Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Síða 56
Bara verið
að spara?
Ísbjarnavandamál í
grænlensku blaði
n Grænlenska dagblaðið Sermitsiaq
sem er gefið út í Narsarsuaq fjallaði
um ísbjarnavandamálið á Íslandi í
fyrir helgi. Þar er
velt vöngum yfir
því hvort unnt
sé að flytja ís-
birni sem villast
til Íslands aftur
til Grænlands
og var greint frá
beiðni Svandís-
ar Svavarsdóttur
umhverfisráðherra um greinargerð
um aukna tíðni ísbjarnaheimsókna
til landsins. Svandís bað reyndar
um greinargerðina þann 2. maí
síðastliðinn en grænlenska blað-
ið vitnar meðal annars í viðtal við
ráðherrann sem birtist í Reykjavík
Grapevine þann 10. júní. Þess má
geta að í Narsarsuaq búa innan við
200 manns og er nettenging mjög
takmörkuð að gæðum.
Ríkið tekur sinn
skerf af vinningnum
n Eins og frægt er orðið varð Annie
Mist Þórisdóttir heimsmeistari í
crossfit síðastliðið laugardags-
kvöld og fékk í sinn hlut 250 þúsund
Bandaríkjadali, eða um 29 milljónir
króna. Það er þó ekki svo að allur
peningurinn renni beint til Annie.
Hún þarf nefnilega að skila gjaldeyr-
inum til Seðlabanka Íslands, enda
eru takmörk á því hversu mikinn
gjaldeyri Íslendingar mega eiga. Þá
þarf hún að greiða hátekjuskatt af
vinningsfénu á Íslandi þar sem hún
er ekki búsett erlendis. Samkvæmt
frétt Pressunnar, sem fjallaði um
málið á fimmtu-
dag, gæti An-
nie þurft að
greiða allt að
þrettán millj-
ónir í skatt
þegar allt kem-
ur til alls.
Illugi keyrði fram á
rófulausan kött
n Illugi Jökulsson, blaðamaður og
stjórnlagaráðsfulltrúi, lenti í undar-
legri uppákomu á Reykjanesbraut
á miðvikudag. Illugi var á leið inn í
Hafnarfjörð og var nýkominn fram
hjá álverinu þegar hann sá kött
sem skaust yfir götuna fyrir framan
hann. „Þetta var svartur köttur og
þótt úr þessari fjarlægð væri, þá sá
ég að fas hans var dálítið einkenni-
legt,“ segir Illugi á bloggsíðu sinni
og bætir við að síðar hafi hann séð
að kötturinn var rófulaus. Kötturinn
skaust svo í hvarf og fáeinum sek-
úndum síðar kom hann að staðnum
þar sem kötturinn hafði skotist milli
bíla yfir götuna. „Þá
sá ég að á götunni
lá einhver dökkur
smáhlutur og um
leið og ég sveigði
fram hjá honum
sá ég mér til skelf-
ingar að þarna var
komin rófan
á kettin-
um.“
V
ið hlökkum mikið til
enda er þessi hátíð ein-
stök og í raun ólík öðr-
um bæjarhátíðum,“
segir fréttamaðurinn Logi Berg-
mann Eiðsson um Fiskidaginn
mikla, sem verður haldinn há-
tíðlegur nú á laugardaginn á
Dalvík. Logi Bergmann og kona
hans, Svanhildur Hólm Vals-
dóttir, eiga sér annað heimili á
Dalvík en Svanhildur á einmitt
ættir að rekja til bæjarins.
Eins og áður segir er Fiski-
dagurinn mikli haldinn hátíð-
legur á laugardag en daginn
áður bjóða bæjarbúar gestum
og gangandi upp á fiskisúpu.
Aðspurður segir Logi að þau
hjónin verði ekki með súpu
þetta árið en í staðinn ætla þau
að bjóða upp á kaffi og kon-
fekt, rétt eins og þau gerðu í
fyrra. Ekki nóg með það, held-
ur munu Hvanndalsbræður sjá
um að gestirnir fái notið ljúfra
tóna „Þetta hefur verið mjög
vinsælt og það er mikill gesta-
gangur hjá okkur þetta kvöld.
Gestirnir skiptu hundruðum í
fyrra og það var mikil gleði.“
Á fiskidaginn sjálfan er
boðið til sannkallaðrar fiski-
veislu við Dalvíkurbryggju, en
þar má gæða sér á fjölbreytt-
um fiskréttum ásamt drykkjum
og meðlæti frá klukkan 11 til
17. Logi og Svanhildur ætla
svo sannarlega ekki að láta sig
vanta. „Þetta er alveg svakaleg
veisla og hér fer venjulega allt
á hliðina en bara á jákvæðan
hátt. Það er góð veðurspá og
hér eru allir bara jákvæðir,“ seg-
ir Logi Bergmann að lokum.
Dalvíkingar búast við
miklum fjölda gesta á hátíð-
ina og er talið að um 30 þús-
und manns eigi eftir að gera sér
ferð til Dalvíkur um helgina. Á
Dalvík búa um 1.700 manns,
sem þýðir að íbúafjöldinn
mun næstum því tuttugu-
faldast.
bjorn@dv.is
Logi Bergmann Ætlar sér að
vera hress um helgina, eins og
venjulega.
Kaffi, konfekt og Hvanndalsbræður
n Logi Bergmann Eiðsson hlakkar mikið til Fiskidagsins á Dalvík
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 5.–7. ágúSt 2011 88. tbl. 101. árg. leiðb. verð 659 kr.