Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 20. júní 2011 Mánudagur Margrét Müller og Séra Ágúst Georg kenndu í Landakotsskóla um árabil. Samkvæmt heimildum blaðsins voru þau elskendur en Margrét bjó í turni Landakotsskóla frá því hún byrjaði að kenna þar og allt til 1.september árið 2008. Þá svipti hún sig lífi með því að henda sér út um glugga á turn- inum snemma morguns, rétt áður en börn komu til skóla. Heimildir blaðs- ins herma að hún hafi átt erfitt með að jafna sig á fráfalli séra Georgs sem lést þann 16.júní sama ár. Georg var skólastjóri Landakotsskóla en Mar- grét var kennari þar. Lögreglan og fagráð kirkjunnar rannsaka þau bæði vegna ásökunar um ofbeldi gagnvart fyrrverandi nemanda við skólann. Lengi hafa verið uppi sögusagnir um að alvarlegt andlegt ofbeldi hafi einn- ig þrifist af hálfu þeirra beggja í skóla- starfinu. Frásagnir nokkurra fyrrver- andi nemenda skólans staðfesta það. Í júní árið 2005 fjallaði DV um deilur innan Landakotsskóla sem voru sagðar snúast um ástarsam- band prestsins og kennslukonunn- ar. Þá bjó Margrét enn á lofti skól- ans þrátt fyrir að vera löngu hætt að kenna við skólann. Bessí Jóhanns- dóttir fyrrverandi aðstoðarskóla- stjóri skólans hafði þá lagt það til að hún flytti út þar sem hún væri hætt að kenna auk þess sem hún væri umdeild meðal kennara og nem- enda við skólann. Bessí var sagt upp störfum stuttu seinna og Margrét fékk að búa áfram á loftinu. Gróft andlegt ofbeldi Andlega ofbeldið viðgekkst í skólan- um, samkvæmt viðmælendum DV, og nemendurnir tala um að margir hafi vitað af því en ekkert hafi verið að gert. „Hún niðurlægði oft nem- endur fyrir framan alla, ákveðna einstaklinga. Oft þá sem áttu erfitt uppdráttar. Allir vissu hvernig hún var en enginn gerði neitt,“ segir Vé- steinn Valgarðsson fyrrverandi nem- andi hennar og bætir við. „Hún hafði greinilega ekki lært að kenna börn- um og hafði sama og enga hæfileika til þess. Hún helgaði kirkjunni allt sitt ævistarf og var undir verndar- væng kirkjunnar og þá sérstaklega séra Georgs.“ Í samtali við blaðið staðfesta margir fyrrverandi nem- endur Landakotsskóla að þeir hafi orðið fyrir grófu andlegu ofbeldi af hálfu kennslukonunnar. Séra Georg kom ekki oft fram í frásögnum nem- endanna en hann er þó sagður hafa haldið hlífiskildi yfir Margréti og stutt andlega ofbeldið með því að láta það óáreitt og með því í einhverjum til- vikum að taka þátt í því. Lagði börn í einelti Viðmælendum blaðsins ber sam- an um að hún hafi stundað það að leggja nemendur, og oft þá sem áttu erfitt af einhverjum sökum, í gróft einelti. Hún niðurlægði þá fyrir framan bekkjarfélagana og ól á ótta hjá nemendunum. Flestir hræddust hana og er henni lýst af fyrrverandi nemendum sínum sem illmenni sem gerði börnum lífið leitt. „Hún átti sín uppáhöld. Sum börnin voru gjörsamlega lögð í einelti meðan önnur voru í uppáhaldi hjá henni,“ segir Grímur Jón Sigurðsson fyrrver- andi nemi við Landakotsskóla. Ann- ar fyrrverandi nemandi sem vill ekki koma fram undir nafni vegna ótta við fyrrverandi samnemendur sína sem tóku þátt í að leggja hann í gróft ein- elti ásamt Margréti og séra Georg, tekur í sama streng. „Ég held þau hafi bara ákveðið að sumir krakkar ættu að komast áfram í lífinu og aðrir ekki,“ segir nemandinn en hann varð fyrir grófu andlegu ofbeldi af þeirra hálfu alla sína barnaskólagöngu. „Þau tóku mig oft úr röðinni og létu hina labba fram hjá mér. Svona eins og allir ættu að sjá að ég væri öðruvísi en hinir. Ég fékk aldrei að vera með. Enda féll ég aldrei inn í neina hópa,“ segir hann og augljóst er að það fær mikið á að hann að tala um þetta. Sumarbúðir frá helvíti Á sumrin ráku þau sumarbúð- ir í Rif túni. Þeir lýsa dvölinni þar sem furðulegri og einn þeirra tal- ar um algjört helvíti. Margrét hafi leikið leiki til að niðurlægja krakk- ana af einhverri furðulegri valdaþrá. „Einn daginn mætti hún með fullt af nammi, svo mikið að það hefði ver- ið nóg fyrir alla. Síðan sagði hún yfir hópinn að við fengjum nammi en einhver þyrfti að fórna sér og fá ekki. Sum börn tóku á það ráð að fórna sér til að komast í náð hjá henni,“ segir Grímur Jón og bætir við að þetta hafi verið svo einkennileg hegðun og gott dæmi um þá furðulegu valdaleiki sem hún lék. Nafnlausi nemandinn fór líka í sumarbúðirnar í Riftúni. Þar tók við sama eineltið og hann fékk að upplifa í skólanum. Þar leyfðu þau honum og bróður hans ekki að leika við hin börnin. Þeir áttu að vera ein- ir. Eina nóttina var hann tekinn út og látinn standa fyrir utan svefnskál- ann alla nóttina svo hann héldi ekki vöku fyrir krökkunum því hann var að gráta. „Í Riftúni fengum við ekki að vera nálægt hinum nema á nótt- unni. Ég og bróðir minn máttum ekki vera með hinum í leikjum. Það var aldrei gefin nein ástæða. Við mátt- um ekki vera með þeim, við áttum bara að vera einir. Við máttum ekki einu sinni vera saman ég og bróðir minn. Við áttum bara að sitja þarna hvor í sínu lagi.“ Hann segist aldrei hafa fengið útskýringu á því af hverju þeim var útskúfað. Þetta virtist bara vera hrein illgirni af hálfu kennslu- konunnar. Hún notaði ýmsar aðferð- Presturinn Séra Georg er sagður hafa tekið þátt í andlega ofbeldinu sem Margrét beitti börnin. LjóSMyndaSafn ReykjavíkuR vésteinn valgarðsson Segir alla hafa vitað hvernig hún var en enginn hafi gert neitt. einelti Grímur Jón segir Margréti hafa lagt sum börn í gróft einelti. n fyrrverandi nemendur við Landakotsskóla lýsa kennslukonunni Margréti Müller sem illmenni sem lagði börn í einelti n Margrét fyrirfór sér með því að henda sér út um glugga á turninum Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is „Hún átti sín upp- áhöld. Sum börnin voru gjörsamlega lögð í einelti meðan önnur voru í uppáhaldi hjá henni,“ „Allir vissu hvernig hún var en enginn gerði neitt“ Illmenni sem kvaldi börn Fyrrverandi nemendur Margrétar lýsa henni sem vondri konu sem niðurlægði börn. LjóSMyndaSafn ReykjavíkuR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.