Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2011, Blaðsíða 64
Í sam- keppni við Eagles! Veit lottó- tölurnar n Tónlistarmaðurinn Magnús Jónsson verður að öllum líkindum milljónamæringur á laugardaginn, að minnsta kosti ef marka má orð hans sjálfs. „Fór til miðils áðan, kominn með lottótölurnar, katsing!“ skrifaði hann á Facebook-síðu sína á miðvikudag. Hann sagðist einnig vera kominn með upplýsingar um hvar hans gömlu félagar í hljómsveitinni GusGus myndu halda aukatónleika. Vinir hans höfðu miklu meiri áhuga á því að vita hvar aukatónleikarnir yrðu en lottótölunum. Það verður því spennandi að sjá hvert lottó- potturinn á laugar- dag- inn fer. Gnarr leitar að góðborgara n „Ég veit að það er fjölmargt fólk í Reykjavík sem er til fyrirmyndar, óeigingjarnt fólk sem er alltaf að hugsa um velferð borgarinnar og samborgara sinna. Mig langar til að þakka þessu fólki,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri. Jón leitar nú eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking sem verið hefur til fyrirmyndar. Ábend- ingarnar verða notaðar til að velja Reykvíking ársins. Aðeins koma til greina einstaklingar sem hafa verið til fyrirmyndar á einhvern hátt, til dæmis haldið borginni hreinni með því að tína upp rusl á víðavangi. Hugmyndir óskast á hugmyndir@ reykjavik. is Æðruleysi á Skaganum n Tónlistarmaðurinn KK rær nú smábátnum sínum Æðruleysi HF-36 frá Akranesi. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Kristjáns Kristjáns- sonar sem segist gera bátinn út frá Akranesi. Kristján er ötull talsmaður frjálsra handfæraveiða og er skemmst að minnast hugvekju hans á sjó- mannadag þar sem hann talaði um að allir ættu að fá að veiða sem vilja það. Kristján sagði trillusjómennsk- una vera andlega iðju sem upp- fyllti andlega þörf. Það má segja að trillusjómennska Kristjáns örvi alla vega sköpunar- gleði hans því hann samdi einmitt lag sem nefnist Á Æðruleysinu. Á fimmtudagskvöldið tróð tvíeykið Hnotubrjótarnir upp á Jómfrúnni á Lækjargötu í Reykjavík. Tvíeykið samanstendur af tónskáldinu Þór Eldon og fréttamanninum Heimi Má Péturssyni, en þeir voru að fagna út- gáfu fyrstu hljómplötu hljómsveitar- innar. „Við Þór Eldon erum búnir að vinna að þessari plötu í bráðum þrjú ár,“ sagði Heimir Már um plötuna í samtali við DV fyrir skemmstu. Platan heitir „Leiðin til Kópa- skers“ og inniheldur tíu lög. All- ir textar plötunnar nema einn voru samdir af fréttahauknum Heimi. Heimir er fyrst og fremst þekkt- ur sem fréttamaður, en hann hefur starfað í fjölmiðlum í áratugi. Hann er þó enginn nýgræðingur í brans- anum því hann var á sínum yngri árum meðlimur í pönkhljómsveit- inni Reflex, sem komst í undanúrslit í Músíktilraunum. Þá er hinn helm- ingur tvíeykisins heldur enginn græningi. Þór Eldon er fyrrverandi meðlimur Sykurmolanna og Ununar og fleiri hljómsveita. Við gerð plötunnar naut Heim- ir aðstoðar góðra vina, en að sögn hans fengu þeir félagar um fimm- tán til tuttugu manns til að spila með sér meðan á tökum stóð. „Ég á vini úti um allar tær og trissur sem eru til í að hjálpa mér vegna vináttu, ekki vegna peninga eða einhvers annars,“ sagði Heimir í viðtalinu við DV og kvaðst einnig stálheppinn að eiga vini á borð við Þór, sem nenni að standa að plötugerð með honum þrjú ár. Platan var gefin út af Smekk- leysu og tónleikarnir voru að kvöldi fimmtudagsins á Jómfrúnni, en þeir félagar héldu tónleikana á afmælis- degi móður Heimis, sem er nú látin. Fréttahaukurinn Heimir Már fagnar útgáfu nýrrar plötu: Tónleikar á afmælisdegi mömmu Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HelGarblaÐ 10.–14. Júní 2011 67. tbl. 101. árg. leiðb. verð 659 kr. Hnotubrjótarnir Unnu að plötunni í þrjú ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.