Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Qupperneq 26
26 | Viðtal 23.–25. september 2011 Helgarblað
skrifa mig frá þessu,“ segir Geir
Jón, en eins og með svo marga
aðra lögreglumenn finnst hon-
um einnig erfitt að ganga inn á
heimili þar sem börn hafa liðið
fyrir syndir foreldra sinna.
„Þegar börn eru hrædd, grát-
andi og jafnvel sér á þeim eft-
ir að foreldrar hafa látið illa er
alveg ömurlegt. Sérstaklega er
þetta slæmt á jólunum eins og
ég hef lent í. Það finnst mér al-
veg það ömurlegasta. Það er
mjög erfitt að lýsa því hvernig
manni líður vegna þess að flest
okkar í lögreglunni eigum börn
og maður fer bara strax að hugsa
til þeirra. Meðaumkunin með
barninu verður svo mikil að
maður getur alveg orðið brjál-
aður. Af hverju á barnið að þurfa
þola þetta? Hvers lags heimska
er þetta? Svo stundum eru fleiri
en eitt og fleiri en tvö útköll á
sama stað. Þetta finnst mér al-
veg það versta,“ segir Geir Jón.
Dásamleg umbun að losa
fólk úr neyslu
Eins erfitt starf og starf lögreglu-
manns getur verið segir Geir
Jón það geta umbunað ríkulega.
Hann talar reglulega við fólk og
býður það velkomið á skrifstofu
sína. Honum finnst ekkert betra
í vinnunni en að geta leyst mál
þar sem fólk virðist úrkula von-
ar. „Fólk kemur kannski alveg í
öngum sínum til okkar og það
sér enga glætu. Kannski hefur
verið brotist inn til þess og mað-
ur getur leyst úr málum og fólk-
ið fer sátt, glatt og hamingju-
samt heim,“ segir hann.
Foreldrar koma einnig mik-
ið til hans og lögreglunnar til að
reyna að fá hjálp við að bjarga
börnum sínum úr neyslu. Eitt-
hvað sem lögreglan getur lít-
ið gert í þó hún reyni sitt besta,
segir Geir Jón, og sé búin að
mynda sér sambönd til að
hjálpa þannig einstaklingum.
„Það hafa margir foreldrar kom-
ið til mín vegna barna sinna sem
eru langt leidd í fíkniefnaneyslu.
Það er alveg dásamlegt þegar
að við náum einstaklingi út úr
neyslunni, hann losnar alveg frá
henni og verður nýr þjóðfélags-
þegn. Það er mesta umbun sem
maður fær í starfinu. En það er
alveg ljóst að í þessu þjóðfélagi
okkar megum við hvergi slaka á
í þessum efnum.“
Ræktar trúna eins og
að draga andann
Geir Jón er trúaður maður,
kristinn og meðlimur í Hvíta-
sunnusöfnuðinum. Hann starf-
ar mikið innan þjóðkirkjunn-
ar og hefur sungið í kirkjukór
í fjörutíu ár. Hann ræktar trú
sína vel og er í góðu sambandi
við guð sinn. „Ég rækta trúna á
hverjum degi með því að lesa
handbókina og biðja bænir.
Það er nú bara eins og að draga
andann fyrir mér. Þetta er mér
lífsspursmál. Ég bið fyrir fjöl-
skyldunni og mínu góða fólki
hér í lögreglunni. Best finnst
mér að biðja á morgnana þeg-
ar ég vakna um klukkan sex og
svo þakka ég fyrir daginn áður
en ég fer að sofa. Það skipt-
ir engu hvort ég sit eða stend,
ég þarf enga seremóníur. Ég og
guð minn eigum oft gott spjall
saman enda hefur hann mætt
mér og bænarefnum mínum al-
veg stórkostlega. Þetta er lifandi
fyrir mér enda myndi ég ekkert
trúa á þetta ef þetta væri eitt-
hvert „feik“.“
Á seinni árum hafa radd-
ir gegn kennslu í kristinni trú á
Íslandi orðið fleiri og háværari.
Margir vilja ekki að kristnifræði
sé kennd í skólum og að kirkj-
unni sé haldið utan við barna-
og æskulýðsstarf. Þetta er eitt-
hvað sem særir Geir Jón. „Það
gerir það. Ég hef aldrei vitað til
þess að kristið starf hér á Íslandi
hafi skaðað nokkurn mann.
Hér er rekið mikið æskulýðs-
starf innan kirkjunnar og skát-
anna og fleiri samtaka. Allir eru
að gera mjög gott. Mér dytti ekki
í hug sem kristnum manni og
hvítasunnumanni að segja að
þessi félög fari illa með börn.
Aldrei. Þegar menn segja að
kristin siðfræði eins og Kristur
kenndi hana sé til tjóns. Þetta
er bara lífið sjálft. Þetta er svo
gott leiðarljós til þess að vera
eðlilegur maður. Mér er sagt að
þetta séu einhverjar öfgar. Ef
svo er vil ég bara vera öfgamað-
ur,“ segir Geir Jón.
Þarf sterkari trú til
að trúa engu
Geir Jón er einnig meðlimur í
Gídeon-félaginu sem hefur í
gegnum árin gefið Nýja testa-
mentið til grunnskólabarna.
Nú á að banna þeim að gefa tíu
ára börnum ritið og það er Geir
Jón ekki ánægður með. „Það er
alveg skelfilegt að það sé verið
að banna okkur að gefa tíu ára
börnum Nýja testamentið því
það á að heita eitthvað áróðurs-
rit. Þjóðin kynni ekki íslensku ef
hún hefði ekki fengið Nýja testa-
mentið og Biblíuna hér á árum
áður. Þetta er nú bara menning-
in okkar, fyrir utan það hversu
góð handbók Nýja testamentið
er. Eins nauðsynleg og handbók
er þegar þú ert að keyra í kring-
um landið þá er nauðsynlegt að
hafa handbók fyrir lífið. Eins og
þegar Kristur segir að eins og
maður vilji að aðrir menn komi
fram við okkur, það skulum við
gjöra þeim. Hvað er betra en
þetta? Þetta er bara lífið sjálft,“
segir hann, en hvað finnst hon-
um um hópa á borð við Vantrú
sem hafa sig hvað mest frammi í
málefnum eins og þessum.
„Ég held að það þurfti sterk-
ari trú en mína til að trúa því
að ekkert af þessu sé til. Það
eru engar tilviljanir. Guð hef-
ur ákveðið líf okkar frá móður-
kviði. Það er búið að ákvarða
leið okkar, hvers og eins. Það er
hægt að berjast gegn þessu en
það þarf ofboðslega trú gegn
því. Ekki dettur mér í hug að
ráðast á þetta fólk þó það virðist
alltaf mega ráðast á okkur. Sum-
um finnst það að rækta trú sína
eitthvað óeðlilegt og það verður
þá bara að vera þannig,“ segir
Geir Jón.
Þakklátur fyrir eiginkonuna
Guðrún Ingveldur Traustadótt-
ir heitir kona Geirs Jóns en þau
hafa verið gift frá árinu 1975 og
eiga saman fjögur börn, þrjá
syni og eina stúlku. Þau kynnt-
ust í Hvítasunnusöfnuðinum
þar sem þau meðal annars voru
skírð sama dag árið 1966. „Við
fórum samt ekki að vera sam-
an fyrr en ég var orðinn 21 árs.
Hún var þá í Noregi í námi að
mennta sig sem sjúkraliði. Við
vorum saman án þess að nokk-
ur vissi af því. Svo þegar hún
kemur heim 1975 þá giftum
við okkur og ég dró hana með
mér til Eyja,“ segir hann bros-
andi um Guðrúnu en hann við-
urkennir að hjónabandið hafi
borið nokkrar byrðar starfsins.
„Það hefur ábyggilega gert
það. Ég á bara svo góða konu.
Hún er ekki kvörtunarsöm.
En ég man eftir atviki þar sem
við vorum í sumarfríi norður í
Skagafirði þar sem bróðir henn-
ar í bóndi. Eitt kvöldið er hringt
í mig og sagt að það sé stórmál í
gangi og ég verði bara að koma
til Eyja. Það skipti engu þó ég
væri í sumarfríi, ég varð bara að
koma. Ég segi við konuna um
kvöldmatarleytið á laugardegi
að við þurfum að fara heim –
og við með börnin okkar fjög-
ur. Ég sagði henni bara að þetta
væri starfið og ég yrði að fara.
Við brunuðum því í bæinn og
ég flaug heim strax á sunnu-
dagsmorgni. Ég fæ oft að heyra
að þarna hafi ég höggvið mjög
nærri fjölskyldumálunum,“ seg-
ir Geir Jón sem sér þó ekki eftir
neinu.
„Þarna kom í ljós að starfið
var númer eitt og fjölskyldan
tvö. Oft var ég kallaður út þegar
við vorum að fara að gera eitt-
hvað en ég leit svo á að þetta
væri mín skylda. Ég sé samt
ekki eftir neinu. Þetta er bara
ég. Hlutir gerast en nú þarf ég
að gjöra svo vel að gefa mér
tíma í hluti sem ég gat ekki gert
áður. Ég er þakklátur fyrir að
konan hélt utan um þetta allt
Brúðkaup
dótturinnar
Geir Jón og Guð-
rún, kona hans,
á brúðkaupsdegi
dóttur sinnar.
Vill sinna
þessum betur
Geir Jón ætlar
að eyða miklum
tíma með barna-
börnunum eftir
að hann lætur af
störfum.
Fjögurra
barna faðir
Geir Jón á þrjá
stráka og eina
stelpu. Þessi
mynd er tekin
á heimili þeirra
í Vestmanna-
eyjum.
Hátt uppi
Þessi litli
drengur
er í hæstu
hæðum.
saman öll þessi ár og þakklátur
fyrir börnin mín sem eru góð
og hjálpuðu mikið til á heim-
ilinu. Ég er afskaplega stoltur
af þessu og það er ekki mér það
þakka, það er alveg ljóst.“
Nýr Geir Jón?
Þótt Geir Jón sé nú brátt að
hætta í lögreglunni eftir 36 ára
starf er engin spurning um að
arfleifð hans er mikil. Að ekki
sé nú minnst á elsta soninn,
Þóri Rúnar, kallaðan Dúna,
sem er lögreglumaður eins og
faðirinn. „Hann er rannsókn-
arlögreglumaður í dag. Hann
vildi feta þessa leið þó ég reyndi
að stoppa hann. Ég veit nátt-
úrulega hvernig ég var og hann
á sjálfur þrjú börn í dag. Þetta
hefur áhrif á hjónabandið. Ég
vildi frekar að hann væri í ein-
hverri iðn. Hann sá samt ekkert
annað en lögreglustarfið. Hann
fetar svolítið í spor mín enda
líkur mér. Ég tel hann mjög
góðan lögreglumann,“ segir
Geir Jón Þórisson, fráfarandi
yfirlögregluþjónn.
„Ég verð því
miður að við-
urkenna að starfið
hefur verið númer
eitt og fjölskyldan
númer tvö.
Trúaður yfirlögregluþjónn Geir Jón ræktar trú sína mikið, er með-
limur í Hvítasunnusöfnuðinum og segist í góðu sambandi við guð sinn. Nýja
testamentið kallar hann handbókina. myND GuNNaR GuNNaRssoN
Nóg að gera Það er
nóg af skjölum sem
úr þarf að vinna á
skrifborði Geirs Jóns.
myND GuNNaR GuNNaRssoN