Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Side 32
32 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað Stórafmæli Magna Júlíana Oddsdóttir kennari 30 ára 10. ágúst 58 ára 11. ágúst Joe Jackson breskur tónlistarmaður. 49 ára 12. ágúst Sveinn Andri Sveinsson lögfræðingur. 50 ára 10. ágúst Siv Friðleifsdóttir þingkona Framsóknarflokksins. Missti af Bræðslunni É g er fædd á Akureyri og ólst þar upp til 14 ára aldurs sem var alveg yndislegt en fluttist þá til Egilsstaða og það var sko alls ekki síðra að búa þar,“ segir Magna Júlía sem starfar sem kennari í Nes- skóla í Neskaupstað, „ég á svo margar skemmtilegar minn- ingar frá æskunni, sérstak- lega voru útilegurnar sem ég fór með mömmu, pabba, Önnu systur og Davíð bróður í Vaglaskóg yndislegar.“ Gengið í marga skóla Magna Júlíana hefur gengið í allnokkra skóla en hún fór fyrst í Lundarskóla, seinna í Glerárskóla og kláraði svo grunnskólann í Grunnskóla Egilsstaða.  „Ég fór svo í Háskól- ann á Akureyri þar sem ég fór í kennaranám og er svo heppin að starfa við það í dag.“ „Fæðing drengjanna minna er án efa mín upp- áhaldsminning og strax á eftir kemur síðan brúð- kaupsdagurinn, þann 16. júní 2012. Yndislegur dagur sem við áttum. Svo skellt- um við okkur fjölskyldan í 2 vikur í sólina til Tener- ife sem er sko sannarlega paradísareyja. Það var allt fullkomið frá A til Ö og hægt að gera nánast allt! Þar eru vatnsrennibrautargarður, kafbátar, Jet-ski, dýragarð- ur og svo nutum við þess bara að vera saman, fjöl- skyldan.“ Í faðmi fjölskyldunnar „Ég mun fagna deginum í faðmi fjölskyldunnar á Borgarfirði Eystra. Gerist varla betra en það,“ segir Magna Júlíana „Maðurinn minn kom óvænt í frí og þá ákváðum við að skella okk- ur í útilegu í nokkra daga áður en vinnan, skólinn og leikskólinn byrjar aftur hjá okkur.“ „Borgarfjörður Eystri er náttúruperla og okk- ur finnst frábært að koma hingað. Förum alltaf á Bræðsluna en misstum af henni í ár þar sem við vor- um úti. Erum í góðra vina hópi og það er frábært að vera umkringdur fjölskyldu og vinum á afmælisdegin- um. Við hjónin munum svo halda sameiginlega afmæl- isveislu þegar það fer að ró- ast á sjónum hjá honum en hann varð þrítugur 27. júlí og er sjómaður á Kristínu EA. Gómsæt karrígrjón n Alltaf vinsælt í veislum Rækjuhrísgrjónaréttur: n 2 bollar soðin hrísgrjón  n 300 gr majones  n 1/4 dl maís  n 400 gr rækjur  n 1–2 grænar paprikur (smátt brytjaðar)  n 1 msk. condimix  n 3 tsk. karrý  n 1 tsk. hvítlauksduft  Allt hráefni hrært saman í skál og sett í kringlótt form sem hefur verið bleytt með köldu vatni.  Látið standa á köldum stað yfir nótt. Borið fram, í skálinni eða hvolfa úr henni á fat, með graflaxsósu og ristuðu brauði. Indversk hrísgrjón með rækjum og rúsínum: n 200 gr rækjur  n safi úr hálfri sítrónu  n 3 dl hrísgrjón  n 5 dl vatn  n 1 laukur  n Smjörlíki eða matarolía til steikingar  n 2 tsk. karrí  n 1 1/2 dl kjötsoð (vatn + 1 teningur)  n 5 msk. rjómi eða kaffi- rjómi  n 1 msk. rúsínur  n Pipar  n 2 msk. möndlur eða hnetur  n 2 egg  10. ágúst 955 – Orrustan við Lechfeld. 1250 – Eiríkur plógpeningur Danakonungur drepinn og líki hans hent í fjörðinn Skien í Slésvík. 1628 – Sænska skipinu Vasa hvolfdi í jómfrúrferð sinni. 1801 – Landsyfirréttur tók til starfa og kom að nokkru leyti í stað Alþingis, sem lagt var niður. Magnús Stephensen var fyrsti dómstjóri réttarins, sem starfaði til 22. desember 1919. 1930 – Fyrsta sjúkraflug á Íslandi flaug Súlan er sjúkur piltur var fluttur úr Kjósinni til Reykjavíkur. Vélin lenti á Meðalfellsvatni í Kjós. 1975 – Guðlaug Þorsteinsdóttir varð fyrsti kvenskákmeistari Norðurlanda aðeins fjórtán ára gömul. 1984 – Bjarni Friðriksson varð í þriðja sæti og hlaut því brons- verðlaun í júdó á Ólympíuleikun- um í Los Angeles í Bandaríkjunum. 1988 – Stríði Íraks og Írans lauk með friðarsamningum. 1991 – Keflavíkurganga á vegum herstöðvaandstæðinga var gengin frá hliði herstöðvarinnar til Reykjavíkur. 11. ágúst 117 – Hadríanus varð keisari Rómar. 1580 – Katla gaus. 1794 – Sveinn Pálsson og maður með honum gengu á Öræfajökul. Var þetta önnur ferð manna á tindinn. Talið er að Sveinn hafi fyrstur manna gert sér grein fyrir eðli og hreyfingum skriðjökla í þessari ferð. 1938 – Baden-Powell upphafs- maður skátastarfs og hópur skátaforingja frá Englandi komu til Reykjavíkur. 1951 – Á Bíldudal var afhjúp- aður minnisvarði um Pétur J. Thorsteinsson og konu hans Ásthildi, en Pétur rak þar verslun og þilskipaútgerð og gerði síðar út frá Reykjavík. 1960 – Tsjad hlaut sjálfstæði frá Frakklandi. 1973 – Austurstræti í Reykjavík var gert að göngugötu til reynslu. Síðar var það opnað bílaumferð aftur að hluta. 1979 – Flak af Northrop-flugvél sem nauðlenti á Þjórsá og sökk þar 1943 var tekið upp og gefið safni í Noregi. 2006 – Síðustu þrjár F15-þoturn- ar yfirgáfu Keflavíkurstöðina og þar með var Ísland herþotulaust í fyrsta skiptið síðan 1953. 12. ágúst 1877 – Henry Morton Stanley kom að ósum Kongófljóts við Boma eftir að hafa ferðast frá upptökum fljótsins við Stóru vötnin í Austur-Afríku. 1908 – Ford Motor Company setti Ford T á markað. 1942 – Bardaginn um Stalíngrad hófst. 1942 – Kvikmyndin Iceland var frumsýnd í Bandaríkjunum. 1957 – Stöðumælar voru teknir í notkun í Reykjavík. Gjald í þá var ein króna fyrir 15 mínútur og 2 krónur fyrir hálftíma. 1975 – Alvarlegt tilvik matareitr- unar kom upp í Reykjavík þegar 1300 þátttakendur á kristilegu stúdentamóti í Laugardalshöll veiktust og varð að flytja yfir 40 þeirra á sjúkrahús. 1979 – Krossinn – kristið samfé- lag var stofnað á Íslandi. 1981 – IBM Personal Computer kom á markað. Merkis- atburðir Karrýgrjón Slá alltaf í gegn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.