Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Page 50
50 | Lífsstíll 10.–14. júní 2011 Helgarblað
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Útivist
E
sja er sennilega það fjall á Ís
landi sem flestir landsmenn
hafa fyrir augum dag hvern
enda nokkurs konar bæjar
fjall við Faxaflóann þar sem stór hluti
þjóðarinnar er búsettur. Esjan er ekki
eitt afmarkað fjall heldur miklu frek
ar fjallabálkur sem býr yfir fjölbreyttu
landslagi, djúpum og myrkum dölum
sem fáir heimsækja, afskekktum tind
um og fornum fjallvegum en hún er
jafnframt eitt mest sótta og vinsælasta
útivistarsvæði landsins.
Ágætur göngustígur liggur frá Mó
gilsá upp eftir hlíðum Esjunnar upp á
Þverfellshorn og varla líður sá dagur
að ekki sé fjöldi fólks á ferð eftir stígn
um sér til heilsubótar eða skemmtun
ar. Margir láta sér þó nægja að fara upp
að Steini sem er grettistak í skriðu við
stíginn beint niður undan Þverfells
horninu. Á steininum er skilti sem
á stendur Steinn sem vekur kátínu
meðal göngumanna sem finnst sem
þar sé staðhæft það sem allir geti séð.
Að þetta sé steinn. Út af þessu heitir
steinninn Steinn þótt uppi séu grun
semdir um að það sé bæði nýtt og
heimatilbúið örnefni.
Frá steininum Steini liggur brattur
stígur upp að klettabelti og gegnum
það er merkt leið og á stöku stað keðj
ur og tröppur ferðalöngum til hugg
unar og stuðnings. Segja má að Esjan
sé einskismannsland en það er auðvit
að ekki rétt því Esjan er í bæjarlandi
Reykjavíkur og heyrir sem slík án efa
undir skipulagslög og hvaðeina svo
þetta er ekki eins villt náttúra eins og
hún sýnist vera.
Allir saman í hóp
Í Esjuhlíðum rekst maður á margar
ólíkar tegundir af útivistarfólki, bæði
vana fjallgöngugarpa, litla vinahópa,
sérvitra einfara, aðhaldshópa í megr
un og jafnvel fólk á hlaupum því sí
stækkandi hópur langhlaupara á Ís
landi sækir í vaxandi mæli í fjallið til
æfinga og eru menn að sögn sérstak
lega á höttunum eftir æfingu í því að
hlaupa niður brekkur en sérfræðing
ar segja að ekki sé hægt að æfa sig í
því í neinum tækjasal. Þverfellshorn
ið er í 760 metra hæð yfir sjó en Esjan
er í raun rúmlega 900 metrar á hæð.
Tvö örnefni á Esju varðveita söguna
um leitina að hæsta punkti. Lengi
var talið að kollur rétt vestan við Mó
skarðshnúka væri hæsti tindurinn
og heitir hann Hátindur í samræmi
við það og er 909 metra yfir sjó. Síðar
fundu mælingamenn bungu norður af
Gunnlaugsskarði um það bil á miðju
fjalli sem reyndist vera 914 metra yfir
sjó. Hún fékk nafnið Hábunga og síð
an hefur Esjan borið tvö örnefni sem
virðast gera tilkall til þess að vera hæsti
punkturinn. Áhugaverð leið fyrir bratt
göngu á Esjuna er upp rimann milli
Þverárdals og Grafardals og þar upp á
Hátind fyrst og síðan inn á Hábungu.
Þetta er allbrött leið en afar skemmti
leg.
Felustaður í fönninni
Áður en leiðin upp á Þverfellshorn var
merkt og stikuð fóru margir upp bratt
ar hlíðar frá bænum Esjubergi upp á
Kerhólakamb sem skagar fram úr fjall
inu til suðvesturs. Sú leið er nokkuð
brattari en hin hefðbundna en ekki
síður skemmtileg. Þegar komið er á
Kerhólakamb er örstutt fram á brún
ir Blikdals sem skerst inn í Esjuna úr
vestri langleiðina að Þverfellshorni og
er hömrum girtur í botninn. Þar er sí
snævi sem heitir Kjötfönn og sagt að
þjófar hafi fólgið þar feng sinn af illa
fengnum búsmala. Rétt austan við
Þverfellshorn gengur hömrótt Kistu
fellið fram úr fjallinu og í kverkinni
milli þess og meginfjallsins er Gunn
laugsskarð en það er nokkurs konar
mælitæki á árferði í náttúrunni en að
eins í allra hlýjustu árum bráðnar til
fulls að sumri skaflinn í Gunnlaugs
skarði og fer þeim sumrum fjölgandi
þegar það gerist.
Við mynni Blikdals rétt við munna
Hvalfjarðarganga má leggja bíl og
ganga fram Blikdal og skoða fáfarnar
slóðir er dalurinn er gróinn og fagur.
Duglegir göngumenn geta farið upp
síhækkandi brúnir dalsins að norðan
og komið svo niður eftir rimanum að
sunnanverðu og þannig hringgengið
dalinn.
Eilífsdalur skerst inn í Esjuna miðja
að norðan og nær langleiðina inn að
Hátindi. Fyrir botni hans heitir Eilífs
tindur og þar í klettahlíðum er eitt vin
sælasta klifursvæði ísklifrara á land
inu. Það er nefnilega pláss fyrir alla í
Esjunni.
Margar ólíkar leiðir
Esjan mjókkar til austurs og mjótt
fjallahaft tengir hana við Móskarðs
hnúka sem ná langleiðina inn að Skála
felli á Mosfellsheiði. Þar liggur einstigi
um svokölluð Laufskörð sem er traust
ur stígur sem Ferðafélag Íslands hefur
merkt og sett keðjur til halds og trausts.
Geysifallegt er að fara um Laufskörð og
horfa niður snarbrattar skriður niður í
Þverárdal að sunnan og Suðurárdal
að norðan en hann og Flekkudalur og
Svínadalur eru mestir dala að norðan
ásamt Eilífsdal.
Skemmtileg útfærsla á Esjugöng
um væri að aka að rótum Móskarðs
hnúka og skilja göngumenn þar eftir.
Þeir ganga síðan upp í Móskörð und
ir Móskarðshnúka og síðan um Lauf
skörð út á Esju og hafa viðkomu á
Hátindi. Síðan ræður úthald og þrek
hvort þeir koma niður af Þverfells
horni, Kerhólakambi eða ganga alla
leið í mynni Blikdals og geta þá sagst
með sanni hafa gengið Esjuna endi
langa og eru áreiðanlega ekki margir
sem það hafa gert.
Allar þær gönguleiðir sem hér
hafa verið nefndar eru við hæfi barna
og fullorðinna. Hvergi er of bratt né
torfarið til þess að heilar fjölskyldur
geti ekki gengið saman með hóflegri
fyrirhyggju og varfærni og þannig not
ið þess besta sem íslensk náttúra hefur
upp á að bjóða.
Vinsælasta leiðin er sú sem ligg
ur frá Mógilsá upp að Steini og það
an upp á Þverfellshorn. Tugþúsund
ir manna leggja leið sína um hana ár
hvert allan ársins hring.
Þjóðsögur og sagnir
Esjan er miðpunktur í Kjalnesinga
sögu þar sem sagt er frá Örlygi Hrapps
syni sem reisti sér bæ að Esjubergi en
í hans föruneyti var Esja kerling ein
gömul frá Írlandi. Örlygur reisti fyrst
ur manna kirkju á bæ sínum á Íslandi
og ef til vill hefur hann nefnt fjallið eftir
gömlu konunni írsku en merking orðs
ins esja getur merkt lausamjöll eða
tálgusteinn eftir því hvort rótarinnar er
leitað í íslensku eða norsku. Örnefnið
er fátítt á Íslandi en Esjufjöll í Vatna
jökli gætu bent til þess að heitið væri
tengt snjó.
Eina sérstæðustu skýringu á nafni
fjallsins segir Egill J. Stardal í Árbók
Ferðafélags Íslands frá 1985 hafa eftir
þjóðkunnum fræðimanni. Samkvæmt
henni er hægt að lesa nafn fjallsins
með rúnaletri úr snjóalögum í giljum
þess þegar snjóalög eru í tiltekinni
stöðu vor eða haust. Þannig væri Esja
eina fjallið sem okkur er kunnugt um
sem getur sjálft sagt nafnið sitt ef svo
má að orði komast.
FÍ fóstrar Esjuna
Ferðafélag Íslands hefur sinnt Esj
unni af alúð undanfarin ár. Félagið
hefur séð um að endurnýja gesta
bækur við Stein og einnig uppi á
Þverfellshorni. Fyrirtækið Valitor
hefur lagt FÍ lið í þessu verkefni.
Bækurnar staðfesta það sem aug
að sér að sífelldur straumur fólks er
í hlíðum Esjunnar og allan ársins
hring líður varla dagur án þess að
einhver vaskur göngugarpur skrái
nafn sitt í bókina. Vafalítið koma
mjög margir upp án þess að hirða
um skráningu svo umferðin er lík
lega enn meiri.
Ferðafélag Íslands hefur undan
farin ár boðið upp á ferð sem er köll
uð Esjan endilöng. Þá er fyrst geng
ið upp á Móskarðshnúka en síðan til
vesturs gegnum Laufskörð og áfram
eftir kolli Esjunnar út á Hátindinn.
Þaðan áfram út á brúnir Blikdals og
svo niður Kerhólakamb. Þátttaka
hefur verið góð þótt stundum hafi lítt
séð til byggða fyrir þoku og súld.
Auk þessa hefur Ferðafélagið
staðið fyrir sérstökum Esjugöng
um þar sem hópar manna ganga á
Esjuna í viku hverri í nokkra mán
uði. Þeir sem stunda þessar göngur
vel komast fljótt í mjög góða þjálf
un og verða færir um að takast á við
flest önnur fjöll í fjallgöngu. Góða
skemmtun.
Dýrgripur allra
Auðvitað fer hver og einn á sínum
hraða en í Esjunni leynast tilteknir
mælikvarðar á getu manna og
ástand. Upp að hinum margum-
rædda Steini eru í kringum 3,5
kílómetrar og margir setja sér það
markmið að komast þangað á
röskum klukkutíma sem er allgóður
árangur. Sennilega vilja þeir sem
hyggja á erfiðari verkefni í fjall-
göngum komast upp að steininum
góða á sléttum klukkutíma eða
þaðan af minna en hver og einn
verður að ráða sínum hraða. Hraði
er ekki endilega vísbending um gott
fjallgönguform því seiglu er þörf í
löngum göngum og sígandi lukka
er best. Sá sem tekur eina og hálfa
klukkustund í að ganga upp að Steini
getur vel verið í afbragðs góðu formi.
Til að setja hlutina í samhengi má
nefna að nokkrum sinnum hefur
verið keppt í hlaupi upp á Esjuna.
Besti tími alla leið upp á topp hina
hefðbundnu leið mun vera 33 mín-
útur en í fyrsta Esjuhlaupinu fór einn
hlaupari beint upp mýrina og komst
á toppinn á 29 mínútum og enn
hefur enginn bætt þann tíma.
Mjög algengt er að þeir sem búa sig
undir að hlaupa Laugaveginn æfi sig í
Esjunni og gangi þá eins hratt og þeir
geta upp að Steini og skokki rólega
niður. Í þeirra hópi þykir gott að fara
upp og niður á klukkutíma.
Hvað ertu fljótur?
Viltu prófa að ganga á Esjuna?
Ef einhver sem hefur aldrei gengið á
fjöll les þetta og langar til að ganga
á Esjuna er rétt að íhuga hvernig skal
búa sig til ferðar í fyrsta sinn. Best
er að vera á gönguskóm en í léttri
reynsluferð duga góðir strigaskór
eða íþróttaskór ágætlega. Hafðu tvo
göngustafi til hjálpar og stuðnings
og lítinn bakpoka þar sem eru skjól-
fatnaður, t.d. úlpa, góðir vettlingar og
hlý húfa ásamt vatnsflösku og e.t.v.
súkkulaði eða kexi í nesti.
Vertu skjóllega klæddur en ekki um
of. Góð regla er að manni sé hálfkalt
þegar lagt er af stað því þá kemst
væntanlega gott jafnvægi á þegar
maður hitnar á göngunni.
Gakktu rólega og njóttu göngunnar.
Ekki ofreyna þig í fyrsta sinn. Mundu
að sígandi lukka er best og áður en
þú veist af ertu fallinn fyrir þessu.
Viltu prófa?
n Esjan er fjölfarnasta fjall landsins. n Hún býr yfir fjölbreyttu landslagi, djúpum og myrkum dölum,
afskekktum tindum og fornum fjallvegum. n Til eru 42 skilgreindar gönguleiðir á fjallið
Kort með nokkrum áhugaverðum gönguleiðum á Esjuna Til munu vera 42
skilgreindar gönguleiðir á fjallið, 13 skíðaleiðir, 6 hjólaleiðir og 10 fjallahjólaleiðir.
Ferðalangur í Laufskörðum
Sem tengja saman Móskarðshnúka
og Esju. Þar er einstigi með keðju til
stuðnings. Myndir PÁll ÁsgEir ÁsgEirsson
Esjan Er við bæjardyr Reykvíkinga
og ákjósanlegt útivistarsvæði.
Fjallið býr yfir sinni eigin sögu.