Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Page 33
3323.–25. september 2011 2011 Hinum megin við götuna F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Virðing Réttlæti Þrátt fyrir baráttu undanfarinna áratuga liggur óútskýrður launamunur kynjanna enn sem mara á þjóðinni. Gefum börnum okkar jafna möguleika í framtíðinni og léttum álögunum. Jafnrétti í vöggugjöf! hraða. Dauðinn er óumflýjanlegur. Óhamingjan líka. Ég vænti einskis, ég óttast ekkert, ég er frjáls eins og Kaz- antzakis orðaði það. Með slíkt viðhorf í huga var ég ósigrandi. Samt leið mér eins og ég hefði tapað ósýnilegri orr- ustu við ósigrandi keppninaut. Unnar, ef ég á að vera hreinskilinn. Manninn sem lagðist á hverri nóttu með Elísa- betu. Manninn sem naut þeirra tilvilj- unarkenndu forréttinda að eiga hana alla. Líkamann í það minnsta. Er það ekki annars tilviljunar- kennt? Hvernig velur maður sér maka? Af þeim hættulega fjölda mannvera sem hagnýta jörðina á hverjum degi, þá er það beinlínis ótrúlegt að maður verði ástfanginn af einhverri sérstakri manneskju. Sumir hitta þá sem þeir elska snemma á lífsleiðinni og eyða ævinni með þeim. Aðrir hætta með þeim þegar lífið er tæplega hálfnað. Kaupa sér sportbíl, reykja gras, reyna við menntaskólastúlkur. Aðrir þreyja þorrann, óhamingjusamir allt sitt líf. Láta sig dreyma um önnur líf en láta skylduræknina stöðva sig. Þannig var Elísabet. Skylduræknin ein. Jafnvel í kynlífinu var hún þjökuð af þeirri stað- lausu þrá að fullnægja manni. Því hún leit svo á að það væri hennar hlutverk. Svo eru það náttúrulega menn eins og ég. Menn sem elska þær allar. Að halda framhjá var hugsanlega frumstætt viðbragð Elísabetar við óhamingjusömu lífi. Unnar tryggði henni öryggi. Eitthvað sem ég gat aldrei. Slíkt hefur áhrif á 21. öldinni. Elísabet starfaði sem ritari Unnars þegar hann byrjaði að halda framhjá með henni, eins kaldhæðnislega og það hljómar. Eitt skiptið sagði Elísabet mér að hún hefði dottið í lukkupott- inn þegar þau sváfu fyrst saman. Hún talaði eins og hún hefði unnið í lottói. Tilvera hennar yrði aldrei eins; hún yrði aldrei mörkuð sama svita eða lífs- þreytu líkt og hjá flestum öðrum sam- ferðarmönnum í lífinu. Lottó-líking Elísabetar var ekki smekklaus, held- ur ein leið til þess að lýsa lífi hennar á raunsæjan hátt. Framhjáhaldi okkar Elísabetar lauk skyndilega með reykingalyktinni. En það var ást Elísabetar sem kom upp um mig. Hún sagði honum aldrei frá því hverjum hún hefði sofið hjá. Hún var ekki ein af þessum þjökuðu sálum sem upplýsa allt í von um sálaraflausn. Hún horfði einfaldlega yfir götuna. Á húsið mitt. Á mig. Hægt og rólega átt- aði Unnar sig á því að ég væri sá seki. Líklega vegna þess hvernig ég horfði á hana. Unnar fylgdist grannt með Elísa- betu eftir að upp um framhjáhaldið komst. Einn morguninn mættumst við Elísabet á leið til vinnu. Þegar ég var enn með vinnu. Ég nálgaðist Elísa- betu. Það var allt sem ég gerði. Hún rauk inn í bílinn, ræsti hann og ók af stað. Seinna, sama dag, var bankað á hurðina mína. Þegar ég opnaði dyrnar stóð Unnar fyrir utan. Hann var í sér- sniðnum jakkafötum með hringlótt gleraugu. Unnar var tiltölulega mynd- arlegur náungi sem var að nálgast fimmtugsaldurinn. Hann var þrettán árum eldri en Elísabet. Augun hans voru sundurtætt af blóðsprengdri reiði þennan dag. Augnaráðið var ekki beinlínis tryllt. Unnar var sérkennilega rólegur þegar hann stóð fyrir framan mig. Líklega var það hin tryllta ró sem hræddi mig. „Haltu þig frá okkur,“ var það eina sem hann sagði. Þegar ég ætlaði að bera af mér sakir, líklega án sérstakr- ar sannfæringar, stikaði hann hratt í burtu. Þetta voru einu samskiptin okkar á milli. En ég fann undirtóninn í þessum einföldu skilaboðum. Þau voru þrungin reiði. Það var falin raun- veruleg ógn í þeim. Strætisvagninn staðnæmdist skammt frá höfuðstöðvum blaðsins. Ég var einn í vagninum þegar ég gekk út. Ég fékk svalann vindinn í fangið og herti göngu mína yfir bílastæðið. Svo kom þetta augnablik. Eins og ofurvæg- ur straumur sem hríslast um í hjart- anu. Líkt og maður fann þegar maður var barn og upplifði hræðslu án sjáan- legrar ástæðu. Það fyrsta sem ég heyrði var ískrið í dekkjunum. Ég leit við og sá glæsi- bifreið koma á ógnarhraða í áttina að mér. Af einhverjum ástæðum hvarflaði það ekki að mér að færa mig. Skyndi- lega skall bíllinn á löppunum á mér. Ég fann ekki fyrir því. Ég þeyttist upp í loftið. Upplifunin var svo ofurhæg að ég fann fyrir hverri sekúndu sem ég snérist á ógnarhraða í hringi í kaldri norðanáttinni. Svo sá ég ökumanninn. Unnar. Hann sat í bílstjórasætinu með afskræmt andlit. Hnúarnir voru snjó- hvítir þar sem hann hélt þéttingsfast utan um stýrið. Augun sturluð. Augna- blikið líka. Ég heyrði hendurnar brotna þegar ég lenti á jörðinni. Hljóðið var eins í brotnum kvisti. Andlitið skall með offorsi í malbikið. Blóðið frussað- ist í allar áttir. Tennurnar líka. Fæturn- ir snéru upp á sig og kiknuðu að lok- um undan álaginu og margbrotnuðu. Sársaukinn skaust í gegnum líkamann á hraða ljóssins. Ég fann lungun falla saman eins og blaðra. Skinnið tættist af líkamanum þegar ég rúllaði stjórn- laust á götunni. Loksins staðnæmdist ég. Blóð fyllti vit mín. Það var eins og taugaboðin bærust ekki á milli í líkama mínum. Sama hvað ég reyndi þá gat ég ekki hreyft mig. Ég lá grafkyrr og horfði upp í gráan him- ininn. Nokkrar hugsanir flugust á inni í huga mínum. Sú fyrirsjáanlegasta var: Auðvitað var það Unnar. Kannski var hann kominn með nóg af því að horfa yfir götuna. Á mig. Manninn sem kokk- álaði hann. Fyrir mann eins og hann, sem gat sigrað allt í krafti auðs, var það líklega óþolandi að vita til þess að hjarta konu hans tilheyrði öðrum manni. Kannski var hann kominn með leið á að horfa á son sinn, sem var svo sláandi líkur mér, að það var engin leið til þess að fela sannleikann. Ég var ekki beinlínis reiður yfir því að hann hefði ekið á mig; tilfinningin var meira í ætt við depurð. Svo sló það mig. Unnar tilkynnti um andlát mitt. Slík var þráhyggjan. Það var undirbún- ingurinn. Ég heyrði mann stumra yfir mér. Hann spurði mig spurninga sem ég náði ekki fyllilega að meðtaka. Hann dró upp farsíma og hringdi á sjúkrabíl. Mig langaði til þess að segja honum nafnið hans Unnars. En ég gerði það ekki. Ég vonaði satt að segja að hann kæmist upp með glæpinn. Líklega vegna þess að ég óskaði Elísabetu alls hins besta. Ég vildi að hún yrði ham- ingjusöm. Maðurinn lyfti upp höfðinu og setti peysu undir hnakkann á mér. „Sjúkrabíllinn er á leiðinni,“ sagði hann. Ég hóstaði blóði og fann hálsinn hreinsast. „Segðu honum....,“ ég hafði ekki orku í að klára setninguna. „Segja hverjum hvað?“ spurði maðurinn stumrandi yfir mér. Ég tók nokkra mínútur til þess að jafna mig. Hugsanlega sekúndur. Svo fann ég hvernig orkan safnaðist upp í líkaman- um. Síðasti andardrátturinn var nærri. Hugsunin líka. „Segðu Agnari, þessum í minningargreinunum, ....segðu hon- um að ég sé dáinn.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.