Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Blaðsíða 21
Freydís fæddist á Siglufirði og ólst þar upp fyrstu tíu árin, en síðan á Akureyri. Hún var í Grunnskól-
anum á Siglufirði og Síðuskóla á Ak-
ureyri en lauk grunnskólanámi frá
Húnavallaskóla er hún var búsett í
Vatnsdal. Freydís lauk námi í förðun-
arfræði við Förðunarskóla Akueyrar
2001, var að ljúka námi við Símey
á Akureyri fyrir hálfum mánuði og
stefnir nú á nám við Verkmenntaskól-
ann á Akureyri.
Freydís hefur verið áhugaljós-
myndari frá æskuárum og hefur starf-
að sjálfstætt á því sviði. Hún er með
ljósmyndir á Flickersíðunni Flicker/
Freydísh. Hún starfar með áhugaljós-
myndaklúbbnum Álfkonum, á Akur-
eyri.
Fjölskylda
Eiginmaður Freydísar er Hjalti
Jónsson, f. 10.7. 1973, hluthafi og
starfsmaður hjá Möl og sandi á
Akur eyri.
Börn Freydísar og Hjalta eru Hall-
dóra Hlíf Hjaltadóttir, f. 12.4. 1995,
(stjúpdóttir Freydísar); Guðbjörg Inga
Hjaltadóttir, f. 27.6. 1999; Júlíus Máni
Hjaltason, f. 6.4. 2005.
Systkini Freydísar eru Eva Björk
Heiðarsdóttir, f. 19.4. 1983, nemi og
starfsmaður hjá Samherja á Akur-
eyri; Heiðar Smári Heiðarsson, f. 14.5.
1989, kennaranemi við Háskólann á
Akureyri.
Foreldrar Freydísar eru Anna
Júlíus dóttir, f. 10.11. 1959, starfsmað-
ur hjá Brimi á Akureyri, og Heiðar
Elíasson, f. 17.4. 1959, pípulagningar-
maður á Akureyri.
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is Ættfræði | 21Mánudagur 20. júní 2011
Til hamingju!
Afmæli 20. júní
Til hamingju!
Afmæli 21. júní
30 ára
Piotr Baginski Sléttahrauni 29, Hafnarfirði
Daniel Mariusz Lech Hvaleyrarbraut 3,
Hafnarfirði
Viktor Björn Óskarsson Sléttahrauni 24,
Hafnarfirði
Anna Kristín Magnúsdóttir Skuggagili 4,
Akureyri
Árni Rúnar Guðmundsson Grettisgötu 22c,
RVK
Gunnar Sveinn Kristinsson Selvaði 1, RVK
Ægir Tómasson Stóragerði 30, RVK
Áslaug Þórsdóttir Kögurseli 4, RVK
Birgir Már Sigurðsson Álftahólum 8, RVK
Borghildur H Haraldsdóttir Syðri-Sauða-
dalsá, Hvammstanga
40 ára
Ngoc Quang Lé Kleppsvegi 28, RVK
Grit Schmidt Miðtúni 10, RVK
Vilhjálmur Þór Þórisson Þrastarási 12,
Hafnarfirði
Kristín Högnadóttir Dofrabergi 9, Hafnarfirði
Þór Breiðfjörð Kristinsson Hrauntungu 103,
Kópavogi
Ástríður Jóhannesdóttir Hofsvallagötu
61, RVK
Linda Björk Ómarsdóttir Holtagötu 10,
Akureyri
Sveinn Eyjólfur Matthíasson Fífuseli 13, RVK
Ólafur Finnur Jóhannsson Hjallalundi 5g,
Akureyri
Þorbjörn Trausti Njálsson Kríuási 47,
Hafnarfirði
50 ára
Vytautas Virbickas Reyrengi 10, RVK
Ragnhildur Arnljótsdóttir Granaskjóli 58,
RVK
Máni Ragnar Svansson Írabakka 12, RVK
Hermann Guðjónsson Kópavogsbraut 84,
Kópavogi
Siv Heiða Franksdóttir Neshömrum 11, RVK
Helga Magna Eiríksdóttir Tjarnarbraut 13,
Egilsstöðum
Valur Elías Marteinsson Hjallabrekku 47,
Kópavogi
Anna Guðrún Júlíusdóttir Hagamel 40, RVK
Ásta Eyjólfsdóttir Breiðvangi 17, Hafnarfirði
Gunnar Þorkelsson Kleppsvegi 60, RVK
Friðbjörn Óskarsson Baughóli 54, Húsavík
60 ára
Ingólfur Sveinsson Ásbúð 64, Garðabæ
Regina Boikova Borgarbraut 7, Borgarnesi
Hallfríður Gunnarsdóttir Vesturbergi 146,
RVK
Steinar Ágústsson Fjallalind 73, Kópavogi
Guðrún Kristj. Kristjánsdóttir Hjallavegi
7, Ísafirði
70 ára
Inga Gunnarsdóttir Fremristekk 15, RVK
Rakel Sjöfn Ólafsdóttir Hjaltabakka 8, RVK
Guðmundur Baldur Sigurgeirsson Lindar-
braut 17, Seltjarnarnesi
Guðný Eygló Hermannsdóttir Helluvaði
21, RVK
Kristín Einarsdóttir Hléskógum 9, RVK
Ragnheiður S. Ísaksdóttir Háaleitisbraut
139, RVK
Hólmfríður Kofoed-Hansen Fastanefn
Brussel, RVK
Inge E. M. Löwner Grænumýri 8, Seltjarnarnesi
75 ára
Valdimar Hermann Jóhannesson Hjallatúni,
Tálknafirði
Sveinn Gunnar Kristinsson Vallarbraut 21,
Seltjarnarnesi
Guðmundur Oddsson Vallarbraut 12, Sel-
tjarnarnesi
Ingvar Guðmundsson Svínaskálahlíð 11,
Eskifirði
Jón A. Gunnlaugsson Þingvallastræti 20,
Akureyri
80 ára
Gunnar Jensson Hofteigi 42, RVK
Guðrún Marteinsdóttir Laugarnesvegi 78, RVK
Finnbogi R. Gunnarsson Langeyrarvegi 20,
Hafnarfirði
Friðrik S. Friðriksson Lindasmára 95, Kópavogi
Sigurþóra Magnúsdóttir Aðalstræti 4,
Patreksfirði
85 ára
Magnús Magnússon Gautlandi 11, RVK
Eiríkur Þorgrímsson Borgarholtsbraut 34,
Kópavogi
Hallgrímur Sæmundsson Goðatúni 10,
Garðabæ
Gunnar Ragnarsson Eskihlíð 10, RVK
90 ára
Helga Guðríður Helgadóttir Viðarási 101, RVK
30 ára
Preeyarporn Wittayakit Blikahólum 12, RVK
Eimantas Karaliunas Blómvallagötu 13, RVK
Wojciech Zak Skipalóni 25, Hafnarfirði
Haukur Örn Hauksson Vesturbergi 33, RVK
Erla Björg Erlingsdóttir Hólavegi 34, Sauðár-
króki
Jósef Dan Karlsson Heiðarholti 2, Garði
Sara Hrund Gunnlaugsdóttir Drápuhlíð
6, RVK
Helgi Ragnarsson Akurnesi 2, Höfn í Hornafirði
Lúðvík Freyr Sæmundsson Norðurgötu 19,
Akureyri
Edda Mackenzie Júlíusdóttir Melgerði 17, RVK
40 ára
Angela Walk Faxaskjóli 30, RVK
Oddfríður Lilja Jónsdóttir Heiðarvegi 51, Vest-
mannaeyjum
Berent Karl Hafsteinsson Frostafold 6, RVK
Jóhann Þórarinn Bjarnason Sóleyjarima
113, RVK
Þóra Dögg Jörundsdóttir Sóleyjarima 81, RVK
Skarphéðinn Þór Gunnarsson Fagrabæ
13, RVK
Magnea Ingigerður Harðardóttir Furugrund
6, Kópavogi
Baldur Ingvarsson Grófarsmára 1, Kópavogi
Valgerður Guðlaug Ófeigsdóttir Maríubaugi
9, RVK
Ingvar Friðriksson Steinholti 2, Egilsstöðum
50 ára
Kristinn Bergsson Sílatjörn 15, Selfossi
Kristín Sigríður Ásgeirsdóttir Skriðuvöllum
5, Kirkjubæjarklaustri
Pálmar Davíðsson Þorláksgeisla 6, RVK
Bertrand Andre Marc Lauth Aratúni 1,
Garðabæ
Jónas Óskarsson Háaleiti 26, Reykjanesbæ
Ingunn Kristrún Stefánsdóttir Þrastarási
33, Hafnarfirði
Óskar Loftsson Skúlagötu 74, RVK
Bryndís Dagsdóttir Drápuhlíð 27, RVK
Kristín Þorgerður Magnúsdóttir Eiðismýri
26, Seltjarnarnesi
60 ára
Kolbrún Sjöfn Matthíasdóttir Nausta-
bryggju 45, RVK
Anna Sigfúsdóttir Vífilsgötu 12, RVK
Guðmundur Hallgrímsson Hegranesi 25,
Garðabæ
Hafdís Halldórsdóttir Smárarima 98, RVK
Heimir Hafsteinsson Freyvangi 14, Hellu
Örn Úlfar Andrésson Krókavaði 23, RVK
Kristín Geirsdóttir Bauganesi 11, RVK
Ingibjörg H. Harðardóttir Hverafold 49, RVK
Guðrún M. Njálsdóttir Björtuhlíð 29, Mos-
fellsbæ
Hólmsteinn Hólmsteinsson Iðalind 6,
Kópavogi
Einar Ingimarsson Heiðargerði 38, RVK
Reynir Óskarsson Hlíðartúni 5, Mosfellsbæ
Örn Þór Þorbjörnsson Hólabraut 18, Höfn í
Hornafirði
Lagrimas Flóra Valtýsson Túngötu 10, Sand-
gerði
70 ára
Gunnar Rósinkranz Grettisgötu 9, RVK
Vilhelmína Vilhjálmsdóttir Hraunvangi 7,
Hafnarfirði
Sverrir Sigurvinsson Djúpárbakka 2, Akureyri
Ágústa G. Sigfúsdóttir Skólavörðustíg 6b, RVK
Halla Ingibjörg Svavarsdóttir Áshlíð 6,
Akureyri
Margrét Guðmundsdóttir Skipastíg 4,
Grindavík
75 ára
Guðrún Emilsdóttir Melholti 2, Hafnarfirði
Sigurður Alfreð Herlufsen Álfaskeiði 82,
Hafnarfirði
Ragnar Ásgeir Ragnarsson Neðstaleiti 3, RVK
Unnur Ólafsdóttir Efstasundi 58, RVK
Mehmed Fazlovic Háholti 14, Hafnarfirði
Skúli Jónasson Miðvangi 6, Egilsstöðum
Óli Guðmundur Hreiðar Þórðarson Kirkju-
vegi 15, Hafnarfirði
Sævar Magnússon Syðri-Grund 1, Akureyri
80 ára
Jóhanna Antonsdóttir Safamýri 48, RVK
85 ára
Sigríður Magnúsdóttir Álftamýri 42, RVK
90 ára
Þorsteinn Stefánsson Fróðengi 1, RVK
Halla S. Jónsdóttir Hlíðarhúsum 7, RVK
100 ára
Guðrún L. Einarsdóttir Skipholti 36, RVK
Ásta Eyjólfsdóttir Dalbraut 18, RVK
Jón fæddist í Reykjavík. Hann ólst upp á Smáragötu til ellefu ára ald-urs, síðan á Bollagötu og í Blöndu-
hlíð. Jón var síðan búsettur á Seltjarn-
arnesinu á árunum 1972–96.
Jón lauk Héraðsskólanum á Laug-
arvatni eftir tveggja vetra nám vor-
ið 1958. Í æsku dvaldi hann í sveit á
sumrin, í Króki í Norðurárdal í Borg-
arfirði og í Þúfu í Vestur-Landeyjum,
hjá Guðjóni, afabróður sínum.
Á unglingsárunum starfaði Jón
m.a. við verslunarstörf í Veiðarfæra-
versluninni Geysi og í verslun Slipp-
félagsins hf. í Reykjavík. Hann varð
gjaldkeri, bókari o.fl. hjá Fiskmati rík-
isins frá 1962, var skipaður skrifstofu-
stjóri þar 1966, skrifstofustjóri Fram-
leiðslueftirlits sjávarafurða 1975–83,
skrifstofustjóri Ríkismats sjávaraf-
urða 1983–92, starfsmaður Fiskistofu
1992–2008 og sérfræðingur hjá Mat-
vælastofnun 2008–2011 er hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir.
Jón skipulagði, ásamt Katli Jens-
syni og dr. Sigurði Péturssyni, opin-
bert eftirlit með meðferð, verkun,
framleiðslu og mati á söltuðum grá-
sleppuhrognum 1971. Hann var
kennari á Fiskiðnaðarnámskeiðum
sjávarútvegsráðuneytisins 1965–73.
Hann tók sér ársleyfi frá störfum 1989
til að afla heimilda um sögu fiskmats
og vöruvöndunar sjávarafurða.
Jón ritstýrði fyrstu fréttabréfum
Fiskmats ríkisins, svo og útgáfu 80 ára
afmælisrits Ríkismats sjávarafurða,
ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni sagnfræð-
ingi, í tilefni fyrstu lagasetningar um
opinbert fiskmat hér á landi 1910.
Jón hefur annast útgáfu heilbrigð-
is- og matsvottorða vegna útflutnings
sjávarafurða í fjóra áratugi, hjá fjórum
stofnunum. Hann hefur ritað greinar
um fiskverkun og íþróttamál í blöð og
tímarit.
Jón æfði og keppti í knattspyrnu
með Víkingi til 1955. Þá hóf hann
frjálsíþróttaiðkun hjá ÍR og setti
á þriðja tug Íslandsmeta í stökk-
greinum. Hann varð Íslandsmeist-
ari nær 50 sinnum auk meistaratitla
í stökk- og kastgreinum í öldunga-
flokki. Jón setti heimsmet unglinga
í hástökki án atrennu (1,70 m) 1961
og Norður landamet í hástökki inn-
anhúss (2,11 m) 1962. Það met stóð
í aldarfjórðung. Hann var kjörinn
íþróttamaður ársins 1963 og varð tví-
vegis í öðru sæti í þeirri kosningu,
1962 og 1965. Hann fór í náms- og
kynnisför til Bandaríkjanna 1964 í
boði Bandaríkjarstjórnar. Hann var í
aðalkeppnis liði Southern California
Striders í Los Angeles, ásamt Charlie
Dumas, fyrrverandi heimsmet- og
ólympíumeistara í Melbourne, 1956.
Jón keppti á Ólympíuleikum í Tókýó
1964 og í Mexíkó 1968, tók þríveg-
is þátt í Evrópumeistaramótum og
jafnoft í Norðurlandameistaramót-
um. Jón sigraði í hástökki í sjö af níu
landskeppnum fyrir Íslands hönd.
Jón keppir enn í frjálsum íþrótt-
um og hefur verið öldungameistari
í kastgreinum í sínum aldursflokki
undanfarin ár.
Jón sat í stjórn frjálsíþróttadeildar
ÍR um árabil og var formaður rit-
nefndar hundrað ára afmælisrits
Íþróttafélags Reykjavíkur, ÍR. Hann
var félagi og stjórnarmaður í Kiwanis-
klúbbnum Nesi, 1976–93.
Jón hefur hlotið heiðursmerki ÍR,
ÍSÍ og FRÍ.
Fjölskylda
Jón kvæntist 7.5. 1966 Brynju Ingi-
mundardóttur, f. 22.6. 1942, verslun-
armanni. Hún er dóttir Ingimundar
Eyjólfssonar, prentmyndasmiðs frá
Dröngum á Skógarströnd, og Svövu
Tómasdóttur hárgreiðslumeistara.
Jón og Brynja skildu.
Synir Jóns og Brynju eru Ólafur
Örn, f. 18.8. 1966, lengst af starfsmað-
ur Prentsmiðjunnar Odda, búsettur
í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Örnu
Björnsdóttur húsmóður; Kjartan Ingi,
f. 12.9. 1971, sjómaður á frystitogara,
búsettur í Hafnarfirði.
Foreldrar Jóns: Ólafur Þórðarson,
f. 8.12. 1902, d. 17.12. 1977, heildsali
og síðar fulltrúi og framkvæmdastjóri
hjá Lýsi hf., og Guðrúnar Straumfjörð,
f. 24.5. 1911, lengi aðstoðargjaldkeri
hjá Ríkisskipum. Hún varð því hundr-
að ára í síðasta mánuði.
Ætt
Ólafur var sonur Þórðar Magnússonar
frá Fagradal í Mýrdal, steinsmiðs og
síðar umsjónarmanns Lýsisbræðslu
Geirs Zoëga í Örfirisey, og Þórunnar
Sveinsdóttur frá Efri-Ey í Meðallandi,
systur Jóhannesar Sveinssonar Kjar-
val listmálara.
Guðrún er dóttir Jóns Straum-
fjörð, frá Straumfirði á Mýrum, skó-
smiðs í Reykjavík, lengi húsvarðar í
Pósthúsinu í Reykjavík Jónassonar, b.
á Hamraendum í Hraunhreppi Krist-
jánssonar, b. í Tjaldabrekku, hrepp-
stjóra og loks ráðsmanns í Hítardal
Kristjánssonar. Móðir Jónasar var
Steinunn Einarsdóttir. Móðir Jóns
skósmiðs var Þuríður Bjarnadóttir.
Móðir Guðrúnar var Ragnheiður
Valby, dóttir Jóns Val
by Jensen, steinsmiðs í Reykjavík
og Guðrúnar Þorgrímssonar Steph-
ensen, b. á Korpúlfsstöðum, bróður
Ragnheiðar, langömmu Ingibjargar
Birnu, móður Ragnheiðar Ástu Pét-
ursdóttur útvarpsþular. Þorgrímur
var sonur Jóns Stephensen, b. á Korp-
úlfsstöðum Björnssonar Stephensen,
dómsmálaritara á Lágafelli í Mos-
fellssveit, bróður Stefáns, amtmanns
á Hvítárvöllum, afa Hans á Hurðar-
baki, langafa Ögmundar Jónassonar
innanríkisráðherra. Björn var son-
ur Ólafs, stiftamtmanns í Viðey Stef-
ánssonar, sem Stephensenættin er
kennd við. Móðir Jóns Stephensen
á Korpúlfsstöðum var systir Jóns Es-
pólín, sýslumanns og sagnaritara.
Móðir Guðrúnar Þorgrímsdóttur var
Kristjana Guðbjörg Þórðardóttir, b.
á Kjarna í Eyjafirði Pálssonar, sem
Kjarnaættin er kennd við.
Jón Þórður Ólafsson
Fyrrv. skrifstofustjóri Ríkismats sjávarafurða
Freydís Heiðarsdóttir
Húsmóðir og nemi á Akureyri
70 ára á þriðjudag
30 ára á mánudag