Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2012, Blaðsíða 26
„Nú er mömmutími“
n Arna Bára er komin í lokakeppni Playboy Miss Social
26 Fólk 5. september 2012 Miðvikudagur
N
úna er ég búin að eyða mikl-
um tíma frá syni mínum. Nú
er kominn mömmutími,“
segir hin 24 ára gamla Arna
Bára Karlsdóttir sem hefur
keppt í Playboy Miss Social keppninni
í júlí- og ágústmánuði með góðum ár-
angri. Hún lenti í öðru sæti í keppn-
inni í ágúst og hefur unnið sér inn rétt
til þess að taka þátt í lokakeppni ársins
í febrúar.
Arna Bára er nýbökuð móðir, á
rúm lega fimm mánaða gamlan son og
segist núna ætla að gefa sér meiri tíma
með syninum á meðan hún undirbýr
sig fyrir fleiri keppnir. Hún er staðráðin
í að taka þátt í lokakeppninni um Play-
boy Miss Social 2013 og ætlar að vera
dugleg að kynna sig í minni keppnum
seinna í vetur til að minna á sig.
Á netinu meðan sonurinn sefur
„Ég hef átt auðvelt með að keppa
í sumar því sonur minn leggur sig
tvisvar yfir daginn og sofnar svo
klukkan 9 á kvöldin. Ég tók ákvörðun
um að taka þátt í keppninni stuttu eftir
fæðingu hans. Mér leiddist í fæðingar-
orlofinu og var að vafra á netinu þegar
ég rakst á vefsíðu keppninnar. Mér
hefur gengið afar vel og fékk til að
mynda um 13 milljónir atkvæða á
einum mánuði. Ég er eina stúlkan í
Evrópu sem hefur komist svona langt.
Hingað til hafa bandarískar stúlkur
hreinlega átt keppnina. Ég er mikil
keppnismanneskja og ætla mér alla
leið. Ég lenti í öðru sæti en hafði gott
forskot allt til enda, ég var með 900
þúsunda atkvæða forskot á banda-
rísku stelpuna sem þá vermdi annað
sæti. Kærastinn hennar er hins vegar
milljónamæringur og keypti eina og
hálfa milljón atkvæða svo hún skaust
í fyrsta sætið með lítilli fyrirhöfn. Það
var fremur súrt,“ segir Arna Bára sem
útskýrir að það sé bæði hægt að kjósa
stúlkur og kaupa atkvæði.
„Kærastinn minn frétti af úrslitun-
um meðan hann var úti á sjó. Hann
sagði að ef hann hefði vitað að það
væri hægt að kaupa titilinn þá hefði
hann gert það fyrir mig.“
En hvað fær hún í fjárhagslegan
ávinning?
„Ég fékk 60 þúsund krónur fyr-
ir annað sætið. Ég hef einnig unnið
nokkrar minni keppnir, eða viku-
keppnir, og þá hef ég fengið boli í
verðlaun. Ég mun líka sjást á síðunni
hjá þeim og í „myndaöppum“ Play-
boy í síma. En núna þegar ég keppi
í lokakeppninni þá þarf ég mikinn
stuðning fleiri Íslendinga en áður.“
Kynnir sig sem nýbakaða móður
Arna Bára hefur fengið viðurnefnið
Icelandic Beauty að eigin sögn og
segist telja að móðurhlutverkið og sú
mýkt sem hún býr yfir verði henni til
svo mikilla vinsælda.
„Ég segi frá því að ég sé nýbökuð
móðir og vakni við bros barns míns.
Ég kynni mig sem manneskju frem-
ur en bara fyrirsætu með engan bak-
grunn. Sumar fyrirsætur fela það að
þær séu mæður. Það vil ég ekki gera.
En þess utan náði ég langt vegna
þess að ég kem hreint fram og er
kurteis og jákvæð.“
Verður fyrir aðkasti og áreiti
Arna Bára segist vissulega verða
fyrir aðkasti og áreiti vegna þátt-
töku sinnar í keppn-
inni. Áreitinu verður
hún aðallega fyrir á
netinu þegar karlar
senda henni dóna-
leg skilaboð og til-
boð. „Ég loka á allt
slíkt og við stelpurn-
ar í keppninni til-
kynnum um allt slíkt
á vefsíðu keppn-
innar. En aðkastinu
verð ég aðallega fyr-
ir frá dómhörðum
Íslendingum sem
finnst ég vera drusla.
Það er merkilegt
hversu mikið Ís-
lendingar dæma mig, útlendingar
segja mig nefnilega algera tepru
meðan Íslendingar kalla mig druslu.
Ég er engin drusla. Það lýsir ekkert
mínum innri manni að ég sitji fá-
klædd fyrir. Ég veit að ég er falleg og
flott og læt ekkert trufla mig.“
Arna Bára vill koma því á framfæri
að hægt sé að greiða henni atkvæði
í vikulegum keppnum á vefsíðunni
playboymisssocial.com og þá má
veita henni stuðning á aðdáenda-
síðu hennar á Facebook. n
Situr fáklædd fyrir í fæðingarorlofi Örnu Báru leiddist í fæðingar-
orlofinu og ákvað að keppa um titil í Playboy-keppni.
Verður fyrir áreiti Arna Bára verður fyrir
áreiti frá körlum á netinu og segir Íslendinga
dómharða.
Með syni sínum Móð-
urhlutverkið finnst Örnu
Báru fara vel saman við
að sitja fáklædd fyrir.
Eiði fagnað á
góðri íslensku
Boðað hefur verið til fagnað-
ar á Ölstofu Kormáks og Skjaldar
næstkomandi fimmtudag, en þá er
ráðgert að Eiður Svanberg Guðna-
son, áhugamaður um íslenska
tungu og fjölmiðlamálfarsrýnir
með meiru, birti sinn þúsundasta
mola um málfar og miðla. Hann
hefur síðastliðin misseri haldið úti
bloggi á DV.is þar sem hann gagn-
rýnir málfar og málnotkun fjöl-
miðlafólks. Eiður er þó ekki ein-
göngu neikvæður í skrifum sínum
því hann hrósar þeim sem honum
finnst eiga hrós skilið.
Búið er að útbúa viðburð á
Facebook þar sem fólk getur til-
kynnt komu sína á fögnuðinn.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvernig fagnað verður „en það
verður allavega gert á góðri ís-
lensku“, líkt og segir á Facebook-
síðunni.
Hégómlegur Sölvi
Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggva-
son hlýtur að teljast einn álitleg-
asti piparsveinn landsins en Sölvi
er kominn aftur á „markaðinn“
eftir að upp úr sambandi hans og
Védísar Vadítu Guðmundsdóttur
slitnaði. Sölvi er eldklár og fjall-
myndarlegur og sómir sér því vel
á tölvu- og sjónvarpsskjánum.
Sölvi virðist ánægður með eigin
ágæti og þykir með þeim duglegri
að uppfæra forsíðumyndirnar á
fésbókinni svo mörgum þykir nóg
um. Eftir myndatöku hjá stjörnu-
ljósmyndaranum Arnold Björns-
syni póstaði Sölvi glæsilegri mynd
þar sem fjölmiðlamaðurinn minn-
ir helst á kvikmyndastjörnu. Ekki
sér maður fjölmiðlamenn á borð
við Helga Seljan raða inn mynd-
um af sér á netið. En eins og áður
sagði, þá er Sölvi á lausu. Ekki
Helgi.
Botnlanga-
laus Helgi
Fjölmiðlamaðurinn og Kastljós-
stjarnan Helgi Seljan lenti í held-
ur óskemmtilegri lífsreynslu á
dögunum þegar botnlanginn í
honum sprakk. Helgi þurfti að
leggjast inn á sjúkrahús fyrir vik-
ið en hefur nú náð að jafna sig að
mestu. Kastljósið er hafið aftur á
ný eftir sumarfrí og Helgi var ansi
brattur í fyrsta þætti haustsins. Svo
virðist sem veikindin aftri hon-
um ekki frá því að vera áfram einn
allra aðgangsharðasti sjónvarps-
spyrill í íslensku sjónvarpi. DV
leitaði til Helga sem staðfesti veik-
indin en vildi að öðru leyti ekki tjá
sig um þau.