Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Side 6
6 | Fréttir 23.–25. september 2011 Helgarblað Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir hdl. Ingi B. Poulsen hdl. Helga Sigrún Harðardóttir lögfr. Kristján Ólafsson hrl. Við veitum konum 10% afslátt af lögfræðiþjónustu í september Látum launamun kynjanna heyra sögunni til Laugavegi 59 – 101 Reykjavík S:552 2420 – www.faktum.is Sigmundur Davíð í Finnlandi: Borðaði er- lendan mat og fékk eitrun „Fundaferðin með utanríkismála- nefnd gekk vel þar til ég fékk mat- areitrun,“ skrifar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsókn- arflokksins á Facebook-síðu sína á fimmtudagsmorgun. Sigmundur Davíð er í Finnlandi ásamt utan- ríkismálanefnd Alþingis. Hann hefur undanfarnar vikur verið á „íslenska kúrnum“ þar sem hann hefur ein- ungis borðað íslenskan mat og af- urðir og hefur lést um 10 kíló. Áður en hann lagði af stað til Finnlands gaf hann það út að hann myndi gera hlé á íslenska mataræðinu og prófa finnskan mat á meðan á dvöl hans þar stæði. Í upphafi ferðarinnar skrifaði hann á Facebook-síðu sína: „Kom- inn til Helsinki með utanríkismála- nefnd. Formaður nefndarinnar og ritarinn höfðu rætt um að taka með harðfisk, slátur og skyr fyrir mig. Svo kom í ljós að þetta hafði átt að vera einhvers konar grín. Þyngd fyrir brottför 101,1 kg. Mánuður liðinn en rétt að framlengja og heimila heima- mat á hverjum stað.“ Það virðast hafa verið nokkur mistök hjá Sigmundi Davíð að taka ekki með sér harðfisk eða skyr þar sem hann fékk matareitrun í Finn- landi. Hann sagðist hafa þurft að yfirgefa fundinn til að ekki færi illa. Hann fór af fundinum á hótelið þar sem honum fór að líða betur. Efla almenningssamgöngur á kostnað framkvæmda: Ríkið leggur til milljarð á ári Íslenska ríkið ætlar að leggja millj- arð króna á ári til almenningssam- gangna á höfuðborgarsvæðinu. Tveir ráðherrar ríkisstjórnarinnar, þeir Ög- mundur Jónasson innanríkisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármála- ráðherra, hafa fyrir hönd hennar und- irritað viljayfirlýsingu þess efnis. Undir yfirlýsinguna skrifuðu einnig Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri og formað- ur Samtaka sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu og Eiríkur Bjarnason verkefnastjóri hjá Vegagerðinni. Um tíu ára tilraunaverk- efni er að ræða. Samkomu- lagið felur þó í sér að stórum vegaframkvæmdum á höfuð- borgarsvæðinu verður frestað. Peningarnir sem ríkið leggur í verk- efnið munu koma af kolefnisgjaldi sem það innheimtir af jarðefnaeldsneyti. „Meginmarkmiðið verði að a.m.k. tvöfalda hlutdeild almenningssam- gangna í öllum ferðum sem farnar eru á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu. Árangur af þessu tilraunaverkefni verði metinn í framvindumati á tveggja ára fresti og framlög verði þá endurskoðuð.“ DV greindi frá því á miðvikudag að Besti flokkurinn og Samfylkingin hefðu ekki staðið við loforð sín um bættar al- menningssamgöngur á valdatíma sín- um í borginni. Flokkarnir gáfu það út að auka ætti ferðatíðni og bæta leiða- kerfi strætós. Það hefur ekki ver- ið gert. Karl Sigurðsson, formað- ur umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, sagði að sam- komulagið við ríkið myndi fela í sér að ríkið myndi sjá um stofnleiða- kerfi strætós en sveitarfélögin gætu þá sett peninga í að auka tíðni ferða vagnanna. baldur@dv.is Aukin ferðatíðni Brátt verður hægt að auka ferðatíðni strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu. „Það er eitthvað rosalega mikið að“ M örg mikilvæg mál urðu af- gangs á nýafstöðnu þingi. Af þeim 247 frumvörpum sem lögð voru fyrir þingið eru enn 108 mál sem ekki hafa verið afgreidd. Talsverður hluti þessara mála bíður enn fyrstu um- ræðu en frumvörp til laga á Alþingi þurfa að fara í gegnum þrjár umræð- ur og í gegnum fastanefndir þings- ins áður en hægt er að afgreiða þau. Þessar tölur eiga ekki við um þings- ályktunartillögur sem lagðar hafa verið fram, en 103 slíkar eru enn óaf- greiddar. Allt frá umferðarlögum til kynferðisbrota Þau mál sem ekki hafa komist á dag- skrá þingsins snúast um allt frá því að heimila ökumönnum að taka hægri beygju á rauðu ljósi til breytinga á kosningalögum til að heimila pers- ónukjör þvert á flokka. Sum málanna sem enn bíða afgreiðslu voru fyrst lögð fram árið 2010. Einnig eru mörg mál sem fengið hafa meðferð en ekki hefur verið lokið við afgreiðslu þeirra. Ellefu mál bíða til að mynda annarr- ar eða þriðju umræðu og 55 mál sitja í einhverjum af fastanefndum þings- ins. Eitt þeirra mála sem ekki hafa ver- ið afgreidd og bíða efnislegrar með- ferðar í allsherjarnefnd þingsins er tillaga nokkurra þingmanna um að skerpa á hegningarlögum er snúa að kynferðisbrotum. Leggja þingmenn- irnir til að lágmarksrefsing vegna nauðgunar verði 2 ár en ekki 1 eins og kveðið er á um í núgildandi lögum. Aldrei verið talað jafn mikið Margrét Tryggvadóttir, þingkona Hreyfingarinnar, bendir á að á sama tíma og öll þessi mál bíða afgreiðslu hafi aldrei verið talað jafn mikið í þinginu. „Það hefur aldrei verið talað jafn mikið. Þingið varði í 800 klukku- tíma. Á Norðurlöndunum hefur eitt þing mest varað í 700 klukkutíma, það var í Finnlandi,“ segir Margrét sem telur mikilvægt að breyta því hvern- ig þingið starfi. Upplýsingarnar segir Margrét komi frá forseta Alþingis. „Það er eitthvað rosalega mikið að hjá okk- ur,“ segir Margrét um störf þingsins. Margrét segir að auk þess sem umræðuhefðin þurfi að breytast á þinginu þurfi að koma í veg fyrir að endurflytja þurfi öll mál sem ekki hljóta afgreiðslu á hverju þingi fyr- ir sig. „Þannig að það yrði hægt að leggja fram mál í upphafi kjörtíma- bilsins og það gæti lifað út allt kjör- tímabilið,“ segir Margrét. „Það er al- veg óþarfi að mál falli niður dauð og ómerk ef ekki tekst að afgreiða þau fyrir 1. október. Það þarf samt líka að setja einhverjar takmarkanir á hversu lengi mál geta verið í nefnd án þess að þau séu afgreidd.“ Lengsta umræðan um stjórnarráðsbreytingar Af þeim 800 klukkustundum sem umræður á Alþingi tóku fóru 59 klukkustundir í að ræða stjórnarráðsbreytingar. Málið setti í raun dagskrá þingsins algjörlega úr skorðum og hefði án efa verið hægt að afgreiða mörg þeirra mála sem eftir eru á þessum tíma. Stjórnar- andstaðan vildi ekki hleypa mál- inu í gegnum þingið og endaði mál- ið þannig að samið var um það á milli leiðtoga þeirra flokka sem sæti eiga á þinginu. Málið var eitt þriggja frumvarpa sem komu frá forsætis- ráðuneytinu sem samþykkt voru á þinginu en málin þrjú snéru öll að stjórnarráðsbreytingum. n Stóð 100 klukkustundum lengur en lengsta þing á Norðurlöndunum n Meira en 160 frum- vörp og þingsályktunartillögur bíða afgreiðslu n Margrét Tryggvadóttir gagnrýnir þingið„Sum málanna sem enn bíða af- greiðslu voru fyrst lögð fram árið 2010. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Vill breytingar Margrét Tryggvadóttir segist vilja breyta reglum sem snúa að því að mál séu látin falla niður fái þau ekki af- greiðslu fyrir lok hvers þings. Mikið talað en margt óafgreitt Mörg mál eru óafgreidd þrátt fyrir að þingið hafi tekið um 800 klukkustundir. MyND SigTryggur Ari JóHANNSSoN Engin ákvörðun verið tekin Eftirlitsstofnun ESA hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort Icesave-málinu verði vísað til EFTA-dómstólsins. Þetta segir í yfirlýsingu frá Oda Helen Sletnes, forseta ESA. Yfirlýsingin er tilkomin vegna forsíðufréttar Fréttablaðsins á fimmtudag þar sem fram kom að Icesave-deilan væri á leiðinni fyr- ir EFTA-dómstól. Þar kom fram að Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, ætlaði ekki að bíða eftir uppgjöri þrotabús Landsbankans, heldur yrði farið með Icesave-málið fyrir EFTA-dómstólinn. Í yfirlýsingu Sletnes kemur fram að ESA bíði eftir svari íslenskra stjórnvalda við áliti stofnunarinnar frá því í sumar. Svarinu beri að skila fyrir lok mánaðarins og eftir það muni ESA skoða næstu skref í málinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.