Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Page 8
M
örgum hafa blöskrað frétt-
ir af nýbirtum árshluta-
uppgjörum Arion banka,
Íslandsbanka og Lands-
bankans. Samtals högn-
uðust umræddir þrír bankar um 43
milljarða króna á fyrstu sex mánuðum
ársins. Allir hafa þeir skilað miklum
hagnaði eftir að þeir voru endurreistir
haustið 2008 þegar forverar þeirra fóru
í þrot.
Í töflu með frétt má sjá að sam-
tals hafa bankarnir þrír hagnast um
163 milljarða króna frá því að þeir
voru stofnaðir í október árið 2008. Nýi
Landsbankinn er sá eini sem hefur
skilað tapi en það var á síðustu þrem
mánuðum ársins 2008 þegar bankinn
tapaði sjö milljörðum króna.
Háværar raddir hafa verið um það
að Arion banki og Íslandsbanki séu
einfaldlega innheimtustofnanir fyrir
erlenda vogunarsjóði sem keyptu
kröfur á bankana með miklum afslætti
eftir bankahrunið. Það komi þeim til
góða að lánasöfn sem fóru úr gömlu
bönkunum yfir í þá nýju séu innheimt
af sem mestum þunga. Þannig búi það
til aukin verðmæti fyrir vogunarsjóð-
ina.
Eftir bankahrunið voru skuldabréf
bankanna seld á brot af því sem nafn-
virði bréfanna gaf til kynna. Skuldabréf
Glitnis voru til að mynda seld á geng-
inu 5–7 en samkvæmt vefsíðunni keld-
an.is hefur gengi þeirra verið 26 síðan
í lok júní á þessu ári. Þeir sem náðu
að kaupa bréfin á réttum tíma hafa
því getað rúmlega fimmfaldað virði
þeirra.
550 milljarða króna virði
Líkt og flestir þekkja á íslenska ríkið
hlut í bönkunum þremur. Fer Banka-
sýsla ríkisins með 81,33 prósenta hlut
í Landsbankanum, þrettán prósenta
hlut í Arion banka og fimm prósenta
hlut í Íslandsbanka. Heimildarmaður
sem DV ræddi við sem þekkir vel til á
fjármálamarkaði segir að líklega væri
hægt að selja bankana þrjá á V/I hlut-
falli í kringum 1,2 til 1,3. Ef miðað er
við V/I hlutfallið 1,2 þá er samtals virði
bankanna þriggja nærri 550 milljarð-
ar króna. Samtals virði hluts ríkisins
af þeirri upphæð er um 230 milljarðar
króna. Samtals virði annarra kröfuhafa
er hins vegar um 320 milljarðar króna.
Til útskýringar þá er V/I stuðull
notaður til að sýna hlutfallið á milli
markaðsvirðis félags og eigin fjár þess.
Ef hlutfallið er hærra en 1 gefur það
til kynna að bókfært verðmæti eigna
fyrir tækis séu vanmetnar. Segir heim-
ildarmaður DV að bankarnir séu í
raun vanmetnir í bókum sínum og
stafi það meðal annars af því hversu
ódýrt lánasöfn þeirra voru færð yfir
í nýju bankana á. Enda endurspegl-
ast það vel í uppgjörum þeirra en líkt
og áður kom fram hafa þeir samtals
hagnast um 163 milljarða króna frá því
að þeir voru stofnaðir í október 2008.
Koma hagræðing og samruni
ekki til greina?
Heimildarmaðurinn sem DV ræddi
við segir að það sé mjög furðulegt að
nýju bankarnir leyfi sér að endur-
meta eignirnar svo hátt í bókum sín-
um. Sérstaklega þegar litið sé til van-
skila á íbúðalánum svo dæmi sé nefnt.
Þegar greiningarfyrirtæki meti banka
horfi þeir á lánasafnið og vanskil.
Nýju bankarnir hljóti því að vera undir
pressu frá kröfuhöfunum um að end-
urmeta eignir hærra til að geta skilað
hagnaði. Eins og sjá má í töflu með
frétt er þó eignarhlutur gömlu bank-
anna í nýju bönkunum einungis brot
af heildareignum þeirra. 14 prósent
hjá skilanefnd Glitnis, níu prósent hjá
skilanefnd Kaupþings.
Heimildarmaðurinn segir að ef
það væri virkilegur vilji hjá stjórn-
völdum til að bæta stöðu heimila og
minni fyrirtækja ætti að skoða það af
alvöru að sameina Landsbankann og
Arion banka. Ef það yrði framkvæmt
yrði íslenska ríkið meirihlutaeigandi
hins nýja banka. Grunnrekstur þeirra
beggja, líkt og Íslandsbanka, væri þó
ekki góður og myndi slík framkvæmd
því líklega kalla á frekari uppsagnir
starfsmanna til þess að ná fram hag-
ræðingu.
Einnig má velta því fyrir sér hvort
ekki gæti komið til greina að íslenska
ríkið og jafnvel lífeyrissjóðir myndu
vilja kaupa út aðra kröfuhafa hjá nýju
bönkunum. Fáir álitlegir fjárfestinga-
kostir bjóðast fyrir íslenska lífeyris-
sjóði um þessar mundir og miðað við
að íslenska ríkið hafi aukið skuldir
sínar um nærri 1.000 milljarða króna
í kjölfar bankahrunsins hljómar talan
320 milljarðar króna ekki svo há. Þess
skal þó getið að íslenskir lífeyrissjóð-
ir eru á meðal kröfuhafa bankanna
þriggja þó ekki liggi fyllilega ljóst fyrir
hversu háar kröfur þeir eiga. Auk þess
hefur verið meira rætt um að íslenska
ríkið ætli frekar að minnka eignar-
hlut sinn í fjármálafyrirtækjum. Því er
ólíklegt að ríkið myndi sýna því áhuga
að auka eignarhlut sinn í bönkunum
þremur. Lífeyrissjóðirnir hafa hins
vegar fjárfest töluvert mikið í gegn-
um Framtakssjóð Íslands (FSÍ) og
upphaflega var talað um að sá sjóð-
ur fengi jafnvel 100 milljarða króna til
umráða.
8 | Fréttir 23.–25. september 2011 Helgarblað
Mistök Iceland Express:
Iceland Express
biðst afsökunar
Iceland Express hefur beðið Báru
Sigurjónsdóttur, sem og aðra far-
þega í flugi félagsins frá Varsjá í Pól-
landi á miðvikudag í síðustu viku,
afsökunar vegna mistaka sem áttu
sér stað í meðhöndlun farangurs
þeirra í fluginu. Svo mikill farangur
var í vélinni að flugvélin var orðin of
þung fyrir flug en misskilnings gætti
á milli flugstjóra flugvélarinnar og
þeirra aðila sem stjórna áætlunum
flugvéla Iceland Express um hvernig
leysa eigi slík vandamál.
Ákveðið hafði verið að fylla ekki
flugvélina af eldsneyti og taka allan
farangurinn með í vélina en milli-
lenda svo í Kaupmannahöfn til að
bæta á eldsneytið. Það var þó ekki
gert heldur var hluti farangursins
skilinn eftir í Varsjá, vélin fyllt af
eldsneyti, en engu að síður millilent
í Kaupmannahöfn með tilheyrandi
seinkun. Mistökin fólust einnig í
því að starfsmenn Iceland Express
á Keflavíkurflugvelli voru ekki upp-
lýstir um að einhverjar töskur vant-
aði í vélina og gátu því ekki aðstoðað
farþega sem biðu eftir farangri.
„Iceland Express biður farþega
sem ekki fengu farangur sinn á til-
settum tíma afsökunar á þessum
mistökum og þeim óþægindum sem
þau kunna að hafa skapað þeim og
að þeir voru ekki upplýstir um stöðu
mála við lendinguna í Keflavík,“ seg-
ir í tilkynningu frá Iceland Express
sem félagið sendi frá sér á miðviku-
dag vegna málsins. Samkvæmt því
sem fram kemur í fréttatilkynn-
ingunni höfðu þá allar nema fimm
töskur skilað sér til landsins.
adalsteinn@dv.is
BRIDS
SKÓLINN
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Byrjendur ... 26. sept. ... 8 mánudagar frá 20-23
Framhald ... 28. sept. ... 8 miðvikudagar frá 20-23
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Síðustu innritunardagar
• Haustnámskeiðin hefjast eftir helgi.
• Staður: Síðumúli 37 í Reykjavík.
• Kennari: Guðmundur Páll Arnarson.
• Sjá bridge.is undir ”fræðsla”.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Frekari upplýsingar og innritun í síma 898-5427
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
GLB KB LBI
Eignir í milljörðum króna 857 1.040 1.290
Hlutur í nýju bönkunum, milljarðar kr. 117 96 340
Stærð hlutar af eignum 14% 9% 26%
Heildarforgangskr. 2.245 2.936 2.857
Eignir/forgangskr. 38% 35% 45%
Verðmæti gömlu bankanna
Ár ISB Arion NBI Alls
2011 8 10 24 43
2010 29 13 27 69
2009 24 13 14 51
2008 2 5 -7 0
Samt. 64 40 59 163
* Tölur í milljörðum króna
Hagnaður eftir hrun*
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is ISB ARION NBI
Eignir í milljörðum króna 683 805 1.126
Eigið fé í milljörðum króna 129 117 208
Virði - V/I hlutfall 1,2 155 141 250
Heildarvirði bankanna 3: 545 milljarðar króna
Eignarhl. kröfuh. 95% 87% 18,7%
Virði kröfuh. 147 122 57
Samt. virði kröfuh: 316 milljarðar króna
Eignarhl. ísl. ríkisins 5% 13% 81%
Virði hlutar ríkisins 8 18 203
Samtals virði ríkisins: 229 milljarðar króna
Arion banki, Íslandsbanki og Landsbanki
n Heildarvirði Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans um 545 milljarðar króna
n Eignarhlutur annarra kröfuhafa en ríkisins metinn á 320 milljarða króna
320 milljarðar
til að losna
við kröfuhafa
Mikill hagnaður Frá því að bankarnir
voru stofnaðir í október árið 2008 hafa
þeir hagnast um 163 milljarða króna.
Of vægir dómar
í kynferðis-
brotamálum
98,6 prósent þeirra sem tóku þátt
í könnun DV á afstöðu fólks til
dóma í kynferðisbrotamálum telja
þá vera of væga. Af 138 sem tóku
þátt í könnuninni sögðu 136 þá
vera of væga. Tilefni könnunar-
innar var dómur sem féll í Héraðs-
dómi Suðurlands á miðvikudag
þar sem karlmaður var dæmdur í
sjö ára fangelsi fyrir gróf kynferð-
isbrot gegn þremur börnum. Guð-
rún Jónsdóttir hjá Stígamótum
segist í samtali við DV geta fallist á
það að dómar sem falli í íslensku
réttarkerfi séu of vægir, en vanda-
málið sé fremur fólgið í því hversu
fáir dómar falla.