Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Blaðsíða 23
Viðtal | 23Helgarblað 15.–19. júní 2011 „Það þarf að greina hvað þeir geta borgað fyrir auðlindina.“ Eygló segir þó óraunhæft að kom- ast að niðurstöðu sem allir verði ánægðir með. „Það er alltaf talað um einhverja sátt, einhvern Salómons- dóm, um hvernig við nýtum auðlind- irnar. Það verður aldrei fullkomin sátt um hagsmuni. Það er ekki hægt að koma með eina rétta niðurstöðu. Menn verja alltaf sína hagsmuni. Það hafa útgerðarmenn gert og þeir hafa því miður í ákafa sínum skaðað hags- muni sína“ segir hún ákveðin. Eygló er hörð á því að fyrningar- leiðin svokallaða, þar sem innkalla átti hratt veiðiheimildir núverandi handhafa, hefði rústað sjávarútveg- inum. Við það hefðu bankarnir get- að farið aftur á hausinn, vegna ólög- mætrar veðsetningar. „Menn hafa verið að veðsetja óveiddan fisk þó það hafi verið bannað. Það varð eignaverðsbóla á aflaheimildum. Menn fóru að spila fjárhættuspil og stunda brask. Þetta var hætt að snú- ast um rekstur fyrirtækjanna og hver geta og hæfni þeirra var til að búa til verðmæti úr fiskinum. Þetta var far- ið að snúast um framtíðarvæntingar um tekjur sem aldrei gátu orðið.“ Hún viðurkennir að útgerðar- menn í Vestmannaeyjum láti vel í sér heyra en hún segir hins vegar að þannig virki pólitík ekki í hennar huga. „Auðvitað er þrýstingur. Það sem gerir Eyjamenn að Eyjamönn- um er að þeir liggja ekki á skoðunum sínum. Ég hef aldrei átt von á öðru en að þeir segi það sem þeir hugsa hverju sinni. Það hafa þeir svo sann- arlega gert,“ segir hún sposk. „Okkar vandi er heimatilbúinn“ Framsóknarflokkurinn er á móti aðild að Evrópusambandinu, ESB. Eygló segist fylgjandi stefnu flokks- ins í þeim efnum, hún hafi lengi haft efasemdir um aðild að ESB. „Mér finnst Íslendingar nálgast ESB á rangan máta. Sumir líta á þetta sem björgun frá okkur sjálfum. Ég er ósammála því. Þú tekur alltaf sjálfan þig með, hvert sem þú ferð. Hvort sem þú gengur inn í ríkjasamband eða hjónaband þá tekur þú sjálfan þig með.“ Hún segir of mikið gert úr ágreiningi innan flokkanna um ESB. Þeir eigi að þola skiptar skoðanir. Margt skipti meira máli núna. „Ég gekk til dæmis ekki í Framsóknar- flokkinn á grundvelli afstöðu til ESB.“ Eygló lærði í Svíþjóð þegar Svíar gengu í ESB. Hún segir minnistætt að nánast ekkert hafi breyst við inn- gönguna. „Menn reyna að selja ESB sem einhverja frelsun en við munum ávallt bera ábyrgð á efnahagsstjórn- inni. ESB hefur ekki stoppað Grikki, Íra eða Spánverja í því að halda illa á sínum málum. Aginn þarf að koma frá okkur sjálfum. Okkar vandi er heimatilbúinn.“ Hún gerir lítið úr ágreiningi inn- an Framsóknar flokksins um Evrópu- mál, en Siv Friðleifsdóttir og Guð- mundur Steingrímsson hafa þótt hlynntari ESB en aðrir þingmenn. „Nei, þau styðja það að aðildarferlinu verið lokið og þjóðin fái að greiða at- kvæði. Þau hafa talað um að þau séu hlynnt aðildarviðræðum og að þau vilji taka afstöðu út frá samningn- um sjálfum. Ýmsir framsóknarmenn endurspegla þessa afstöðu, enn aðrir vilja ganga inn, á meðan meginþorri framsóknarmanna er sammála því að hagsmunum okkar sé best borgið fyrir utan líkt og kemur fram í álykt- un flokksþings okkar. Við getum haft ólíkar áherslur í einstökum málum og við verðum að læra að umbera það hvert hjá öðru. Afstaða okkar til ESB segir ekki til um hvort við séum framsóknarmenn eða ekki, heldur hvernig samfélag við viljum byggja á Íslandi til framtíðar.“ Vildi ákæra alla fjóra Geir H. Haarde er þessa dagana fyrir landsdómi vegna meintrar vanrækslu í starfi. Eygló vildi að allir ráðherrarn- ir fjórir; Geir, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, Björgvin Sigurðsson og Árni Mathiesen yrðu dregnir fyrir dóm. Þannig kaus hún á Alþingi. Hún segir aðspurð að það hafi verið mjög erfiður tími þegar Alþingi tók þetta fyrir. „Þetta snerist aldrei um hvort þetta væri gott fólk. Sumir virð- ast halda að það sé bara slæmt fólk sem brýtur hugsanlega af sér. Það er ekki þannig. Gott fólk gerir líka mis- tök.“ Hún segist ekki hafa látið það hvernig aðrir kusu hafa áhrif á sig. „Þarna var verið að taka ákvarðanir um líf nafngreindra einstaklinga sem við þekkjum. Það er mikilvægt fyrir þingmenn að muna að á hverjum einasta degi er verið að taka ákvarð- anir um eitthvað sem varðar líf ann- ars fólks. Okkur hættir til að finnast þetta auðveldara og þægilegra þegar talað er um fólk sem hópa. Við sjáum ekki andlitin. Hver einasta ákvörðum sem við tökum snertir einhverja ein- staklinga, á góðan eða slæman máta. Við gleymum því. Landsdómsmálið er að mínu mati þörf áminning fyrir alla ráðherra. Valdinu verður að fylgja ábyrgð. Annars fer allt úrskeiðis.“ Vill ráðherra af Alþingi Talið berst að stjórnlagaráði og nýrri stjórnarskrá. Eygló segist helst vilja skerpa á þrískiptingu valdsins. Þing- ið sé sjálfstætt og óháð framkvæmda- valdinu. Hún vill ekki útiloka svipað fyrirkomulag og er í Bandaríkjun- um og Frakklandi. Þar er forsetinn kosinn beinni kosningu og velur sér utanþings ráðherra sem fara í gegn- um ákveðið samþykktarferli hjá við- komandi þjóðþingum. Þannig væri hlutverk forseta og forsætisráðherra sameinað í eitt starf. „Önnur leið væri að halda áfram þingræðinu en ráðherrar vikju af þingi á meðan þeir gegndu ráðherraembætti. Það væri í meira samræmi við fyrirkomulag mála á Norðurlöndunum. Alþingi er löggjafarvaldið og á að fara með eft- irlit með framkvæmdavaldinu. Eins og þetta er í dag þá er of algengt að framkvæmdavaldið fari inn á vald- svið löggjafarvaldsins og öfugt. Eygló líst vel á þær tillögur sem komið hafa fram frá stjórnlagaráði um dómstólana. Skerpa þurfi á hlut- verki þeirra. Hún segir hins vegar að tillögurnar einkennist af vantrausti á Alþingi. „Við sjáum í nýlegum ríkjum að þar eru stjórnarskrárnar lengri og ítarlegri. Í löndum þar sem traustið er meira þá er hún styttri og einfald- ari. Þar þarf ekki að negla allt niður. Þær tillögur sem fram hafa komið eru sumar hverjar mjög ítarlegar. En ég er mjög spennt að sjá niðurstöð- ur frá ráðinu. Menn eru greinilega að vanda sig.“ Vildi ekki kosningar Eygló er að sögn mikill lýðræðis- sinni og var þess vegna ósátt við það hvernig staðið var að vantrauststil- lögunni á Alþingi í vor, sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, bar upp. Hún hefði viljað að tillagan yrði borin upp sameigin- lega af stjórnarandstöðunni og fyr- irvarinn fyrir kosningar yrði nægur. „Það að fara í kosningar með svona skömmum fyrirvara hefði verið ólýð- ræðislegt gagnvart nýjum stjórn- málaöflum sem hefðu viljað bjóða sig fram. Það er ekkert lýðræðislegt við það að geta bara kosið þá sem eru á þingi fyrir. Það hefði verið ósköp þægilegt fyrir flokkana en það er ekki lýðræði.“ Hún segir að flokkarnir glími við slæma ímynd og fólk eigi erfitt með að greina á milli þeirra. „Við verð- um að hafa leikreglurnar þannig að þeir sem hafa áhuga á að taka þátt hafi möguleika á því, jafnvel þó það myndi þýða að ég næði ekki kjöri aftur. Þingmennska er ekki ævistarf. Ef við ætlum ekki að bera virðingu fyrir okkar hlutverki í mikilvægustu lýðræðisstofnun landsins, þá getum við ekki krafist þess að aðrir geri það. Lykilhugsunin í okkar starfi á að vera virðing fyrir lýðræðinu.“ Aldrei aftur aukahjól í ríkisstjórn Í viðtali við DV um páskana opnaði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra á þann möguleika að styrkja ríkisstjórnina með því að semja við aðra flokka um tiltekin mál. Fram- sóknarflokknum hugnaðist ekki, ekki frekar en Hreyfingunni, það boð. Eygló segir ekki koma til greina að vera aukahjól undir vagninum aftur, eins og vorið 2009. „Við höf- um sagt að við munum ekki ganga til liðs við stjórnina á grundvelli þessa stjórnarsáttmála. Við viljum að þegar fólk velur Framsóknar- flokkinn þá viti það hvað það fær. Fólk verður að geta treyst því að við stöndum við það sem við segj- um. Það hefur verið stórt og erfitt verkefni að endurreisa flokkinn og byggja upp traust aftur. Við mun- um ekki og getum ekki hlaupið til bara þegar okkur eru boðin eitt eða tvö ráðuneyti. Það kemur ekki til greina,“ segir hún ákveðin. Æfir fyrir Reykjavíkurmaraþon Þegar Eygló er spurð um áhugamál sín fyrir utan þingstörfin hugsar hún sig um í smástund og segir svo að hún hafi ofboðslega mikinn áhuga á því sem er að gerast á Íslandi og í út- löndum. Vinnan sé því áhugamálið en auðvitað verji hún öllum þeim tíma sem hún getur með fjölskyld- unni. „Annars er ég að fara að læra frönsku í sumar. Ég hef áhuga á því að tala frönsku í framtíðinni. Ég er búin að taka fyrsta áfangann í fjarnámi og tek næsta áfanga í sumar.“ Eygló er líka að æfa fyrir hálft maraþon síðsumars en það gerir hún í þágu góðs málefnis. „Ég ákvað að taka þátt í Reykjavíkurmaraþon- inu í ágúst til stuðnings Samtök- um kvenna með endómetríósu, eða legslímu flakk.“ Eygló var fyrsti flutn- ingsmaður þingsályktunartillögu þar sem lagt er til heilbrigðisráðherra beiti sér fyrir fræðsluátaki um sjúk- dóminn og að möguleiki á stofnun göngudeildar fyrir konu með sjúk- dóminn verði kannaður. „Það hef- ur aldrei þótt spennandi að tala um blæðingar kvenna en sjúkdómurinn lýsir sér í miklum sársauka við blæð- ingar. Því var ég stolt þegar ég steig upp í pontu á Alþingi og talaði fyrir þessu máli. Það skortir á þekkingu til að greina sjúkdóminn fyrr. Því seinna sem konur greinast með sjúkdóm- inn því meiri hætta er á skemmdum á æxlunarfærum. Talið er að 30–40 prósent af van- eða ófrjósemi megi rekja til endómetríósu.“ Eygló segir að æfingarnar fyrir maraþonið gangi upp og ofan. Tími til æfinga hafi reynst lítill. „Markmið- ið er að komast í mark áður en tíma- takan hættir,“ segir hún að lokum og hlær. „Ég er þannig að mér leiðist fljótt að gera sömu hlutina aft- ur og aftur. „Þegar þetta hættir að vera gaman og mér finnst ég ekki gera gagn, þá er best að hætta. Og ef ég fatta það ekki sjálf þá vona ég að einhver segi mér það. Fjarri fjölskyldunni Eiginmaður hennar og börn búa í Vestmannaeyjum en hún hefur aðsetur í Reykjavík. Hún viðurkennir að fjarbúðin geti verið erfið en segir þó að í Eyjamenn þekki slíkt fyrirkomulag vel. mynd RóbeRt ReynissOn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.