Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Síða 13
Fréttir | 13Helgarblað 23.–25. september 2011
Kennarinn sá stúlkubarnið
í gegnsæjum tígristoppi
Bréf móðurinnar:
„Ég er í sjokki“
„Ég sit nú ein og hamra á lyklaborðið
því ég er í sjokki yfir því að maður hafi
verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir
að misnota þrjár barnungar stúlkur.
Tvær þeirra voru stjúpdætur hans,
önnur ellefu ára og hin sjö ára þegar
hann byrjaði að beita þær grófu kyn-
ferðislegu ofbeldi, sem hann tók síð-
an upp á myndband. Þriðja stúlkan
var dóttir mín.
Ég er mamma stúlkunnar sem
hann var kærður fyrir að káfa á. Hann
komst ekki langt með hana og það
er henni að þakka að upp um hann
komst. Hún er hetja fyrir að hafa
komið til mömmu og sagt frá því sem
hann gerði. „Hann kom við rassinn á
mér,“ sagði hún „og ætlaði að fara inn
undir náttfötin mín“. Fyrir það var
hann dæmdur og því er ég þakklát.“
„Mikið er ég þeim þakklát“
„Hvað kenni ég dóttur minni í svona
málum? Hvar erum við stödd?
Fyrir áttatíu til níutíu árum síðan
voru vinnukonur misnotaðar og
stundum urðu þær barnshafandi eft-
ir ríka vinnuveitendur sína. Þá voru
þær sendar burt og fyrirlitnar, álitn-
ar mellur og lauslát ógeð. Þær voru
dæmdar þessum þunga dómi og
þurftu að lifa við það alla ævi og jafn-
vel börn þeirra líka. En eftir öll þessi
ár, hvar erum við nú? Hvernig hefur
þessi sýn okkar breyst?
Ein þessara kvenna var nógu sterk
til að segja sögu sína, svo önnur og
enn fleiri þar til viðhorfin breyttust
og við fórum að líta á vinnuveitand-
ann sem ljóta karlinn. Við munum
snúa þessu við og færa sektina ann-
að! Réttlætið krefst þess að hann sé
ljóti karlinn.
Á þeim tíma var þetta tíðarand-
inn, hin óskrifuðu lög sem dæmt var
eftir og enn í dag eru þessi lög til stað-
ar í okkar samfélagi.
En við erum þó komin lengra af
því að sterkar konur og menn sem
stóðu fast á sínu þorðu að koma fram.
Mikið er ég þeim þakklát og mikið er
þetta fólk, að mínu mati.“
Sagði sögu sína í DV
„Í mörg ár ár beið ég eftir því að sjá
í blöðunum frásögn konu sem hefði
lent í því sama og ég. En sú saga var
aldrei sögð. Ekki fyrr en einn dag-
inn að ég var beðin um að segja sögu
mína. Ég!
Á ég að segja sögu mína? hugs-
aði ég. Mér hafði ekki svo mikið sem
dottið það í hug áður – ég vildi sitja í
sófanum, í mínu horni og í friði, laus
við dóminn sem fylgdi því að segja
frá.
Hvar værum við ef allir hugsuðu
svona? Það þarf sterkan karakter til
þess að segja frá en ég ákvað að gera
það. Það var ekki auðvelt. Guð hjálpi
mér hvað það er erfitt að fá skilaboð
á Facebook þar sem maður fær að
heyra hvað maður sé ógeðslegur lyg-
ari og því um líkt.
En ég vil ekki vera vinnukonan
sem gekk út með skömmina. Nú verð
ég að segja frá.“
Dæmd fyrir að tala um ofbeldið
„Ég er Rósa – sú sem sagði ljóta sögu
af henni mömmu.
Og hvernig var ég dæmd? Allir sem
þekkja mömmu vita að mamma var
„góð“ kona og er enn. Pabbi var líka
„góður“ maður. Auðvitað vil ég setja
ákveðinn fyrirvara á gæsku þeirra þar
sem þau beittu mig ofbeldi.
Þau eru börn síns tíma og mynstr-
ið var týpískt. Að því sögðu vil ég taka
það fram að ég er ekki að afsaka gjörð-
ir þeirra eða orð mömmu þegar hún
sagði að hún vildi óska þess að hún
hefði ekki ættleitt mig. Nú eða því þeg-
ar hún kom að pabba misnota mig og
kenndi mér um.
Ég var ekki raunverulegur hluti af
þessari fjölskyldu. Vegna þessa hef ég
þjáðst mikið um ævina en ég hef unn-
ið markvisst að því að öðlast styrk og
bið Guð um að ég megi fyrirgefa og
halda mig við kærleikann sem er eina
rétta leiðin í lífinu. Blíða og mildi eru
ekki merki um veikleika og vonleysi
heldur styrk og ákveðni. Guð veit að
ég er sönn og heiðarleg kona.
Saga mín er sönn eins og hún var
sögð í sumar. Ég bauð mömmu og
pabba að eiga þetta leyndarmál ein
með mér og ræða þetta en þau kusu
að setja alla mína bræður inn í mál-
ið og afneita því sem þau gerðu. Það
var afgreitt með því að afskrifa mig
sem ruglaða, geðveika – ég var vinnu-
konan sem var send á næsta bæ með
skömmina.“
„Gott fólk gerir svona“
„Fólk er ekki alltaf annaðhvort vont
eða gott, þetta ristir aðeins dýpra en
það. Góð kona særði mig djúpt og
kom illa fram við mig. Almennt talinn
góður maður misnotaði mig.
Kannski hef ég kafað of djúpt til að
skilja þetta fólk og þeirra gjörðir. En
ég komst þangað þegar ég var búin að
fyrirgefa og orðin heil að innan, sönn
sjálfri mér!
Til eru konur sem trúa því ekki
að maðurinn þeirra geti gert svona.
Gott fólk gerir svona og gott fólk fer
í afneitun. Auðvitað eru gjörðir þess
hrikalegar. Þetta fólk býr hér á meðal
okkar.“
Vonast til að skömminni létti
„Hver vill ganga á þessari jörðu og
segja upphátt: „Ég var misnotuð“? Ég
trúi því ekki að nokkur haldi í raun og
veru að það sé skemmtilegt að slíkt
fylgi manni alltaf. Þetta er þung byrði
að bera.
En eigum við að þegja þegar það
kemst upp að einhver hefur brotið á
börnunum okkar vegna þess að þau
mega ekki fá það orð á sig að hafa ver-
ið misnotuð?
Ég sit hér og er mjög hugsi yfir
þessu og ætla að íhuga það vandlega,
auðvitað vil ég allt sem er barni mínu
fyrir bestu en vinnukonan hverfur
ekki úr huga mér. Hvað hefur oft verið
sagt við okkur sem höfum verið mis-
notuð að það sé ekkert sem við eig-
um að skammast okkar fyrir, en ef
þetta þykir ekki skammarlegt leng-
ur, af hverjum segjum við þá ekki frá
reynslu okkar?
Ég sé fyrir mér að þegar dóttir mín
verður þrítug eða fertug, kannski bara
tvítug þá verði engin skömm tengd
þessu og þær munu koma hreint fram
og segja okkur að á þessum tíma, árið
2011, hafi bara verið til vondir og góð-
ir menn og að þá hefði alls ekki átt að
tala um þetta þó að dómur hefði fall-
ið því þá var fólk enn að berjast við
skömmina sem fylgdi því að vera mis-
notaður.“
Hvar er réttlætið?
„Það má segja frá því í fréttum að hann
hafi stungið lim sínum í munn henn-
ar en það má ekki taka það fram hvað
hann heitir. Er það réttlátt?
Og fyrir brot gegn þremur stúlkum,
8.000 ljósmyndir af barnaklámi, þar á
meðal af stjúpdóttur sinni og 623 kvik-
myndir með barnaklámi fékk hann sjö
ára dóm, takk fyrir. Ég endurtek, sjö ár!
Er þetta réttlátt?
Með góðri hegðun kemst hann út
eftir þrjú til fjögur ár.
Heldur þú að þú munir eftir þessu
máli eftir þrjú ár? Kannski flytur hann í
hverfið þar sem ég bý, eða þú. Kannski
sækir hann um vinnu hjá þér eða býður
þér á stefnumót. Heldur þú að þú eig-
ir eftir að þekkja hann aftur? Kannski
fellur einmana kona fyrir honum, jafn-
vel móðir.
Þetta kemur okkur öllum við.“
Að verða úrkula vonar
„Á þessari tungu eru til ótal titlar svo
við hljótum að geta fundið einn á menn
eins og hann. Níðingur. Þeir láta eft-
ir sér þennan sjúkleika og mæðurnar
fara í afneitun, saman skapa þau sjúkt
mynstur sem verður þeim eðlilegt.
Það minnir mig á börnin sem ólust
upp við þrælahald, að þau mættu gera
það sem þeim sýndist við svarta mann-
inn. Það var tíðarandinn þá. Okkur
tókst að breyta því. Okkur tókst líka að
breyta viðhorfunum gegn reykingum
þó að það hafi tekið mörg ár. Kannski
tekst okkur líka að breyta sýn okkar á
þessi mál, þó að það muni kannski ekki
takast á mínum tíma. Ég er að verða úr-
kula vonar.“
Vill fela andlit dóttur sinnar
„Rósa er nafn á mér og konum sem
hafa sömu reynslu og ég. Við eigum
að vinna úr okkar reynslu. En tölur yfir
fjölda kynferðisbrota eiga ekki við um
okkur sem aldrei kærðum, samkvæmt
svörum lögfræðings. Er eitthvert rétt-
læti í því að það eigi aldrei að tala um
mál sem aldrei hafa komið inn á borð
lögreglunnar? Erum við ótrúverðugar
fyrir vikið?
Ég er barn míns tíma en ég hafna
því hlutverki að vera vinnukonan sem
var send á næsta bæ. Ég vil ekki vera
þar lengur. Ég get það ekki. Ég verð að
standa með mér og mínum líkum og
blása á það orð sem ég fæ á mig fyrir
vikið.
Enn vil ég þó vera kölluð Rósa og
fela andlit dóttur minnar en þið meg-
ið vera viss um það að Rósa þegir ekki
lengur. Ég get ekki sætt mig við það
að við höfum ekki náð lengra en svo
að maður fær aðeins sjö ára dóm fyrir
þessar sakir.“
Leit í augu dómaranna
„Ég var vitni í þessu máli og leit í
augu dómaranna. Þeir voru þrír og
sáu myndböndin. Mér er óskiljanlegt
hvernig þeir gátu veitt svo vægan dóm
eftir það.
Kannski erum við spegilmynd okk-
ar sjálfra og getum aðeins hugsað út
frá okkar hjarta og ég veit að mér hefði
reynst ómögulegt að dæma svona í
þessu máli.
Lengsti dómur sem hefur verið
veittur í kynferðisbrotamáli er átta ára
fangelsisvist. Kæru Íslendingar, eigum
við að sætta okkur við þetta?
Kæru Íslendingar, þetta kemur okk-
ur öllum við.
Kveðja, Rósa.“
Vestmannaeyjar Maðurinn var handtekinn í Eyjum í maí 2010 og gekk laus þar til í júlí
þrátt fyrir að mikið magn af barnaklámi, meðal annars klámfengnar myndir af stjúpdóttur
hans, hafi fundist í tölvu hans.
Ljósið slokknaði
í augum hennar
Svo lýsti kennari einnar
stúlkunnar andlegu ástandi
hennar en sálfræðingur
sagði að hún hefði alvar-
legustu hugrofseinkenni sem
hann hefði séð. SViðSett MynD
Móðirin trúði að hann hefði
ruglast á henni og dóttur hennar
„Ég er að
verða
úrkula vonar
Að mati dómsins var maðurinn fyllilega
sakhæfur og átti sér engar málsbætur.
Hann var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir
brot sín gegn þessum þremur stúlkum.
Auk þess var honum gert að greiða
stúlkunum samtals 4,2 milljónir króna
í miskabætur, ásamt sakarkostnaði
og greiðslu fyrir réttargæslumenn
stúlknanna.
Sjö ára fangelsi