Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Síða 17
Fréttir | 17Helgarblað 5.–7. ágúst 2011 Litlar upplýsingar hafi fengist um framgang verksins, eng- ir myndbútar hafi verið settir á Youtube og hætta sé á að ef flest myndböndin verði birt í lok samningsins sé hætta á að þau týnist hvert í öðru. Fram kemur að Guðmundur Andri hafi lýst þeirri skoðun sinni að stjórnarmenn hefðu lítinn skilning á framleiðslu mynda og hafi ekki talið fyrirspurnina svara verða. „Á fundinum las hann hins vegar upp bréf frá Gunnari Sigurðssyni þar sem hann ásakar stjórnarmenn um að bera lygar um sig út um borg og bý og segist ætla að kæra þrjá stjórnarmenn.“ Fram kemur að eðlilegt hefði verið að hann hefði kynnt sér málið og upplýst stjórnarmenn um stöðu þess. Guðmundur Andri segir í samtali við DV að þeir Gunn- ar og Herbert hafi þremur vikum áður en ákvörðun var tekin um að rifta samningi við þá, haldið kynningarfund þar sem nákvæmlega var far- ið yfir stöðu verkefnisins. Þar hafi engar athugasemdir ver- ið gerðar við störf þeirra og áætlanir og stjórnarmeiri- hlutinn hafi aldrei komið á framfæri óánægju sinni með störf þeirra. Uppsögn kom á óvart Í greinargerð Bjargar segir líka að deginum fyrir fundinn, eða 25. júlí, hafi Þórdís stjórnarfor- maður fengið bréf sem Guð- mundur Andri hafi skrifað, dagsett 15. júlí, þar sem hann segir Gunnari Sigurðssyni upp störfum. Það hafi komið flatt upp á stjórnarmenn og að þeir hafi aldrei falið honum að gera það, jafnvel þó ákveðið hefði verið á stjórnarfundi 11. júlí að rifta samningi við Gunnar og Herbert. Guðmundur Andri sé enn fremur ekki starfsmanna- stjóri flokksins. Hann hefði átt að leggja uppsagnarbréfið fram á stjórnarfundinum 18. júlí þar sem bréfið var skrifað þremur dögum fyrr. Eðlileg- ast hefði verið að stjórnin tæki þessa ákvörðun sameiginlega. Fram kemur í lok greinar- gerðarinnar að Guðmund- ur Andri hafi iðulega farið út fyrir verksvið sitt og tekið ákvarðanir án umboðs. Loks kemur fram að lagt verði til að greiða Gunnari og Herberti verktakagreiðslur fyrir unnin kynningarmynd- bönd, eins og upphaflega hafi verið lagt til. Guðmundur Andri er snöggur til svars þegar hann er spurður hvers vegna hann hafi ritað uppsagnarbréf- ið. Hann vitnar í ráðningar- samning sinn þar sem fram komi að hann hafi átt að sjá um öll dagleg málefni, kynn- ingarmál, vefsíðu og fleira. „Það var ákvörðun stjórnar að setja fram uppsögn og rifta samningum við tvo aðila. Mér ber skylda til að tilkynna þeim að stjórnin hafi sagt þeim upp. Það er mín skylda samkvæmt samningum og móralskt séð, svo þeir þurfi ekki að lesa um uppsögnina á netinu. Stjórnin hafði aldrei samband við þessa menn áður en hún ákvað að reka þá og hún neitar núna að greiða þeim laun,“ segir hann. Ógild uppsögn? Eins og áður sagði er mál Gunnars og Herberts komið til lögfræðinga. Þórdís segir að nú sé beðið eftir að lögmenn beggja aðila fundi með aðilum málsins en að stjórnarmeiri- hlutinn hafi bent lögmanni þeirra á að uppsögnin sem Guðmundur Andri skrifaði sé ólögmæt, þar sem uppsagnar- bréfið hafi ekki verið samþykkt af meirihluta stjórnar. Hún hafi því ekki lagalegt gildi. Þórdís ítrekar í samtali við DV að Borgarahreyfingin ætli að bjóða Gunnari og Herberti að greiða þeim verktaka- greiðslur fyrir unnin störf. Á henni má heyra að hún undr- ast framgöngu Guðmundar Andra í málinu. Hann hafi til dæmis, þrátt fyrir að hafa verið sagt upp störfum, ekki skilað rafrænni félagaskrá Borgarahreyfingarinnar og að fyrr sé erfitt að boða til fundar. Aðalfundur ætti að fara fram í september en til hans hefur ekki verið boð- að. Guðmundur Andri segir við DV að félagaskrána eigi, samkvæmt lögum Borgara- hreyfingarinnar, að geyma á skrifstofu flokksins. Þar sé hún í excel-skjali og verði þar til lögheimili skrifstofunn- ar verði flutt. Hann hafi hins vegar þegar afhent stjórninni útprentað eintak. Samþykkt að kæra Þórdís segir líka að Guð- mundur Andri hafi ekki skilað tölvu sem flokkurinn keypti fyrir hann. Þetta kemur einn- ig fram í fundargerð frá fund- inum 26. júlí. Þar segir að í bókhaldið, sem lagt hafi verið fyrir fundinn, vanti fylgiskjöl vegna millifærslna af banka- reikningi Borgarahreyfingar- innar og vegna úttekta af de- betkorti flokksins í maí (sjá reikning til hliðar). Þá vanti afrit af húsaleigusamningi og/eða staðfestingu á leigu- kostnaði. Guðmundur Andri segir að á síðasta fundi, sem haldinn var 2. ágúst, hafi hann afhent og útskýrt allt það sem óskað var eftir. Eftir standi að fjórar kassakvittanir vanti, sem samtals hljóði upp á nokkur þúsund krónur. Þórdís segir að Guðmund- ur Andri hafi nú nokkra daga til að afla þeirra gagna sem vanti, af og frá sé að hann hafi skilað tilskildum gögnum. Skili þau sér ekki verði málið kært til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, enda sé um opinbert fé að ræða. Bók- un þess efnis var samþykkt á fundinum. „Stjórn Borgara- hreyfingarinnar ber ábyrgð á fjármunum flokksins og ber að grípa inn í ef hún telur að þess sé nauðsyn,“ segir Þórdís. Framtíðin í óvissu Ljóst má vera að algjör upp- lausn ríkir í stjórn Borgara- hreyfingarinnar. Ekki fæst séð að deilan leysist án að- komu lögmanna og hugsan- lega dómstóla. Það ræðst ef til vill á næstu dögum. Þess má geta að Guðmundur Andri og Lárus hafa að eigin frumkvæði boðað til auka-aðalfundar 22. ágúst. Í lögum getur þriðjung- ur stjórnarmanna krafist auka- aðalfundar en áhöld eru um, eins og um svo margt annað innan stjórnarinnar, hvort sú fundarboðun standist lög. Eins og fram kemur að ofan má gera ráð fyrir að til aðalfundar verði boðað fljótlega. Spurð um framtíð flokksins segir Þórdís að til greina geti komið að leggja flokkinn niður, eftir að ný stjórn verði kjörin, og gefa peninga flokksins til góð- gerðamála. Borgarahreyfing- in hafi ekki náð markmiðum sínum og tilgangi, óháð þeim deilum sem nú eru innan stjórnar hennar. En til þess að leggja flokkinn niður þurfi þó samþykki félagsmanna. Heimildir DV herma þó að aðrar hugmyndir komi einn- ig til greina. Ein þeirra er að Borgarahreyfingin sameininst Hreyfingunni, en hún varð til þegar þingmenn Borgara- hreyfingarinnar sögðu sig úr flokknum og stofnuðu nýjan. Aðrir hafa áhuga á því að skoða samstarf við Frjálslynda flokk- inn eða Samtök fullveldissinna en skiptar skoðanir eru um allt slíkt. Fjárhagsstaða Borgara- hreyfingarinnar er góð; flokk- urinn á um 19 milljónir króna og ef ekki verða kosningar á árinu fær hann ríflega 20 til viðbótar um áramót. Ekki er útilokað að áðurnefndir hópar renni hýru auga til samstarfs við Borgarahreyfinguna – enda liggja peningar ekki á lausu í samfélaginu. Á aðalfundi, sem virðist handan við hornið, verður ný stjórn Borgarahreyfingarinn- ar kjörin en útkoman á þeim fundi mun að líkindum ráða því hvert framhaldið verður og hvort takist að lægja öldurnar. „Spurð um framtíð flokksins segir Þórdís að til greina geti komið að leggja flokkinn niður, eftir að ný stjórn verði kjörin, og gefa peninga flokksins til góðgerðamála. Reikningur vegna utanlandsferðar Málið snýst meðal annars um þennan reikning en upphæðirnar voru millifærðar yfir á Samtök lánþega, sem Guðmundur Andir stýrir, vegna útlagðs kostnaðar við utanlandsferð Herberts og Gunnars. Meirihluti stjórnar segir að kvittanir og fylgiskjöl hafi ekki fylgt og að hann hafi ekki heimilað útgjöldin. Guðmundur Andri segist í fullum rétti og vísar í kostnaðaráætlun vegna ráðningar þeirra. Afsprengi búsáhaldabyltingarinnar Það er ef til vill kaldhæðnislegt að innbyrðis deilur stjórnar Borgarahreyfingarinnar um ráðstöfun fjármuna skuli nú skekja flokkinn sem hefur lengi gagnrýnt stjórnvöld fyrir ráðstöfun fjármuna þjóðarinnar. Fæst bendir til þess að Borgarahreyfingin muni áfram starfa í óbreyttri mynd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.