Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Side 25
Viðtal | 25Helgarblað 23.–25. september 2011 nestuð að heiman. Þar sem er talað illa um lögregluna þar verður til sú skoðun að það megi segja hvað sem er við lögregluna og að ekki þurfi að hlýða henni. Svo er fólk alveg undrandi ef lögreglan þarf að beita þeim tökum og tækjum sem þarf til að vinna vinnuna. Lögreglumenn verða vitni að því á hverri vakt að verið sé að hóta lögreglumönnum og fjöl­ skyldum þeirra lífláti. Það vill enginn vera í vinnu þar sem hann heyrir á hverjum degi að hann sé aumingi. Auðvitað er margt af þessu fólki undir áhrif­ um efna en það er engin afsök­ un. Sem betur fer er meginþorri fólks vel siðaður og þá sérstak­ lega unga fólkið. Þar hefur ver­ ið mikil breyting á. Fyrr á árum vorum við að hirða upp dauða­ drukkna krakka sem lágu í landa og brennivíni og það voru hópamyndanir þar sem menn voru að slást. Þetta sést ekki í dag. Við eigum bara glæsi­ legt ungt fólk í dag og það er ég óskaplega ánægður með.“ Hann vill ekki að lögreglan vopnist, því þá væri hún sjálf að beita meiri hörku, en hann er hrifinn af hugmyndinni um að lögreglan gæti gripið til rafbyssa til að verja sig. „Já, ég er það. Ég treysti lögreglumönnum til að nota þetta rétt. Þessi „taser“ er til að verja lögreglumanninn gegn stórskaða. Þetta er auðvit­ að síðasta úrræðið sem lögregl­ an notaði í hvaða aðstæðum sem er. Við notum meisbrúsann til að verja okkur en í sumum til­ fellum held ég að það væri gott fyrir okkur að geta gripið í svona „taser“. En það er búið að taka ákvörðun um að þetta verði ekki notað og það virði ég.“ Vorum ekki í stríði við fólkið Mótmælin í janúar 2009 sem komu í kjölfar hrunsins síðla árs 2008 segir Geir Jón vera erfið­ ustu tíma sem lögreglan hefur upplifað þar sem mótmælin og harkan varði í svo marga daga. „Það sem okkur þótti verst var að við vorum þessi skjöldur á milli Stjórnarráðs og Alþingis og mótmælenda, en fólkið lét rigna yfir okkur grjóti og fleiru lauslegu. Fólkið var í stríði við okkur þó við værum ekkert í stríði við það. Síðan gerist þessi stórmerkilegi atburður undir lokin fyrir utan Stjórnarráðið að hópur fólks tók sig saman og myndaði skjólvegg utan um lögregluna. Það kom vitglóra í nokkra sem áttuðu sig á að við værum ekki að gera neitt annað en að verja eigur ríkisins sem er skylda lögreglunnar. Þetta fólk gjörbreytti andrúmsloftinu,“ segir hann sáttur. Geir Jón segist vita til margra fjölskyldna sem vildu hreinlega ekki vita af mönnunum sínum á Austurvelli og við Stjórnar­ ráðið, hræddar um að eitthvað slæmt gerðist. „Börnin þeirra voru hrædd, horfandi á sjón­ varpið og sáu hvernig var verið að grýta feður þeirra. Þetta var alveg skelfilegt. Þetta var mjög erfitt og við vorum mjög lengi að vinna úr þessu því þetta fer auðvitað misilla í menn. Það eru eflaust einhverjir sem hafa hætt í lögreglunni út af þessu en ég veit það ekki. Á þessum sama tíma voru menn í lögregl­ unni að missa húsin sín eins og aðrir og gátu auðveldlega farið í hóp mótmælenda. En þeir voru að sinna sínum skyldustörfum og það þarf að meta. Lögreglu­ menn þurfa að ýta öllu öðru til hliðar og einbeita sér að starf­ inu,“ segir Geir Jón. Þótt oft hafi hlaupið mik­ il harka í leikinn er augljóst að lögreglan tók ansi létt á mál­ um, að minnsta kosti miðað við það sem gengur og gerist í öðr­ um löndum. „Það var meðvituð ákvörðun að við reyndum að gera allt sem í okkar valdi stæði til að leysa krísurnar eins mildi­ lega og mögulegt var. Þannig gengum við fram frekar með það að leiðarljósi að þola högg­ in en gefa þau. Þetta reyndi á þolrifin alveg upp í topp og þetta hefði ekki mátt ganga á mikið lengur. Það slösuðust níu lögreglumenn, en sem betur fer ekki lífshættulega. Við hefð­ um getað gengið miklu harðar fram. Ég vona bara að þetta ger­ ist aldrei aftur,“ segir Geir Jón. Leggur sitt lóð á vogarskálarnar Mikill niðurskurður hefur ver­ ið hjá lögreglunni og á meðan glæpir hafa harðnað, glæpa­ menn orðið mun hættulegri, hingað til lands séu komnir skipulagðari glæpamenn, á lög­ reglan á hættu að frekari niður­ skurður verði á næsta ári. Þetta er Geir Jón óánægður með. „Mjög alvarlegur niðurskurð­ ur og verður áfram á næsta ári. Auðvitað gátum við að ein­ hverjum hluta tekið á okk­ ur niðurskurð. Við gjörbreytt­ um vaktakerfi hér sem sparar mikla peninga. Við skipuleggj­ um vaktirnar miðað við það hvenær við ætlum að mest sé að gera og minnst sé að gera. Þetta sparar mikið. Ég segi samt að nú sé verið að gera hlutina rangt og ég get ekki hugsað mér að starfa lengur við þetta. Nú nýti ég mér það að geta hætt og spara því x milljónir með því, ef enginn verður í ráðinn fyrir mig. Með því legg ég mitt lóð á vog­ arskálarnar í þessari baráttu,“ segir Geir Jón en hann er ekki ánægður með hvernig farið er með fólkið hans. „Þetta starf hefur gefið mér mikið öll þessi ár. Ég vil sjá veg lögreglunnar aukast og að lög­ reglumenn verði ánægðir í starfi og fái umbun erfiðis síns. Þeir leggja mikið af mörkum og ég get alveg sagt að þrátt fyrir þessa erfiðu tíma erum við ekki að slá af. Ég dáist að þessu fólki vegna þess sem það er tilbúið að leggja á sig þrátt fyrir að fá ekki meiri samúð frá þeim sem borga launin okkar. Það að fara með launakröfur okkar í gerð­ ardóm er eitthvað sem ég hefði aldrei trúað að ég þyrfti að horfa upp á.“ Horfði upp á félaga sína deyja Eftir 36 ára starf í lögreglunni hefur Geir Jón eðlilega séð margt. Aðspurður um sína erf­ iðustu reynslu er hann fljótur að svara. „Það var þegar Pelagus strandaði við Vestmannaeyjar,“ segir hann, en árið 1982 varð belgískur togari með því nafni vélarvana utan við Vestmanna­ eyjar og fór mjög illa. „Pelagus var í togi hjá öðr­ um belgískum togara og það var búið að segja að þeir mættu ekki koma inn til hafnar. Það var búið að gefa út að veðrið væri það slæmt að þeir þyrftu að halda sig fyrir utan eyjarnar. En nei, það var haldið inn og togarinn slitnaði frá og rak upp í hraunkantinn í nýja hrauninu austur af Eyjum. Það náðist að bjarga öllum nema einum skip­ verja sem þráaðist við að koma í land. Það fóru tveir björgun­ arsveitarmenn og einn læknir um borð til að ná í manninn. Það dúrði augnablik á milli út­ falls og aðfalls og þá átti að nota tækifærið að sækja manninn en síðan reið brotið yfir og við horfðum á félaga okkar deyja þarna. Ég þurfti að taka upp líkin, ganga frá þeim og syngja í jarðarförum þessara manna. Ég átti mjög erfitt lengi vel á eft­ ir. Það var ekki um neina áfalla­ hjálp að ræða og þetta var aldrei rætt, hver og einn átti bara að vera sterkur. En seinna meir skrifaði ég frásögn af þessu í bók og náði þannig svolítið að „Það að fara með launakröf- ur okkar í gerðardóm er eitthvað sem ég hefði aldrei trúað að ég þyrfti að horfa upp á. Hugsar vel um sitt fólk Geir Jóni er ekki sama um lögreglumennina og ofbýður oft hvernig farið er með þá. m y n d g u n n a r g u n n a r ss o n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.