Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2012, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2012, Blaðsíða 10
Greiddu meðlöG oG skatta fyrir Bjarna 10 Fréttir 5. september 2012 Miðvikudagur F jármunir hluthafa í fjár- festingarfélaginu Ardvis voru meðal annars notaðir til að greiða meðlög, skatta, Benz- bíl, húsnæði og mat fyr- ir framkvæmdastjórann og stærsta hluthafann, Bjarna Þór Júlíusson. Aðstandendur Ardvis höfðu safn- að 130 milljónum króna í hlutafé í lok árs 2010 samkvæmt ársreikn- ingi félagsins Ardvis hf. fyrir það ár. 141 Íslendingur, að langmestu leyti venjulegt launafólk, hafði þá lofað að leggja Ardvis til samtals rúmlega 363 milljónir króna í hlutafé en áð- urnefnd upphæð hafði skilað sér til fyrirtækisins. Skiptastjóri Costa, rekstrarfélags Ardvis, Sveinbjörg Sveinbjörns- dóttir, segir að skiptum á félaginu ljúki brátt en það varð gjaldþrota fyrr á þessu ári. Hún segir að kröf- urnar í búið nemi um 30 milljón- um króna, aðallega er um að ræða launakröfur frá starfsmönnum sem ekki höfðu fengið greidd laun frá fé- laginu. Sveinbjörg segir að starfsemi Costa verði kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á næstunni. „Reikningur Costa var eiginlega einkareikningur hans [Bjarna, inn- skot blaðamanns]. Hugmyndin virð- ist hafa verið sú að Costa tók við þeim peningum sem hluthafarnir lögðu Ardvis til,“ segir Sveinbjörg. Loðin starfsemi DV fjallaði talsvert um Ardvis í lok árs 2010 og í fyrra. Sérfræðingur á fjármálamarkaði varaði við því í DV á seinni hluta árs 2010 að Ardvis hefði mörg einkenni píramídasvindls. Meðal þess sem kom fram í um- fjöllun blaðsins var að Ólafur Stef- ánsson handboltamaður hefði sett 9,5 milljónir króna inn í verkefnið. Aðspurður um Ardvis sagði Ólaf- ur þá að miklar líkur væru á því að starfsemi félagsins væri rugl. „Það eru 99 prósent líkur á að þetta sé rugl.“ Í stuttu máli snýst starf- semi Ardvis um að þróa forrit á internetinu, Corpus Vitalis, sem á að gera fólki kleift að fjárfesta í vör- um og þjónustu á netinu án þess að versla beint við aðra en Ardvis. Hugmyndin var sú að Ardvis kæmi sér upp samningum við birgja sem gerðu notendum forritsins kleift að fá vörurnar á hagstæðu verði. Mikill arður átti að verða til í þessum við- skiptum sem átti að renna til hlut- hafa í Ardvis sem og fátækra í heim- inum. Sagt ganga út á hjálp Í viðtali við DV í lok árs 2010 sagði Bjarni Þór að Ardvis gengi fyrst og fremst út á að hjálpa fólki. „Þetta gengur mest út að hjálpa fólki. Þetta er sett upp þannig að það eru rík- ir sem eiga eitthvert lausafé sem fjármagna þetta, af því að við feng- um ekki fyrirgreiðslu í bankakerf- inu. Fjárfestarnir geta sjálfir haft eitt- hvað upp úr þessu en þeir eru fyrst og fremst að fjármagna hjálparstarf, deila peningum til fólksins sem þarf aðstoð […] Þetta er áhættufjárfesting en við teljum þetta vera það mik- ilvægt að við erum reiðubúnir að leggja þetta á okkur.“ Hefur tapað 1,5 milljónum Þá sagði Bjarni að forsvarsmenn Ardvis ætluðu að standa sig gagnvart hluthöfunum. „Við ætlum að standa okkur gagnvart þessu fólki.“ Þetta virð- ist hins vegar ekki hafa gengið eftir. Einn af þeim fjölmörgu einstak- lingum sem lögðu fé inn í Ardvis, 1,5 milljónir króna sem hann hefur ekki fengið til baka, segir aðspurður að aðstandendur Ardvis hafi sagt að er- lendir fjárfestar ætluðu að leggja mik- ið fé inn í fyrirtækið og að einungis nokkrar milljónir vantaði upp á. „Já, helvíti er að heyra þetta,“ segir mað- urinn þegar hann heyrir um gjaldþrot Costa og væntanlega kæru til lög- reglunnar. Segir stutt í hagnað Bjarni viðurkennir aðspurður að fé- lagið hafi meðal annars greitt fyrir hann kaupleigu á Benz-bifreið og að greidd hafi verið leiga á einbýlishúsi í Grafarvoginum sem hann bjó í. „Fé- lagið leigði hús sem ég bjó í, jú … Já, félagið leigði bíl fyrir mig,“ segir Bjarni og bætir við að hann hafi verið launa- laus hjá félaginu í tvö ár og að þessar greiðslur hafi verið ígildi launa. Hann segir að hluthafar Ardvis muni fá peningana sína til baka. „Þetta fólk fær peningana sína til baka, sannaðu til. Bíddu bara í hálfan mánuð og sjáðu hvað gerist þá. Þetta mun ganga hjá okkur.“ Engar upplýsingar sem DV hefur undir höndum, og ekkert í rekstrar- sögu Ardvis, bendir hins vegar til að þetta sé rétt mat hjá Bjarna. n Starfsemi rekstrarfélags Ardvis kærð til lögreglunnar „Það eru 99 pró- sent líkur á að þetta sé rugl Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is MÁNUDAGUR OG ÞRIÐJUDAGUR 8. – 9. NÓVEMBER 2010 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 129. TBL. 100. ÁRG. – VERÐ KR. 395 S-HÓPURINN FYRIR DÓM FENGU HÁLFAN MILLJARÐ Í AFSLÁTT ÓLAFUR Í DULAR- FULLRI GRÓÐA- MASKÍNU n ÓLAFUR STEFÁNSSON LAGÐI FRAM 9,5 MILLJÓNIR n 140 MANNS HAFA LOFAÐ 360 MILLJÓNUM n STEFNA Á 132 LÖND OG HÁLFAN MILLJARÐ NOTENDA n ÆTLA AÐ ÚTRÝMA FÁTÆKT ÍSLENDINGAR LEGGJA FÉ Í DULARFULLT VERKEFNI: MÁR RÆDDI VIÐ HEIÐAR VIÐSKIPTI MEÐ AFLANDSKRÓNUR SKOÐUÐ KAUPIN Á SJÓVÁ: SÁ HELVÍTI Í PARADÍS BERGLJÓTU ARNALDS BOÐIÐ BARN Í KONGÓ VIÐTAL 22–23 SVÍAKONUNGUR: SENDI EFTIR ÍSLENSKUM KONUM MARÍA SIGRÚN: LÆRÐI AF FRIÐRIKU BESTU RAFTÆKIN NEYTENDUR 14–15 FÓLKIÐ 26 FRÉTTIR 8 SVIÐSLJÓS 28–29 ALBA VAR FEIMIN FRÉTTIR 4 FRÉTTIR 2–3 BOÐA 20 MILLJARÐA ARÐ Á MÁNUÐI RANNSÓKN 10–11 Nafn Ólafs notað Forsvarsmenn Ardvis notuðu meðal annars nafn Ólafs Stefánssonar handboltamanns til að kynna starfsemi fjárfestingarfélagsins. MyNd SkjáSkot af youtube Segir stutt í hagnað Bjarni segir stutt þar til Ardvis skili hagnaði. 8. nóvember 2010 Reykjavík Grjóthálsi 10 Sími 590 6940 Reykjavík Skeifunni 5 Sími 590 6930 Hafnarfjörður Hjallahrauni 4 (við Helluhraun) Sími 590 6900 Kópavogur Skemmuvegi 6 (bleik gata) Sími 590 6935 Reykjanesbær Holtsgötu 52 (við Njarðarbraut) Sími 590 6970 www.adalskodun.is HJÁ AÐALSKOÐUN ER BÍLLINN Í GÓÐUM HÖNDUM HVAR HENTAR ÞÉR AÐ LÁTA SKOÐA? Við erum með órar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á þeim öllum. HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG! Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 18 ár H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 2 -1 6 8 6 Opið kl. 8-17 virka daga 18% afslát tur af sko ðuna rgjald i í tilef ni af 1 8 ára afmæ li Aðals koðu nar Ef þú kemur með bílinn í skoðun fyrir hádegi í september færðu 18% afmælisafslátt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.