Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Page 42
Þ að var bjartur morgunn í mars árið 1875 þegar velmegandi námamann, Henry Dawson, bar að garði að gistihúsi Agn- usar Mcvee, 108 mílna húsi, við Ca- riboo-vagnaveginn í Bresku-Kólumb- íu. Í fórum sínum hafði hann gullsalla að verðmæti 11.000 dala og þó nokkra gullmola sem hann hafði uppskorið á afskekktum gullskika sínum í Cariboo. Dawson hafði hlerað að eigandi gistihússins væri frískleg, bláeygð skosk kona sem hefði fyrir ekki margt löngu hleypt heimdraganum í Skot- landi og sest að í Bresku-Kólumb- íu. Agnus kallaði ekki allt ömmu sína og í hennar huga var allt þess virði að höndla með; ungar stúlkur, matvara, áfengi og að sjálfsögðu gisting. Þannig var mál með vexti að Daw- son var einmitt á höttunum eftir ungri konu sem gæti tekið að sér matseld og haldið honum selskap við námuna. Jim, eiginmaður Agnusar, hugaði að reiðskjóta Dawsons. Í reynd sá Jim um alla vinnu við gistiheimilið, en Al Riley, slægur og vöðvastæltur tengdasonur Agnusar, sá um að skenkja gestum og gangandi á bar gistiheimilisins. Báðir voru þeir gjörsamlega undir vald Agn- usar seldir, en sagt var að hún gæti lyft 180 kílóa kornsekk vandkvæðalaust. Dawson fær sinn síðasta drykk Sagan segir að Agnus hafi verið bæði snoppufríð og lagleg, en innrætið var ekki í samræmi við ásýnd hennar og samkvæmt skjölum sem grafin voru upp í Skotlandi var hún eftirlýst þar fyrir sjö morð og þrjár líkamsárásir. Þannig var mál með vexti að ungar stúlkur sem hlaupist höfðu að heiman áttu gjarna leið um svæðið á leið sinni til gullnámasvæðis Cariboo þar sem þær vonuðust til að finna sér auðug mannsefni. Ef stúlkurnar lentu í klónum á Agn- usi kom hún á þær böndum og hótaði þeim öllu illu ef þær yrðu ekki sam- vinnuþýðar. Á gistiheimilinu voru sjö eldstæði og mun Agnus meðal ann- ars hafa hótað því að henda stúlkun- um í eldinn ef þær væru með eitthvert múður. Dawson viðraði erindi sitt við Al sem sagði honum að tengdamóðir sín sæi alfarið um að verðleggja stúlkurn- ar. Því miður væri hún fjarverandi því hún hefði átt erindi til Fort Kamloops, en kæmi sennilega heim þá um nótt- ina. Stakk Al upp á því að Dawson læti fara vel um sig á barnum og fengi sér viskí. Dawson hugnaðist það vel og fyrr en varði hafði hann innbyrt þrjá viskí. Al sagði honum í framhjáhlaupi að hann þyrfti aðeins að skjótast frá. Dawson sat grunlaus við borð sitt og naut drykkjarins. Al hins vegar fór til Agnusar sem leyndist fyrir utan gisti- heimilið með hlaðinn riffil. Í hesthús- inu var Jim að gera hestvagn kláran. Samhentur hópur Agnus rétti tengdasyni sínum riffil- inn og læddist hann síðan að opnum glugga, miðaði vandlega og lét skotið ríða af. Skotið geigaði ekki og Dawson lést samstundis. Agnus og Al biðu ekki boðanna heldur tóku líkið og fleygðu því á hestakerruna. Jim ók hestvagninum sem leið lá að nærliggjandi stöðuvatni og henti lík- inu í vatnið þar sem það fannst næsta dag. Samkvæmt skýrslu yfirvalda á svæðinu var „hinum látna, Henry Dawson, frá Cariboo, ráðinn bani af ræningja sem komst undan með hest hans og eigur.“ Skýrslan var sú fyrsta af mörgum svipuðum sem áttu eftir að líta dagsins ljós næstu tíu árin. Tíminn átti eftir að leiða í ljós að Agnus, Jim og Al voru samhentur hóp- ur og næstu árin voru bændur, kaup- menn, námamenn og menn sem leituðu til Agnusar með kaup á stúlk- unum hennar í huga myrtir með svip- uðum hætti og Henry Dawson. Þetta afskekkta gistiheimili varð vettvangur óhugnanlegra verka og á næstu árum fundust um sextíu lík í litlum stöðu- vötnum sem var að finna í nágrenni þess. Agnus gróf feng sinn skammt frá gistiheimilinu. Fengurinn var að stærstum hluta gullmolar og mynt en Jim sá um að koma hrossum fórnar- lambanna í verð. Hann beið yfirleitt þar til hann var kominn með nokkur stykki og fór þá til Fort Kamloops og seldi hrossin þar. Þar var hann talinn vera auðugur hrossakaupmaður. Ástin setur strik í reikninginn Starfsemi þríeykisins hafði gengið snurðulaust í allmörg ár, en þá gerð- ist hið ótrúlega; ljóshærður fjárhættu- spilari, MacDon ald að nafni, frá Fort Langley kom á gistiheimilið. Agnus varð samstundis ástfangin af honum. Al og Jim hófust handa við að und- irbúa brátt andlát komumanns. En „nei,“ sagði Agnus, „hann er kominn til að kaupa stúlku og ég verð að selja stúlkur.“ Al trúði ekki eigin eyrum og sagði að hagnaðurinn yrði miklu meiri ef MacDonald yrði ráðinn bani. Agnus fór inn á gistiheimilið, hún gat verið indæl þegar það hentaði henni og það hentaði henni nú. Agn- us og MacDonald innsigluðu viðskipt- in og ung stúlka skipti um eigendur. Hann söðlaði klár sinn, batt stúlkuna á annan sem hann hafði til reiðar og reið inn í kvöldhúmið. Jim hafði ekki verið sjáanlegur hluta þessa kvölds, en það angraði Agnusi ekki, enda var hún vön að láta sig ferðir hans litlu skipta. Að auki var hugur hennar hjá öðrum karlmanni, MacDonald, sem hafði lofað að líta við eftir tvo mánuði. Einkaframtak Jims Síðla þetta kvöld reið maður í hlað og Agnus sendi Al út til að kanna hver væri þar á ferð og sneri hann til baka með óþægilegar fréttir: „Þetta er Jim, hann er vopnaður og ég sá hann fela gullsekk í hlöðunni. Mér sýnist sem hann hafi elt MacDonald og gengið frá honum áður en hann komst of langt suður eftir.“ Jim viðurkenndi að hafa banað MacDonald og gaf eftir gullsekkinn sem innihélt 8.000 dali í gullmynt. Jim til mikillar furðu virtist sem Agnus væri búin að fyrirgefa honum næsta morgun, hún framreiddi ríku- legan árbít og sagði: „Þetta er búið og gert. Við komumst yfir fé hans og eng- in ástæða til að rífast.“ Jim tók vel til matar síns en eitt- hvað var ekki sem skyldi því í miðjum munnbita féll hann á gólfið og gaf upp öndina skömmu síðar. „Þú eitraðir fyrir honum,“ sagði Al sleginn. „Gættu tungu þinnar eða þú hlýtur sömu örlög,“ svaraði Agnus. En Agnusi og Al hafði yfirsést veiga- mikið atriði; hvað hafði orðið um ungu stúlkuna. Afdrif hennar komu í ljós áður en langt um leið. Verðir laganna ríða í hlað Jim hafði verið svo áfjáður í fjármuni MacDonalds að hann lét sig stúlkuna engu varða og riðu verðir laganna fram á hana þar sem hún ráfaði um. Stúlkan upplýsti lögregluna um það sem gerst hafði; MacDonald hafði verið myrtur af Jim, sama Jim og hafði gefið henni og fleiri föngnum stúlkum að éta á gistihúsi Agnusar. Agnus og Al voru í þann mund að fleygja líki Jims á kerru þegar laganna verði bar að. Agnus fullyrti kokhraust að Jim hefði fyrir slysni neytt rottueit- urs með banvænum afleiðingum og að hún og Al undirbyggju jarðarför sem hæfði hinum látna eiginmanni hennar. Agnus þvertók fyrir að einhver MacDonald hefði komið á gistiheim- ili hennar, hvað þá að hún hefði myrt ferðalanga og verslað með ungar stúlk- ur. Fullyrðingar hennar féllu í grýttan jarðveg hjá lögreglunni sem ákvað að hefja leit. Þá brotnaði Al saman og sakaði tengdamóður sína um fjölda morða og verslun með stúlkur sem hún hafði rænt. Lögreglan fann fjölda stúlkna, hlekkjaðar saman og glorsoltnar og leifar mannabeina í eldstæðum, og beið ekki boðanna og handtók bæði Al og Agnusi og voru þau ákærð fyrir mannrán og morð. En Agnus snuðaði böðulinn því henni hafði tekist að lauma með sér í fangelsið sams konar eitri og hún not- aði til að fyrirkoma Jim og skömmu áður en réttarhöldin hófust svipti hún sig lífi. Al hins vegar var sakfelldur og endaði ævi sína í snörunni. Gistiheimilið var rifið 1892 og end- urbyggt hinum megin vegarins. Það er talið ómögulegt að fullyrða hve mikil auðævi Agnus gróf í jörðu, en hingað til hefur fundist gullsalli og –molar að verðmæti 8.500 Bandaríkjadala. n Agnus Mcvee rak hótel í Bresku-Kólumbíu n Hörkutól og harðsvíraður húsbóndi Kaldrifjuð Kvensa 42 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 10.–14. júní 2011 Helgarblað Á köldu vetrarkvöldi í mars árið 1946 hringdi ung kona dyrabjöll- unni hjá Felix Gulje, upprennandi stjórnmálamanni í Hollandi. Hún sagði eiginkonu Gulje sem kom til dyra að hún væri með bréf sem hún vildi færa honum. Þegar hann kom sjálfur til dyra skaut hún hann í bringuna. Morðið á Gulje hefur loksins verið leyst – 65 árum eftir að það var framið. Níutíu og sex ára kona hefur viðurkennt verknaðinn. Í yfir- heyrslum hjá lögreglunni hefur hún sagt að hún hafi talið Gulje starfa fyrir nasista í seinni heimsstyrjöld- inni, sem var nánast nýlokið þegar morðið var framið. Morðið á Gulje varð mikið deilumál á meðal stjórnmálamanna í Hollandi á 5. áratugnum en Gulje var upprenn- andi stjórnmálamaður. Þar sem málið var aldrei leyst spruttu upp samsæriskenningar á meðal stjórnmálamanna um hver stæði að baki verknaðinum. Orðrómur hafði verið á kreiki í Hol- landi um að Gulje hefði aðstoðað nasista í heimstyrjöldinni en hann stjórnaði verktakafyrirtæki sem átti í viðskiptum við þýska herinn. Margir undirmenn hans voru þá einnig í samtökum sem studdu nasista. Náði orðrómurinn miklu flugi og var Gulje handtekinn á grundvelli hans eftir stríðið en að rannsókn lokinni var hann hreins- aður af öllum ásökunum. Seinna kom í ljós að hann faldi gyðinga- fjölskyldu á heimili sínu á dögum síðari heimsstyrjaldarinnar og borgaði öðrum í nágrenninu fyrir að gera slíkt hið sama. Hann leyfði líka bönnuðum kristnum söfnuði að funda á heimili hans meðan á stríðinu stóð. Það var Henri Lenferink, borgar- stjórinn í Leiden, heimabæ Gulje, sem tilkynnti fjölmiðlum að málið væri leyst. Sagði hann að kona, Atie Ridder-Visser, hefði sent sér bréf þar sem hún viðurkenndi að hafa ráðið Gulje af dögum. Sagði borgarstjórinn að konan hefði tvívegis verið yfirheyrð vegna málsins frá því að hún sendi bréfið og að frásögn hennar þætti trúverðug. Lenferink greindi einnig frá því að Atie Ridder-Visser hefði hitt barnabörn Gulje og útskýrt fyrir þeim af hverju hún framdi verknaðinn. Hann vildi þó ekki tjá sig frekar um það samtal eða við- brögð afkomenda Gulje. Ridder-Visser verður ekki ákærð fyrir morðið þrátt fyrir að hollensk lög frá árinu 2002 kveði á um að alvarlegir glæpir fyrnist ekki líkt og önnur mál. Borgarstjórinn sagði að lögin næðu ekki yfir glæp konunnar – þar sem hann hafi verið framinn fyrir 65 árum. Konan var aldrei grunuð um verknaðinn þegar rann- sókn lögreglunnar stóð enn yfir. adalsteinn@dv.is Betra seint en aldrei: 96 ára játar á sig morð Engan grunaði Atie Atie Ridder- Visser lá ekki undir grun þegar lög- reglan rannsakaði málið á sínum tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.