Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Blaðsíða 30
30 | Viðtal 5.–7. ágúst 2011 Helgarblað það átti ég mjög erfitt með að fyrir- gefa. Þau voru ung og áttu ekki að þurfa að taka þennan slag.“ Ólýsanlegur dagur myrkurs Á sama tíma fékk hann ógleyman- legt símtal frá bróður sínum. Sá bjó í Svíþjóð og var kominn til landsins til að heimsækja móður þeirra. „Hann kom að henni þar sem hún hafði verið myrt, hringdi beint í mig og sagði mér frá því sem hann sá. Þeg- ar ég fékk þetta símtal var eins og ég lamaðist. Það var ólýsanlegur dagur myrkursins sem við gengum í gegn- um þá og mikið högg. Við höfðum svo samband við lög- regluna og Geir Jón Þórisson var á vaktinni, mikill vinur okkar. Hann kom til okkar og það var huggun í því. Hann leyfði okkur að fylgjast með framvindu mála. Systir mín var erlendis og ég þurfti að láta hana vita og segja börnunum mínum frá þessu. Svo var skóli dag- inn eftir og þú veist að morð í fjöl- skyldunni er eineltisefni í skólanum. En við höfðum samband við kennara sonar míns sem tók sérstaklega vel á þessu, kveikti á kerti og sagði börn- unum frá því sem hafði gerst.“ Óvissan um morðið erfiðust Fyrsta vikan var einstaklega erfið því fjölmiðlar töldu sig hafa heimildir fyrir því að sá sem myrti hana hefði ætlað að ná sér niðri á Gunnari. „Þar með var ég orðinn að einhvers konar geranda. Það var sárt að sitja undir því. Þessi óvissa tók á, hver gerði svona, hvort þetta væri einhver sem ég þekkti og af hverju einhver gæti myrt gamla konu. Síðan kom í ljós að þessi maður var óður af fíkniefnaneyslu og var bara að leita að einhverjum. Hann hafði bankað upp á hjá nágrannanum fyrir ofan mömmu en þar voru gestir, fór síðan til mömmu og sá að hún var ein og varnarlaus. Við héldum svo blaðamanna- fund á laugardeginum þegar málið var upplýst og fjölmiðlar fóru með rétt mál í þessu efni. Ég hafði lofað þeim því svo ég fengi frið til að syrgja móður mína og grafa hana áður en ég kynnti málið.“ Ber ekki hatur í hjarta sínu Á grundvelli heilagrar ritningar ákvað Gunnar að fyrirgefa þessum manni. „Ég vildi ekki vera bundinn honum þeim böndum að bera heift til hans í hjarta mínu.“ Þannig að Gunnar fór með þáverandi eig- inkonu sinni á fund mannsins þar sem hann sat í fangelsi og ræddi við hann. „Ég gerði mér grein fyrir því að það var þessi heiftarlega mis- notkun hans á fíkniefnum sem var aðalgerandinn í málinu. Það er ekki hatur í mínu hjarta.“ Maðurinn kom síðan á samkomu núna í vetur. „Það var sérkennilegt en ég kláraði það alveg. Ég spurði hvort ég mætti ekki segja frá því hver hann væri og hann játti því svo ég gerði það.“ Aðspurður segist hann þó ekki vita hvort hann vilji hafa hann í söfnuðinum. Hann íhugar svar sitt vandlega áður en hann svarar: „Þetta er erfið spurning. Ég er ekki bara að hugsa um mig. Ég er líka að hugsa um hina. Ég veit ekki hvaða hug- ur er í fjölskyldunni gagnvart því en gagnvart mér væri það í lagi. Ég myndi afgreiða það. Mér myndi kannski ekki líða vel með það en það á ekki að skipta máli. Rétt og rangt er það sem á að skipta máli og á að vera okkur að leiðarljósi. Við verðum að fyrir- gefa. Ef við fyrirgef- um ekki verður okk- ur ekki fyrirgefið.“ Vildi ekki skilja Eftir allt sem á und- an var gengið beið Gunnar eftir næsta áfalli. „En hjólin fóru að snúast og við fengum byr í seglin.“ Nokkrum árum síðar varð skilnaður þeirra hjóna þó orð- inn óumflýjanlegur. Gunnar hafði þá reynt að draga þá ákvörðun í nokkur ár. „Ég átti mjög erfitt með að losa um þetta hjónaband. Ég taldi mér ekki fært að taka þetta skref. Kannski hefðu aðstæður breyst. Ég taldi líka að það væri hægt að breyta stöðunni og bæta hana. Meira að segja þegar hún fór fram á að drífa þetta af vildi ég bíða í eitt ár í viðbót en við ákváð- um að lokum að ljúka þessu. Það var rétt ákvörðun mið- að við hvernig staðan var orðin. En það var gríðar- legur hvellur að skilja í þeirri stöðu sem ég var í. Guð er ekki ánægður með hjónaskilnaði en ef það er eng- in önnur leið getur maður farið þá leið. Til þess verða samt að vera ríkar forsendur. Og þær voru vissulega til staðar. Eftir á að hyggja vildi ég að ég hefði gert þetta fyrr, því það hefði létt á stöðunni fyrir okkur bæði. Hún vildi vera á öðrum vettvangi og það er erfitt að vera í hjónabandi á Ís- landi en með búsetu í Bandaríkjun- um, þar sem hún hefur verið síðan við skildum. Þar vildi hún vera.“ Kærum um kynferðis- brot vísað frá En að taka þá ákvörðun var hjóm eitt mið- að við það sem gekk á eftir að Gunnar gekk aftur í hjóna- band. Þá steig fyrrverandi mágkona hans, Sigríður Guðna- dóttir, fram ásamt sex öðr- um konum, þar á meðal Sól- veigu systur sinni, og sakaði hann um kynferðisbrot. Eftir talsverða um- fjöllun í fjölmiðlum fékk málið með- ferð hjá lögreglunni, þrátt fyrir að sum af þessum meintu brotum væru fyrnd. Gunnar vill þó ekki meina að fyrning hafi verið eina ástæða frá- vísunarinnar og les upp úr bréfi sak- sóknara: „Það tilkynnist hér með að rannsókn ofangreindra mála sem varða meint kynferðisbrot hefur ver- ið hætt þar sem ekki þykir grundvöll- ur fyrir frekari rannsókn.“ Þá bendir hann á að rannsókn sé gjarna hætt ef í ljós kemur að kæra hafi ekki ver- ið á rökum reist, brot smávægileg og fyrirsjáanlegt að rannsókn hafi för með sér óeðlilega mikla fyrirhöfn og kostnað. „Ég hugsa að hvorutveggja hafi átt við. Fyrning á meintum brot- um og að grundvöllur hafi ekki verið fyrir rannsókn. Ef grunur leikur á um það að þú hafir kysst, komið við læri og snúið upp á handlegg á sterkustu konu Ís- lands eða ætlað að gera eitthvað þá býr eitthvað annað að baki en sann- leiksleit ef þú ferð með málið til fjöl- miðla eða til lögreglu. Það er einhver illvilji. Aðeins í þremur tilvikum var ég sakaður um alvarleg brot.“ Vissi ekki um hvað þetta snerist Á borðinu liggur græn mappa þar sem Gunnar hefur safnað saman gögnum um málið. Svona mál er hvorki hægt að sanna né afsanna með pappírum. Hann vill þó benda á ýmislegt sem dregur úr trúverðug- leika þeirra systra. Eins og að önn- ur þeirra hafi sagt í Kastljósi að hún hafi ekki verið skráð í Krossinn í tíu ár og leggur síðan fram skjöl frá Hag- stofunni þar sem kemur í ljós að hún skráði sig úr Krossinum fjórum dög- um fyrir við- talið. „Þetta er ekki aðalatrið- ið í málinu en þegar menn fara með ósannindi í svona málum, sama hvers eðlis þau eru, hvernig á að vita hvenær verið er að segja sannleikann? Þegar þessar ásakanir komu fyrst fram vissi ég ekki hvaðan á mig stóð veðr- ið, enda var það þá í formi kjaftagangs. Ég vissi ekki hverj- ir stóðu að baki þessu eða um hvað ég væri sakaður. Ég vissi bara að það var búið að hringja í fjölda fólks, þetta væri komið í fjölmiðla og það stæði til að birta þetta í sömu viku.“ „Ég er ekki saklaus maður“ „Málið er það að ég get verið galgopalegur í samskiptum við fólk og hef auð- vitað gert fullt af hlutum sem eru óviðeigandi. Mér þykir það mið- ur. En það var ekki kynferð- islegt ofbeldi, ég hef aldrei áreitt neinn kynferðislega, hvorki karla né konur. Galgopa- hátturinn í mér hefur kannski einhvern tímann komið illa við einhvern. Kannski hef ég ekki alltaf gætt mín í samskiptum við veikara kynið. Ef einhver hefur metið framkomu mína sem kynferð- islegt ofbeldi þá þykir mér það leitt. Ég get sagt þér það að ég er ekki saklaus maður, ég hef margvíslega brotið af mér, en þetta á ég ekki. Það er alveg á hreinu og ég þakka Guði fyrir það. Ég vil lifa í friði við Guð og menn.“ Segir málið sprottið af pólitík Vill Gunnar meina að málið sé sprottið upp af reiði, öf- und og, eins og alltaf, póli- tík, og segir að bók Jónínu hafi flett ofan af samskiptum auð- manna við gleðikonur á Flórída og að umfjöllun Pressunnar flokkist sem hreint og klárt einelti. „Ég er á því að Pressunni hafi verið beitt í þessu máli og þar hafi það verið sett saman. Hvernig má það vera að fjöl- miðill sem er rekinn með tugmillj- óna tapi heldur áfram að tútna út? Hann er notaður til þess að skekkja umræðuna í ákveðnum málum. Það eru hagsmunaaðilar á bak við þetta mál og yfir því er ég sárreiðast- ur. Sömu brögðum hefur áður verið beitt gegn Jónínu þannig að fingra- förin voru greinileg.“ Erfitt að verjast Hann seilist í grænu möppuna og nær í bréf frá hinni systurinni þar sem hún biður hann afsökunar á því að hafa talað dauða til hans og seg- ist elska hann, hún hafi sett hann á stall sem Guð í sínu lífi og sárnað þegar hann studdi hana ekki. Í öðru bréfi sem hún sendi þremur vikum síðar segist hún ekki geta sofið eftir að hann gekk í hjónaband. „Ég kann engar skýringar á því af hverju konur reiðast svona þegar ég gifti mig. En hún dreif þetta mál áfram og ég held að ástæðuna megi rekja til þessa.“ Síðan steig hver konan fram á fætur annarri og Gunnar segir að eftir því sem leið á málið hafi fram- burður þeirra breyst. „Ég kann eng- ar skýringar á því að svo margar séu tilbúnar til að stíga fram með svona ásakanir. Þegar ásökun er borin fram um svona mál í samhengi við aðrar sambærilegar ásakanir þá er orðið illvígt að eiga við það og erfitt að verj- ast. Ég var sakaður um hegðun óðs manns. En svona haga ég mér ekki.“ Fagnaði lögreglurannsókn „Ég get sagt þér það að ég var bú- inn að sitja und- ir þessu í kjafta- söguformi og það var óbærilegt. Ég vissi ekki neitt en allir voru að tala um mig. Á með- an var ég að berj- ast við vindmyll- ur. Allt sem við sögðum í málinu var rangtúlkað og notað gegn okkur. Á tímabili hélt ég kannski að ég gæti ekki varist þessu. Það er miklu betra að hafa þetta uppi á borðum og ég fagnaði því að þetta mál fór í þennan lögformlega farveg. Ég held að það sé ekki hægt að sakfella saklausan mann í þessu rétt- arkerfi okkar og trú mín reyndist rétt. Þá má líka halda því til haga að talskona þessara kvenna fullyrti í fjöl- miðlum að hún hefði nöfn sextán kvenna sem sökuðu mig um kynferð- isbrot en þær eru ekki til. En hún hef- ur aldrei beðist afsökunar á þessu eða dregið þetta til baka. En ég ætla ekki að láta þetta mál gera mig beiskan og er þegar byrjaður að vinna í fyrirgefn- ingunni.“ Hjónabandið hélt Um leið og hann fagnar því að málinu hafi verið vísað frá segir hann að und- anfarnir mánuðir hafi reynst honum erfiðir. „Það verður að viðurkennast og ég veit ekki hvað ég hefði gert ef ég hefði ekki átt trygga fjölskyldu og trausta vini. Þetta var erfitt fyrir Jón- ínu en hjónaband okkar hefur hald- ið. Kærleikurinn er svo sterkur. Við elskum hvort annað og höfum staðið saman í þessari orrahríð. Það er ekki hægt að hafa sterkari persónu sér við hlið í slíkri baráttu. Hún kann ekki að gefast upp og er mér góð. Ég elska hana og segi henni það oft á dag. Bara af því að ég elska hana og mér finnst mikilvægt að hún fái að heyra það.“ Um leið og hann sleppir orðinu kemur Jónína inn. Hann stendur upp og heilsar henni með kossi. Þau eru á leið upp í sumarbústað. Ætla að forða sér úr bænum á meðan Gay Pride stendur yfir. „Mér finnst þetta hörm- ung. Ég verð að segja það eins og er. Að standa í kynlífsögrandi stellingum uppi á einhverjum vögnum. Frelsið er sjálfsagt en nú orðið eiga þeir sem hafa klassískar biblíulegar skoðanir verulegar undir högg að sækja. Bar- áttan hefur snúist við,“ segir hann og hlær. „Þetta var erfitt fyrir Jónínu en hjónaband okkar hefur hald- ið. Kærleikurinn er svo sterkur. Við elskum hvort annað og höfum stað- ið saman í þessari orrahríð. „Ég get sagt þér það að ég er ekki sak- laus maður, ég hef marg- víslega brotið af mér, en þetta á ég ekki. Það er al- veg á hreinu og ég þakka Guði fyrir það. Ég vil lifa í friði við Guð og menn. „Ég gerði mér grein fyrir því að það var þessi heiftarlega misnotkun hans á fíkniefnum sem var aðalgerandinn í málinu. Það er ekki hatur í mínu hjarta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.