Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Qupperneq 26
26 | Fólk 20. júní 2011 Mánudagur Gestur Valur Jensson höfundur Tríó er góður vinur Caspers Christensen: Fékk ráð hjá klovn stjörnu tríó, ný íslensk gamanþáttaröð á dagskrá Ríkissjónvarpsins í leik-stjórn Gests Vals Sveinssonar, hefur vakið mikla athygli. Þáttaröðin fékk harða útreið í fjölmiðlum stuttu eftir sýningu fyrsta þáttarins. Gestur Valur gefur lítið fyrir slæma dóma og segist stoltur af því góða áhorfi sem þættirnir hafi fengið. „Þættirnir fá metáhorf, á milli 65 til 70 þúsund horfðu á fyrsta þátt- inn. Hann sló út Popppunkt og frétt- irnar og er því greinilega að slá í gegn,“ segir hann og hlær. „Ég gef líka lítið fyrir neikvæða dóma keppi- nauta RÚV sem voru mikið að leita í Facebook-færslur vina sinna og birtu aðeins þær neikvæðu.“ Athygli vakti að einn þeirra sem þakkað var á kreditlista þáttarins var sjálfur Casper Christensen, stjarna vinsælustu gamanþátta Dana Klovn. Staðreyndin er sú að Casper og Gest- ur Valur eru ágætis vinir. „Jú, Casper er góður félagi minn og gaf mér góð ráð við þáttagerðina. Margir voru að velta þessu fyrir sér, Tobba Marínós- dóttir bloggari þar á meðal. Ég sendi henni línu þar sem ég útskýrði þetta.“ En fleira vekur athygli. Gestur Valur leitar mjög í eigin lífsreynslu við þáttagerðina og nokkrar sögu- persónanna hefur hann skapað úr gömlum kunningjum sínum. Einn þeirra er líksnyrtirinn Þormóður sem býr einn ásamt kettinum sín- um Stormi, sem nefndur er eftir veðurfréttamanninum Sigga stormi. Gestur Valur segir líksnyrtinn Þor- móð búinn til úr tveimur persónum. Annar þeirra sé gamall félagi föður hans. „Ég veit að hann hefði haft húmor fyrir þessu en hann var mjög skemmtilegur, sagði allan fjandann og talaði oft opinskátt um vinnuna sína.“ kristjana@dv.is Skemmtilegt í tökum með Bó „Skemmtilegum tökudegi lok- ið,“ skrifaði Þráinn Sigvaldason á Facebook-síðuna sína meðan á tökum á nýrri auglýsingu tónlist.is stóð. Þráinn birtist ásamt landsliði íslenskra poppara í auglýsingunni en hann syngur meðal annars með poppkóngnum Björgvini Halldórs- syni. Auglýsingin þykir sjálf mjög flott og hefur hún vakið almennt góð viðbrögð. Í henni birtist landslið ís- lenskra tónlistarmanna en auk Björg- vins Halldórssonar birtast í henni tónlistarmennirnir Ragnheiður Gröndal og Páll Óskar Hjálmtýsson. guðni, Auður og Sigmar að „planka“ Mynd af Guðna Ágústssyni, fyrr- verandi landbúnaðarráðherra, að „planka“ hefur farið eins og eldur í sinu um internetið. Myndin af hon- um var send inn á Facebook-síðu íslenska plankasamfélagsins, eða Icelandic Planking Community eins og síðan heitir á Facebook. Þar voru fyrir nokkrar myndir af Sigmari Guð- mundssyni, ritstjóra Kastljóssins, og ein mynd af Auði Bjarnadóttur, jógakennara og ballerínu. Það er því alveg ljóst að „planking“-æðið hefur náð fótfestu hér á landi. A lls ekki. Ég held að ég hafi borðað tvisvar þarna,“ seg- ir sjónvarpsstjarnan Nilli að- spurður hvort hann borði mikið af Metro-borgurum. Nilli sem hefur slegið í gegn með þætti sínum á mbl sjónvarpi vakti athygli þeg- ar hann birtist í auglýsingabæklingi fyrir hamborgarastaðinn Metro í vik- unni sem leið. Þar var hann sagð- ur ástfanginn af Metro-borgurum og klæddi sig meðal annars í starfs- mannabúning staðarins og reyndi fyrir sér í hamborgarasteikingum. Hann segir þetta þó ekki hafa kom- ið til vegna einskærrar ástar sinnar á hamborgurum heldur hafi hann ver- ið að gera vinkonu sinni greiða. „Ein af mínum betri vinkonum úr grunn- skóla hringdi í mig og spurði hvort ég væri til í að hjálpa til við að auglýsa staðina og ég sagði bara já. Fjölskyld- an hennar rekur Metro. Ég er nú eng- inn sérstakur áhugamaður um ham- borgara samt,“ segir Nilli sem segist ekki hafa fundið sig í starfinu en þetta hafi þó verið skemmtileg reynsla. Í sumar vinnur hann í afgreiðslunni hjá Kynnisferðum á BSÍ. Þar aðstoð- ar hann ferðamenn sem vilja ferðast um landið. „Ég er í afgreiðslunni og segi bara: „Do you want to go to the Blue lagoon?“ og svona,“ segir hinn einstaki Nilli glettinn að vanda. Kynntist bændum, búaliði og nunnum Nilli er þó ekki bara að hjálpa ferða- mönnum að komast leiðar sinnar í sumar því sjónvarpsþátturinn hans er enn í fullum gangi. Nýlega kom hann úr hringferð um landið þar sem hann kynntist landsbyggðinni. „Ég fór allan hringinn. Þetta var nú kannski ekki í fyrsta skipti sem ég fór út á land, ég hef nú séð margt af þessu áður. Vesturland og Norður- land fundust mér mikilfenglegust. Ég þekki svolítið vel til Suðurlandsins því ég hef verið mikið þar.“ Nilli hitti alls konar fólk á ferð sinni um landið. „Ég kynntist alls konar bænd- um og búaliði og einhverjum nunn- um líka,“ segir Nilli sem var hissa á hversu margir þekktu hann. „Já, fólk þekkti mig alveg en ekki eldra fólkið reyndar. Ég var mjög hissa en mér þótti þetta gaman . Það þekktu mig ekki allir. Til dæmis ekki svona eldri bændur sem þekkja ekki einu sinni Pál Óskar.“ Draumurinn að verða leikstjóri Það er sjaldan auð stund hjá Nilla sem er um þessar mundir að stíga sín fyrstu skref sem leikstjóri. Fyrsta verkið er stuttmynd um hugarheim dópista eftir hann sjálfan og Daníel Gylfason. Myndin skartar Gísla Erni Garðarssyni í aðalhlutverki. „Þetta verður djúpt og dramatískt held ég. Kannski ekki djúpt en allavega dramatískt,“ segir Nilli hlæjandi og segist lengi hafa stefnt í þessa átt. „Mig hefur lengi langað til að leik- stýra einhverju. Það hefur verið minn draumur. Ég vil alveg leika líka en ég held að leikstjórnin eigi bet- ur við mig. Ég er nú ekki að tala um kvikmyndir heldur leikhús og leikrit. Draumurinn er að leikstýra á sviði.“ viktoria@dv.is Hefur fArið tvisvar á Metro Grínistinn Nilli slær í gegn í Metro-auglýsingu og ferðast um landið: Auglýsingastjarna Nilli vakti athygli margra þegar hann birtist í þessari auglýs- ingu fyrir hamborgarakeðjuna Metro. Leikstjórnin heillar Nilli stígur sín fyrstu skref sem leik- stjóri í sumar. MyND siGtryGGur Ari Fékk góð ráð frá Klovn-stjörnu Gestur Valur er ekki í uppnámi yfir slæmum dómum og ánægður með gott áhorf á þættina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.