Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Síða 19
Fréttir | 19Helgarblað 23.–25. september 2011
Margfalt hagstæðara
að kaupa en leigja
F
yrir um viku kynnti
Ársæll Valfells, lektor
við viðskiptafræði
deild Háskóla Íslands
greiningu á íslenska
íbúðarhúsnæðismarkaðin
um. Niðurstaða hans var sú að
íbúðarhúsnæði á Íslandi væri
ekki arðbær fjárfestingarkost
ur. Ekki borgaði sig að kaupa
íbúðarhúsnæði á höfuðborgar
svæðinu ef ætlunin væri að
hagnast á útleigu. Þyrfti leiga
að hækka um þriðjung til þess
að fjárfesting kæmi út á sléttu.
Kynnti hans niðurstöður sínar
á fundi hjá VÍB, eignastýring
arþjónustu Íslandsbanka.
Mun hagstæðara fyrir
hjón að kaupa
Samkvæmt útreikningum sem
sjá má í töflu með frétt virðist
hins vegar borga sig að kaupa
íbúðarhúsnæði nú árið 2011 í
stað þess að leigja ef fasteignin
er ætluð til eigin nota. Ef hækk
un íbúðaverðs er tekin inn í
dæmið yrði kostnaður af því
að taka 20 milljóna lán í upp
hafi árs 2011 um 300 þúsund
krónur. Er þá miðað við hjón
sem hafa hvert um sig 400 þús
und krónur í mánaðartekjur. Ef
umrædd hjón væru hins vegar
á leigumarkaði yrði kostnaður
við að leigja svipað stórt hús
næði um 1.800 þúsund krónur
árlega.
Þannig að miðað við að
íbúðarhúsnæði á höfuðborg
arsvæðinu hækki um tæplega
sjö prósent árið 2011, sem er
nokkuð varfærnislega áætl
að, mætti gera ráð fyrir að það
yrði sex sinnum hagstæðara
að hafa keypt sér íbúð í upp
hafi árs 2011 í stað þess að
vera á leigumarkaði. Skýrist
það meðal annars líka af því
að hjón með árstekjur upp á
9,6 milljónir króna myndu fá
um 330 þúsund krónur í vaxta
bætur vegna 20 milljóna króna
láns, en ef þau væru á leigu
markaði fengju þau ekkert í
húsaleigubætur. Þrátt fyrir að
íbúðaverð muni hækka um sjö
prósent á árinu má gera ráð
fyrir að raunhækkun verði ekki
nema 1,4 prósent, sé tekið til
lit til verðbólgu en nýjustu spár
gera ráð fyrir að hún verði um
5,6 prósent í árslok.
Miklu hagstæðara
að kaupa í Noregi
Líkt og flestir vita hafa margir
Íslendingar flutt til Noregs
vegna slæms efnahagsástands
hér á landi. Fluttu um 3.200 ís
lenskir ríkisborgarar þangað á
árunum 2008 til 2010. Norska
blaðið Verdens Gang fjallaði í
vikunni um fasteignamarkað
inn í Noregi og sagði frá því að
um þessar mundir væri afar
hagsætt að kaupa sér húsnæði
þar í landi. Samkvæmt Verdens
Gang gera þeir ráð fyrir að hús
næði í Noregi muni hækka um
11,6 prósent árið 2011.
Eins og sjá má í töflu með
frétt má segja að það sé mun
hagstæðara að kaupa sér íbúð
arhúsnæði í Noregi núna en á
Íslandi. Ef miðað er við að fólk
taki 20 milljóna fasteignalán
yrði kostnaður vegna þess 300
þúsund krónur á Íslandi árið
2011 en ef jafn hátt lán hefði
verið tekið í Noregi yrði ágóði
upp á um 1.800 þúsund krón
ur. Munar þar mikið um að
lánið í Noregi myndi lækka um
500 þúsund krónur en íslenska
lánið hækka um 920 þúsund
krónur sé miðað við að verð
bólga á Íslandi verði 5,6 pró
sent árið 2011, líkt og nýjasta
verðbólguspá greiningardeild
ar Íslandsbanka gerir ráð fyr
ir. 830 þúsund krónur skýrast
síðan af því að stuðst er við
það að íbúðaverð hækki um
ellefu prósent í Noregi en sjö
prósent á Íslandi.
Fjórum sinnum hag
stæðari vextir í Noregi
Ef síðan er gerður samanburð
ur á íslensku verðtryggðu láni
og norsku óverðtryggðu miðað
við það að íbúðaverð standi í
stað verður samanburðurinn
enn verri fyrir Ísland. Þá yrði
kostnaður af 20 milljóna verð
tryggðu íslensku láni um 1.700
þúsund krónur árið 2011 en
einungis um 400 þúsund krón
ur af norska láninu. Er þá búið
að taka tillit til vaxtabóta. Skýr
ist það af því að íslenska lánið
myndi hækka um rúmlega 900
þúsund krónur en það norska
lækka um rúmlega hálfa millj
ón króna. Þannig má sjá að ís
lenska verðtryggingin veldur
því að íbúðalán hérlendis eru
um fjórum sinnum óhagstæð
ari en í Noregi þegar búið er að
taka tillit til verðbóta. Því er lík
lega ekki að ástæðulausu sem
margir velta fyrir sér hvort ís
lenska krónan sé heppilegur
framtíðargjaldmiðill fyrir okk
ur eða ekki.
Kostnaður við að kaupa á Íslandi
Greiðslubyrði af íslensku 40 ára láni hjá Íbúðalánasjóði
með 4,4 prósenta verðtryggðum vöxtum
Lánsupphæð: 20.000.000 kr.
Greiðsla 2011: 1.096 þús kr.
Meðalgr. á mánuði: 91.372 kr.
Tekjur hjóna: 9.600.000 kr.
Vaxtabætur fyrir hjón: 332.400 kr.
Staða láns í árslok 2011: 20.922.190 kr.
Verðmæti íbúðar í árslok 2011: 21.372.992 kr.
Kostnaður: 313.262. kr.
(20.922.190-21.372.992)+1.096.464-332.400= 313.262. kr.
Hjón leigja íbúð sömu stærðar á Íslandi
Heildarleiga í 12 mánuði: 1.800 þús. kr.
Húsaleigubætur: 0 kr.
Mismunur á leigu
og kaupum: 1.800.000-313.262 = 1.486.738 kr.
Kostnaður við að kaupa í Noregi
Greiðslubyrði af 40 ára láni hjá Swedbank
með 3,9 prósenta óverðtryggðum vöxtum:
Lánsupphæð: 20.000.000 kr.
Greiðsla 2011: 1.279 þús kr.
Meðalgr. á mánuði: 106.616 kr.
Tekjur: Í Noregi er borgað 28% til baka af vaxtak. óháð tekjum
Vaxtabætur fyrir hjón: 372.242 kr.
Staða láns í árslok 2011: 19.494.704 kr.
Verðmæti íbúðar í árslok 2011: 22.200.000 kr.
Kostnaður: -1.798.151 kr.
(19.494.704-22.200.000)+1.279.000-372.242= -1.798.151 kr.
Kostnaður í Noregi og Íslandi
með hækkun íbúðaverðs
Ísland
Staða láns í árslok 2011: +20.922.190 kr.
Verðmæti íbúðar í árslok 2011: -21.372.992 kr.
Greiðsla: +1.096.464 kr.
Vaxtabætur: -332.400 kr.
Samtals: 313.262. kr.
Noregur
Staða láns í árslok 2011: 19.494.704 kr.
Verðmæti íbúðar í árslok 2011: -22.200.000 kr.
Greiðsla: 1.279.000 kr.
Vaxtabætur: 372.242 kr.
Samtals: -1.798.151 kr.
Mismunur: 313.262-(-1.798.151)= 2.111.412 kr.
Kostnaður í Noregi og Íslandi
án hækkunar íbúðaverðs
Ísland
Staða láns í árslok: +20.922.190 kr.
Staða láns í upphafi: -20.000.000 kr.
Greiðsla: +1.096.464 kr.
Vaxtabætur: -332.400 kr.
Samtals: 1.686.254 kr.
Noregur
Staða láns í árslok: +19.494.704 kr.
Staða láns í upphafi: -20.000.000 kr.
Greiðsla: +1.279.387 kr.
Vaxtabætur: -372.242 kr.
Samtals: 401.849 kr.
Mismunur: 1.686.254 - 401.849 = 1.284.405 kr.
n Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu mun líklega hækka um sjö prósent að lágmarki árið 2011
n Kostnaður af 20 milljóna láni 300 þúsund krónur n Húsaleiga yrði 1.800 þúsund krónur
Annas Sigmundsson
as@dv.is
Úttekt „Ef miðað er
við að fólk
tæki 20 milljóna
fasteignalán yrði
kostnaður vegna
þess 300 þúsund
krónur á Íslandi árið
2011 en ef jafn hátt
lán hefði verið tekið í
Noregi yrði ágóði upp
á um 1.800 þúsund
krónur.
Fasteignir í Reykjavík
Reiknað er með að fasteignaverð á
höfuðborgarsvæðinu hækki um sjö
prósent árið 2011.