Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Blaðsíða 12
12 | Fréttir 5.–7. ágúst 2011 Helgarblað
H
ann reyndi að drepa mig,
þetta var alveg hræðilegt“
segir Raimonda Lanza
Branciforte di Trabia. At-
burðir í Selá í júlí þar sem
greifynja frá Ítalíu og japanskur millj-
arðamæringur tókust á minntu suma
á atriði úr kvikmyndinni Stellu í Or-
lofi .
Raimonda hefur þó ekki sömu
kómísku sýn á málið og hefur lagt
fram kvörtun til sýslumannsins á
Seyðisfirði þar sem hún hefur beðið
hann að rannsaka morðtilraun gegn
sér. Raimonda segir að Yasuji Sugai,
japanskur útgefandi og veiðimaður,
hafi reynt að drekkja sér þann 21. júlí
sl. í Selá í Vopnafirði. DV.is sagði frá
því um helgina að til handalögmála
hefði komið í laxánni Selá í Vopna-
firði þegar slettist upp á vinskapinn
hjá erlendum milljarðamæringi og
greifynju sem voru þar að veiðum.
Miklir veiðimenn
Raimonda og Yasuji voru að veiða
saman í Selá, en Yasuji bauð henni
í mars á þessu ári að veiða með
sér á sömu stöng í júlí. Hann sagði
að hann yrði of þreyttur eftir lang-
an veiðitúr í Rússlandi og vissi að
hann myndi ekki nýta allan þann
tíma sem hann hafði áætlað í Selá,
því hafi hann boðið henni að deila
stönginni. Raimonda segir að hann
hafi verið mjög ákveðinn í boði sínu
og hún hafi þegið það með þökk-
um enda gott tækifæri til að veiða.
Þá bað hann Raimondu um að sitja
fyrir á myndum, fyrir bók sem hann
mun vera að skrifa um íslenska lax-
veiði. Bæði Raimonda og Yasuji eru
miklir laxveiðimenn og hafa ferðast
víða um heiminn til að sinna því
áhugamáli og hafa áður veitt sam-
an. Raimonda segir að einn af sín-
um uppáhaldsstöðum í heiminum
til að veiða sé Ísland; enda er hún
heilluð af íslensku náttúrunni og
Íslendingum. Í bréfi Raimondu til
sýslumanns segir: „[...] legg ég fram
formlega kæru gegn herra Yasuji
Sugai fyrir að reyna að myrða mig á
Íslandi og fyrir aðra glæpi sem yfir-
völd telja að hann framið í tengslum
við þetta mál.“
Slagsmál í Selá
Raimonda segir að Yasuji hafi ver-
ið mjög einkennilegur í veiðitúr-
um þeirra. Hún segir að hann hafi
drukkið mikið og verið önugur og af-
undinn. Þau hafi gert með sér sam-
komulag um að skiptast á að veiða í
ánni. Yasuji hafi snúið aftur í veiði-
húsið fyrri daginn eftir stuttan veiði-
túr og ekki viljað veiða lengur. Á
seinni veiðidegi þeirra hafi hann
augljóslega verið pirraður og hafi
látið það bitna á Raimondu og leið-
sögumanninum.
Eftir langa bið ákvað leiðsögu-
maður að leyfa Raimondu að byrja
að veiða. Þá brást Yasuji ókvæða við
og byrjaði að öskra að henni og með-
al annar öskrað: „Ég er konungurinn
ég er konungurinn. Farðu heim.“
Raimonda segir að hann hafi
verið mjög ógnandi. „Ég undirbjó
stöngina mína og fór út í ána, í átt að
dýpri enda hennar. Á sama tíma tek-
ur Yasuji tilhlaup að mér öskrandi og
gargandi. Við tökumst á og ég reyndi
að verja mig. Mér tókst að lemja
hann en mér gekk ekkert að verja
mig. Hann rak mig þá niður í vatnið
og hélt bæði höfðinu á mér og líkama
undir vatninu, í að minnsta kosti 15
sekúndur. Þá kemur Benedikt [Kr.
Jónasson innsk.blm.] aðvífandi og
nær honum af mér og bjargaði mér.
Sugai hljóp þá sjálfur í burtu, ennþá
öskrandi og gargandi.“ Benedikt kom
Raimondu svo aftur heim í veiðihús-
ið þar sem hún var hrollköld og blaut
eftir volkið í ánni.
„Góð spurning“
Raimonda er miður sín vegna slags-
mála hennar við Yasuji og segist hafa
verið í miklu uppnámi. Hún er harð-
ákveðin í því að Yasuji hafi reynt að
drepa sig. Hins vegar hafi henni jafn-
vel þótt einna verst það sem hún
kallar aðgerðaleysi Orra Vigfússonar,
forsvarsmanns Selár. Eftir að hafa
ítrekað reynt að fá Orra til að koma
í veiðihúsið þá um kvöldið hitti hún
hann ekki fyrr en daginn eftir. Þegar
að hún hitti hann í veiðihúsinu, bað
hún hann um að kalla til lögreglu
vegna málsins og ræða við Yasuji.
Það mun hann að sögn hennar ekki
hafa gert. Raimonda segir að svar
Orra við því hvers vegna hann hefði
ekki rætt við Yasuji eða kallað til lög-
reglu væri vegna þess að hann „væri
ekki í aðstöðu til að segja neitt við
Yasuji,“ eins og hún hefur eftir hon-
um. Þetta kemur einnig fram í bréfi
Raimondu til sýslumanns. Orri hefur
neitað að ræða málið við blaðamann
og eina svarið sem hann gaf þegar
blaðamaður spurði hvers vegna ekki
hefði verið kallað til lögreglu var:
„Það er góð spurning.“
Kæra til sýslumanns
„Ég hef lagt fram kæru til sýslumanns
og beðið hann um að rannsaka málið
þar sem ég treysti Yasuji Sugai ekki til
þess að haga sér eins og maður. Það
sem hann gerði er glæpsamlegt og ef
það hefði ekki verið fyrir Benedikt,
leiðsögumanninn sem fylgdi okkur,
þá veit ég ekki hvað hefði gerst,“ seg-
ir Raimonda. Hún útilokar ekki, ef að
sýslumaður aðhefst ekkert í málinu,
að þá muni hún jafnvel fara í einka-
mál gegn Yasuji Sugai. Hún vill þó lít-
ið gefa upp um það hvort hún ætli sér
að aðhafast eitthvað gegn Selá eða
Orra Vigfússyni, en telur það ólíklegt.
Raimonda hefur haft samband
við marga af vinum sínum í veiði-
heiminum og látið þá vita af mál-
inu. „Það er ekki í lagi að koma svona
fram við fólk, ég hef ferðast víða og
veitt en aldrei lent í öðru eins,“ segir
Raimonda. Eiginmaður Raimondu,
Emanuel Gamna, er lögfræðing-
ur hennar. Hann segir mikilvægt að
málið verði leitt til lykta. Hann vilji
að íslensk lögregluyfirvöld hafi sam-
band við japönsk yfirvöld til að hægt
sé að ræða við Yasuji Sugai og klára
málið. Hann telur mikilvægt að mál-
ið sé rekið hérlendis og vill klára það
sem fyrst.
Raimonda og Emanuel sendu
kæruna með tölvupósti, miðviku-
daginn 3. ágúst. Lárus Bjarnason,
sýslumaður á Seyðisfirði, segir að
málið verði rannsakað í fyrstu á veg-
um sýslumannsembættisins. Því
verði svo líklega vísað til rannsókn-
ardeildar lögreglunnar á Eskifirði
sem fer með stærri mál, þeir hafa
verið upplýstir um málið. „Við auð-
vitað skoðum þetta og það er alveg
á hreinu að við munum rannsaka
þetta. Við eigum eftir að fá staðfest-
ingu á þessu frá öðrum aðilum. En
málið er í rannsókn.“
„Hann rak mig þá
niður í vatnið og
hélt bæði höfðinu á mér
og líkama undir vatninu,
í að minnsta kosti 15
sekúndur.
Greifynja kærir
morðtilraun í Selá
n „Ég er konungurinn, ég er konungurinn. Farðu heim“ n Ósátt við aðgerða-
leysi forsvarsmanns Selár n Leiðsögumaður bjargaði henni frá drukknun
Á veiðum í Selá Raimonda er miður sín
vegna atburðanna í Selá og telur að Yasuji
Sugai hafi reynt að drepa hana.
Mikil veiðikona
Raimonda er hér að
veiðum í Miðfjarðará. Hún
hefur dvalið mikið á Íslandi
og stundað laxveiði.
Úrskurður yfir
meintum
nauðgara
staðfestur
Hæstiréttur staðfesti á fimmtudag
gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni
sem grunaður er um nauðgun á
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum aðfara-
nótt laugardagsins.
Maðurinn var úrskurðaður í
gæsluvarðhald til klukkan 11 í dag,
föstudag, á grundvelli rannsóknar-
hagsmuna. Konan sakaði mann-
inn um að hafa nauðgað sér nærri
salernunum í Herjólfsdal. Hún gat
gefið greinargóða lýsingu á mann-
inum og var hann handsamaður af
gæslumönnum.
Konan er 23 ára en hún kærði
manninn á laugardeginum. Óvíst er
hvort farið verði fram á áframhald-
andi gæsluvarðhald yfir manninum.
Jeppi brann
til kaldra kola
Jeppabifreið brann til kaldra kola
við Veiðileysu, skammt frá Djúpu-
vík, laust eftir hádegi á fimmtudag.
Svo virðist vera sem kviknað hafi í
bifreiðinni fyrirvaralaust en ökumað-
ur var einn í bílnum. Bifreiðin varð
fljótlega alelda og var í raun gjör ónýt
þegar slökkviliðið á Hólmavík kom á
staðinn. Greiðlega gekk þó að slökkva
eldinn. Ökumaðurinn slapp ómeidd-
ur og eru eldsupptök ókunn.
Forstjóri Banka-
sýslu segir upp
Elín Jónsdóttir, forstjóri Banka-
sýslu ríkisins, hefur sagt starfi sínu
lausu. Staðan verður auglýst til
umsóknar um næstu helgi. Þetta
kemur fram
í tilkynningu
frá Banka-
sýslunni. Þar
er haft eftir
Elínu að hún
hyggist skipta
um starfsvett-
vang. Hún
hefur gegnt
starfi forstjóra frá stofnun Banka-
sýslunnar í ársbyrjun 2010.
Bankasýsla ríkisins var stofn-
uð með lögum árið 2009 til að
fara með eignarhluti ríkisins í
fjármálafyrirtækjum og ákveð-
ur Bankasýslan meðal annars
stjórnarmenn þá sem ríkið á kost
á að skipa í stjórnir þeirra fjár-
málafyrirtækja sem það á hlut í,
á grundvelli tilnefninga óháðrar
valnefndar.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is