Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Síða 14
B
esti flokkurinn lofaði alls
konar hlutum fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar í fyrra.
Jafnvel þó sá fyrirvari á kosn-
ingaloforðum frá upphafi
hafi verið að Besti flokkurinn myndi
svíkja öll loforð sín, fékk hann engu
að síður umboð 20.666 kjósenda í
Reykjavík. Eftir rúmt ár við völd eru
tæplega 70 prósent kosningaloforð-
anna annað hvort óefnd, of óljós til að
verða metin eða aðeins að hluta efnd.
Samkvæmt úttekt DV eru 31,5 prósent
kosningaloforðanna uppfyllt. Óhætt
er þó að segja að það séu ekki loforðin
sem vöktu mesta athygli í kosninga-
baráttunni.
Mörg loforð Besta flokksins voru
svo djörf að fáum hefði dottið í hug
að þau yrðu að raunveruleika. Með-
al dæma um slík loforð má nefna ís-
björninn fræga í Húsdýragarðinn,
froska á Tjörnina, hvítflibbafangelsi
á Kjalarnesi og niðurfellingu allra
skulda. Önnur loforð voru hins veg-
ar svo almenn að varla er hægt að
meta hvort þau hafa verið svikin eða
ekki. Dæmi um slík loforð er að hjálpa
heimilum í landinu. Síðan eru það
loforðin sem Besti flokkurinn hefur
getað staðið við. Sum hafa verið ein-
föld og leikur einn að standa við þau
en einnig hafa verið loforð sem kröfð-
ust aðgerða.
Samtals gaf Besti flokkurinn 76
kosningaloforð. Hann hefur efnt 24
loforð að fullu.
Atvinnumál
Draga skýr mörk á milli stjórnsýslu
og stjórnmála
Ekki staðist Borgarstjóri hefur veitt stað-
gengli sínum meiri völd sem áður voru á sviði
borgarstjóra.
Stöðva pólitískar ráðningar
Staðist Ekki er að finna dæmi um skýrar
pólitískar ráðningar hjá Reykjavíkurborg upp
á síðkastið.
Auðvelda atvinnulausum aðgang
að menntunartækifærum
Staðist
Bjóða atvinnulausum að taka þátt
í uppbyggingarstarfi í borginni
Ekki staðist
Tryggja námsfólki uppbyggilega
sumarvinnu og starfsþjálfun
Að hluta til staðist Margir námsmenn fengu
vinnu en margir þurftu að mæla göturnar í
sumar.
Styðja og ala upp listamenn sem bera
hróður Íslands um allan heim
Að hluta til staðist
Hugmyndabanki sé vettvangur fólks
til kynninga hugmynda til framtíðar, í
gegnsæju umhverfi
Staðist betrireykjavik.is
Gera Reykjavík spennandi fyrir ferða-
menn, sem heimsborg með skapandi
hugsun og merkilega sérstöðu og sögu
Of óljóst
Markaðssetja sundlaugar sem „Outdoor
Natural Spa“ í miðri borg
Ekki staðist
Nota Arnarholt á Kjalarnesi undir alþjóð-
legt „hvítflibbafangelsi“ og vista þar
gegn gjaldi sakamenn frá Evrópu.
Ekki staðist
Eldri borgarar og fatlaðir
Laga aðgengi fyrir aldraða
Of óljóst
Tryggja persónulega grunnþjónustu og
fyrirbyggja einangrun
Of óljóst
Virkja menntun og starfsreynslu, til
dæmis með íslenskukennslu fyrir inn-
flytjendur
Ekki staðist
Koma á samstarfi milli leik- og grunn-
skóla við elliheimili og þjónustumið-
stöðvar aldraðra
Ekki staðist
Halda ömmu- og afadaginn hátíðlegan
Ekki staðist
Óvissuferðir fyrir gamalmenni
Ekki staðist
Breyta nafninu á Miklatúni
aftur í Klambratún
Staðist
Setja upp leikvelli fyrir gamalt fólk,
vettvang samskipta og hreyfingar
Ekki staðist
Efnahagsmál
Hjálpa heimilunum í landinu
Of óljóst
Mæta þörfum og kröfum heimilanna
Of óljóst
Fella niður allar skuldir
Ekki staðist
Bæta kjör þeirra sem minna mega sín
Staðist
Spara í stjórnsýslunni
Staðist
Sýna ábyrgð og ráðdeild
í fjármálastjórnun
Staðist
Beita ömmuhagfræði
Staðist „Ömmuhagfræðin gengur svolítið
út á að einfalda hlutina svo flestir skilji þá,“
útskýrði Jón Gnarr á Bylgjunni.
Opið markaðskerfi og frelsi í viðskiptum
án afskipta hins opinbera
Staðist
Fjölskyldumál
Færa frídaga í miðjum vikum að helgum
Ekki staðist
Halda þakkargjörðarhátíðina hátíðlega
Ekki staðist
Ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn
og aumingja
Að hluta til staðist Börn tekjulágra hafa
fengið tímabundna ókeypis tannlæknis-
þjónustu. Svokallaðir aumingjar hafa ekki
fengið hana.
Ókeypis í sund fyrir alla og frí handklæði.
Ekki staðist
Girða útivistarsvæði eins og Klambratún
með fallegum járngirðingum
Ekki staðist
Nýta tún undir leikvelli sem byggja á
nýrri hugsun; hoppukastalar og leiktæki
úr náttúrulegu byggingarefni
Að hluta til staðist Á Klambratúni hafa verið
sett upp leiktæki og folfvöllur, svo dæmi séu
tekin.
Girt svæði fyrir hundaeigendur þar sem
fólk getur sleppt hundum sínum
og jafnvel sest á bekk
Staðist Slíkt svæði er meðal annars að
finna á Geirsnefi.
Auka fjölbreytni í Húsdýragarðinum
og markaðssetja hann fyrir ferðamenn
sem „Arctic Zoo.“ Setja upp opið svæði
fyrir ísbirni og lundaklett. Flytja inn
sauðnaut frá Grænlandi. Hafa dýrin á
stórum útisvæðum en ekki í búrum. Gera
Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn töfrandi.
Tengja hann betur skólakerfinu. Reisa
þar jafnvel skóla
Ekki staðist Hvorki sauðnaut né lunda-
klettur, ísbjörn eða annað sem lofað var,
hefur verið staðið við.
Húsnæðismál
Finna úrræði fyrir útigangsfólk. Útvega
húsnæði, aðstöðu og fjármagn til þess-
ara mála
Staðist
Innflytjendamál
Koma á jöfnuði. Allir eiga það besta
skilið sama hverjir þeir eru og hvaðan
þeir koma
Staðist Reykjavík hefur komið á laggirnar
þjónustu fyrir innflytjendur hjá Þjónustu-
miðstöð Miðborgar og Hlíða. Þjónustan
er ætluð þeim borgurum af erlendum
uppruna sem hafa lögheimili í Reykjavík og
felst í almennri ráðgjöf ásamt lögfræðiráð-
gjöf.
Jafnréttismál
Algjört jafnrétti kynja
Ekki staðist
Kvennastofa þar sem konur geta fengið
alls konar kaffi með bragðefnum eins og
vanillu og kanil. Og mega tala eins og
þær vilja og það verður allt tekið upp og
geymt
Ekki staðist
Konukvöld, til dæmis á konu- og
mæðradaginn. Þá væru karlmenn beðnir
um að halda sig heima. Lögregluvaktin
yrði einungis skipuð konum
Ekki staðist
Samgöngumál
Gjaldfrjálst í strætó fyrir börn, náms-
menn, fatlaða og eldri borgara til að
byrja með en stefna að algjörlega
gjaldfrjálsu kerfi
Ekki staðist
Rafvæða almenningssamgöngur
Ekki staðist
Rafbílavæða Reykjavík
Ekki staðist
Minnka bílaumferð
Að hluta til staðist Götum í miðbænum
hefur verið lokað til að takmarka bílaum-
ferð.
Auðvelda aðgengi barna og fatlaðra
yfir umferðargötur með stokkum , t.d.
við Háskóla Íslands og á gatnamótum
Hofsvallagötu og Hringbrautar og undir
Bústaðaveg
Ekki staðist Engir nýir stokkar hafa hafa
litið dagsins ljós á þessum stöðum.
Hjólreiðastígar sem virka
Að hluta til staðist Hætt hefur verið við að
leggja marga kílómetra af hjólreiðastígum
vegna þess að það er of kostnaðarsamt. Hins
vegar er ekki annað vitað en að þeir stígar
sem hafa verið lagðir virki.
Skipulagsmál
Klára yfirstandandi framkvæmdir eins
vel og hægt er
Staðist Tónlistarhúsið Harpan var meðal
annars kláruð.
Klára frágang í nýjum hverfum og full-
nægja lágmarksþjónustu
Staðist Borgin ákvað að klára byggingu
Norðlingaskóla í Norðlingaholti.
Flytja húsin í Árbæjarsafni í Hljóm-
skálagarðinn og nota þau undir íbúðir og
verslanir
Ekki staðist
Loka miðbænum fyrir bílaumferð
Staðist Mörgum götum í miðbænum hefur
verið lokað fyrir bílaumferð, sumum þó
tímabundið.
Hlúa að miðbænum og
halda gömlum húsum við
Staðist Reykjavíkurborg beitir dagsektum
á eigendur gamalla, niðurníddra húsa í
Reykjavík.
Setja glerþak yfir Ingólfstorg
Ekki staðist
Flytja glæsilegustu styttur borgarinnar
í miðbæinn
Staðist
Fella aspir í miðbænum og gróðursetja
hlyn, birki og hegg í staðinn
Ekki staðist
Skipta um handrið á brúnni
yfir Skothúsveg
Ekki staðist
Umhverfismál
Endurvinna allt og nýta sjálfbæra orku,
með gegnsærri nýtingu auðlinda, raf-
magnsbílum og minni mengun
Of óljóst
Vera leiðandi í umhverfis- og dýravernd
í samvinnu við alþjóðleg dýravernd-
unarsamtök og sjónvarpsstöðvar eins
og Discovery Channel og National
Geographic
Ekki staðist
Flytja inn íkorna í Hljómskálagarðinn og
froska á Tjörnina
Ekki staðist
Menntamál
Nýtt útlit og viðmót skóla
Of óljóst
Nota timbur meira sem byggingarefni
Of óljóst
Breyta leiktækjum á skólalóðum, burt
með grátt, ljótt, slitsterkt og leiðinlegt.
Inn með liti
Að hluta til staðist
Gera listir að grunnþætti í skólastarfi
Staðist
Sameiginleg fræðsla og uppeldi fatlaðra
og annarra í skólum án aðgreiningar
Staðist
Starfsemi sérskóla valkostur fyrir þá
sem telja börnin sín ekki geta notið
nauðsynlegrar þjónustu í almennum
skólum
Staðist
Leysa húsnæðismál Öskjuhlíðarskóla og
Safamýrarskóla í nýjum sameinuðum
skóla
Staðist
14 | Fréttir 23.–25. september 2011 Helgarblað
Hafa efnt 31% loforða
„Ókeypis í sund
fyrir alla og frí
handklæði
n Besti flokkurinn lofaði og lofaði n Stóru loforðin enn ekki efnd n Mörg smærri loforð efnd n Fjöldi óljósra loforða
Valgeir Örn Ragnarsson
valgeir@dv.is
Úttekt
31,5%
STAÐIST
11,8%
AÐ HLUTA
14,4%
OF ÓLJÓST
42,3%
EKKI STAÐIST