Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Síða 54
54 | Fólk 5.–7. ágúst 2011 Helgarblað Komin með kærasta Glamúrfyrirsætan og leik- konan Berglind „Icey“ Ólafsdóttir er komin með nýjan kær- asta samkvæmt heimildum blaðsins. Sá heppni heitir Árni Júlíusson og vinnur sem bar- þjónn á skemmtistaðnum B5 í Bankastræti. Það er nokkurra ára aldursmunur á parinu eða átta ár en þau setja það ekki fyrir sig enda oft sagt að ástin spyrji ekki um aldur. Skötuhjú- in hafa sést töluvert saman þegar Berglind er á landinu en hún er búsett í Los Angeles þar sem hún eltist við leiklist- ardrauminn. Gengin út Ásdís Hjálmsdóttir átti heldur betur æðislega viku. Hún náði ólympíulágmarki í vikunni og tilkynnti um samband sitt á Facebook. Sá heppni heit- ir Víðir Þór Þrastarson og er heilsunuddari frá Vestmanna- eyjum. Hamingjuóskirnar létu ekki á sér standa en nokkrir brandarar fylgdu einnig með og skrifaði vinur Ásdísar: „Nú verður sko tekið á spjótinu!“ Það er mikið að gera hjá Ásdísi þessa dagana en hún keppir á demantamótinu í Lundúnum. Einmitt á sama stað og Ól- ympíuleikarnir verða eftir ár. Frábært að vera giftur A ð vera giftur er frá- bært. Ég upplifi það sem meiri breytingu en ég átti von á. Kannski vegna þess að hveitibrauðsdag- arnir eru ekki enn liðnir,“ segir fjölmiðlamaðurinn Guðfinnur Sigurvinsson sem giftist unn- usta sínum til fimm ára, Sím- oni Ormarssyni, þann 23. júlí síðastliðinn. Athöfnin fór fram í Bessastaðakirkju en brúð- gumarnir voru pússaðir sam- an af séra Hildi Eir Bolladóttur, vinkonu Guðfinns. Veisla var haldin á heimili þeirra í Garða- bænum þar sem liðlega 70 af nánustu vinum og fjölskyldu fögnuðu með hjónunum fram eftir nóttu. Guðfinnur og Sím- on gengu saman inn kirkju- gólfið og var athöfnin einlæg og falleg, að sögn veislugesta. „Þessi dagur var alveg yndis- legur og alls ekkert sjálfgef- inn í okkar tilfelli. Þess vegna er maður líklega enn þakklát- ari fyrir vikið. Andrúmsloftið í kirkjunni og veislunni litaðist af þeirri staðreynd, það voru allir svo glaðir yfir að þetta væri hægt,“ segir Guðfinnur sem bað Símonar í Þýskalandi um áramótin í fyrra. Guðfinnur segir útlenska samkynhneigða vini þeirra orðlausa yfir þeirri staðreynd að þeir hafi getað látið pússa sig löglega saman í kirkju. „Það var líka magnað að sjá hvern- ig gestirnir upplifðu þetta. Þá áttaði ég mig á því hvað það er stórkostlegt að búa hér á Ís- landi. Eins og hjúskaparlögin voru stórt mál á sínum tíma og ollu mörgum deilum, þá er þetta í rauninni voðalega lítið mál og margir töluðu um að það væri eins og þetta hefði alltaf verið leyft.“ indiana@dv.is Hamingjusamir Guðfinnur og Símon hafa verið saman í fimm ár og gengu hlið við hlið inn kirkjugólfið. Mynd SIgrún MagnúSdÓttIr n útvarpsmaðurinn guðfinnur Sigurvinsson gekk að eiga unnusta sinn á dögunum É g hef það ágætt mið- að við aðstæður. Ég er svona smám saman að lagast,“ segir Jónas Kristjánsson, fyrrver- andi ritstjóri, aðspurður um líðan sína en hann gekkst und- ir hjartauppskurð á dögunum. Hann er að eigin sögn allur að koma til og lætur veikind- in ekki á sig fá. „Ég verð orð- inn jafngóður eftir tvo mán- uði. Svona 1. október, þá verð ég orðinn betri en ég var áður. Ég þarf að fara í endurhæf- ingu. Ég er núna á göngudeild Landspítalans og síðan fer ég á Reykjalund. Þar eru æfingar fyrir fólk sem hefur farið í al- varlega hjartauppskurði.“ Hann segist hafa verið vel búinn undir uppskurðinn en hann hafi þó orðið stærri en hann bjóst við. „Ég vissi að ég var veikur og það var búið að planleggja þennan uppskurð. Það var búið að tímasetja hann meira að segja á eftir þessu verkefni en uppskurðurinn var miklu meiri en ráð var gert fyr- ir. Hann var stærri og ég þurfti að vera lengi í öndunarvél og svona. Þetta var svona í þyngri kantinum.“ Bloggar í rúminu Jónas er frumkvöðull á sviði bloggs á Íslandi og heldur úti einni vinsælustu bloggsíðu landsins; jonas.is. Lesendur síðunnar voru margir hverj- ir hissa þegar ekki kom nýtt blogg frá Jónasi í lengri tíma eftir uppskurðinn. Hann er þó byrjaður að skrifa aftur inn á síðuna en fer hægt í sakirnar til að byrja með. „Það er fátt annað sem ég get gert núna en að blogga. Ég finn kannski eitt- hvað annað og skemmtilegra,“ segir hann kankvís. Hann segir það hafa geng- ið vel að byrja aftur að skrifa. „Það hefur gengið betur en ég hélt. Það verður bara að vera svona eftir hendinni. Þetta er nú bara eins og hver ann- ar sjúklingur sem kemur af spítala og er heldur slappur. Svo smám saman lagast það.“ Hann skrifar á ferðatölvu sem hann hefur við rúmið sitt. „Ég er með ferðatölvu og er bara með hana á svona sjúkra- borði sem rennur undir rúm- ið.“ gefur út ferðabók Það er nóg um að vera hjá Jón- asi og fyrir jólin stefnir hann á útgáfu ferðabókar. Bókin var tilbúin áður en hann lagð- ist undir hnífinn. „Hún heitir Þúsund og ein þjóðleið. Hún er um þúsund og áttatíu leið- ir milli héraða á Íslandi fyrir göngufólk og hestafólk.“ Bókin er full af hagnýtum upplýsingum fyrir göngufólk. „Þetta er öðrum þræði korta- bók. Það eru kort af öllum leið- unum og þau er mjög nákvæm. Þau eru einn á móti hundrað þúsund í mælikvarða og það sjást 20 metra hæðarlínur svo það er auðvelt að sjá landslag- ið í kortunum.“ Jónas kynnti sér hluta leið- anna sjálfur áður en hann skrifaði bókina. „Ég gekk svona fjórðung leiðanna en hinar fann ég á korti.“ Bókin er nákvæm. „Það fylgja kortunum eða leiðun- um útskýringar og eins líka oft ýmist sagnfræðilegt úr Sturl- ungu og fleiri heimildum, ef eitthvað hefur gerst á þessum leiðum sem er sögurfrægt þá segi ég frá því. Svo eru miklir formálar í bókinni líka. Það er sagt frá því hvernig göngufólk eigi að vera útbúið og hvernig hestafólk og hestar eigi að vera útbúið til að hestaferða. Svo er sagt frá því hvernig nota eigi GPS-tæki.“ tæknin góð Þótt hann sé sjálfur að gefa út bók les hann ekki mikið bæk- ur þessa dagana og er þakklát- ur góðri tækni í veikindunum. „Ég er orðinn svo slappur að ég er hættur að geta lesið bækur. Get bara lesið af tölvum. Þess- ar nýju græjur hjálpa rosalega mikið þeim sem eru fatlaðir eða einhverra hluta vegna ekki með fulla getu. Maður getur verið þátttakandi í heiminum þótt maður liggi fyrir.“ viktoria@dv.is Bloggar af sjúkra- beðinum n Vissi að hann væri veikur n aðgerðin reynd- ist stærri en gert var ráð fyrir n Er allur að koma til n gefur út ferðabók fyrir jólin allur að koma til Jónas segist allur vera að koma til eftir veikindin og segist fullviss um að hann verði betri en áður. „Svona 1. október, þá verð ég orðinn betri en ég var áður. Varð nýjasta kjötið á markaðnum Söngvarinn Friðrik Ómar er í viðtali í nýjasta hefti Monitor. Friðrik er opinberlega sam- kynhneigður og er spurður í viðtalinu hvort hann hafi beð- ið of lengi með að koma út úr skápnum: „Já, í rauninni get ég sagt það. Ég beið of lengi með að vera bara ég sjálfur og njóta mín sem kynvera.“ En eftir að hann kom út úr skápnum árið 2006 breyttist líf hans til hins betra. „ Ég varð ástfanginn, allt í einu voru 30 kíló horfin og ég varð allt í einu nýjasta kjötið á markaðnum,“ segir Friðrik Ómar í Monitor.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.