Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Qupperneq 45

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Qupperneq 45
þorði ég ekki. Þetta var heilmikið mál fyrir mig. Í rauninni var það þannig að ég réð mig hérna inn sem tækni- mann, svo kom Vinsældarlisti göt- unnar og þar heyrðist ekkert mikið í mér og það hentaði mér mjög vel. Ég klippti mig eins mikið út og ég gat í þeim þætti. Mér fannst ég vera með ljóta og asnalega rödd og það kom ekki til greina hjá mér að vera eitthvað að tala í útvarpið. Svo þeg- ar ég fór til Englands hafði ég aldrei gert „alvöru“ þátt en mig hafði lengi langað til þess en hugsaði; ég get það ekki, ég er fatlaður.“ Sigraðist á óttanum Hann sigraðist þó hægt og rólega á óttanum og í dag þekkja flestir út- varpshlustendur röddina hans. „Ég byrjaði „live“ á næturvöktum og var ægilega stressaður man ég. Það var gott að byrja þar og vera ekki á „prime time“. Síðan tók ég þetta bara í litlum skrefum. Fyrst var ég hálf- tíma í viku í Vinsældarlista götunnar þar sem ekkert heyrðist í mér, síðan var ég 50 mínútur í viku og það var tekið upp fyrirfram, svo varð sá þátt- ur að tveggja tíma þætti sem er Rokk- land í dag,“ segir hann og er ánægð- ur með að hafa unnið sig upp. „Ég er búinn að fara svona eitt og eitt skref í einu og ég held að það sé bara mjög sniðugt. Þannig funkerar heimurinn og hefur gert í gegnum aldirnar. Það er rosalega gott, maður lærir svona. Ég byrjaði á sópnum og svo hafa verkefnin stækkað hægt og rólega. Ég lærði voða mikið á að vinna með þessu góða fólki sem ég vann með á Rás 1 og Rás 2. Hér hafa alveg ótrú- lega margir unnið.“ Íslendingar syngi á íslensku Í dag starfar hann sem tónlistar- stjóri Rásar 2 og er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum um ís- lenska tónlist. Hann hefur opinber- lega lýst yfir þeirri skoðun sinni að íslenskir tónlistarmenn eigi frekar að syngja á íslensku en ensku. „Mér finnst það mjög lógískt. Öll tölfræði yfir velgengni hljómsveita hvort sem það er heima eða í útlöndum sýnir manni að íslenskan er bara málið. Ég vil alls ekki að það sé túlkað þann- ig að ég sé eitthvað á móti íslenskri músík sem er sungin á ensku, alls ekki. Ég er bara svo mikill keppnis- maður, ég vil íslensku músíkinni svo gott og ég vil að henni gangi vel úti um allan heim,“ segir hann og bætir við: „Það sem mín 20 ár í útvarpinu hafa kennt mér er að hlustendur vilja hlusta á músík sem þeir skilja alveg hundrað prósent. Það er miklu auð- veldara fyrir Íslending að skilja texta sem er sunginn á íslensku og þú ferð miklu lengra og dýpra inn í lagið og þykir vænna um það en þegar þú heyrir bara einhverja frasa sungna á ensku. Íslendingar vilja hlusta á ís- lenska músík. Þeir kaupa íslenska músík og þeir vilja heyra hana í út- varpinu,“ segir hann ákveðinn. Hljóðrás lífsins „Það er líka þannig að sú músík sem hefur gengið best í útlöndum er svolítið öðruvísi en gengur og ger- ist. Samanber Björk. Þótt hún syngi á ensku þá er hún sérstök, hún er öðruvísi. Sigur Rós er það líka. Þeir hafa sungið á íslensku og bullmáli og gengið mjög vel. Hjálmarnir, þeir eru að spila heilmikið í útlöndum, þeim gengur ágætlega. Það er ekki víst að þeir sigri heiminn, en reggíhljóm- sveit sem syngur á íslensku er áhuga- vert fyrirbæri hvar sem hún spilar,“ segir hann og hefur greinilega sterka skoðun á málefninu. „Ég tek stund- um dæmi, það kom út fimm diska safn hjá Senu fyrir nokkrum árum sem heitir 100 bestu lög lýðveldis- ins og þar eru 95 lög á íslensku,“ segir hann með mikilli áherslu en dregur svo örlítið úr. „Mér finnst allt í lagi að fólk velti þessu fyrir sér en auðvitað hefur hver listamaður þetta bara eins og hann vill. Við á Rás 2 viljum spila íslenska músík og leggjum áherslu á hana vegna þess að okkar hlustendur vilja hlusta á íslenska músík, og helst á íslensku. Það er okkar hlutverk að kynna hana, þetta er íslensk menn- ing og við viljum að Rás 2 sé hljóðrás lífsins hjá fólki.“ Rás 3 sanngirnismál Þegar litið er yfir hlustendahóp Rás- ar 1 og 2 þá kemur í ljós að meðal- hlustandinn er kominn yfir miðjan aldur. Ungt fólk virðist ekki hlusta mikið á RÚV. Óli Palli hefur ákveðna skoðun á því hvernig megi koma til móts við þennan aldurshóp. „Allir sem eru 18 ára og eldri og hafa tekjur yfir ákveðnu marki taka þátt í fjár- mögnun RÚV í gegnum nefskatt. Mér finnst það vera sanngirnismál að fólkið sem finnur ekkert við sitt hæfi á Rás 1 eða Rás 2, unga fólkið, fái eitt- hvað útvarp við sitt hæfi. Ég er sjálfur afskaplega ánægður með Rás 2, þar er margt mjög gott í gangi og á Rás 1 líka. En það er eins og yngstu hlust- endurnir virðist ekki kunna að meta það sem þar er í boði, alla vega ekki svona almennt. Það er líka þannig að fólk sem er á mínum aldri og eldra hefur alist upp við að hlusta á útvarp í mun ríkari mæli en þeir sem eru til dæmis tvítugir í dag. Það má vel vera að ungt fólk sé hætt að hlusta á út- varp en ég vil samt ekki trúa því. Svo virðist það líka vera þannig að þeir sem byrja að hlusta virðast vera frek- ar ánægðir með það sem þeir heyra. Ég held að vandamálið sé það að fólk veit oft ekkert hvað er í boði. Við erum að gera fullt af hlutum á Rás 1 og Rás 2 sem höfða til ungs fólks en það veit bara ekki af því. Það er svo mikið framboð af alls konar afþrey- ingu, en þeir sem á annað borð velja útvarpið fram yfir iPodinn og fara að hlusta verða oft mjög hissa á því sem í boði er. Þetta sama er að gerast um allan heim, hlustendur eldast með stöðvunum.“ Stjórnað af ungu fólki Hann segir lausnina hugsanlega fel- ast í stofnun nýrrar útvarpsstöðvar, Rásar 3. „Ég vildi sjá það verða að raunveruleika. Mér finnst það mik- ið réttlætismál fyrir þá Íslendinga sem taka þátt í rekstri RÚV að þeir fái eitthvað fyrir sinn snúð,“ segir Óli sem myndi vilja hjálpa til við stofn- un stöðvarinnar. „Ég er ekkert búinn að kortleggja það neitt en hefði nátt- úrulega gaman af því að koma að því á einhvern hátt ef til þess kæmi. Ég sé fyrir mér að Rás 3 yrði stjórnað af ungu fólki, yngra en mér. Það er svo- lítið gaman að pæla í því að þegar sjónvarpið byrjaði þá var meðalald- ur starfsmanna 22 ár. Kornungt fólk bjó til sjónvarpið upp úr engu, það kunni enginn neitt en það gekk og er enn í gangi. Það vantar bara eitthvað svona.“ Vildi sækja um sem bæjarstjóri Óli Palli segist sjaldan hafa hugs- að um það að breyta til og gera eitt- hvað annað en að vinna í útvarpi en það hafi þó komið fyrir. Ég reyndi að hætta hérna fyrir nokkrum árum. Ég sótti um starf á Akranesi sem æsku- lýðsfulltrúi en fékk ekki stöðuna. Og það var bara fínt. Ég ætlaði reyndar að sækja um annað starf á Akranesi í fyrra en hætti við. Ég ætlaði að sækja um stöðu bæjarstjóra á Akranesi. Frændi minn sótti um og mig grun- aði að hann kæmi alvarlega til greina og ég vildi ekkert vera að grínast með þetta úr því þannig var í pottinn búið. Þetta var náttúrulega meira í gríni en alvöru en ég hugsaði með þér að úr því að Jón Gnarr gæti verið borgar- stjóri þá gæti ég alveg eins verið bæj- arstjóri á Akranesi? Heimamaður, búinn að búa í burtu í 20 ár, ópóli- tískur. Þetta var alveg rakið en þetta var meira í gríni en alvöru,“ segir hann og hlær. Yfirleitt ekki leiðinlegt Hann viðurkennir þó að stund- um verði hann leiður á RÚV en það standi yfirleitt stutt: „Ég get orðið al- veg drepleiður á þessu en svo þarf ég ekki nema að heyra eitt gott lag og þá er ég ekki lengur leiður. Það eru náttúrulega algjör forréttindi að fá að vinna við þetta. Ég verð auðvitað stundum leiður á þrasinu í kringum starfið en að sitja og grúska og hlusta á tónlist og búa til útvarpsþætti, og sjá hugmyndir verða að veruleika finnst mér aldrei leiðinlegt.“ ViktoRia@dV.iS Fókus | 45Helgarblað 10.–14. júní 2011 Ærslafenginn Einar Már Í íslensku er ekki til neitt orð sem hefur nákvæmlega sömu merkingu og enska orðið „rant“ sem getur þýtt löng einræða, gjarnan innblásin og afdráttarlaus jafnvel rauskennd, um eitthvert viðfangsefni sem viðkom- andi er hugleikið. Mælskir menn og hugmyndaríkir taka gjarnan slík rönt þar sem þeir vaða elginn og fara úr einu í annað á skemmtilegu flugi. Einhvern veginn þannig myndi ég lýsa nýjustu bók Einars Más Guðmundssonar, Bankastræti núll. Bókin er safn örritgerða um allt og ekkert, bókmenntir, almenningssal- erni í miðbænum, Bítlana, siðferði, græðgi og bankahrunið. Bókinni svipar að mörgu leyti til Hvítu bók- arinnar sem Einar Már gaf út árið 2009, í kjölfar hrunsins. Einari Má liggur hins vegar ekki alveg eins mikið á hjarta í Banka- stræti núll og Hvítu bókinni sem var siðferðileg greining á góðærinu og hruninu. Tónninn hjá Einari Má er léttari nú enda lengra liðið frá hruninu þó gagnrýni hans á frjáls- hyggju, græðgi og óréttlæti sé ennþá fyrirferðarmikil og í reynd rauði þráðurinn í bókinni. Í stað reiðinnar og hins þunga tóns er komin meiri húmor og kaldhæðni þar sem Ein- ar Már skopast að íslensku útrásar- mönnunum, bönkunum og góðær- inu og segir sögur af því sem honum dettur í hug. Einar Már er ekki alltaf málefna- legur eða sérstaklega rökfastur í þessum skrifum sínum; hann hefur ekkert endilega fyrir því að undir- byggja það sem hann segir heldur slengir hann því fram. Slíkt hentar líklega heldur ekki karakter hans eins og ætla má út frá sögu sem hann segir af sjálfum sér sem ung- um manni í Stúdentaráði. „Ég var heldur ekkert sérlega málefnalegur. Stundum leiddist mér líka á þess- um fundum, sneri út úr og reyndi að vera fyndinn, var með uppsteyt og flipp.“ Þessa lýsingu Einars Más má heimfæra upp á Bankastræti núll. Skemmtanagildi hennar er hins vegar ótvírætt og var kvöldstundinni vel varið í lesturinn. Hvað er að gerast? n Perlur íslenskra einsöngslaga Tónleikar þar sem fluttar verða nokkrar af helstu perlum íslenskra einsöngslaga auk þess sem saga laganna er sögð og tónskáld kynnt. Á efnisskránni eru þekkt íslensk dæg- urlög eins og Á Sprengisandi, Maístjarnan, Draumalandið og fleiri góð. Tónleikarnir verða haldnir í Kaldalóni í Hörpu og hefjast klukkan 17. Miðaverð er 3.000 krónur. n diddú í Sólheimakirkju Söngkonan Sigríður Hjálmtýsdóttir, Diddú, heldur tónleika í Sólheimakirkju í Grímsnesi klukkan 14. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. n Cyndi Lauper í Hörpu Hin heimsþekkta söngkona Cyndi Lauper mun ásamt hljómsveit sinni flytja öll sín þekktustu lög á þessum tónleikum. Meðal þeirra má nefna Girls Just Wanna Have Fun, True Colors, Time After Time og All Through the Night. Auk þess mun hún flytja lög af nýjustu plötu sinni Memphis Blues. Tónleikarnir verða haldnir í Eldborg í Hörpu og hefjast klukkan 20. Miðaverð er 4.900–9.900 krónur. Human Woman á Faktorý Tónleikar Human Woman og Jack Schidt á Faktorý. Sólarkokteilar í boði í byrjun kvölds. Húsið verður opnar og aðgangur er ókeypis. 10 júní Föstudagur 11 júní Laugardagur 12 júní Sunnudagur 13 júní Mánudagur 14 júní Þriðjudagur Bankastræti núll Höfundur: Einar Már Guðmundsson Útgefandi: Mál og menning Bækur ingi Freyr Vilhjámsson Norsk sinfóníuhljómsveit Bærum sinfóníuhljómsveit og Óperu- kórinn í Reykjavík halda tónleika í Hörpu. Á efnisskránni eru þekkt verk eftir norska tónskáldið Edvard Grieg. Eitt þeirra verka er söngur Sólveigar úr leikverkinu Pétri Gaut. Einnig verður verkið Landkjenning flutt, sem er óður til Ólafs Tryggvasonar Noregs- konungs. Hljómleikarnir hefjast klukkan 20 og aðgangseyrir er 2.900 krónur. tónleikar á Þingvöllum Tónleikaröðin „Þriðjudagskvöld í Þingvalla- kirkju“ hefur göngu sína í kvöld í fimmta sinn. Á tónleikunum verður barokktónlist í hávegum höfð. Fram koma Helga Aðal- heiður Jónsdóttir blokkflautuleikari og Þórarinn Sigurbjörnsson gítarleikari. Tón- leikarnir hefjast klukkan 20.00 og aðgangur ókeypis. Vann sig upp Ég byrjaði á sópnum og svo hafa verkefnin stækkað hægt og rólega. Ætlaði ekki í útvarpið Ég klippti mig eins mikið út og ég gat í þeim þætti. Mér fannst ég vera með ljóta og asnalega rödd og það kom ekki til greina hjá mér að vera eitthvað að tala í útvarpið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.