Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 5. september 2012 Miðvikudagur
Aron Kristjáns
á Beinni línu
Aron Kristjánsson, nýráðinn
landsliðsþjálfari karla í handbolta,
verður á Beinni línu DV.is í dag,
miðvikudag, klukkan 13. Tilkynnt
var um ráðningu Arons á dögun-
um en hann mun fá það verð-
uga verkefni að taka við keflinu
af Guðmundi Þórði Guðmunds-
syni, sigursælasta landsliðsþjálf-
ara Íslands í handbolta. Fram
undan eru spennandi verkefni
hjá íslenska liðinu. Undankeppni
EM 2014 hefst í lok mánaðar-
ins og þá tekur íslenska liðið þátt
í heimsmeistaramótinu á Spáni
í janúar 2013. Allir þeir sem hafa
áhuga á landsliðinu eru hvatt-
ir til að senda inn spurningar.
Slóðin á Beinu línuna er www.
dv.is/beinlina. Lesendur þurfa
að vera skráðir inn á Facebook til
að senda spurningar inn. Þeim
lesendum, sem ekki eru á Face-
book, er bent á að senda spurn-
ingar á netfangið ritstjorn@dv.is.
Bókhaldið
enn lokað
Enginn forsetaframbjóðandi hef-
ur skilað inn uppgjöri eða yfirlýs-
ingu vegna fjármála í tengslum við
framboð sitt til embættis forseta
Íslands í sumar. Frambjóðend-
urnir hafa tíma til 30. septem-
ber næstkomandi til að skila inn
upplýsingunum en nokkrir fram-
bjóðendanna gerðu mikið úr því í
aðdraganda kosninganna að allir
myndu opna bókhald sitt. Þess-
ir sömu frambjóðendur hafa hins
vegar ekki enn skilað inn gögn-
um til Ríkisendurskoðunar. Kosn-
ingarnar fóru fram 30. júní og eru
því liðnir meira en tveir mánuð-
ir frá kjördegi en lög kveða á um
að frambjóðendur þurfi að standa
skil á upplýsingunum innan
þriggja mánaða frá kjördegi.
Þ
að hafa nokkrir sótt um og
hætt við. Ég fatta ekki af
hverju,“ segir Ásdís Jenna
Ástráðsdóttir. Undanfarn-
ar vikur hefur hún auglýst
eftir aðstoðarfólki en Ásdís er fjöl-
fötluð og þarf á aðstoð að halda við
allar sínar daglegu athafnir. Það hef-
ur hins vegar gengið illa að fá fólk
til starfans. „Ég get ekki verið án að-
stoðarfólks. Aðstoðarmanneskjurnar
þurfa að vera hendur mínar og fætur.
Þær þurfa líka að hafa frumkvæði að
því að hjálpa mér að hugsa um heim-
ilið sem er stórt eins og þú sérð,“ seg-
ir hún og beinir orðum sínum að
blaðamanni en fjölskyldan er ný-
flutt í fallegt einbýlishús í Kópavogi.
„Aðstoðarmanneskjan þarf líka að
hjálpa mér hugsa um drenginn minn
og manninn minn,“ segir Ásdís. Son-
ur hennar heitir Adam Ástráður og er
eins árs gamall.
Metnaðarfullt og krefjandi
starf
„Það er mjög skemmtileg vinna.
Þetta er bæði mjög metnaðarfullt og
líka krefjandi en það er mjög gam-
an að vinna við þetta. Ég er sjálf í
þroskaþjálfanámi og er á lokaárinu
mínu núna,“ segir Margrét Smith ein
af aðstoðarkonum Ásdísar sem sér
um að túlka fyrir Ásdísi í viðtalinu.
Eins og er, eru aðstoðarkonurnar
fjórar og skipta með sér vöktum. Nú
vantar allavega eina aðstoðarmann-
eskju til viðbótar og þá í 75 prósenta
starf á virkum dögum, og á dagvakt-
ir aðra hvora helgi. Eins og er manna
aðstoðarkonurnar þær vaktir sem
ómannaðar eru. „Ég vil ekki keyra
hinar stelpurnar út, þær taka allar
aukavaktir núna,“ segir Ásdís og horf-
ir brosandi á Margréti.
Byrjuð í lögfræði
Ásdís hefur lengi verið ötul talskona
fatlaðra á Íslandi og lætur fötlun sína
ekki þvælast fyrir sér. Hún er með
BA-gráðu í táknmálsfræðum, á eig-
inmann og son eins og áður sagði
og rekur einnig fyrirtæki í kringum
þjónustu við sig sem ber nafnið Ásta
Sól. Það er notendastýrð þjónusta
sem felur það í sér að Ásdís stýrir því
hvernig þjónustan við sig er. En hún
lætur ekki staðar numið þar. Hún hóf
nám í lögfræði á dögunum og var
reyndar nýkomin heim eftir annan
daginn sinn þar þegar blaðamann og
ljósmyndara bar að garði.
Hefur lent í ýmsu
Ásdís hefur sínar ástæður fyrir því að
hafa farið í lögfræði. „Mig langar að
verða mannréttindalögfræðingur af
því að það hefur ýmislegt komið fyrir
mig á lífsleiðinni. Ég er alveg búin að
fá upp í kok af óréttlæti,“ segir Ásdís
og biður Margréti að segja frá atviki
sem hún lenti í þegar skrifa átti und-
ir kaupsamning á húsinu sem hún
er nýflutt inn í með Kevin, Adam og
tengdamóður sinni. „Hún lenti í því
þegar hún átti að skrifa undir kaup-
samninginn að sýslumaður ætlaði
ekki að taka stimpilinn sem hún not-
ar til að skrifa undir gildan. Þetta er
stimpill sem er með nafninu henn-
ar á sem hún notar því hún getur
ekki notað hendurnar til að skrifa.
Hún hefur keypt íbúð áður þar sem
hún fékk að nota stimpilinn. Hún fór
upp á sýslumannsskrifstofu til að láta
heyra aðeins í sér og gerði allt vit-
laust. Það var búið að stilla lögreglu-
manni upp fyrir aftan, ég veit ekki
alveg af hverju,“ segir Margrét hlæj-
andi. „Hún var svolítið æst því henni
fannst verið að brjóta á sér. Hún fékk
það síðan í gegn að fá að nota stimp-
ilinn. Þarna fékk hún alveg nóg,“ seg-
ir Margrét með áherslu og segir Ás-
dísi ekki gefast upp.
Fékk kraftinn frá mömmu
Þó að það séu bara tveir dagar bún-
ir af lögfræðináminu þá segir Ásdís
það leggjast vel í sig en hratt sé far-
ið yfir námsefnið. „Þetta er mikill
lestur og það er hratt farið yfir efnið
í tímum,“ segir hún. Margrét fer
með henni í skólann og er henni til
taks ef hún þarf á henni að halda en
auk þess hefur hún táknmálstúlka
með sér auk tækjabúnar sem hjálp-
ar henni við námið. „Ég er með tæki,
sem heitir PC eye. Þetta er tæki sem
er tengt við tölvuskjá og þannig get
ég stjórnað allri skrift sjálf og skrifa í
raun með augunum,“ segir Ásdís.
Hún viðurkennir að það sé heil-
mikil vinna að vera í skóla með svona
lítið barn en hún gefst ekki upp og
ætlar sér að halda ótrauð áfram, svo
lengi sem hún nái að ráða aðstoðar-
fólk. „Ég skil ekki hvernig ég fer að
þessu. En ég held að mamma mín
heitin hafi gefið mér þennan kraft.“
n Ásdísi Jennu gengur erfiðlega að ráða aðstoðarfólk n Er byrjuð í lögfræði
Erfitt að fá
aðstoðarfólk
„Ég get ekki verið
án aðstoðarfólks.
Aðstoðarmanneskjurn-
ar þurfa að vera hendur
mínar og fætur
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Vantar
aðstoðarfólk
Ásdís segir nokkra
hafa sótt um en
illa gangi að ráða í
starfið. Hér er hún
ásamt eiginmanni
sínum, Kevin, og
Margréti aðstoðar-
konu sem heldur á
Adam Ástráði, syni
Ásdísar og Kevins.
Myndir Eyþór Árnason
Lætur ekkert stoppa sig Ásdís er byrjuð í lögfræði. Hana langar að verða mannréttinda-
lögfræðingur enda segist hún hafa lent í ýmsu á ævi sinni. Ryðgaður af
kannabisneyslu
Karlmaður á þrítugsaldri slas-
aðist þegar hann hjólaði á ljósa-
staur í Reykjanesbæ. Hann tjáði
lögreglunni á Suðurnesjum að
hann hefði verið eitthvað ryðg-
aður í kollinum eftir grasreyk-
ingar og því hafnað á staurnum.
Hann var fluttur með sjúkrabif-
reið á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja þar sem gert var að
meiðslum hans. Þau munu vera
minni háttar. Þá var lögreglu til-
kynnt um að ekið hefði verið á
ljósastaur í Sandgerði. Sá sem
það gerði lét sig hverfa af vett-
vangi, án þess að gera viðvart
um ákeyrsluna.