Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Síða 32
32 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað
Stórafmæli Magna Júlíana Oddsdóttir kennari 30 ára 10. ágúst
58 ára 11. ágúst
Joe Jackson breskur tónlistarmaður.
49 ára 12. ágúst
Sveinn Andri Sveinsson lögfræðingur.
50 ára 10. ágúst
Siv Friðleifsdóttir þingkona
Framsóknarflokksins.
Missti af Bræðslunni
É
g er fædd á Akureyri og
ólst þar upp til 14 ára
aldurs sem var alveg
yndislegt en fluttist þá
til Egilsstaða og það
var sko alls ekki síðra að búa
þar,“ segir Magna Júlía sem
starfar sem kennari í Nes-
skóla í Neskaupstað, „ég á svo
margar skemmtilegar minn-
ingar frá æskunni, sérstak-
lega voru útilegurnar sem
ég fór með mömmu, pabba,
Önnu systur og Davíð bróður
í Vaglaskóg yndislegar.“
Gengið í marga skóla
Magna Júlíana hefur gengið
í allnokkra skóla en hún fór
fyrst í Lundarskóla, seinna
í Glerárskóla og kláraði svo
grunnskólann í Grunnskóla
Egilsstaða.
„Ég fór svo í Háskól-
ann á Akureyri þar sem ég
fór í kennaranám og er svo
heppin að starfa við það í
dag.“
„Fæðing drengjanna
minna er án efa mín upp-
áhaldsminning og strax
á eftir kemur síðan brúð-
kaupsdagurinn, þann 16.
júní 2012. Yndislegur dagur
sem við áttum. Svo skellt-
um við okkur fjölskyldan
í 2 vikur í sólina til Tener-
ife sem er sko sannarlega
paradísareyja. Það var allt
fullkomið frá A til Ö og hægt
að gera nánast allt! Þar eru
vatnsrennibrautargarður,
kafbátar, Jet-ski, dýragarð-
ur og svo nutum við þess
bara að vera saman, fjöl-
skyldan.“
Í faðmi fjölskyldunnar
„Ég mun fagna deginum
í faðmi fjölskyldunnar á
Borgarfirði Eystra. Gerist
varla betra en það,“ segir
Magna Júlíana „Maðurinn
minn kom óvænt í frí og þá
ákváðum við að skella okk-
ur í útilegu í nokkra daga
áður en vinnan, skólinn og
leikskólinn byrjar aftur hjá
okkur.“
„Borgarfjörður Eystri
er náttúruperla og okk-
ur finnst frábært að koma
hingað. Förum alltaf á
Bræðsluna en misstum af
henni í ár þar sem við vor-
um úti. Erum í góðra vina
hópi og það er frábært að
vera umkringdur fjölskyldu
og vinum á afmælisdegin-
um. Við hjónin munum svo
halda sameiginlega afmæl-
isveislu þegar það fer að ró-
ast á sjónum hjá honum en
hann varð þrítugur 27. júlí
og er sjómaður á Kristínu
EA.
Gómsæt karrígrjón
n Alltaf vinsælt í veislum
Rækjuhrísgrjónaréttur:
n 2 bollar soðin hrísgrjón
n 300 gr majones
n 1/4 dl maís
n 400 gr rækjur
n 1–2 grænar paprikur (smátt
brytjaðar)
n 1 msk. condimix
n 3 tsk. karrý
n 1 tsk. hvítlauksduft
Allt hráefni hrært saman í
skál og sett í kringlótt form
sem hefur verið bleytt með
köldu vatni.
Látið standa á köldum stað
yfir nótt. Borið fram, í skálinni
eða hvolfa úr henni á fat, með
graflaxsósu og ristuðu brauði.
Indversk hrísgrjón með
rækjum og rúsínum:
n 200 gr rækjur
n safi úr hálfri sítrónu
n 3 dl hrísgrjón
n 5 dl vatn
n 1 laukur
n Smjörlíki eða matarolía
til steikingar
n 2 tsk. karrí
n 1 1/2 dl kjötsoð (vatn + 1
teningur)
n 5 msk. rjómi eða kaffi-
rjómi
n 1 msk. rúsínur
n Pipar
n 2 msk. möndlur eða
hnetur
n 2 egg
10. ágúst
955 – Orrustan við Lechfeld.
1250 – Eiríkur plógpeningur
Danakonungur drepinn og líki
hans hent í fjörðinn Skien í
Slésvík.
1628 – Sænska skipinu Vasa
hvolfdi í jómfrúrferð sinni.
1801 – Landsyfirréttur tók til
starfa og kom að nokkru leyti í
stað Alþingis, sem lagt var niður.
Magnús Stephensen var fyrsti
dómstjóri réttarins, sem starfaði
til 22. desember 1919.
1930 – Fyrsta sjúkraflug á Íslandi
flaug Súlan er sjúkur piltur var
fluttur úr Kjósinni til Reykjavíkur.
Vélin lenti á Meðalfellsvatni í Kjós.
1975 – Guðlaug Þorsteinsdóttir
varð fyrsti kvenskákmeistari
Norðurlanda aðeins fjórtán ára
gömul.
1984 – Bjarni Friðriksson varð
í þriðja sæti og hlaut því brons-
verðlaun í júdó á Ólympíuleikun-
um í Los Angeles í Bandaríkjunum.
1988 – Stríði Íraks og Írans lauk
með friðarsamningum.
1991 – Keflavíkurganga á vegum
herstöðvaandstæðinga var
gengin frá hliði herstöðvarinnar til
Reykjavíkur.
11. ágúst
117 – Hadríanus varð keisari
Rómar.
1580 – Katla gaus.
1794 – Sveinn Pálsson og maður
með honum gengu á Öræfajökul.
Var þetta önnur ferð manna á
tindinn. Talið er að Sveinn hafi
fyrstur manna gert sér grein fyrir
eðli og hreyfingum skriðjökla í
þessari ferð.
1938 – Baden-Powell upphafs-
maður skátastarfs og hópur
skátaforingja frá Englandi komu
til Reykjavíkur.
1951 – Á Bíldudal var afhjúp-
aður minnisvarði um Pétur J.
Thorsteinsson og konu hans
Ásthildi, en Pétur rak þar verslun
og þilskipaútgerð og gerði síðar út
frá Reykjavík.
1960 – Tsjad hlaut sjálfstæði frá
Frakklandi.
1973 – Austurstræti í Reykjavík
var gert að göngugötu til reynslu.
Síðar var það opnað bílaumferð
aftur að hluta.
1979 – Flak af Northrop-flugvél
sem nauðlenti á Þjórsá og sökk
þar 1943 var tekið upp og gefið
safni í Noregi.
2006 – Síðustu þrjár F15-þoturn-
ar yfirgáfu Keflavíkurstöðina og
þar með var Ísland herþotulaust í
fyrsta skiptið síðan 1953.
12. ágúst
1877 – Henry Morton Stanley
kom að ósum Kongófljóts við
Boma eftir að hafa ferðast frá
upptökum fljótsins við Stóru
vötnin í Austur-Afríku.
1908 – Ford Motor Company
setti Ford T á markað.
1942 – Bardaginn um Stalíngrad
hófst.
1942 – Kvikmyndin Iceland var
frumsýnd í Bandaríkjunum.
1957 – Stöðumælar voru teknir í
notkun í Reykjavík. Gjald í þá var
ein króna fyrir 15 mínútur og 2
krónur fyrir hálftíma.
1975 – Alvarlegt tilvik matareitr-
unar kom upp í Reykjavík þegar
1300 þátttakendur á kristilegu
stúdentamóti í Laugardalshöll
veiktust og varð að flytja yfir 40
þeirra á sjúkrahús.
1979 – Krossinn – kristið samfé-
lag var stofnað á Íslandi.
1981 – IBM Personal Computer
kom á markað.
Merkis-
atburðir
Karrýgrjón
Slá alltaf í
gegn.