Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Qupperneq 10
10 | Fréttir 5.–7. ágúst 2011 Helgarblað Allt á einum stað! Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir Þú færð fría olíusíu ef þú lætur smyrja bílinn hjá okkur Komdu með bílinn til okkar og þú færð fría ástandsskoðun F rumvarp til stjórnskipun- arlaga, sem Stjórnlagaráð samþykkti nýlega, gæti tek- ið allnokkrum breytingum á Alþingi sem tekur frumvarp- ið nú fyrir. Frumvarpið fer nú fyr- ir forsætisnefnd og eftir það verður rætt við formenn þingflokkanna um málsmeðferð frumvarpsins. Í kjölfar- ið verður ákvörðun tekin um frekara framhald á málinu. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, ger- ir ráð fyrir því að frumvarpið verði til meðferðar á Alþingi næsta vetur og að ný fastanefnd, sem tekur til starfa 1. október, komi að málinu. Henni finnst þó ekki rétt, sem forseti Al- þingis, að tjá sig um aðrar tillögur um breytingar á stjórnarskránni. Langur vegur fram undan Frumvarpið þarf að fara í gegnum þrjár umræður á Alþingi og er hægt að gera breytingartillögur við það á milli umræðna. Miðað við hve viða- mikið frumvarpið er má búast við mörgum breytingatillögum við það. Samþykki Alþingi frumvarpið þarf að boða til alþingiskosninga og láta nýtt þing kjósa um það. Þá fyrst gæti stjórnarskráin tekið gildi. Þetta þýðir að nýja stjórnarskráin muni í raun aldrei fara til þjóðar- atkvæðagreiðslu samkvæmt núver- andi stjórnarskrá. Vissulega er hægt að leggja frumvarpið í þjóðaratkvæði en sú atkvæðagreiðsla gæti einungis verið ráðgefandi. Þannig gæti komið upp sú staða að þjóðin myndi sam- þykkja nýja stjórnarskrá en nýtt þing hafnaði frumvarpinu sem yrði þá úr sögunni. Segir breytingu á 79. grein einu rökréttu leiðina Pétur H. Blöndal og 17 aðrir stjórn- arandstöðuþingmenn lögðu fram frumvarp í apríl síðastliðnum um að breyta 79. grein núverandi stjórnarskrár en greinin fjallar um breytingar á stjórnarskránni. „Ég sé enga aðra leið til að gera þetta vegna þess að við verðum nú að virða núverandi stjórnarskrá, ann- að væri fráleitt,“ segir Pétur en honum finnst mikilvægt að þjóðin kjósi um stjórnarskrána en ekki Al- þingi. Samkvæmt frumvarpi Péturs og annarra stjórnarandstæðinga þurfa tveir af hverjum þremur að samþykkja breytingar á stjórnskip- unarlögum og 60 prósent lands- manna að samþykkja þær í þjóðar- atkvæðagreiðslu svo breytingarnar taki gildi. „Ég held að þegar menn fara í gegnum rökfræðina í þessu máli muni nú bara allir fallast á það að þetta sé það eina skynsamlega í stöðunni ef menn ætla ekki að fara í það að búa til einhverja þjóðar- atkvæðagreiðslu sem er marklaus,“ segir Pétur sem vonast til að frum- varp sitt verði tilbúið þegar þing verður rofið. Óánægður með núgildandi stjórnarskrá Aðspurður hvort hann myndi beita sér gegn frumvarpinu óbreyttu á Alþingi segist Pétur ekki halda að nokkrum detti það í hug að það fari óbreytt í gegn. „Meira að segja stjórnlagaþingið sjálft, nokkrir þar inni, þeir sögðu að þeir hefðu haft stuttan tíma,“ segir Pétur. Honum finnst sum ákvæði vera útópísk og þá gerir hann athugasemdir við orða- lagið „tryggja ber með lögum“ sem kemur víða fyrir í frumvarpinu. Hon- um líst þó vel á frumvarpið í heild- ina og finnst það betra en núgildandi stjórnarskrá en hann hefur áður kallað eftir stjórnarskrár- breytingum. Honum finnst stjórnarskrá- in hreinlega segja ósatt og vísar í því skyni í ákvæði þar sem segi að for- seti geri samn- inga við erlend ríki. „Menn eiga ekki að þurfa að vera að deila um það í áratugi hvort 26. grein- in þýði þetta eða hitt, stjórnar- skráin á að vera öllum skýr,“ segir Pétur. Þingið gæti hafnað nýrri stjórnarskrá Björn Reynir Halldórsson blaðamaður skrifar bjornreynir@dv.is „Honum finnst stjórnarskráin hreinlega segja ósatt. n Frumvarp til stjórnskipunarlaga er nú í höndum Alþingis n Fer ekki í þjóðaratkvæði, samkvæmt gildandi stjórnarskrá n Pétri Blöndal finnst núverandi stjórnarskrá of óskýr Frumvarp í höndum Alþingis Stjórnlagafrumvarp er nú í höndum Alþingis. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir tók við frumvarpinu á föstudaginn fyrir viku. Kvikmyndaskóli Íslands: „Stjórnendur- nir of metnað- arfullir“ „Kvikmyndagerð er mikilvæg iðn- grein, sem getur verið einn af vaxtar- sprotum okkar til framtíðar. Hins vegar verða menn að sníða sér stakk eftir vexti. Því miður hafa stjórnendur Kvikmyndaskólans verið of metnaðar- fullir og ekki gætt nægilega vel að því að reksturinn væri í samræmi við tekj- urnar.“ Þetta segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, um málefni Kvikmyndaskóla Íslands sem verið hafa í deiglunni í vikunni. Skól- inn á í miklum fjárhagsvandræðum og þarf á auknum fjárframlögum að halda. Annars er útlit fyrir að skólinn verði lagður niður. Eygló bendir á það á bloggsíðu sinni að Kvikmyndaskóli Íslands sé einkaskóli, stofnaður og rekinn af einkaaðilum. Ríkið hefur stutt við skólann með beinum framlögum og í gegnum skólagjaldalán LÍN þar sem námið er lánshæft. Ef marka má orð Eyglóar virðist hún ekki vera á þeirri skoðun að veita eigi Kvikmyndaskól- anum aukið fjármagn. „Ég held að mörg einkafyrirtæki vildu óska þess að þau gætu leitað til ríkisins í hvert skipti sem þau þyrftu meira fjármagn í reksturinn. Nú er spurning hvort Ögmundur [Jónasson] ætlar að vera góða álfkonan og gefa þeim meiri pening. Kannski öllum hinum líka,“ segir Eygló. Stjórnend- ur skólans funduðu með mennta- málaráðuneytinu á miðvikudag um málefni skólans. Var niðurstaða þess fundar meðal annars sú að tryggt verður að núverandi nemendur skól- ans fái að ljúka námi sínu komi til þess að skólinn verði lagður niður. Fannst látin Kona fannst látin í bifreið sem hífð var upp úr sjónum við Hrannargötu í Reykjanesbæ síðdegis á fimmtudag. Það var skömmu eftir hádegi á fimmtu- dag sem lögregla fékk tilkynningu um bifreiðina í sjónum. Sjónar- vottur sem DV ræddi við sagði bifreiðina hafa verið illa farna og vísaði lögregla almenningi burt af svæðinu. Lögregla staðfesti um kvöldmatarleytið á fimmtudag að kona hafi verið í bifreiðinni. Hún var látin þegar að var komið. Lög- regla gat ekki gefið frekari upp- lýsingar um málið sem er í rann- sókn hjá rannsóknardeild. Vill byrja á breytingaákvæði Pétur Blöndal og fleiri stjórnarandstöðuþingmenn vilja byrja á að breyta 79. grein stjórnar- skráarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.