Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Qupperneq 12
12 | Fréttir 23.–25. september 2011 Helgarblað St. 41-46 Grensásvegur 8 & Nýbýlavegur 12 Sími 517 2040 Opið mánud-föstud. 11-18 laugard. 11-16 SKÓMARKAÐUR St. 40-46 St. 41-50 St. 40-46 Verð: 8.415 Verð: 6.995 Verð: 7.295 Verð: 4.995 Kærði vinnuveitandann: Ekki enn verið rekinn „Þau taka þessu bara ágætlega,“ sagði Hallur Reynisson, starfsmaður Hagkaups á Akureyri, sem mætti til vinnu klukkan fimm á fimmtudag. Hann kærði vinnuveitanda sinn til kærunefndar jafnréttismála. Fyrir- tækin sem hann kærði eru sextán talsins en hann hefur þar að auki kært formann VR, Stefán Einar Stef- ánsson, og yfirmann sinn, Gunnar Inga Sigurðsson, framkvæmdastjóra Hagkaups. Hallur stundar nám við Mennta- skólann á Akureyri og er þar á fjórða ári. Í fréttatilkynningu sem hann sendi frá sér á miðvikudag sagðist hann vera ósáttur við að konur fái tíu prósenta afslátt þessa dagana þegar þær versla í Hagkaup og í rök- stuðningi sem fylgir kærunni segir að það að veita konum afslátt, sé jafn fjarstæðukennt og að veita við- skiptavinum afslátt vegna litarháttar, kynhneigðar eða trúarskoðana. „Þau leyfa þessari nefnd sem er að fara í gegnum málið örugglega að sjá um þetta,“ segir Hallur sem segir að honum hafi verið tekið vel þegar hann mætti til vinnu. „Þetta er nátt- úrulega ekkert persónulegt. Mér fannst rangt af þeim að hafa þetta í gildi. Það geta allir gert mistök,“ segir Hallur. Hann segir flest alla vera jákvæða í sinn garð vegna málsins. „Ég hef verið kallaður hetja og eitthvað rugl,“ segir Hallur og hlær. M ánudaginn 31. maí 2010 kom kona á Lögreglustöð- ina í Vestmannaeyjum í því skyni að leggja fram kæru á hendur ákærða fyrir kynferðisbrot gagnvart dótt- ur hennar sem er fædd árið 2001. Hafði vinkona dótturinnar þá kvart- að undan kynferðisbrotum af hálfu manns sem konan hafði verið að slá sér upp með síðustu ár. Hún sagðist hafa gengið á dóttur sína í kjölfarið sem sagði að maðurinn hefði káfað á rassinum á sér og beitt hana grófu kynferðislegu ofbeldi. Maðurinn var handtekinn sama kvöld þegar hann átti sjálfur erindi á lögreglustöðina til að nálgast kveikju- láslykla bifreiðar sinnar. Hann var þá sendur í læknisrannsókn og gert að afhenda fatnað sinn. Heimili hans var rannsakað og lagt var hald á tölvubúnað hans. Hann varð síð- an frjáls ferða sinna kl. 23.58. Það var svo ekki fyrr en þann 25. júní síðast- liðinn sem hann var færður í gæslu- varðhald. Meira en 8.000 ljósmyndir af barnaklámi Í tölvu hans fundust samtals 8.581 mynd og 649 myndskeið sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfeng- inn hátt og jafnframt var þar að finna myndskeið sem sýndu börn í kyn- ferðislegum athöfnum með dýrum. Þá fundust 13 myndskeið sem teljast vera íslensk, en ljóst var að um fleiri en eitt eintak af sama myndskeiði var að ræða. Einnig fundust 26 ljós- myndir af manninum í kynferðisleg- um athöfnum með öðrum brotaþola. Trúði því að hann hefði ruglast Við rannsókn málsins lét ákærði þau orð falla að hann hefði fengið „svona í andlitið áður frá móður brotaþolans A“. Í kjölfarið hafði lögreglan sam- band við stúlkuna sem staðfesti að ákærði hefði leitað á hana þegar hún var 10–11 ára. Brotið átti sér stað á ár- unum 2001 eða 2002, þegar þau voru tvö ein á heimili móður hennar en hún leit á hann sem fósturpabba sinn og fól brotið í sér ýmsar kynferðisleg- ar athafnir. Eftir atvikið komst stúlk- an í uppnám en hann gaf henni 2.000 kall og sagði fyrirgefðu. Hún sagði frá, vini bróður hennar sem kom heim til þeirra rétt á eftir og frænku sinni, en þau sögðu móður hennar svo frá þessu. Samband móður hennar við manninn breyttist þó ekki eftir þetta. Stúlkan útskýrði það þannig fyr- ir móður sinni að hann hefði rugl- ast á sér og henni og móðir henn- ar trúði því allt þar til hún heyrði að hann hefði sagt að hann hefði hald- ið að stúlkan vildi þetta. Hvorki lög- regla né barnaverndaryfirvöld ræddu við stúlkuna eftir þetta en henni leið mjög illa, sagði að hún hefði aldrei notið stuðnings og hefði aldrei talað um þetta. Móðir hennar staðfesti að systir sín hefði sagt sér frá því sem gerðist. Hún hefði því rætt við dóttur sína og manninn í kjölfarið, hann hefði sagt að þetta væri rétt en útskýrði það þannig að hann hefði haldið að það væri konan sem hefði legið í rúm- inu. Hún hefði því afgreitt þetta sem slys. Eftir þetta hafi samband þeirra þó verið skrýtið og því hafi endanlega lokið í ágúst 2002. Sagði sjálfur frá Lögreglumaður skýrði svo frá því að hann hefði á sínum tíma hitt mann- inn á förnum vegi og hann hafi þá sagt að sambýliskonan hefði sakað hann um að leita á dóttur hennar. Lögreglumaðurinn spurði hvort það væri eitthvað til í því en maðurinn neitaði. Stúlkan svæfi oft uppi í rúmi hjá þeim og hann hefði hugsanlega eitthvað ruglast á þeim mæðgum og strokið stúlkunni. Þar sem engin til- kynning hefði borist frá þeim mæðg- um bókaði hann ekki neitt um málið. Sálfræðingur greindi svo frá því að maðurinn hefði rætt þessar ásak- anir við sig og verið miður sín vegna þeirra. Hann hefði sagst vera mikið á móti mönnum sem leituðu á börn og annað slíkt. Hann hefði þó í samráði við móður stúlkunnar ákveðið að fara ekki með málið lengra, þar sem það væri viðkvæmt. Hann ræddi málið óformlega við þáverandi félagsmála- stjóra en kvað að enginn hefði rætt atvikið við stúlkuna á sínum tíma. Að mati dómsins var framburður vitna metinn trúverðugur og var því talið hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Vanlíðan rakin til vanrækslu Maðurinn fór svo í annað samband og misnotaði dóttur þeirrar konu frá því að hún var sjö ára og þar til upp um hann komst þegar hún var um átta ára gömul. Móðir hennar sagði fyrir dómi að hún og maðurinn hefðu verið saman í fimm ár með hléum. Þau hefðu ekki verið í sambúð en mikið á heimili hvor annars, hún þó meira á hans og þá með börnin. Dóttir hennar hefði verið mikið ein með manninum, enda leitað mikið til hans. Sagði hún að líðan dóttur sinnar hefði ekki verið góð, stúlkan ætti það til að detta í hugrof og ætti oft og tíð- um erfitt með að einbeita sér. Þetta hefði verið svona í um það bil tvö ár. Stúlkan væri óörugg og sækti mikið í einveru. Fyrir dómi kom einnig fram að barnavernd hefði haft afskipti af stúlkunni og að frá vorinu 2005 hefði verið samfelld tilsjón á heimili móð- ur hennar. Fylgst var með líðan stúlk- unnar og margt benti til vanlíðunar hennar. Það var hins vegar rakið til vanrækslu og þess að rót hafi verið á stúlkunni sem fór á milli heimila föður og móður. Ekki var spurt út í kynferðislegt ofbeldi þar sem ekkert benti til þess að slíkt væri fyrir hendi. Það hefði líka verið mjög hæpið að barn sem hefði búið við vanrækslu og slæman aðbúnað lengi líkt og stúlk- an væri tilbúið til að stíga fram og láta vita af ofbeldinu. Grunur kennarans Umsjónarkennari stúlkunnar skýrði einnig frá því að stúlkan hefði sætt vanrækslu af hálfu móður sinnar. Hún hafi til dæmis ekki mætt í skól- ann þegar hún var hjá móður sinni, ekki komið með íþróttadót og nesti hafi vantað. Kennaranum þótti stúlk- an einnig sýna mjög óeðlilega hegð- un sem samsvaraði ekki aldri henn- ar. Sagðist hann hafa séð stúlkuna í gegnsæjum tígristoppi af móður sinni og með leifar af andlitsmáln- ingu, maskara og öðru. Hann sendi stúlkuna því til hjúkrunarfræðings en þar vildi hún ekkert segja og lít- ið tala. Kennarinn sá stúlkuna einn- ig sýna kynferðislegar hreyfingar og sagði að stúlkan hefði farið í vörn þegar hugað var að meiðslum sem hún fékk á skólalóðinni. Þá var hún send aftur til skóla- hjúkrunar- fræðings sem átti að kanna hvort eitt- hvað væri í gangi heima. Ekkert kom út úr því, nema það að stúlkan var í bol af manninum und- ir sínum eigin föt- um og það var það sem hún vildi ekki að kennarinn sæi. Sagði hann einnig að stúlkan hefði dregið sig al- veg í hlé á tímabili og hætt að hafa samskipti við vini sína. Hún hefði sýnt einkenni hrikalegrar vanlíðun- ar og lýsti því sem svo að ljósið í aug- um hennar hefði slokknað. Hún hafi dregið sig undir borð og ruggað sér og engin leið hafi verið til að ná sam- bandi við hana. Alvarleg hugrofseinkenni Sálfræðingur sagði einnig að stúlkan væri með alvarlegustu hugrofsein- kenni sem hann hefði séð og að hún hefði notað hugrofið sem sjálfshjálp, eða „self-soothing“ eins og hann orð- aði það, til að komast í gegnum alltof sársaukafulla reynslu. Þau einkenni væru frekar tengd andlegu áfalli en þeirri vanrækslu sem stúlkan sætti af hálfu móður sinnar. Maðurinn var fundinn sekur um margvísleg kynferðisleg brot gegn stúlkunni. Að lokum var hann fund- inn sekur um að hafa káfað á rassi þriðju stúlkunnar. Sú er dóttir konu sem lýsti alvarlegu andlegu ofbeldi af hálfu móður sinnar og misnotkun af hálfu föður síns í DV síðasta sumar, undir nafninu Rósa. Við gefum henni nú orðið: Kennarinn sá stúlkubarnið í gegnsæjum tígristoppi n Maður fékk sjö ára dóm fyrir brot gegn þremur stúlkum n 8.581 ljósmynd með barnaklámi í tölvunni og 649 myndskeið n Móðir stúlkunnar sem sagði frá varð líka fyrir kynferðislegu ofbeldi n Ég er í sjokki, segir hún Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is Dómsmál Sagði sögu sína Síðasta sumar sagði móðir einnar stúlkunnar DV frá ofbeldi sem hún var beitt. „Það má segja frá því í fréttum að hann hafi stungið lim sín- um í munn hennar en það má ekki taka það fram hvað hann heitir. Er það réttlátt? Móðirin trúði að hann hefði ruglast á henni og dóttur hennar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.