Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Síða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Síða 47
Sport | 47Helgarblað 5.–7. ágúst 2011 Í stað þess að halda áfram og bíða og vona að öxlin nái fyrri krafti þá hef ég ákveð- ið að leggja handbolta- ferilinn á hilluna frægu,“ ritaði handknattleikskapp- inn Logi Geirsson í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum á fimmtudaginn þegar hann til- kynnti að hann væri hættur í handbolta. Íslenskur hand- bolti og þá sérstaklega ís- lenska landsliðið sér nú á eft- ir einni sinni bestu skyttu og miklum spéfugli sem litaði ís- lenskt íþróttalíf. Logi lék að- eins fyrir tvö lið á ferlinum, þau einu sem hann vildi nokk- urn tíma spila með. Hann ólst upp hjá FH þar sem hann hóf ferilinn og endaði með Ís- landsmeistaratitli í vor. Þar á milli spilaði hann í sex ár sem atvinnumaður í Þýskalandi með stórliðinu Lemgo. Þar vann hann tvo Evróputitla. Árangur hans með landslið- inu þekkja allir. Hann lék stórt hlutverk þegar íslenska lands- liðið endaði í öðru sæti á Ól- ympíuleikunum í Peking 2008 og var einnig í landsliðshópn- um sem landaði bronsi á EM í Austurríki tveimur árum síð- ar. Logi hefur glímt við erfið axlarmeiðsli sem hafa hald- ið honum mikið utan vallar undanfarin tvö ár og hafa þau meiðsli nú borið hann ofur- liði. Frá FH til Lemgo og aftur heim Logi Geirsson er fæddur árið 1982 í Hafnarfirði, sonur hins goðsagnakennda Geirs Hall- steinssonar. Hann lék upp alla yngri flokka FH en það var árið 2004 sem hann fékk samning hjá þýska stórlinu Lemgo, að stórum hluta að þakka bróður hans og fyrir- mynd, Brynjari Geirssyni. Fyrsti leikur Loga var gegn Kiel þegar áhorfendamet var sett í alþjóðlegum handbolta. Hvergi banginn setti Logi sex mörk á stórlið Kiel. Hjá Lemgo átti Logi bæði góða tíma og slæma en árið 2006 bar hann liðið nánast á herðum sér þegar það varð Evrópumeistari félagsliða. Logi kom inn af bekknum í seinni undanúrslitaleiknum gegn Gummersbach, skoraði tíu mörk og kom sínum mönn- um í úrslitin gegn Göppingen. Í úrslitaleikjunum tveimur fór Logi svo á kostum og átti stór- an þátt í að Lemgo landaði titlinum. Þjálfaraskipti og meiðsli settu ljótan blett á loka- daga Loga hjá Lemgo en eins og kemur fram í bók hans, 10.10.10, stakk hann af til Mónakó áður en tímabilið endaði. Hann kom heim, gerði samning við uppeldisfélagið FH og endaði ferilinn á Ís- landsmeistaratitli í húsinu þar sem hann ólst upp, Kaplakrika. Sorglegur endir „Logi er nú líklega bara ein besta skytta sem Ísland hefur átt,“ segir íþróttafréttamaður- inn og handboltaspekingur- inn Guðjón Guðmundsson, Gaupi, beðinn um að rýna í feril Loga. „Eftir Peking náði hann einum sínum besta kafla á ferlinum þar til hann meiddist hjá Lemgo. Illu heilli hefði íslenska landsliðið þurft að nýta krafta hans undan- farin tvö ár. Hann er ótrúleg skytta, ófyrirleitinn á vellinum og með rosalega fjölbreyttan skotstíl sem ekki öllum er gef- ið,“ segir Guðjón sem sá Loga fyrst sem lítinn polla í Hafnar- firði. „Þegar ég sá Loga fyrst í sjötta flokki var hann nú frek- ar máttlaus. Það kom ekki í ljós fyrr en í 2. flokki að þarna væri maður sem gæti náð langt. Það undarlegasta er að faðir hans, Geir Hallsteinsson, var alveg eins. Það var ekkert vitað snemma að hann yrði jafngóður og raun bar vitni. Logi var orðinn frábær, al- hliða handboltamaður undir lokin því hann var farinn að geta spilað þokkalega vörn. Hans verður sárt saknað því það er enginn á leiðinni í þetta landslið okkar sem getur gert sömu hluti og Logi Geirsson, það er klárt. Þetta er sorglegur endir hjá afburða leikmanni og miðað við læknavísindin í dag er ekki allt eins og það á að vera hvað varðar meiðsli hans,“ segir Guðjón. Margfalt betri en pabbi hans Eins og fram hefur komið er Logi sonur Geirs Hallsteins- sonar sem almennt er tal- inn einn sá besti sem spilað hefur handbolta hér á landi. Í helgarviðtali við DV vetur- inn 2009 sagði Logi þetta um það að vera sonur föður síns: „Það var alltaf verið að segja við mig, bæði í gríni og alvöru, að ég yrði aldrei jafngóður og pabbi. Það kveikti bara í mér. Það spilar enn þá rosalega stórt hlutverk í lífi mínu að ég ætla að verða betri en pabbi í handbolta og það er enn á stefnuskránni, hvort sem ég er búinn að ná lengra eða ekki,“ segir Logi. Guðjón sá báða spila og er ekki í vafa um hvor hafi verið betri þótt hann vilji ekki nota orðið föðurbetrungur. „Mér leiðist það orð en miðað við handboltann sem spilaður er í dag og eins vel og Logi spilaði á Ólympíuleikunum í Peking var hann orðinn margfalt betri en pabbi hans á alþjóðavísu. Þetta er þó auðvitað ekki sama íþróttin í dag og þegar Geir var að spila,“ segir Guðjón Guð- mundsson. Ekki góðar fréttir Guðmundur Þórður Guð- mundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, var svekktur þegar hann heyrði fréttirnar af Loga og tók undir að þarna væri Ís- land að missa frábæran hand- boltamann. „Alveg klárlega. Mér þykja þetta ekki góðar fréttir. Það er hálfdapurt að ekki hafi náðst að koma þess- um meiðslum heim og sam- an,“ segir Guðmundur sem ber Loga vel söguna úr lands- liðinu. „Ég get ekki annað sagt en að hann hafi verið til fyr- irmyndar. Hann var framan af kannski frekar baldinn en svona á síðari stigum var hann farinn að taka þetta alvarlega. Það var samt alltaf stutt í grín- ið og það er líka allt í lagi. Logi hafði sinn háttinn á og ég hef ekkert nema góða hluti að segja um hann. Hann var mjög góður handboltamaður. Vissulega hafði hann geng- ið í gegnum ýmislegt en til að byrja með var hann ekkert sérstakur varnarmaður. Hann náði síðar tökum á því og var í raun orðinn mjög góður varn- armaður undir það síðasta,“ segir Guðmundur. Gerði hluti sem enginn annar gat gert Það var á Ólympíuleikunum í Peking sem Logi stimplaði sig endanlega inn í sálina á ís- lensku þjóðinni með innkomu sinni gegn Spánverjum í und- anúrslitum. Þegar íslenska liðinu var farið að ganga verr að skora var Logi settur inn á og fór hann að hamra á mark- ið úr öllum stöðum, mögu- legum og ómögulegum. Allt lá inni og Ísland var komið í úr- slitaleikinn. „Hann getur verið algjör X-faktor og þar náðum við að nýta hann þannig. Á Ólymp- íuleikunum gerði hann hluti sem enginn annar í heim- inum gat gert. Hann var með stórkostleg, föst skot sem fáir í heiminum bjuggu yfir. Þó svo að Logi hafi haft ólíkt hlutverk á EM í Austurríki sinnti hann því frábærlega. Hann var hálf- meiddur og ekki til stórræða. Með landsliðinu átti hann samt marga frábæra leiki og leysti sitt hlutverk alltaf vel, í vörn og sókn,“ segir landsliðs- þjálfarinn Guðmundur Guð- mundsson. „Gerði hluti sem enginn annar gat“ n Logi Geirsson leggur skóna á hilluna vegna meiðsla n Farsælum ferli mikils gleðigjafa lokið n Var orðinn betri en pabbi hans, segir Guðjón Guðmundsson n „Alltaf til fyrirmyndar, segir Guðmundur Guðmundsson Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is Handbolti „Hans verður sárt saknað því það er enginn á leiðinni í þetta lands- lið okkar sem getur gert sömu hluti og Logi. Á flugi Logi Geirs- son var magnaður á Ólympíuleik- unum í Peking.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.