Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Page 48
48 | Lífsstíll 10.–14. júní 2011 Helgarblað
A
ð gefa þjórfé hefur aldrei tíðkast
hér á landi og reglurnar í kring-
um það vilja oft vefjast fyrir Ís-
lendingum erlendis. Hvenær
á að gefa þjórfé? Er það inni í verð-
inu? Hversu mikið á að gefa? Þetta eru
spurningar sem flest okkar kannast
við og sumir hafa lent í vandræðum
erlendis vegna þessa. Í neytendablaði
Verdens Gang hafa verið teknar sam-
an þær venjur og óskráðu reglur sem
gilda um þjórfé í mismunandi lönd-
um svo ferðamenn sem ætla að heim-
sækja erlenda grundu geti komist hjá
árekstrum við heimamenn.
Bandaríkin
Í Bandaríkjunum
tíðkast að gefa fólki
í þjónustugeiran-
um þjórfé. Í raun er
ætlast til þess þar sem launin eru lág
og þjórféð hugsað til að hífa þau upp.
Starfsmenn veitingastaða, leigubíl-
stjórar, hágreiðslufólk og hótelstarfs-
menn búast við að fá greitt aukalega
fyrir vel veitta þjónustu. Sumir veit-
ingastaðir gefa upp þjórfésupphæðina
á reikningnum. Það er þó ekki ætlast
til að borgað sé fyrir suma þjónustu,
svo sem til safnvarða, jafnvel þótt þeir
bjóðist til að taka myndir af ykkur.
Þjórfé: 15 til 20 prósent á veit-
ingastöðum og gott er að venja sig á
að láta barþjón fá einn dollara fyrir
hvern drykk.
kanada
Eins og í Bandaríkj-
unum þá er þjórfé
ekki innifalið í
reikningum í þjón-
ustugeiranum í Kanada. Því er ætlast
til að þú greiðir það aukalega þegar
þú ferð á veitingastaði eða kaupir
annars konar þjónustu.
Þjórfé: 15 til 20 prósent.
Bretland
Þjórfé er innifal-
ið í reikningnum á
flestum landsvæð-
um og ekki ætlast
til að greitt sé aukalega. Þjórfé skal
þó vera minnst 10 prósent á veitinga-
stöðum. Sumir veitingastaðir gefa
upp valfrjálsan kostnað á reikningn-
um sem er ætlað sem þjórfé og því
þarf ekki að gefa þjóninum þjórfé.
Greiða þarf leigubílstjórum og hár-
greiðslufólki þjórfé en ekki á börum.
Þjórfé: 10 til 15 prósent.
írland
Það er óþarfi að
skilja eftir þjórfé
ef það er innifalið
í reikningi. Annars
er mælt með að greiða 10 prósent en
þó ekki á barnum.
Þjórfé: 10 prósent.
danmörk
Þjórfé er innifalið
í verði á þjónustu.
Það er þó í lagi að
borga aukalega ef
þú ert sérstaklega ánægð/-ur með
þá þjónustu sem þú fékkst. Þá er gott
að námunda upp í næsta tug eða
hundrað.
Þjórfé: 5 prósent er nóg.
Finnland
Þjórfé er innifalið
í verði á hótelum
og veitingastöðum.
Annars staðar er
ekki greitt þjórfé.
Þjórfé: Ekki venjan.
Belgía
Þjórfé er innifalið
í verði á veitinga-
stöðum en ef sér-
stök ánægja er með
þjónustuna er í lagi að skilja eftir
nokkrar evrur.
Þjórfé: Örfáar evrur.
Þýskaland
Þjórfé er innifalið í
verðinu á flestum
veitingahúsum og
börum. Ef þú vilt
skilja eftir þjórfé, þá er það í lagi.
Þjórfé: 10 til 15 prósent.
sviss
Á flestum stöð-
um er 15 prósenta
þjórfé innifalið í
verðinu. Ef það er
ekki tekið fram á reikningnum þá er
hægt að skilja eftir 10 til 15 prósent.
Það er þó einungis ef þér líkar sú
þjónusta sem þú fékkst.
Þjórfé: 10 til 15 prósent.
Frakkland
Frakkar borga sjálf-
ir aukalega þjórfé
upp á 10 prósent
á veitingastöð-
um, jafnvel þó að það sé tekið fram
á reikningi. Það er ekki ætlast til að
ferðamenn borgi þjórfé en það er þó
valfrjálst ef erlendu viðskiptavinirnir
eru sérstaklega ánægðir.
Þjórfé: 10 prósent ef þú ert virki-
lega ánægður.
ítalía
Á Ítalíu er þjór-
féð oftast innifalið
í reikningi og því
ekki ætlast til að
meira sé borgað. Það er þó munur
á milli norður- og suðurhluta lands-
ins. Á Norður-Ítalíu er hæfilegt að
námunda reikninginn upp í næstu
evru. Eins er reglan um eina evru á
mann ágæt en í suðurhluta lands-
ins gefur maður meira. Maður borg-
ar ekki góndólaræðurum þjórfé en
mundu samt eftir dyraverðinum á
hótelinu.
Þjórfé: 10 prósent í suðurhluta
landsins, annars minna.
spánn
Þjónustan á að vera
innifalin í verðinu
en ef þú ert sér-
staklega ánægð/ur
þá er í lagi að borga þjórfé aukalega.
Spánverjar borga sjálfir venjulega ör-
lítið meira eða í kringum 5 prósent.
Það skal aldrei greiða meira en það
því möguleiki er á að móðga starfs-
fólkið. Eins vilja Spánverjar ekki að
ferðamenn komi og hækki þjórfés-
viðmiðið. Hækkið upp í næstu evru í
leigubílnum.
Þjórfé: 5 prósent.
portúgal
Gefðu 5 til 10 pró-
sent á veitinga-
stöðum ef þú ert
ánægð/-ur. Leigu-
bílstjórum getur þú borgað 10 pró-
sent af verðinu en þeir geta líka
rukkað fyrir hverja tösku sem fer í
farangursgeymsluna.
Þjórfé: 5 til 10 prósent.
króatía
Þjónustugjaldið er
stundum innifal-
ið í upphæðinni á
reikningnum. Ekki
er mikil áhersla á þjórfé í Króatíu
en ef ánægja er með þjónustuna er
hægt að hækka greiðsluna örlítið.
Það sama er hægt að gera í viðskipt-
um við leigubílstjóra og á börum.
Eins búast innlendir fararstjórar við
þjórfé.
Þjórfé: 10 kuna fyrir þá sem bera
farangur, aðrir fá aðeins meira.
grikkland
Venjulega er þjór-
féð innifalið í verð-
inu á veitingastöð-
um en það er í lagi
að borga örlítið auka. Þá er ráðlagt að
fara upp í næstu evru.
Þjórfé: Upp í næstu evru á veit-
ingastöðum.
tyrkland
Þjórfé upp á 10
prósent er vel þeg-
ið á veitingastöð-
um. Tekið er á móti
dollurum, evrum ásamt lírum. Eins
er ráðlagt að borga þjórfé í leigubíl-
um.
Þjórfé: 5 til 10 prósent.
malta
Þar er notast við
sömu reglur og í
Bretlandi en þar er
ætlast til að borguð
séu 10 prósent í þjórfé.
Þjórfé: 10 prósent.
kýpur
Námundaðu upp í
næstu evru á veit-
ingastöðum. Það
er ekki ætlast til að
leigubílstjórum sé borgað aukalega.
Þjórfé: Nokkrar evrur.
egyptaland
Ef þú ert á ferða-
lagi um Egyptaland
máttu búast við að
borga þjórfé fyrir
nánast allt. Hvort sem um er að ræða
á veitingahúsum eða fyrir aðstoð
innfæddra. Ef þú spyrð til dæmis til
vegar eða færð einhvern til að taka af
þér mynd, þá er ætlast til að þú borg-
ir þjórfé fyrir það. Svo vertu viss um
að vera með nóg af eins punda seðl-
um því þá gengur allt betur fyrir sig.
Á flestum veitingastöðum er gert ráð
fyrir að viðskiptavinir borgi 5 til 10
prósent ofan á reikninginn.
Þjórfé: Egypskt pund fyrir greiða
og aðstoð, en 5 til 10 prósent á veit-
ingastöðum.
marokkó
Á betri veitinga-
stöðum er ráðlagt
að borga 10 til 15
prósent í þjórfé en
annars er gott að hafa smámynt á sér
til að rétta til dæmis leiðsögumönn-
um og öðrum sem aðstoða þig.
Þjórfé: 10 til 15 prósent
indland
Á íburðarminni
veitingahúsum er
nóg að borga nokkr-
ar rúpíur. Samt skal
athuga hvort að 10 prósenta þjón-
ustugjald sé innifalið í reikningi áður
en þjórfé er greitt.
Þjórfé: 15 prósent
Japan
Í langflestum tilfell-
um er ekki borgað
þjórfé í Japan. Þó
eru einstaka und-
antekningar frá því þar sem ætlast er
til að borguð séu nokkur yen í viðbót.
Þjórfé: Ekki venjan.
kína
Ekki er vaninn að
borga þjórfé í Kína.
Ef þjónustan er
hins vegar stórkost-
leg þá er í lagi að borga aukalega.
Þjórfé: Ekki venjan.
taíland
Það hefur ekki ver-
ið venjan að greiða
þjórfé í Taílandi en
það er hægt og ró-
lega að breytast. Það má því reikna
með að borga 10 prósent þjórfé á
veitingastöðum en eitthvað minna
við önnur tækifæri.
Þjórfé: Ekki venjan.
ástralía
Það hefur ekki ver-
ið venjan en er að
breytast og gott
ráð er að skilja eftir
þjórfé hafi maður fengið góða þjón-
ustu
Þjórfé: 10 til 15 prósent.
kúBa
Kúbverjar vænta
þess að ferðamenn
gauki að þeim
þjórfé. Bandarísk-
ir dollarar eru þeim gagnslausir en
það er vel hægt að borga með evrum.
Hálf evra er gott viðmið.
Þjórfé: Nokkrir aurar.
mexíkó
Þar er hægt að
greiða með doll-
urum
Þjórfé: 10 til 15 prósent.
argentína
Misjafnt er hvort
þjórfé sé innifalið á
veitingastöðum en
ef ekki þá má miða
við 10 prósent. Gott er að rétta dyra-
verðinum 10 pesóa.
Þjórfé: 10 prósent.
Brasilía
Það er venjulega
ekki ætlast til að
ferðamenn greiði
þjórfé en á veit-
ingastöðum er oftast þjónustugjald
upp á 10 prósent lagt ofan á.
Þjórfé: Ekki venjan.
gunnhildur@dv.is
n Hótel, veitingastaðir og leigubílar erlendis n veistu hvenær á að greiða þjórfé og hversu mikið?
Þjórfé víðA um heim