Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2011, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2011, Page 22
22 | Fréttir 13. júlí 2011 Miðvikudagur Jórunn Oddsdóttir, heilari og miðill, býður til sætis í stofunni. Tíkin Alfa fær ekki að vera viðstödd viðtalið; hún er lokuð inni í herbergi. Jórunn horfir ljósbláum augun- um út um gluggann. Hún hefur ekki alltaf verið alls kostar sátt við hæfileika sinn; seg- ist ekki hafa viljað fara til miðla því hún hafi ekki viljað fara inn á þessa braut. Viðtal við þekktan miðil ýtti þó við henni; hún fann að þau áttu eitt- hvað sameiginlegt. Hún afréð að tala við hann og þegar þau hittust sagði hann að hún væri með heilunar- kraft og spurði hvort hún væri ekk- ert að gera við hann. „Ég vissi ekki hvað maðurinn átti við.“ Jórunn tal- aði stuttu síðar við enskan miðil sem talaði líka um heilunarhæfileikana og sagði að henni væri óhætt að fara út í heilun þar sem það væri búið að þjálfa hana. Síðan hefur Jórunn starfað við heilun, eða í um 25 ár, og hefur fjöldi fólks notið góðs af hæfi- leikum hennar. Tilfinningasviðið Jórunn segist vera með tengingar mest inn á tilfinningasviðið og að fjórir læknar að handan vinni með sér. Þrír hafi verið útlenskir en einn íslenskur. Japanskur læknir kemur ef manneskjan hefur orðið fyrir djúpu áfalli svo sem misþyrmingu. Jórunn segir að hún þurfi ekki að spyrja fólk hvað ami að þar sem hún fái upplýs- ingar um það að handan. „Yfirleitt þurfa manneskjur að koma til mín oftar en einu sinni vegna þess að þeir fara yfirleitt bara á yfirborðið fyrst; þó manneskja komi til mín í fimm til sex tíma þá eru tím- arnir mjög ólíkir. Þetta er miklu dýpri vinna en fólk gerir sér grein fyrir. Þeir fara í grunninn þegar manneskjan kemur aftur. Allt í einu get ég farið að sjá hana sem barn þó hún hafi upp- haflega ætlað að ég ynni bara með áfall sem hún varð fyrir í núinu; það þarf hins vegar að vinna með hana sem barn og upp úr. Þá er hún laus.“ Jórunn segir að þegar svona til- finningavinna sé í gangi vari hún fólk við því að það geti fundið fyrir ýmiss konar líðan eftir tímana og jafnvel grátið. Þetta varir yfirleitt í um einn og hálfan dag. Eftir það styrkist fólk. „Svo getur aftur hellst vanlíðan yfir fólk og þá er það vegna þess að það er af meiru að taka.“ Heilarinn segist stundum hjálpa fólki sem stendur frammi fyrir hjóna- skilnaði. „Ég hef komið í veg fyrir skilnað. Það finnst mér óskaplega gaman.“ Hún segir frá einu dæmi. „Það kom til mín ung kona í heilun út af erfiðleikum í hjónabandinu. Hún kom aftur til mín einu hálfu ári síðar og sagðist hafa farið eftir öllu sem ég sagði – eða því sem þeir að handan segja því ég ber bara boðin á milli. Hún knúsaði mig og sagði að ég hefði bjargað hjónabandi hennar og að hún væri svo glöð. Þetta er ég farin að heyra svolítið því það koma tímabil sem ég vinn mikið í svona til- fellum og svo í annars konar tilfell- um á öðrum tímabilum.“ Jórunn horfir enn ljósbláum aug- unum út um gluggann. Styrkir og eflir Fólk sem leggst á bekkinn hjá Jór- unni fær ekki bara heilun. Það fær oft skilaboð að handan; frá gengnum ættingjum. Vinum. „Ég fæ skilaboð meira og minna allan tímann meðan á heiluninni stendur; um líðan við- komandi, hvað manneskjan geti gert svo sem hvað varðar mataræði og hreyfingu og jafnvel hvort hún eigi að fara til læknis. Ég hef sent marga til lækna.“ Jórunn var einn viðmælenda í samtalsbókinni Hjálp að handan – sögur sex læknamiðla, sem kom út fyrir áratug. Fólk sem hafði leitað til læknamiðla kom þar fram undir nafni. Þar segir kona: „Það kom mér á óvart hvað hún vissi margt. Það var eins og hún væri náskyld frænka mín. Hún lýsti látnum ættingjum mínum og kom með skilaboð frá þeim. Auk þess vissi hún um ýmis persónuleg mál. Ég var í hálfgerðu sjokki eftir á.“ Þá segir hún: „Ég er eiginlega orðin háð því að fara í heilun.“ Önnur kona segist hafa farið reglulega til Jórunnar í heilun í fjög- ur ár. „Þetta er kjölfestan í lífi mínu. Mér þykir óskaplega gott að fara til n Jórunn Oddsdóttir og Guðrún Magnúsdóttir starfa við heilun og fá við það starf hjálp að handan n Þær skynja meira en flestir aðrir Heilað af heilum hug „Ég hef komið í veg fyrir skilnað. Það finnst mér óskaplega gaman. Guðrún Kristín Magnúsdóttir „Mig langar bara til að hjálpa því fólki sem leitar til mín og er það oft lykillinn að heiluninni.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.