 1946. Þá var hann skipaður í
nefnd til að vinna að endurheimt ís-
lenskra handrita frá Danmörku árið
1959.
Kristinn var formaður Sovétvina-
félagsins og sat í stjórn Menningar-
tengsla Íslands og Ráðstjórnarríkj-
anna, enda virðist hann ætíð hafa
verið sannfærður kommúnisti, hvað
sem reynslunni af Sovétríkjunum og
öðrum marxískum alræðisríkjum
leið.
Kristinn E. Andrésson
Bókaútgefandi f. 12.6. 1901 – d. 220.8. 1973
Oddgeir fæddist í Ólafsvík og ólst þar upp. Hann stundaði þar ýmis störf í landi á sínum yngri
árum sem tengdust sjósókn og var
handlangari í brúarvinnuflokki á ung-
lingsárunum.
Oddgeir stundaði nám við Héraðs-
skólann á Laugarvatni 1947–48, stund-
aði nám í húsasmíði við Iðnskólann í
Reykjavík frá 1949, lauk þaðan sveins-
prófi og öðlaðist síðan meistararétt-
indi, en iðnmeistari hans var Kristvin
Jósúa Hansson.
Oddgeir starfaði síðan allan sinn
starfsferil sem húsasmiður hjá ýmsum
meisturum, lengst af hjá Óskari Eyj-
ólfssyni, húsasmíðameistara hjá SÍS.
Þá var Oddgeir verktaki á eigin vegum
á síðari árum.
Oddgeir var jafnvígur á allar tré-
smíðar, hvort heldur húsgögn eða
byggingar. Hann teiknaði m.a. tvö hús
í Ólafsvík fyrir systkini sín, Bergþór og
Ingibjörgu.
Oddgeir og kona hans, fluttu til
Þorlákshafnar árið 2001 en höfðu þá
búið allan sinn hjúskap í Háagerði 67
í Reykjavík.
Fjölskylda
Oddgeir
kvæntist 22.12.
1956 Ingibjörgu
Sólrúnu Guð-
mundsdóttur,
f. 29.1. 1936, frá
Látrum í Aðalvík.
Börn Odd-
geirs og Ingi-
bjargar eru Guðmundur Oddgeirs-
son, f. 25.3. 1957, framkvæmdastjóri,
búsettur í Reykjavík, kvæntur Jóhönnu
Þórunni Harðardóttur, f. 13.8. 1959, og
eru börn þeirra Hlynur, f. 28.10. 1977;
Ingibjörg Ósk, f. 1.12. 1978; Oddgeir, f.
1.4. 1981; Hörður, f. 20.3. 1983, og Vil-
hjálmur, f. 22.6. 1994.
Margrét Oddgeirsdóttir, f. 17.3.
1958, þroskaþjálfi, búsett í Þorlákshöfn
en dætur hennar eru Aldís Margrét
Bjarnadóttir, f. 4.6. 1982; Hrafnhildur
Eva Guðmundsdóttir, f. 23.8. 1987.
Rúnar Oddgeirsson, f. 2.11. 1960,
lögregluvarðstjóri á Selfossi, búsett-
ur í Þorlákshöfn, kvæntur Guðrúnu
Ágústsdóttur, f. 23.1. 1963 en syn-
ir þeirra eru Ágúst Hróbjartur, f. 17.6.
1983; Sturla, f. 8.6. 1984; Rúnar, f. 28.2.
1995.
Þorbjörg Oddgeirsdóttir, f. 14.5.
1962, sjúkraliði, búsett í Reykjavík, gift
Þráni Viðari Þórissyni, f. 31.10. 1959
og eru synir þeirra Heiðar Már, f. 1.9.
1994; Hilmar Örn, f. 15.5. 1998, auk
þess sem sonur Þráins er Úlfur Þór, f.
2.7. 1990.
Steinþór Oddgeirsson, f. 17.11.
1970, verkstjóri, búsettur í Þorláks-
höfn en sambýliskona hans er Margrét
Júlía Júlíusdóttir, f. 2.4. 1976 og er dótt-
ir þeirra Tinna, f. 15.3. 2007.
Vignir Örn Oddgeirsson, f. 6.9.
1975, rannsóknarlögreglumaður, bú-
settur í Reykjavík en sambýliskona
hans er Katrín Eva Erlarsdóttir, f. 13.8.
1975 og eru synir þeirra Hjörtur Árni,
f. 2.11. 2007; Hlynur Egill, f. 2.10. 2009.
Barnabörn Oddgeirs og Ingibjargar
eru fimmtán talsins en langafabörnin
eru sjö.
Oddgeir var yngstur fimm syst-
kina. Systkini hans voru Guðmundur
Ársælsson; Ingibjörg Steinþórsdótt-
ir; Bergþór Steinþórsson; Sigurður
Steinþórsson.
Foreldrar Oddgeirs voru Stein-
þór Bjarnason, f. 22.1. 1894, d. 28.10.
1966, sjómaður, og Þorbjörg Guð-
mundsdóttir, f. 20.3. 1892, d. 23.4.
1982, ljósmóðir. Þau bjuggu lengst af
í Ólafsvík.
Útför Oddgeirs fór fram frá Þor-
lákshafnarkirkju sl. miðvikudag.
Þórunn Ríkey Jónsdóttir
Menningarfulltrúi f. 10.4. 1930 – d. 19.5. 2011
Þórunn fæddist í Viðey. Hún fór til náms og starfa í Bandaríkjun-um 1950, þar sem hún kynntist
verðandi eiginmanni sínum. Eftir að
þau giftu sig bjuggu þau í Louisville
í Kentucky á árunum 1955–65. Þá
fluttu þau til Íslands
Þórunn var menningarfulltrúi hjá
Menningarstofnun Bandaríkjanna
á árunum 1967–97 og var síðan að-
stoðarmaður sendiherra Bandaríkj-
anna til 2006 er hún lét af störfum. Þá
sáu hún og eiginmaður hennar um
TOEFL-, GMAT-, GRE- og USMLE-
prófin sem námsmönnum og lækn-
um sem huga að framhaldsnámi í
Bandaríkjunum, er gert að þreyta.
Þórunn starfaði fyrir Íslenzk-amer-
íska félagið um árabil og sat í stjórn
þess. Hún var
þátttakandi í
Internation-
al Women
of Reykjavík
sem er félags-
skapur kvenna
við sendiráð á
Íslandi, vann
mjög að fram-
gangi djasstónlistar á Íslandi og var
heiðursfélagi Jassvakningar.
Fjölskylda
Þórunn giftist 13.8. 1955, Robert
Duane Boulter, f. í Lincoln, Ne-
braska 4.2. 1926, d. 28.4. 1986, við-
skiptafræðingi, námsráðgjafa og
framkvæmdastjóra Fulbrightstofn-
unarinnar á Íslandi. Hann var sonur
Freds Boulter sem var af enskum og
þýskum ættum, og Pearl Cornish, frá
Dublin á Írlandi.
Synir Þórunnar og Roberts eru Fred
Boulter III, f. 22.2. 1956, listamaður;
John A. Boulter, f. 20.11. 1957, graf-
ískur hönnuður; Robert D. Boulter, f.
9.4. 1964, fiskeldisfræðingur; Stefán
J. Boulter, f. 6.6. 1970, listmálari.
Systkini Þórunnar: Árni, f. 1932, d.
2008, skipstjóri í Kanada, var kvænt-
ur Hönnu Ragnarsdóttur; Rakel, f.
1944, d. 1997, húsmóðir, var gift Mar-
inó P. Hafstein lækni; Guðbjörg, f.
1940, fyrrv. starfsmannastjóri RÚV,
gift Skúla B. Ólafs rekstrarhagfræð-
ingi.
Foreldrar Þórunnar voru Jón Björn
Elíasson, f. 1890, d. 1959, skipstjóri,
ættaður frá Bæjum á Snæfjalla-
strönd, og Jóhanna Stefánsdóttir, f.
1906, d. 1997, húsfreyja.
Andlát
Ágúst fæddist á Siglufirði og ólst þar upp. Hann fór ungur til Reykjavíkur og hóf þar nám
í prentiðn í Ríkisprentsmiðjunni
Gutenberg 1955 en sveinspróf tók
hann 17.1. 1960.
Ágúst vann síðan í Gutenberg
í nokkur ár en síðan við prentiðn
á ýmsum stöðum, m.a. hjá prent-
smiðjunni Hilmi og prentsmiðju
Frjálsrar fjölmiðlunar um árabil.
Ágúst sinnti ýmsum félagsmál-
um. Hann var mikill ÍR-ingur og
starfaði mikið fyrir félagið á sviði
frjálsra íþrótta og í skíðadeild þess.
Þá starfaði hann fyrir Skíðafélag
Reykjavíkur og kenndi á skíðum og
sinnti þjálfun á gönguskíðum, við
Reykjavík og víða um landið.
Ágúst hóf að starfa með Flug-
björgunarsveitinni í Reykjavík árið
1961 og starfaði með henni í ára-
tugi en síðustu árin var hann virkur
í Lávarðaflokki FBSR sem er flokk-
ur eldri félaga sveitarinnar. Hann
var sæmdur brons-, silfur- og gull-
merkjum Flugbjörgunarsveitar-
innar í Reykjavík og var heiðurs-
félagi hennar
frá 2000. Þá sá
hann um nokk-
urt skeið um
kvöldvökur á
Landspítalan-
um.
Fjölskylda
Ágúst kvæntist
1.12. 1961 Þrúði
Márusdóttur, f. 14.5. 1939, húsmóður.
Hún er dóttir Márusar Guðmundsson-
ar, f. 25.7. 1902, d. 18.11. 1982, bónda
á Bjarnastöðum í Blönduhlíð í Skaga-
firði og k.h., Hjörtínu Tómasdóttur, f.
25.8. 1906, d. 26.8. 2002, húsfreyju.
Systkini Ágústs: Ólína Björnsdóttir,
f. 1927, d. 1996, var búsett á Siglufirði;
Þóra Björnsdóttir, f. 1929, d. 2006, bú-
sett á Siglufirði; Erlendur Björnsson, f.
1931, d. 2000, var búsettur í Reykjavík;
Margrét Björnsdóttir, f. 1933, húsmóð-
ir, er búsett á Siglufirði; Björn Björns-
son, f. 1946, þjónn og starfsmaður hjá
Reykjavíkurborg, er búsettur í Garða-
bæ.
Foreldrar Ágústs voru Björn Olsen
Björnsson, f. 11.9. 1903, d. 29.5. 1976,
verkamaður á Siglufirði, og k.h., Kon-
kordía Ingimarsdóttir, f. 14.6. 1905, d.
6.8. 1987, húsmóðir.
Ætt
Björn var sonur Björns Stefáns
Olsen, málara, smiðs og beykis
á Akureyri Ólafssonar, smiðs, b.
og smáskammtalæknis í Öxl og
Brekkukoti í Sveinsstaðahreppi
Ólafssonar. Móðir Björns Stef-
áns var Sigríður, ljósmóðir Sæ-
mundsdóttir, b. á Syðra-Hóli og
í Gröf í Öngulstaðahreppi Jónas-
sonar. Móðir Sigríðar var Helga,
systir Dómhildar, langömmu
Davíðs Stefánssonar frá Fagra-
skógi og Odds læknis, föður Dav-
íðs, ritstjóra Morgunblaðsins.
Önnur systir Helgu var Guðrún,
langamma Bjarna, föður Vigdísar,
fyrrv. deildarstjóra hjá forseta Ís-
lands. Helga var dóttir Þorsteins,
skálds og b. á Stokkahlöðum Gísla-
sonar, og Sigríðar Árnadóttur.
Konkordía var dóttir Ingimars
Ágústs, útvegsb. á Sæbóli í Ólafs-
firði Bergssonar.
Jarðarför Ágústs fór fram frá
Hallgrímskirkju sl. þriðjudag.
Ágúst Björnsson
Prentari f. 16.2. 1938 – d. 29.5. 2011
Andlát
Andlát