Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Blaðsíða 34
34 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 5.–7. ágúst 2011 Helgarblað S igný fæddist í Skipagerði í Vestur-Landeyjum en ólst upp í Oddakoti í Vestur- Landeyjum. Hún stundaði nám við Húsmæðraskólann í Reykjavík og sótti síðan ýmis nám- skeið á vegum verkakvennafélagsins Sóknar. Signý var kaupakona á sínum yngri árum, stundaði síðan lengst af heimilisstörf en var jafnframt starfs- maður við Kópavogshælið í tuttugu ár eða þar til hún lét af störfum, sjö- tug. Fjölskylda Signý giftist 28.12. 1954 Lofti Jens Magnússyni, f. 1.12. 1925, fyrrv. strætisvagnastjóra. Hann er sonur Magnúsar Loftssonar og Geirlaugar Jónsdóttur. Börn Signýjar og Lofts eru Gunn- ar Loftsson, f. 25.2. 1949, strætis- vagnastjóri, búsettur í Kópavogi en kona hans er Halldóra Ragnars- dóttir, f. 1.5. 1952, bókari hjá Sindra; Magnús Loftsson, f. 13.4. 1951, fyrrv. verkamaður, búsettur í Reykjavík en fyrrv. kona hans er Elsa Magnúsdótt- ir, f. 22.7. 1960, verkakona, og eru börn þeirra Loftur J. Magnússon, f. 15.8. 1979, Signý L. Magnúsdóttir, f. 28.12. 1981, Herdís L. Magnúsdóttir, f. 6.11. 1986, Anna F. Magnúsdóttir, f. 29.8. 1988, og Berglind Ósk Magnús- dóttir, f. 20.7. 1990; Rúnar Loftsson, f. 23.1. 1955, verkamaður, búsettur í Reykjavík; Reynir Loftsson, f. 29.5. 1957, sjókokkur á rannsóknarskipinu Bjarna Sæmundssyni, búsettur á Sel- tjarnarnesi en kona hans er Guðný Jónsdóttir og eru dætur þeirra Hlíf Á. Reynisdóttir, f. 9.12. 1991, og Jóna S. Reynisdóttir, f. 16.12. 1994 auk þess sem sonur Reynis og Sigrúnar Jóns- dóttur er Jón Viðar Reynisson, f. 18.10. 1987; Björg Loftsdóttir, f. 8.10. 1961, sjúkraliði og snyrtisérfræðing- ur, búsett í Reykjavík en fyrrv. mað- ur hennar var Þórður Þorsteinsson, f. 27.5. 1969, lögreglumaður, og er son- ur þeirra Þorsteinn M. Þórðarson, f. 5.5. 1998, auk þess sem börn Bjargar og Stevens L. Hall eru Davíð L. Hall, f. 17.5. 1984, og Róberta M. Hall, f. 21.12. 1993; Arnar Loftsson, f. 13.5. 1967, grafískur miðlari, búsettur í Reykjavík en dætur hans eru Elísabet Ósk Arnardóttir, f. 1.6. 1989, Katla Sif Arnardóttir, f. 18.4. 1994, og Dagmar Arnardóttir; Birgir Loftsson, f. 13.5. 1967, sagnfræðingur og kennari, búsettur í Hafnarfirði en kona hans er Helga Ágústsdóttir, f. 25.1. 1971, kennari, og eru börn þeirra Anna Á. Birgisdóttir, f. 12.4. 1994, Kári Þ. Birg- isson, f. 22.8. 1998, Ágúst Jens Birg- isson, f. 15.11. 2003, og Jón Gunnar Birgisson, f. 24.3. 2011. Tvíburabróðir Signýjar er Gunnar Karl Gunnarsson, f. 6.8. 1926, fyrrv. múrari, búsettur í Kópavogi. Hálfbróðir Signýjar, sammæðra, var Hafsteinn Baldur Fossan Ingvars- son, f. 22.9. 1917, nú látinn. Foreldrar Signýjar voru Gunn- ar Gunnarsson, f. 12.7. 1899, d. 3.3. 1979, bóndi í Vestur-Landeyjum, og Björglín Guðrún Stefánsdóttir, f. 22.12. 1886, d. 1962, húsfreyja. M agnús fæddist í Kirkjubæ í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Hann stund- aði búskap í í Kirkjubæ í Vestmannaeyjum þar sem hann var með tuttugu mjólk- urkýr og nokkrar ær. Eftir eldgosið í Eyjum, 1973, flutti hann á Rangár- velli og hefur búið þar síðan, fyrst að Geldingalæk en síðar í Norðurbæ í Gunnarsholti á árunum 1973–2001. Þá flutti hann á Hellu þar sem hann hefur verið búsettur síðan. Magnús starfaði hjá Landgræðsl- unni í Gunnarsholti frá 1973, einkum við smíðar. Magnús hefur starfað mikið á vegum Sjálfstæðisflokksins um ára- bil. Hann hefur setið í stjórn Fróða, á setu í fulltrúaráðinu og í kjördæm- isráði sjálfstæðisfélaganna í Rangár- vallasýslu. Fjölskylda Magnús kvæntist 25.12. 1955 Þórdísi Guðmundsdóttur, f. 27.8. 1931, hús- móður. Hún er dóttir Guðmundar Jóelssonar, sjómanns í Vestmanna- eyjum, og Laufeyjar Sigurðardóttur húsmóður þar sem bæði eru látin. Synir Þórdísar frá því áður eru Guðmundur Rafn Gunnarsson, f. 28.1. 1952, lengst af sjómaður, bú- settur í Vestmannaeyjum en kona hans er Guðrún Björnsdóttir og eiga þau einn son og tvö barnabörn; Jóel Eyjólfsson Gunnarsson, f. 7.1. 1954, lengi sjómaður en starfrækir nú eigið fyrirtæki í Hafnarfirði en kona hans er Inga Steinunn Ágústsdóttir og eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn. Börn Magnúsar og Þórdísar eru Guðrún Bára Magnúsdóttir, f. 13.4. 1955, skókaupmaður, búsett í Vest- mannaeyjum en maður hennar var Steindór Árnason sem er lát- inn og eiga þau tvö börn og fimm barnabörn; Pétur Magnússon, f. 10.12. 1956, lengi bifreiðastjóri en nú starfsmaður Samverks á Hellu, búsettur þar, en kona hans er Guð- finna Sigríður Antonsdóttir og eiga þau fjögur börn og eitt barnabarn; Þorbjörn Helgi Magnússon, f. 11.1. 1958, verkamaður á Hellu, en kona hans er Erna Adolfsdóttir og eiga þau tvö börn og fjögur barnabörn; Ein- ar Magnússon, f. 14.12. 1962, véla- maður, búsettur á Harðarbrekku við Hellu, en kona hans er Snæbjört Ein- arsdóttir og eiga þau þrjú börn; Lauf- ey Magnúsdóttir, f. 19.3. 1964, skrif- stofumaður, búsett í Mosfellsbæ en maður hennar er Snorri Gíslason og eiga þau tvö börn. Systkini Magnúsar eru Jónína Ósk Pétursdóttir, f. 12.11. 1926, lengi húsmóðir á Raufarhöfn, nú búsett í Reykavík; Guðlaug Pétursdóttir, f. 25.9. 1928, verslunarmaður á Þórs- höfn; Jóna Halldóra Pétursdóttir, f. 18.8. 1933, húsmóðir í Reykjavík; Guðjón Pétursson, f. 31.7. 1935, d. 25.1. 1985, bifreiðastjóri á Selfossi. Hálfsystkini Magnúsar, samfeðra, eru Guðrún Rannveig Pétursdótt- ir, f. 10.12. 1939, fyrrv. póstfulltrúi í Garði; Árni Pétursson, f. 4.2. 1941, d. 9.10. 1996, kennari og aðstoðarskóla- stjóri í Garðabæ; Brynja Pétursdótt- ir, f. 16.8. 1946, fyrrv. bréfberi í Garði; Herbjört Pétursdóttir, f. 26.2. 1951, d. 2.5. 1999, prestsfrú að Melstað í Mið- firði. Foreldrar Magnúsar voru Pétur Guðjónsson, f. 12.7. 1902, d. 21.8. 1982, sjómaður í Vestmannaeyjum, og Guðrún Rannveig Guðjónsdóttir, f. 17.4. 1905, d. 18.10. 1938, húsmóð- ir. Seinni kona Péturs var Lilja Sigfús- dóttir, f. 11.10. 1917, d. 15.10. 1990, húsmóðir. Magnús Pétursson fyrrv. smiður á Hellu Signý Ágústa Gunnarsdóttir Húsmóðir og fyrrv. starfskona við umönnun 85 ára á laugardag 80 ára á föstudag Ragnheiður B. Sigurðardóttir Bóndi í Efsta-Dal í Laugardal R agnheiður fæddist á Sel- fossi og ólst þar upp. Hún stundaði nám í Gagnfræða- skólanum á Selfossi og við Húsmæðraskóla Suður- lands á Laugarvatni. Ragnheiður starfaði á drengja- deild á Sólheimum í Grímsnesi og á Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins í Reykjavík. Hún var búsett í Reykjavík 1971–75. Þá flutti hún að Efstadal í Laugardal og hóf þar bústörf. Ragnheiður starfaði með Ung- mennafélagi Laugdæla. Hún syngur með Söngkór Miðdalskirkju og situr í stjórn Kvenfélags Laugdæla. Fjölskylda Ragnheiður giftist 3.11. 1973 Theodór Indriða Vilmundarsyni, f. 17.9. 1950, bónda. Hann er sonur Vilmundar Indriðasonar, f. 13.4. 1916, d. 20.8. 1999, og Kristrúnar Sigurfinnsdóttur, f. 3.1. 1919, bænda í Efstadal. Börn Ragnheiðar og Theodórs Indriða eru Sigrún, f. 17.5. 1971, garðyrkjufræðingur, gift Bjarna Þór Sigurðssyni íslenskufræðingi og eru börn þeirra Kristín Heiða og Þor- geir; Vilmundur, f. 23.7. 1973, vél- smiður en kona hans er Guðrún Erla Sigfúsdóttir hjúkrunarfræðing- ur og eru synir þeirra Óskar Fannar, Hlynur Ísak og Steinar Ingi; Rakel, f. 30.1. 1982, markaðsfulltrúi hjá EJS og SKÝRR. Systkini Ragnheiðar eru Jóna Sig- ríður, f. 14.2. 1948, leikskólakenn- ari í Reykjavík en maður hennar er Guðmundur V. Þorkelsson; Sigurður Júníus, f. 19.5. 1954, mjólkurbílstjóri á Selfossi en kona hans er Hjördís Gunnlaugsdóttir. Foreldrar Ragnheiðar: Sigurð- ur Óskar Sigurðsson, f. 18.6. 1922, d. 24.7. 1994, mjólkurbílstjóri á Sel- fossi, og Guðrún Guðjónsdóttir, f. 21.1. 1922, húsmóðir á Selfossi. Ætt Sigurður var sonur Sigurðar Sigurðs- sonar frá Ysta-Koti í Vestur-Land- eyjum og Sigríðar Hannesdóttur frá Bollastaðakoti í Hraungerðishreppi. Uppeldisfaðir Sigurðar var Júníus Ingvarsson og bjuggu þau Sigríður í Kálfholti. Guðrún er dóttir Guðjóns Guð- mundssonar, b. á Voðmúlastaða- austurhjáleigu í Austur-Landeyjum, nú Búland, og k.h., Jónu Guðmunds- dóttur frá Fífustöðum í Arnarfirði. Ragnheiður verður að heiman á afmælisdaginn. 60 ára á föstudag Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 – www.utforin.is – Allan sólarhringinn Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Jón G. BjarnasonHermann Jónasson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.