Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2011, Page 23
Jórunnar. Það styrkir mig og eflir. Ég
skynja kraft og hita sem kemur frá
henni.“
Sumir hafa samband við Jórunni
og biðja hana um að „senda“ hjálp
til fólks; jafnvel án þess að það viti.
Ef fylgjast þarf með fólki í einhvern
tíma fær hún nafn og heimilisfang
viðkomandi. „Ég er mjög samvisku-
söm og áður sendi ég og sendi og bað
og bað og það fór mikill tími í það. Ég
hugsaði með mér að það yrði að vera
einhver breyting á þessu. Ég samdi
við þá hinum megin að hjálp yrði
send strax þegar haft væri samband
við mig.“
Af hinu góða
Jórunn segir að heilun sé í höndum
allra; það hafi allir þessa hæfileika.
Svo sé það hvers og eins að opna fyrir
flæðið. „Þetta er eins og að ná í guð-
sneistann. Ljósið er innra með okk-
ur öllum og við getum náð því fram
í hendurnar. Það er hins vegar mis-
jafnt hverjum er ætlað að fara út í
þetta og hverjum ekki.“
Hún segist vera mjög trúuð; það
sé nauðsynlegt í þessu starfi. „Þetta
er allt frá ljósinu; ljósi Guðs og út-
sendurum hans. Maður þarf að tala
mikið við hann og biðja leyfis. Ég bið
mikið. Ég hugsa að ég tali við Guð á
hverjum einasta degi. Heilun er fyrst
og fremst Guðsgjöf. Það er ekkert
hægt að gera á þessum sviðum nema
að hafa Guð og andaheiminn með
sér að öllu leyti. Þetta er bara af hinu
góða.
Mér líður vel við að gefa heilun.
Þegar maður er svona mikið tengdur
andlega þá fyllist maður af innri orku
og ég losna sjálf þegar ég gef hana í
heilun. Mér þykir óskaplega vænt
um að geta hjálpað fólki og á ég erf-
itt með að vita því ef eitthvað er að.
Þá sest ég niður og sendi viðkomandi
eins mikla hjálp og ég get.“
Hún talar um að þessi hæfileiki sé
Guðsgjöf. „Guðsgjafir eru ekki ætlað-
ar fyrir einstaklinginn sjálfan. Þetta
er náðargáfa og hún er ekki bara ætl-
uð mér.“
Það heyrist klór. Litli hundurinn
vill komast út; Jórunn segir að hann
sé ekki vanur að vera lokaður inni
svona lengi. Hún nær í hundinn og
við tölum áfram um andleg mál.
Ljósblá augu Jórunnar; það er
eitthvað. Næstum eins og það sjáist
að hún sér meira en fólk almennt.
Nýta náðargáfuna rétt
Sólin skín skært á fallegu sumar-
kvöldi. Opin fyrirbænabók liggur
á litlu borði á ganginum á heimili
Guðrúnar Kristínar Magnúsdóttur
og er kveikt á kerti.
Guðrún býður til stofu þar sem
kveikt er á nokkrum kertum.
Dyrabjallan hringir fljótlega og er
dóttir Guðrúnar komin í heimsókn.
Við sitjum við borðstofuborðið
þar sem bleikar rósir standa í blóma-
vasa. Guðrún segir frá. Hún hefur
alltaf verið mjög næm og segist hafa
séð inn í annan heim sem barn.
„Ég fór með ættingjum mínum á
fund hjá transmiðli árið 2000 og varð
fyrir miklum áhrifum. Ég varð berg-
numin af starfi þessa góða manns.
Að mínu mati er svona stórkostleg
vinna vandfundin.“ Guðrún hefur
starfað mikið með þessum miðli síð-
an og benti hann henni á að hún ætti
að nýta heilunarhæfileika sína sem
hún vissi ekki að hún hefði.
„Orkan hleðst upp ef maður notar
ekki þennan hæfileika og það getur
verið svolítið erfitt og veldur manni
jafnvel sárum verkjum og óþægind-
um ef maður gefur henni ekki tilgang
til að hjálpa öðrum. Ég losnaði við
mikinn verk sem ég hafði oft í herð-
unum eftir að ég fór að heila.
Það er sjálfsagt að nýta þessa
náðargáfu rétt; sé það gert með réttu
hugarfari. Ég byrjaði ósköp rólega
og heilaði vini og vandamenn. Þetta
hefur spurst út og ég hef heilað í frí-
tíma mínum. Ég nýti þessa orku til að
hjálpa öðrum á meðan fólk leitar til
mín; fólk leitar til mín aftur og aftur
vegna þess að það finnur að því líð-
ur betur.“
Ekkert prógramm
Guðrún er vön að spjalla fyrst við fólk
í stofunni þegar það kemur í heilun.
Sumir þurfa að spyrja um ýmislegt
og segir Guðrún að á þessum tíma
myndist ákveðið traust. Hún hefur
lært orkupunktajöfnun og notar þá
þekkingu á þiggjendur.
Síðan er farið inn í lítið herbergi
þar sem kveikt er á kerti. Viðkom-
andi leggst á bekk og Guðrún byrjar
alltaf á því að fara með bæn. Stund-
um tekur viðkomandi undir og biður
með henni. „Ég spila síðan ljúfa tón-
list. Ég sit og tek oftast létt um höfuð-
ið á fólkinu. Í öðrum tilfellum stend
ég upp og legg hendur yfir líkama
þess. Oftast fer ég á einhvern stað og
þá er það kannski akkúrat þar sem
viðkomandi hefur verið með verki.
Í rauninni þarf ég ekki að koma við
fólkið. Það er líka hægt að vera með
hendurnar lausar frá líkamanum eða
sitja alveg kyrr. Þetta er mjög ein-
staklingsbundið. Það er ekkert pró-
gramm. Mig langar bara til að hjálpa
því fólki sem leitar til mín og er það
oft lykillinn að heiluninni.“
Guðrún segir að stundum finni
hún fyrir verk eins og fólkið sem
kemur til hennar – áður en það kem-
ur.
Fólkið á bekknum finnur líka eitt-
hvað. „Það finnur hita. Ég hef verið
spurð af hverju önnur höndin á mér
sé heit en hin köld. Ég finn það hins
vegar ekki sjálf. Ég veit að það er unn-
ið í gegnum mig því stundum finn ég
hvernig hendurnar á mér breytast;
það er erfitt að koma því í orð.“
Guðrún fer með bæn áður en hún
fer út úr herberginu og leyfir fólkinu
að liggja og hvíla sig. Sumir sofna á
meðan á heiluninni stendur.
„Sumir segja að þeir hafi orðið
varir við einhverja í herberginu eftir
að ég var farin en það er bara af hinu
góða.“
Bænin sterkasta aflið
Guðrún er trúuð. „Mér finnst bæn-
in vera sterkasta aflið. Maður getur
aldrei treyst því að það geti ekki ein-
hver komið sem á ekki erindi. Það er
aldrei of varlega farið.“
Hvað gefur þetta starf henni?
„Það gefur mér mikinn innri frið.
Mér líður afskaplega vel með að geta
hjálpað fólki að líða betur og svo er
það bónus ef þiggjandinn fær skila-
boð að handan.“
Guðrún talar um hve margir séu
næmir en sumir geri sér ekki grein
fyrir því. „Margir berjast við eitt-
hvað sem þeir hafa ekki hugmynd
um hvað er og þá er jafnvel andlegi
heimurinn að banka upp á hjá þeim.
Þeir geta upplifað vanlíðan, þeim
getur fundist sótt að sér og þeir geta
fundið lykt sem þeir gera sér ekki
grein fyrir.“ Guðrún segir að einhver
látinn sé að láta vita af sér; til dæmis
einhver sem hefur reykt og þá finnst
reykingalykt.
„Andleg mál eru heill hafsjór af
spurningum. Þegar maður fær svar
við einni spurningu vakna tíu.“ -SJ
Fréttir | 23Miðvikudagur 13. júlí 2011„Þetta er eins og
að ná í guðsneist-
ann. Ljósið er innra með
okkur öllum og við getum
náð því fram í hendurnar.
Það er hins vegar mis-
jafnt hverjum er ætlað að
fara út í þetta og hverjum
ekki.
„Sumir segja að þeir
hafi orðið varir við
einhverja í herberginu eft-
ir að ég var farin en það er
bara af hinu góða.
Þykir vænt um að geta hjálpað
Jórunn Oddsdóttir: „Mér þykir óskap-
lega vænt um að geta hjálpað fólki og
á erfitt með að vita ef eitthvað er að.
Þá sest ég niður og sendi viðkomandi
eins mikla hjálp og ég get.“