Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Síða 42
42 Lífsstíll 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað
Mikið úrval af ullarfötum
fyrir börn og fullorðna.
Tilvalin í útileguna!
V
ið megum búast við að ork-
an sem við söfnuðum upp í
sumarfríinu klárist á tveim-
ur til þremur dögum eftir að
vinna hefst að nýju. Þetta
segir Thomas Milsted, danskur rit-
höfundur, fyrirlesari og sérfræðingur
í streitu en sagt er frá þessu í danska
blaðinu Politiken.
Ekki hægt að hlaða stressrafhlöðu
Þar segir Milsted að þó að við höf-
um náð að kúpla okkur frá vinnunni
í fríinu þýði það ekki að við verðum
lengi að kúpla okkur inn aftur. Heil-
inn muni nákvæmlega hvað vinnan
snýst um. Það sé hins vegar spurning
hvernig við tökumst á við stressið því
ekki sé hægt að hlaða stressrafhlöður
í sumarfríinu.
„Stress er varnarkerfi sem heilinn
kveikir á þegar hann skynjar hættu.
Tilfinningar spila þar stóran þátt. Það
sem kveikir á varnarkerfi gasellunnar
er ekki ljónið sjálft, heldur hræðslan
við ljónið,“ útskýrir hann og segir
að það ætti því að skoða streitu sem
viðbrögð við ákveðnum aðstæðum
og full ástæða sé til að undirbúa sig
fyrirfram. „Það er hægt að undirbúa
sig hvernig best sé að koma til vinnu
aftur eftir frí,“ segir hann og veitir
lesendum fjögur góð ráð til þess:
Undirbúðu heilann
Líkt og reynt er að koma lagi á svefn-
venjur barna áður en fríi lýkur mæl-
ir Milsted með að fullorðna fólkið
reyni einnig að koma skikki á dag-
legar venjur áður en vinna hefst að
nýju. Það sé því gott ráð að halda smá
fund með heilanum nokkrum dög-
um áður en fríinu lýkur og undirbúa
hann undir hvað koma skal.
„Sálrænn undirbúningur get-
ur hjálpað til við að takast á við það
óumflýjanlega stress sem við finnum
fyrir þegar við göngum inn á vinnu-
staðinn. Þetta er spurning um að
segja heilanum að það sé í raun ekk-
ert að óttast. Við séum bara komin
aftur í hringiðuna.“ Hann bætir við að
heilinn sé fljótur að aðlagast að nýju
svo við þurfum ekki að hafa áhyggj-
ur af því hvernig okkur muni ganga.
„Höfum það hugfast að við verðum
fljót að detta í hversdagsgírinn aftur.“
Skipulegðu fyrstu vikuna vel
Milsted neitar því ekki að fyrsta vikan
eftir sumarfrí geti verið strembin. „Ég
held að það sé mikilvægt að maður
viðurkenni fyrir sjálfum sér og geri
sér ljóst að það er heilmikið sem þarf
að takast á við þegar maður mætir til
vinnu, svo sem tölvupóstar sem þarf
að svara, óunnin verkefni og hlut-
ir sem þarf að setja sig inn í.“ Fyrsta
vikan verði þó alltaf léttari að takast
á við hafi maður undirbúið hana vel
og fylgi þeirri góðu reglu að gera einn
hlut í einu. „Það getur virst óyfirstíg-
anlegt en þá er mikilvægt að takast á
við verkefnin á skipulagðan hátt. Það
er ekki hægt að gera 40 hluti í einu,“
segir hann og bætir við að oft virðist
verkefnin erfiðari en þeir eru.
Gerðu samning við yfirmann
og vinnufélaga
Það geta verið mörg og mismunandi
verkefni sem bíða þín eftir fríið og
margir sem þurfa að ná tali af þér. Mil-
sted mælir með því að þú gerir plan
með yfirmanni þínum og vinnufélög-
um yfir hverju sé mikilvægast að byrja
á. „Komist að því í sameiningu hvað
er mikilvægast og geymdu önnur ver-
kefni.“ Hann vill einnig beina því til
yfirmanna og fyrirtækja að setja ekki
of mikla pressu fyrst um sinn og veita
viðkomandi tíma til að ganga frá því
sem þarf að gera. „Best væri ef yfir-
maður og samstarfsfélagar myndu
láta sem þú værir ekki á staðnum á
meðan þú ert að klára forgangsmál-
in. Eftir það kæmir þú svo sterkur
inn,“ segir hann. Auk þess ætti ekki að
skipuleggja fundi með starfsmönnum
fyrr en allir eru komnir úr fríi.
Komdu skipulagi á innhólfið
Fullt innhólf getur orsakað streituvið-
brögð að sögn Milsteds. Hvort sem
byrjað er á því að skoða póstinn eða
það er geymt þar til í lok vikunnar
þá er mikilvægt að koma skipulagi á
hann. Þá er gott að flokka þann póst
sem skal eyða, þann sem má bíða og
þann sem þarf að setja í forgang að
svara.
Milsted segir að hann hafi sjálf-
ur skipulagt sinn tölvupóst á þann
hátt að hann er með nokkrar möpp-
ur. Þeim sé skipt upp eftir mánuð-
um, sendendum og hversu mikil-
vægir tölvupóstarnir eru. „Þegar ég
fer í gegnum tölvupóstinn minn set
ég póst strax í ákveðinn hóp og held
þannig innhólfinu alltaf tómu. Þá er
enginn póstur þar til að trufla mig.“
Því næst fer hann í þá möppu sem er
mest áríðandi og fer yfir hvern ein-
asta póst þar. „Þegar ég hef lokið því
af fer ég yfir aðrar möppur í þeirri röð
sem mér finnst mikilvægust,“ segir
hann að lokum.
Undirbúðu
þig andlega
fyrir vinnuna
n Nokkur atriði sem vert er að hafa í huga eftir sumarfrí
Streita Það getur verið stressandi að mæta til vinnu eftir frí og ná ekki yfirsýn yfir þau
verkefni sem þarf að vinna. MYND CORBIS