Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Síða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Síða 39
Fókus | 39Helgarblað 5.–7. ágúst 2011 Hvað er að gerast? n Grínkeppni Priksins Fyrsta grín- keppni Priksins verður haldin á föstudags- kvöldið. Fyndnir þátttakendur halda uppi fjörinu með uppistandi. Grínistarnir Steindi Jr., Bent og Dóri DNA eru í dómnefnd og það er til mikils að vinna. Í verðlaun eru 25 þúsund króna inneign á Prikinu, framkoma á uppistandskvöldi Priksins, hótelgisting á Hótel Örk og nýi diskurinn með Steinda Jr. Keppnin hefst klukkan 22 og aðgangur er ókeypis. n Raftónlist undir jökli Íslenska raftón- listarhátíðin Extreme Chill Festival verður haldin um helgina á Hellissandi við rætur Snæfellsjökuls. Þetta er í annað sinn sem hátíðin fer fram. Um 30 íslenskir tónlistar- menn koma fram á hátíðinni auk tveggja erlendra. Aðgangseyrir inn á hátíðina er 5.500 krónur og hægt er að kaupa miða á midi.is. n Hinsegin hátíð í Reykjavík Hátíðin hefst þennan daginn með gleðigöngu Hin- segin daga. Gangan leggur stundvíslega af stað frá BSÍ klukkan 14. Gengið verður eftir Sóleyjargötu, Fríkirkjuvegi og Lækjargötu og fram hjá Arnarhóli. Klukkan 15.30 hefst svo skemmtidagskrá við Arnarhól. Meðal skemmtikrafta sem þar koma fram eru Páll Óskar, Lay Low, The Esoteric Gender, Never the Bride, Gunni og Felix, MaryJet, Bloodgroup og Hera Björk. n Páll Óskar á Nasa Poppprins Íslands, Páll Óskar Hjálmtýsson, heldur Hinsegin gleðiball á Nasa í tilefni Hinsegin daga. Palli sér sjálfur um að þeyta skífum en sér- stakir gestir hans þetta kvöldið verða Sigga Beinteins, Daníel Oliver, Hera Björk og Haffi Haff. Þegar Palli heldur ball er öllu tjaldað til og lofar hann miklu stuði, konfettíbombum, fullskreyttu húsi og mikilli sýningu. n Hestar á Listasafni Reykjavíkur Listasafn Reykjavíkur býður upp á fjöl- breytta og fræðandi fjölskyldudagskrá í tengslum við sýninguna Jór! – Hestar í íslenskri myndlist, sem stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum. Viðburðurinn er unninn í samvinnu við Íslenska hestinn – hestaleigu í Reykjavík. Dagskráin hefst klukkan 14 á leið- sögn um sýninguna en svo verður haldið í smiðjuna Litbrigði hestsins. Að lokum býðst þáttakendum að kynnast hestinum af eigin raun á Klambratúni. Frítt fyrir börn undir 18 ára aldri og handhafa Menningarkortsins. n Regnbogahátíð fjölskyldunnar Fjölskylduhátíð Hinsegin daga fer fram í Viðey í dag. Bátsferðir verða á klukkutíma- fresti til eyjarinnar frá klukkan 11.15 til 17.15. Þar verður boðið upp á skemmtun, góða samveru og veitingar. Sérstakt Hinsegin-til- boð er í ferjuna og kostar 500 krónur ferðin. 5 ágú Föstudagur 6 ágú Laugardagur 7 ágú Sunnudagur F jölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er haldin á laugardaginn í Dalvíkurbyggð. Á Fiskidegin- um mikla bjóða fiskverkendur og fleiri framtakssamir í byggðarlag- inu, með hjálp styrktaraðila, öllum landsmönnum upp á fiskrétti milli klukkan 11 og 17. Kvöldið fyrir hátíð- ardaginn bjóða margir heimamenn gestum og gangandi upp á fiskisúpu fyrir utan húsin sín. Markmið há- tíðarinnar, er að sögn aðstandenda hennar sú, að fólk komi saman, eigi góðar stundir og borði saman fisk. Boðið er upp á vinsæla fiskrétti sem breytast lítillega ár frá ári. Meðal annars eru á boðstólum fiskiborgar- ar sem grillaðir eru á lengsta grilli á Íslandi. Fjórtán grillstöðvar eru víða um svæðið og því nóg í boði fyrir fiskisvanga aðkomumenn. Hver stöð hefur sitt nafn og má þar nefna með- al annars Meistarastöðin þar sem meistarkokkurinn Úlfar Eysteinsson býður meðal annars upp á hrefnu- kjöt, Rækjustöðin, Grímsstöð þar sem Grímur kokkur úr Vestmanna- eyjum eldar og Harðfisks- og níger- ísk stöð svo eitthvað sé nefnt. Fjölbreytt skemmtidagskrá er alla helgina í bænum og eitthvað í boði fyrir alla aldurshópa. Meðal annars koma fram skemmtikraftarnir Matti Matt, Eyþór Ingi, Karlakór Dalvíkur, Björgvin Franz, Friðrik Ómar, Jogvan Hansen, Hvanndalsbræður, Íþrótta- álfurinn og Solla stirða svo einhvejir séu nefndir. Nóg af fiski og fjöri Líf og fjör á Dalvík Mikið verðum að vera á Dalvík á Fiskideginum mikla en þá bjóða heimamenn öllum lands- mönnum upp á fiskirétti. Það er dálítið skrýtið. Það er meira kannski unga fólkið sem þekk- ir þetta lag og þekkir andlitið. Þá er lagið það fyrsta sem kemur upp í hugann hjá því og það byrjar að syngja það fyrir mig.“ Byrjaði ungur í tónlistarnámi Valdimar er menntaður básúnu- leikari og byrjaði ungur í tónlistar- námi. „Ég byrjaði að læra á básúnu þegar ég var sjö ára eða eitthvað þannig en ég byrjaði ekkert að syngja eða í poppinu fyrr en ég var í kringum tvítugt.“ Síðan lá leið hans í nám við FÍH og svo í Listaháskóla Íslands. „Þá hafði ég aðeins sungið með hljómsveit sem heitir Streng. Og það var eiginlega út frá þeirri hljómsveit og Listaháskólanáminu sem hljómsveitin Valdimar varð til. Ég hafði alltaf verið í tónlistar- námi en hafði ekkert verið að vinna þannig séð við tónlist en hafði allt- af alveg brennandi áhuga á tónlist. Síðan langaði okkur að gera eitt- hvað svona saman til að svala sköp- unarþorstanum.“ Ekki gefist tími til að semja ný lög Úr varð að hljómsveitin var stofnuð árið 2009 en nokkrum mánuðum fyrr höfðu Valdimar og Ásgeir gítar- leikari byrjað að spila saman. Vin- sældir bandsins eru miklar um þess- ar mundir og lög sveitarinnar hljóma mikið á öldum ljósvakans. Mörg lög hljómsveitarinnar hafa ratað á vin- sældarlista útvarpsstöðvanna. Valdi- mar segir meðlimi hljómsveitarinn- ar semja lögin í sameiningu. „Við Ásgeir gítarleikari byrjuðum að spila saman sumarið 2009. Þetta byrjar yfirleitt þannig að annað hvort ég eða Ásgeir komum með einhvern grunn sem er annað hvort búið að syngja yfir eða ekki og síðan vinn- ur öll hljómsveitin lögin út frá því. Yfirleitt eru komnar laglínur yfir og einhverjir kaflar. Síðan vinnur allt bandið saman með strúktúrinn og fílinginn.“ Þeir hafa ekki haft mikinn tíma til að semja nýtt efni enda fer mest- ur þeirra tími í spilamennsku. „Við erum búnir að vera mikið að spila í sumar þannig að við höfum ekki haft mikinn tíma til að semja nýtt efni en við erum að fara að gefa okkur tíma til að einbeita okkur að því núna. Við erum búnir að vera hver í sínu horni að þróa okkar hugmyndir en förum svo að koma saman og gera eitthvað úr því.“ Nafnið varð til vegna hugmyndaleysis Margir hafa velt fyrir sér nafninu á hljómsveitinni og af hverju hún heiti eftir söngvaranum. Hann seg- ir hugmyndaleysi hafi ráðið nafn- inu. „Þetta nafn býður upp á mik- inn misskilning. Þetta var nú bara hugmyndaleysi í rauninni. Okk- ur vantaði nafn sem væri ekki of mikið „statement“ og væri dá- lítið látlaust. Svo kom Ásgeir með þessa hugmynd að nefna hljómsveitina Valdimar. Ég hafði nú svo sem ekkert á móti því, fannst þetta bara fínt nafn en við bjuggumst náttúrulega ekkert við að verða neitt þekkt- ir,“ segir hann og skellir upp úr. „Við hugsuðum ekkert voða- lega langt fram í tímann þegar við vorum að finna nafn.“ Skemmtilegast að spila í Keflavík Hjómsveitin hefur verið dugleg að spila í sumar og farið víða um land. „Við erum búnir að fara út um allt land. Það er mjög gaman. Við erum nýkomnir heim úr ferða- lagi um landið og spilum á Akureyri og útihátíðinni Gærunni á Sauðár- króki næstu helgi. Maður er búinn að vera svolítið á flakki í sumar,“ segir Valdimar. Hann segist kunna því vel að spila úti á landi og finnst mikilvægt að sinna landsbyggðinni því ekki eigi allir heimangengt á tónleika á höfuðborgarsvæðinu. Hann er mikill Keflvíkingur í sér og finnst skemmtilegast að spila á heimaslóðum. „Það er skemmti- legast að spila á Paddy’s í Keflavík. Það er alltaf gaman að koma fram í sínum heimabæ. Það myndast svo skemmtileg stemning þegar maður þekkir svona marga og allir þekkja mann.“ viktoria@dv.is „Við hugsuðum ekkert voðalega langt fram í tímann þegar við vorum að finna nafn. „Fólk fer stundum á trúnó með manni og sumir hafa sagt að platan hafi haft einhver áhrif á sig á einhvern andlegan hátt eða eitthvað þannig. n Fiskidagurinn mikli verður haldinn hátíðlegur í Dalvík um helgina

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.