Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 20. júní 2011 Mánudagur
Bílstjóri snarhemlaði þegar barn skreið út á veginn:
Ungabarn á Miklubrautinni
„Bíllinn sem var að keyra á undan
mér snarstoppar og keyrir upp á kant
inn. Ég var búinn að hægja vel á mér
en þurfti samt að stoppa. Svo kipp
ir hann upp litlu barni sem var nán
ast komið út á Miklubrautina. Barnið
var skríðandi og var örugglega und
ir eins árs,“ segir Guðmundur Ágúst
Karlsson en hann varð vitni að ótrú
legum atburði á Miklubrautinni í
síðustu viku. Þar rétt bjargaðist barn
sem hafði skriðið frá þeim sem ann
aðist það og var við það að skríða út
á Miklubrautina þegar bílstjórinn
óþekkti fyrir framan Guðmund stopp
aði og bjargaði barninu, rétt í tæka tíð.
Atvikið átti sér stað rétt fyrir neðan
aðreinina frá Miklubrautinni og upp
á Snorrabraut. „Svo sá ég hann bara
kippa því upp og hlaupa með það að
húsaröðinni þarna við. Þá sé ég að
það kemur einhver ungur strákur og
tekur við barninu. Það var alveg rosa
legt að sjá þetta,“ segir Guðmundur
sem var að vonum brugðið við atvik
ið enda ljóst að mjög illa hefði getað
farið ef bílstjórinn hefði ekki stoppað
og barnið skriðið út á brautina. Vel fór
þó í þetta skiptið en Guðmundur var
á hraðferð og náði því ekki að stoppa
og athuga hvers vegna barnið var statt
þarna. „Það var þó örugglega búið að
skríða einhverja vegalengd.“
viktoria@dv.is
Eignarhaldsfélagið Keta sem var í
eigu Dons McCarthy, stjórnarfor
manns House of Fraser, hefur verið
lýst gjaldþrota. Engar eignir fund
ust í þrotabúinu en eini kröfuhafinn
var Landsbankinn í Lúxemborg en
lýstar kröfur námu 1.575 milljónum
króna. Kemur þetta fram í Lögbirt
ingablaðinu.
Landsbankinn í Lúxemborg lán
aði eignarhaldsfélaginu Keta 1.200
milljónir króna árið 2007 en á þeim
tíma eignaðist Don McCarthy þriggja
prósenta hlut í Baugi. Í ársreikning
um Keta kemur fram að félagið hafi
verið í eigu Caterala Trading Limit
ed, félags Dons McCarthy sem skráð
er á Kýpur. Einnig kemur þar fram
að eina eign Keta hafi verið hlutur í
félaginu Don McCarthy LLP. Bresk
ir fjölmiðlar greindu frá því árið
2007 að Don McCarthy hefði á þeim
tíma borgað 20 milljónir punda fyr
ir þriggja prósenta hlut sinn í Baugi
eða um 2,5 milljarða króna miðað
við gengi pundsins gagnvart krónu
árið 2007. Um helmingur af þeim
kaupum virðist hafa verið fjármagn
aður með 1.200 milljóna króna láni
frá Landsbankanum í Lúxemborg.
Samkvæmt hluthafalista Baugs árið
2008 var hlutur Dons McCarthy í fé
laginu þá kominn í 7,5 prósent en þá
fór Kevin Stanford, stofnandi Karen
Millen og náinn viðskiptafélagi Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, líka með 7,5
prósenta hlut í Baugi.
Í stjórnum félaga skilanefndar
Keta, félag Dons McCarthy, bæt
ist þar með í hóp með öðrum gjald
þrota félögum hérlendis tengdum
Baugi. Lýstar kröfur í þrotabú Baugs
árið 2009 námu um 320 milljörðum
króna og var Landsbankinn stærsti
kröfuhafinn með um 100 milljarða
króna kröfur. Þess má einnig geta að
Keta var stofnað af Björgvini Narfa
Ásgeirssyni, þáverandi starfsmanni
Deloitte, en í skýrslu rannsóknar
nefndar Alþingis kemur fram að
Björgvin hafi komið að stofnun 71
eignarhaldsfélags á árunum 2003 til
2008.
Þótt Don McCarthy skilji eftir sig
nærri 1.600 milljóna króna gjald
þrot vegna lána hjá Landsbankan
um í Lúxemborg kemur það ekki
í veg fyrir að hann starfi í dag sem
stjórnarformaður House of Fraser
(HOF) þar sem skilanefnd Lands
bankans er stærsti hluthafinn með
um 35 prósenta hlut. Don McCarthy
fer þó sjálfur með 22 prósenta hlut í
HOF. Aðrir hluthafar eru skilanefnd
Glitnis sem fer með 14 prósenta hlut
og Sir Tom Hunter sem á ellefu pró
sent í HOF.
Baugur yfirtók HOF árið 2006
með 47 milljarða króna yfirtöku
tilboði í gegnum félagið Highland
Acquisitions. Var yfirtakan fjármögn
uð af Glitni og Halifax Bank of Scot
land. Fór Baugur með 35 prósenta
hlut í félaginu, FL Group 13,9 prósent
en auk þess tóku aðrir minni fjárfest
ar tengdir Baugi þátt í yfirtökunni.
Don McCarthy er einnig stjórnar
formaður í Aurum Holdings, stærstu
skartgripakeðju Bretlands, en skila
nefnd Landsbankans yfirtók 38 pró
senta hlut eignarhaldsfélagsins BG
Holding í Aurum árið 2009 þegar
Baugur fór í þrot. Don McCarthy á
sjálfur hlut í Aurum ásamt öðrum
stjórnendum hjá félaginu en árið
2009 var skuldum eigenda félagsins
breytt í hlutafé.
Milljarðamæringur
Árið 2008 mat breska blaðið Sunday
Times eignir Dons McCarthy á 110
milljónir punda eða nærri 21 milljarð
króna miðað við núverandi gengi.
Ári seinna höfðu eignir hans lækk
að í 90 milljónir punda eða tæplega
17 milljarða króna. Don McCarthy
hagnaðist vel á því að selja hlut sinn í
verslanakeðjunni Rubicon árið 2006
en þá yfirtók Mosaic Fashions félagið
á um 320 milljónir punda sem þá
námu um 43 milljörðum króna.
Don McCarthy hefur lengi verið
einn af nánustu viðskiptafélögum
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar en sam
starf hans við Baug hófst árið 2004.
DV sagði frá því í nóvember árið 2009
að Don McCarthy hygðist taka þátt í
því að koma með um sjö til tíu millj
arða króna sem nýtt hlutafé til eign
arhaldsfélagins 1998 sem átti Haga
ásamt þeim Malcolm Walker, for
stjóra Iceland matvörukeðjunnar,
og Sir Tom Hunter. Don McCarthy
var hluthafi í Baugi með 7,5 pró
senta hlut eins og áður kom fram og
sat í stjórn félagsins og líka í stjórn
dönsku félaganna Magasin du Nord
og Illum sem voru í eigu Baugs.
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
„Keta, félag Dons
McCarthy, bætist
þar með í hóp með öðr-
um gjaldþrota félögum
hérlendis tengdum Baugi.
n Eignarhaldsfélagið Keta gjaldþrota n Í eigu Dons McCarthy, stjórnarformanns
House of Fraser n 1.600 milljóna króna skuld hjá Landsbankanum í Lúxemborg
Átti 7,5 prósent í Baugi Don McCarthy var náinn
viðskiptafélagi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Baugs
fyrir bankahrunið. Átti hann 7,5 prósenta hlut í Baugi
áður en félagið fór í þrot árið 2009.
FÉKK MILLJARÐ Í LÚX
TIL AÐ KAUPA Í BAUGI
St. 41-46
Grensásvegur 8 &
Nýbýlavegur 12
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
SKÓMARKAÐUR
St. 40-46
St. 41-50
St. 40-46
St. 41-46
Grensásvegur 8 &
Nýbýlavegur 12
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
SKÓMARKAÐUR
St. 40-46
St. 41-50
St. 40-46
Góðir skór
Gott verð
St. 36-41
kr. 6.595
St. 36-41
kr. 5.895
St. 24-35
kr. .395
St. 41-46
kr. 6.795
Minna
atvinnuleysi
Atvinnuleysi mældist 7,4 prósent í
maí síðastliðnum samkvæmt skrán
ingu Vinnumálastofnunar og hefur
ekki mælst minna í maímánuði frá
því fyrir hrun árið 2008. Atvinnuleysi
dróst saman frá fyrra mánuði í öllum
landshlutum og fækkað hefur í hópi
langtímaatvinnulausra. Í maí 2009
mældist atvinnuleysi 8,3 prósent og
8,7 prósent í maí 2009 en er nú 7,4
prósent.
Atvinnuleysið í maí jafngildir því
að um 12.550 manns hafi verið án
atvinnu og hafði þeim þá fækkað um
rúmlega 700 frá því í apríl. Atvinnu
leysi er 7,7 prósent hjá körlum en
7,1 prósent hjá konum.
Í maí voru um 7.990 manns sem
skráðir höfðu verið án atvinnu í sex
mánuði eða lengur og hafði fækkað
um 355 í þeim hópi frá því í apríl.
Þeir sem hafa verið án atvinnu leng
ur en í eitt ár eru nú 4.725 og fækk
aði um 75 frá fyrri mánuði.
Vinnumálastofnun áætlar að at
vinnuleysi haldi áfram að minnka
í júní, meðal annars vegna árstíða
bundinna áhrifa og verði á bilinu 6,7
til 7,1 prósent. Þetta kemur fram á
heimasíðu velferðarráðuneytisins.
Skreið út á götu Þarna fór barnið út á Miklubraut. MynD SKjÁSKot aF ja.iS.