Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Qupperneq 8
8 | Fréttir 5.–7. ágúst 2011 Helgarblað Bolt inn í be inni Hamraborg 11 w 200 Kópavogur w Sími: 554 2166 w www.catalina.is Tökum að okkur veislur Um helgina spilar HLJÓMSVEITIN SÍN Snyrtilegur klæðnaður áskilinn. n Réttur dagsins alla virka daga n Hamborgarar, steikar- samlokur og salöt n Hópamatseðlar Fíklar sækja í Frumstætt dóp E iturlyfjaneytendur hafa nú tekið upp á nýrri aðferð til að koma sér í annarlegt ástand með því að nota naglalakks- eyði, en einungis þann sem er seldur í klútaformi. DV barst ábending þess efnis að fíklar væru farnir að taka upp á því að umbreyta naglalakkseyði í eins konar smjör- sýru – en neysla á henni í of stórum skömmtum getur verið einkar var- hugaverð og í raun stórhættuleg. Yf- irlæknir á bráðamóttöku Landspít- alans, Elísabet Benedikz, staðfesti í samtali við DV að eitthvað hefði ver- ið um að fíklar hafi leitað sér lækn- isaðstoðar vegna neyslu á umræddri smjörsýru sem er fengin úr nagla- lakkseyði. Getur verið stórhættulegt „Jú, það hefur verið eitthvað um þetta,“ segir Elísabet. „Það hafa einn- ig einhverjir fleiri verið með einhvers konar eitrun af þessu tagi þó ómögu- legt sé að sanna hvort um neyslu á þessu efni sé að ræða.“ Elísabet seg- ir að þegar kemur að efni eins og smjörsýru séu fíklar að leitast eft- ir einhvers konar slökunartilfinn- ingu, ekki ólíka þeirri vímu sem fylgi áfengisneyslu. „Málið er að neysla á þessu er mjög vandmeðfarin. Það þarf svo lítið til að skammturinn sé of stór og þá fylgir einfaldlega með- vitundarleysi.“ Elísabet bendir einnig á að enn hættulegra geti verið, þegar efnið er fengið úr einhverju eins og nagla- lakkseyði. „Þú veist þá í rauninni ekk- ert um hve stóran skammt þú ert að fá, eða hvaða aukaefni eiga eftir að fylgja með.“ Þarf að vera á varðbergi Elísabet sagði ástæðu til þess að fólk, kaupmenn jafnt sem foreldrar ungmenna, yrði á varðbergi gagn- vart þessari notkun á naglalakks- eyði. „Það er fyllsta ástæða til þess þó það sé eflaust erfitt að fylgjast með því hvaða fólk kaupir þessa vöru eða í hvaða tilgangi það kaupir hana.“ DV hafði samband við fíkniefna- deild lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu. Bjarni Ólafur Magnússon, starfandi yfirmaður fíkniefnadeild- ar, kvaðst ekki hafa orðið var við neyslu á naglalakkseyði en kvaðst um leið hafa áhyggjur af því að ungt fólk gæti farið að fikta með slík efni. „Víma fátæka mannsins“ Margir muna eflaust eftir dæmum um umfjöllun um neyslu fíkla á efn- um sem hafa í raun annan tilgang en að koma fólki í annarlegt ástand. Á 9. áratug síðustu aldar var til að mynda talsvert um neyslu á lími og bens- íni, en ungt fólk sniffaði efnin – oft með hræðilegum afleiðingum. „Þessi notkun á naglalakkseyði er af svip- uðum meiði, þetta er víma fátæka mannsins. En eins og með hin efnin þá er þetta einstaklega varasamt því þú veist aldrei hvaða aukaverkanir eiga eftir að fylgja.“ Búið að taka klúta úr sölu Þegar ljósmyndari DV fór á vett- vang til að taka ljósmynd af nagla- lakkseyðinum komst hann að því að það var hægara sagt en gert. Í þremur apótekum á höfuðborgar- svæðinu viðurkenndu afgreiðslu- menn að klútarnir umræddu hefðu verið til, en nú væru apótekin hætt að selja þá. Fékk ljósmyndari þær upplýsingar að ákveðið hefði verið að hætta sölu á klútunum, einmitt vegna meintrar misnotkunar fíkla á þeim. Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is n Eiturlyfjaneytendur hafa notað naglalakkseyði til að breyta í smjörsýru n Yfirlæknir á bráðamóttöku segir að fólk hafi þurft að leita sér aðstoðar Klútarnir alræmdu Mörg apótek hafa nú þegar tekið klútana úr umferð. „Einstaklega varasamt því þú veist aldrei hvaða auka- verkanir eiga eftir að fylgja. Sævar Ciesielski jarðsunginn: Ríkið borgaði flutninginn Ríkið bar allan kostnað af því að flytja Sævar Marinó Ciesielski til landsins frá Danmörku. Sævar lést í síðasta mánuði í Kaupmannahöfn og var jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík á þriðjudag. „Okkur þótti þetta vera eðlileg ákvörðun,“ sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráð- herra í samtali við Vísi á fimmtudag. Það var séra Örn Bárður Jónsson sem vakti athygli á þessu í minn- ingarorðum sínum um Sævar en þá færði hann ráðuneytinu þakkir fyrir að greiða kostnað við flutning Sæv- ars til Íslands. Samkvæmt frétt Vísis hleypur kostnaðurinn á hundruðum þúsunda og sagði Ögmundur að þeir Össur Skarphéðinsson utanríkisáð- herra hefðu tekið þá ákvörðun að greiða kostnaðinn með ráðstöfun- arfé ráðherra. „Þetta var ákveðið vegna aðstæðna,“ sagði Ögmundur. Harður árekstur á Akureyri Harður árekstur varð á gatnamótum Glerárgötu og Gránufélagsgötu á Ak- ureyri skömmu eftir hádegi á fimmtu- dag. Annar ökumaðurinn var fluttur á sjúkrahús. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu ók fólksbíll í veg fyrir jeppa- bifreið, en hann var á leið af Gránu- félagsgötu. Fólksbíllinn mun ekki hafa verið á miklum hraða en ekki liggur fyrir hversu hratt jeppanum var ekið. Nota þurfti klippur til þess að ná ökumanni fólksbílsins úr bílnum og var hann í kjölfarið fluttur á sjúkrahús. Ökumaðurinn slasaðist töluvert, þó ekki alvarlega, samkvæmt upplýsing- um frá lögreglu. Slys eru tíð á þessum stað en engin umferðarljós eru á gatnamótunum. Leiðrétting Vegna innsláttarvillu kom fram í tekjublaði DV að Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður og eigandi Landslaga, hefði haft ríflega 100 þúsund krónur á mánuði í fyrra. Hið rétta er að hann var með um milljón krónur á mánuði. DV biður lesendur og Jóhannes Karl velvirðingar á villunni. Þá var Grettir Hjörleifsson titlaður bóndi í blaðinu. Það er ekki rétt því hann er vélaverktaki og bifvélavirki. Rannsókn á fangelsisstjóra að ljúka: Grunaður um 40 brot Mál Geirmundar Vilhjálmssonar, fyrr- verandi fangelsisstjóra á Kvíabryggju, verður sent til embættis ríkissaksókn- ara á næstu dögum. Geirmundi var vikið úr starfi í nóvember vegna gruns um fjölda auðgunarbrota. Í fréttum RÚV á fimmtudag kom fram að þau væru yfir 40. Geirmundur er meðal annars grunaður um að hafa selt ríkis- eignir og notað fé og eigur fangelsisins til einkanota. Þannig greindi DV frá því í nóvem- ber, skömmu eftir að málið kom upp, að Geirmundur hefði keypt fimm handfærakróka. Sjálfur á Geirmundur bát en Kvíabryggja engan. Þá voru fjór- ir rafgeymar keyptir á reikning fang- elsisins, en Kvíabryggja hefur til um- ráða tvo bíla; Land Cruiser-jeppa og vörubíl sem mun ekki vera mikið not- aður. Kolasett, Kenwood-bíltæki með geislaspilara og MP3-spilari er einnig meðal þeirra kaupa sem skoðuð voru. Í frétt RÚV kom einnig fram að Geirmundur væri grunaður um að hafa selt bíl í eigu fangelsisins og stungið andvirðinu í eigin vasa. Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur rann- sakað málið undanfarna mánuði og er þeirri rannsókn nánast lokið. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmað- ur deildarinnar, sagði að málið yrði sent ríkissaksóknara á næstu dögum. Rannsókn að ljúka Geirmundur hefur verið á hálfum launum síðan honum var vikið frá störfum í nóvember. Víma fátæka mannsins Getur haft hræðilegar afleiðingar. SViðSEtt mYnd RóBERt REYniSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.