Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Blaðsíða 15
Fréttir | 15Helgarblað 23.–25. september 2011 skattur.is Framtalsfrestur félaga er liðinn Til forráðamanna hlutafélaga, einkahlutafélaga og annarra skattskyldra lögaðila um skil á skattframtali 2011 Minnt er á að í október fer fram álagning opinberra gjalda lögaðila 2011 vegna rekstrarársins 2010. Þrátt fyrir að framtalsfrestur sé runninn út eru þau félög sem enn eiga eftir að skila skattframtali 2011 ásamt ársreikningi hvött til að gera það hið allra fyrsta. Skattframtali á alltaf að skila, jafnvel þó að engin eiginleg atvinnustarfsemi eða rekstur hafi verið til staðar hjá félaginu á árinu 2010. Félög eiga jafnframt að skila ársreikningi til Ársreikningaskrár. Hægt er að skila skattframtali og ársreikningi rafrænt á www.skattur.is. Sími 442 1000 - Opið kl. 9:30-15:30 Hafa efnt 31% loforða n Besti flokkurinn lofaði og lofaði n Stóru loforðin enn ekki efnd n Mörg smærri loforð efnd n Fjöldi óljósra loforða Sigurvegari Jón Gnarr og Besti flokkurinn sigruðu í síðustu kosningum. Eftir meira en ár við völd eru stóru loforðin enn óefnd. Vinna með öllum hagsmunaaðilum, sérfræðingum, fagfólki, kennurum og foreldrum Að hluta til staðist Enginn niðurskurður í listkennslu, lífs- leikni eða annarri þjónustu við börn. Ekki staðist Grunnskólakennari sem DV ræddi við telur niðurskurð í listkennslu vera gríðarlega mikinn í sínum skóla. Tekjutengja leikskólagjöld Ekki staðist Tryggja rekstur og jafnan aðgang allra að dagvistun Staðist Vinna skipulag með starfsfólki Að hluta til staðist Hagræða í stjórnsýslu án þess að það bitni á þjónustu Staðist Sameinað Skóla- og frístundasvið hefur verið stofnað. Tryggja aðgang barna að menningar- starfsemi Staðist Lýðræði Virkt lýðræði Of óljóst Auka gegnsæi Of óljóst Stöðva spillingu Of óljóst Láta þá svara til saka sem bera ábyrgð á hruninu Ekki staðist Reykjavíkurborg fer ekki með dómsvald í landinu. Standa vörð um stjórnarfarslegt, efna- hagslegt og menningarlegt sjálfstæði Íslendinga, byggt á lýðræði, þingræði og réttaröryggi Ekki staðist Reykjavíkurborg hefur takmarkaða aðstöðu til að tryggja þingræði, réttaröryggi og sjálfstæði Íslendinga. R itstjórar og fréttastjóri DV voru á fimmtudag sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur í meiðyrðamáli sem Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og hagfræðingur, höfðaði gegn þeim. Heiðar Már stefndi ritstjórunum Reyni Traustasyni og Jóni Trausta Reynissyni, auk fréttastjórans Inga Freys Vilhjálmssonar, fyrir að hafa í desember á síðasta ári birt ærumeið- andi fréttir um sig. Ætlaði að græða á hruni krónunnar DV fjallaði síðastliðið haust um stór- fellda stöðutöku fjárfestisins gegn íslensku krónunni. Heiðar Már, þá starfsmaður Novator, mælti með því við Björgólf Thor Björgólfs- son, eiganda Novator, Landsbank- ans og Straums, að hann léti fjár- málafyrirtæki sín taka 100 milljarða króna stöðu gegn íslensku krónunni í febrúar 2006. Sömuleiðis mælti hann með því að skulda- og hluta- bréf íslenskra fyrirtækja yrðu skort- seld, aðallega bréf sem tengdust fyrirtækjum í eigu Baugs og tengdra aðila. Þetta lagði hann til í þeim til- gangi að verja sig fyrir hruni krón- unnar og græða á því, að því er fram kom í DV. Blaðið hafði einnig undir höndum tölvupóst frá Heiðari Má frá því í janúar 2007 þar sem fram kom að hann hefði rætt við tvo heims- þekkta bandaríska milljarðamær- inga um áhuga þeirra á stöðutöku gegn krónunni. „Thad freistar theirra ad radast a kronuna,“ skrifaði Heiðar Már meðal annars. Vildi að ummælin yrðu dæmd ómerk Heiðar Már var ósáttur við umfjöll- un blaðsins og sagði að hún hefði orðið til þess að ekkert hefði orðið af kaupum hans á vátryggingafélaginu Sjóvá. Þau ummæli sem Heiðar vildi láta dæma ómerk birtust á forsíðu DV 18. október í fyrra: „Plottaði árás á krónuna“. Í frétt í blaðinu sama dag sagði meðal annars: „Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Novator, [...] tók stöðu gegn íslensku krónunni á árunum 2006 og 2007.“ Þann 20. október birtist leiðari í DV undir fyrirsögninni „Krónuníð- ingurinn“ en Heiðar taldi að sú fyrir- sögn vísaði til hans. Í leiðaranum sagði einnig: „Heiðar hljómar eins og landráðamaður“. Heiðar krafðist þess fyrir dómi að ofangreind ummæli yrðu dæmd dauð og ómerk og að ritstjórarnir og fréttastjórinn yrðu dæmdir til að greiða honum 4 milljónir króna í miskabætur og 1,6 milljónir til þess að standa straum af kostnaði við birtingu niðurstöðu dómsins í þremur dagblöðum. Á það féllst Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari ekki og sýknaði hún, eins og áður segir, ritstjóra og frétta- stjóra DV. „Thad freistar theirra ad radast a kronuna. Ritstjórar sýknaðir fyrir dómi n Heiðar Már Guðjónsson tapaði skaðabótamáli n Sagði umfjöllun blaðsins ósanna og ærumeiðandi Tapaði Heiðar Már beið lægri hlut fyrir héraðsdómi á fimmtudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.