Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Blaðsíða 18
18 | Umræða 20. júní 2011 Mánudagur „Af hverju erum við ekki öll að moka?“ n Ragna Árnadóttir formaður Almannaheilla um ástandið eftir hrun. –DV „Kommúnistar og kratar hafa ekki einkaleyfi á náttúrunni.“ n Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna. –DV „Ég ætla að vona að ég standi ekki vinalaus uppi eftir sumarið.“ n Davíð Guðbrandsson leikari og nýr blaðamaður á Séð og heyrt. –DV „Ekki alveg það sem ég bjóst við að sjá á Hosteli. Forseta og frú að flippa eitt- hvað.“ n Tobba Marínósdóttir bloggar um forsetahjónin á KEX Hostel. –DV „Ísland getur vel orðið stórveldi í sjávarútvegs- málum innan Evrópusam- bandsins.“ n Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Ísland. –DV „Eyði stórum hluta af fríi mínu í heimsókn hjá Tomi á Íslandi. Hann býr í hjólhýsi, ótrúlegt.“ n Knattspyrnumaðurinn Shola Ameobi er í heimsókn hjá bróður sínum sem leikur með BÍ/Bolungarvík. - Twitter Þolinmæði þarf í uppgjörinu Í opinberri umræðu hér á landi hefur borið nokkuð á óþolin­ mæði vegna meints seinagangs sérstaks saksóknara í rannsókn­ inni á bankahruninu haustið 2008. Embættið hefur um 80 mál til skoð­ unar og hefur gefið út tvær ákærur frá því það var sett á laggirnar í árs­ byrjun 2009. Dómur hefur verið kveðinn upp í einu máli – Baldur Guðlaugsson hefur verið dæmdur fyrir innherja­ svik og brot í opinberu starfi – og er málarekstur í gangi í öðru dómsmáli sem kennt er við Exeter Holdings. Mörgum þykir þetta rýr eftirtekja eft­ ir tveggja og hálfs árs starf saksóknar­ ans og að þeir sem hafi verið ákærðir í málunum tveimur séu langt frá því að vera aðalsökudólgar hrunsins. Á móti kemur að bæði mál Baldurs og Exeter Holding­málið voru fremur einföld viðureignar miðað við það sem gengur og gerist um efnahags­ brot: Hin saknæma háttsemi nánast blasti við. Þess vegna var rökrétt að byrja á þessum tveimur málum en ekki öðrum flóknari, og hugsanlega stórfelldari, efnahagsbrotum sem ætla má að hefði þurft lengri tíma til að rannsaka betur. Hroðvirkni í slíkum rannsóknum er ekki af hinu góða og þarf að ígrunda ákærulið­ ina í málunum afar vel áður en lát­ ið er til skarar skríða gegn þeim sem liggja undir grun um að hafa framið lögbrot. Sérstakur saksóknari, Ólafur Hauksson, hefur sjálfur gefið það út að meginhluti þeirra 80 mála sem eru til rannsóknar hjá embætt­ inu fari fyrir dómstóla árið 2013. Þá verða um fimm ár liðin frá banka­ hruninu. Þegar litið er til þess hversu langan tíma það tekur fyrir ákæru­ valdið almennt séð að rannsaka flók­ in efnahagsbrot af því tagi sem til skoðunar eru hjá saksóknaranum er fimm ára rannsóknarferli ekki lengri tími en gengur og gerist. Til að mynda tók það ákæruvald­ ið á Íslandi um sex ár að fá dóma í frægasta efnahagsbrotamáli liðinna ára, Baugsmálinu. Tveir af stjórn­ endum félagsins, Jón Ásgeir Jóhann­ esson og Tryggvi Jónsson, fengu skilorðsbundna dóma fyrir efna­ hagsbrot árið 2008. Einhvers konar lausn kom því í málið um sex árum eftir að ákæruvaldið hóf rannsókn á því árið 2002. Svipaða sögu má segja um annað frægt efnahagsbrotamál, Hafskipsmálið. Ákæruvaldið byrj­ aði að rannsaka málið árið 1985 en dómar í Hæstarétti voru ekki kveðnir upp fyrr en 1991, um sex árum síðar. Þegar litið er út fyrir landsteinana má einnig tilgreina nýlegt mál aust­ urríska bankamannsins Helmuts Elsner sem var dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti Austurríkis í desember í fyrra. Elsner, sem skaut dómnum til Mannréttindadómstóls Evrópu sem staðfesti hann í síðasta mánuði, var stjórnarformaður aust­ urríska bankans BAWAG á árun­ um 1995 til 2003. Talið var sannað að Elsner hefði með gáleysislegum gjaldeyrisviðskiptum borið ábyrgð á 230 milljarða króna tapi austurríska bankans þegar hann fór fyrir stjórn hans. Elsner var því dæmdur í lok árs í fyrra fyrir brot sem hann framdi að minnsta kosti sjö árum fyrr og sem byrjað var að rannsaka árið 2007. Þessi dæmi sýna hversu langan tíma það getur tekið að ná fram end­ anlegu uppgjöri og réttlæti í efna­ hagsbrotum eins og þeim sem eru til rannsóknar hjá sérstökum saksókn­ ara. Sú staðreynd að einungis tvær ákærur hafa verið gefnar út þýðir því vitanlega ekki að þar með ljúki upp­ gjörinu við íslenska efnahagshrunið því ætla má að von sé á tugum ákæra á næstu árum. Almenningur þarf því að sýna þolinmæði í uppgjörinu við hrunið því biðin eftir réttlæti í efna­ hagsbrotamálum getur vissulega orðið nokkuð löng. Leiðari Er Jón Gnarr þá enginn stórlax? „Það er Reykvík- ingur ársins sem er stærsti laxinn en við verðum á staðnum og munum veita andlegan stuðning,“ segir S. Björn Blöndal, aðstoðar- maður Jóns Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur, en Jón Gnarr ætlar ekki að veiða fyrsta laxinn í Elliðaánum í dag eins og venjan er. Þetta árið er það Reykvíkingur ársins sem hreppir þann heiður. Spurningin Bókstaflega Ingi F. Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar„Biðin eftir réttlæti í efnahagsbrota- málum getur vissulega orðið nokkuð löng. Stríð Baugspenna n Í síðustu viku skall á mikið stríð tveggja valinkunnra Baugspenna þegar Guðmundur Andri Thorsson, greinahöfundur Fréttablaðsins, hraunaði yfir Hannes Hólm- stein Gissurarson, prófessor og fyrrverandi lausapenna Fréttablaðsins á launum. Guð­ mundur Andri benti á þá óhæfu að Hannes, dæmdur fyrir ritþjófnað, væri á launum hjá Háskólanum. ,,Hitt er verra, og satt að segja óskiljanlegt, að Háskóli Íslands láti sér sæma að veita þessum manni óheftan aðgang að æskufólki þessa lands, til að fylla höfuð þess af órum og ranghugmyndum – ekki síst eftir að hann varð uppvís að einhverj­ um stórfelldasta ritstuldi Íslands­ sögunnar ...,“ skrifaði Guðmundur Andri og náhirð Sjálfstæðisflokksins trylltist. Svartur blettur n Jóhannes Jónsson, kenndur við Bónus, og Kristín, dóttir hans, áttu á sínum tíma fund með háskólarektor í því skyni að fá Hannes Hólmstein Gissurarson rekinn úr starfi vegna skuggalegrar fortíðar hans. Kristín Ingólfsdóttir rektor mun hafa hlýtt á erindi feðginanna með skilningi. Hún aðhafðist þó ekkert. Það þykir raunar einhverjum vera svartur blettur á æðstu menntastofnun landsins að prófessorinn dæmdi skyldi ekki fá áminningu á sínum tíma. Skíthræddir risar n Titringur er á matvörumarkaði eft­ ir að sá virti verslunarmaður, Eiríkur Sigurðsson opnaði lágvöruverðs­ verslunina Víði í Skeifunni. Eiríkur er þekktur sem stofnandi 10–11 og þykir vera á meðal virtari kaupmanna landsins. Telja menn fullvíst að hann eigi eftir að velgja risunum á matvörumarkaði undir uggum. Hann og fjölskylda hans eru einu eigendur Víðis. Því er spáð að innan tíðar muni hann opna fleiri verslanir og skelfa þannig þá sem fyrir eru. Og það er full ástæða til því fjölmargir hafa lagt leið sína í Víði og eru ánægðir. Öfgakennd framganga n Menn hafa undanfarið tekið eftir því að framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra út­ gerðarmanna, Friðrik J. Arngrímssyni, virðist haldið til baka í umræðunni. Friðrik þykir vera hrokafullur í garð smælingja í sjávarútvegi sem og þeirra sem ekki aðhyllast kvótakerfið. Framganga hans í fjölmiðlum er þannig sögð hafa skemmt fyrir útgerðarmönnum og samtökum þeirra sem fengið hafa á sig öfgakenndan blæ. Formaður LÍÚ, Adolf Guðmundsson, hefur því haft sig meira í frammi sjálfur með yfirveguðum málflutningi. Sandkorn tRyGGvAGötu 11, 101 REyKJAvÍK Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is Ritstjórnarfulltrúi: Jóhann Hauksson, johann@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. H agræðing er mikið not­ að orð. Hagræðing inni­ ber einhvers konar einföld­ un og betri leið að settu marki. Markið er yfirleitt sparnað­ ur þannig að meira verði til skipt­ anna. Hagræðing er því eftirsókn­ arverð og vísbending um arðsemi og góða stjórnun. Samkvæmt sum­ um stjórnmálakenningum er hag­ ræðing grundvöllur velmegunar og betri lífskjara. En hagræði eins getur verið óhagræði annars. Hagræðingu í sjávarútvegi þakka sumir framsali aflaheimilda, rétti manna til að eigna sér atvinnurétt­ indi fiskimannsins. Þessi atvinnu­ réttindi eru af Landssambandi ís­ lenskra útvegsmanna talin séreign og innköllun sögð bótaskyld. En ætti þjóðin þá ekki öll rétt á skaðabótum? Veiðirétturinn var jú hennar áður en handvaldir aðilar fengu hann í hendur. Og ekki bætir úr skák að sá ráðherra sem það gerði átti sjálfur hagsmuna að gæta. Hagræðing sem byggir á gjafabréfi atvinnuréttinda sem áður voru öllum aðgengileg er öfugmæli og markaðstorgið sem byggir á þessum sama gjafagjörn­ ingi ólög svo ekki sé meira sagt. Og sífellt mistekst stjórnvöldum að aft­ urkalla þennan ójöfnuð og endur­ semja nýja fiskveiðistjórn sem bygg­ ir á sama byrjunarreit allra. Kvótakerfið átti að efla byggðirnar Víkjum aftur að hagræðinu. Kvóta­ kerfið átti að stuðla að uppgangi byggðanna. En í því að gefa atvinnu­ réttinn einungis sjósækjendum var fólgin atlaga að atvinnuuppbygg­ ingu í landi. Þannig tók hagræðing­ in ekkert tillit til landvinnslunnar né sjávarþorpanna, sala veiðiheim­ ilda var ekki þeirra hagræðing held­ ur auðnarstimpill. Stórkostlega eigna­ og atgervissviptingu lands­ byggðarinnar má rekja til þeirrar forkastanlegu ákvörðunar að færa atvinnurétt heillar þjóðar, atvinnu­ rétt okkar gjöfulustu atvinnugreinar í hendur örfárra aðila í krafti nokk­ urra ára veiðireynslu. Fiskverkend­ ur fengu ekkert, verkafólkið ekkert, sjómennirnir ekkert, þorpin ekk­ ert, þjóðin ekkert, einungis nokkrir skipstjórar og útgerðarmenn. Þetta gerir það að verkum að lega byggða að sjó skiptir engu nema einhver veiðiréttarhafinn geri náðarsamleg­ ast þar út. Hagræðingin fyrir fiskverkun­ arfólk liggur fyrir, fækkun starfa og einungis fólk sem vant er lágum launum gerir sér þetta að góðu. Hagræðingin fyrir sjómenn er út­ rýmingarhætta stéttarinnar, hetja hafsins er ekki lengur hinn sjálf­ stæði sægarpur heldur leiguliði sem þorir ekki að opna kjaftinn vegna hræðslu við yfirboðara sína. Leiguliðinn á tvo af hverjum tíu fiskum sem hann veiðir, hinir átta fara til leigusalans. Svo þegar leigu­ salinn er krafinn um auðlindagjald til handa þjóðinni æmtir hann yfir einum bakugga. Með öðrum orðum þá áskilur handhafi veiðiréttarins sjálfum sér 80% þegar hann leigir réttinn öðrum en borgar sjálfur 4% til ríkisins í formi auðlindagjalds. Fisksala á alþjóðlegum mörkuð­ um færir fiskveiðiþjóð lífsgrundvöll. Það er ekki bundið við árið 1990 þegar framsal veiðiheimilda var leyft. Ekki heldur hækkað fiskverð. Það hefur öðru fremur lagt grunn­ inn að hagkvæmni sjávarútvegs­ fyrirtækja og ætti að skila sér í lágu fiskverði til neytenda heima fyrir. Sú hagræðing lætur á sér standa og í fiskbúðum er djúpt á fiskveiðiþjóð­ inni. Ímynd hagræðingar Hagræðingu kvótakerfisins er mark­ visst haldið að þjóðinni. Fjölmiðlar, fræðasamfélagið, forystumenn hagsmunasamtaka, stjórnsýslan, stjórnmálaflokkar, embættismenn og alþingismenn, í öllum hornum eru ítök. Búin er til ímynd hagræð­ ingar og sjái menn annað samsvar­ ar það efnahagshruni. Segja má að gangi hagræðing út á fækkun starfa, byggðaröskun, eignatilfærslu og loftbóluhagkerfi hefur vel til tekist. Gangi hagræðing út á þjónkun og þöggun hefur vel til tekist. Gangi hagræðing út á að færa stjórn lands­ ins úr höndum réttkjörinna stjórn­ valda í hendur hagmunaaðila hefur vel til tekist. Hámark hagræðingar­ innar hlýtur þá að vera þegar við þurfum ekki að ómaka okkur við kosningar. Hagræðing á hagræðingu ofan Kjallari Lýður Árnason „Fiskverkend- ur fengu ekkert, verkafólkið ekkert, sjó- mennirnir ekkert.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.