Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Síða 43
Sakamál | 43Helgarblað 23.–25. september 2011
J
ohan Alfred Anderson
Ander fæddist 27. októ-
ber 1873 í Ljusterö í Sví-
þjóð. Hann sinnti her-
skyldu 1893 til 1894 og
að henni lokinni festi hann
ráð sitt. Johan reyndi að sjá sér
farborða með ýmsum hætti,
starfaði meðal annars sem
þjónn en reyndi einnig fyrir
sér sem hóteleigandi.
Flest það sem hann tók sér
fyrir hendur misfórst og hann
beið fjárhagslegt skipbrot. Því
hefur reyndar verið haldið
fram að hluta bágrar fjárhags-
legrar stöðu Johans hafi mátt
rekja til óhóflegrar áfengis-
neyslu sem síðar leiddi til þess
að hann beitti eiginkonu sína
ofbeldi.
Árið 1900 var honum
stungið inn vegna nokkurra
smávægilegra glæpa en tókst
að flýja og segir ekkert frek-
ar af honum fyrr en árið 1909
þegar hann flutti ásamt eigin-
konu sinni til Karlsudd, þar
sem þau fluttu inn í hús for-
eldra Johans.
Johan reyndi hvað hann gat
að finna leið út úr fjárhagsleg-
um ógöngum sínum og segir
sagan að sést hafi til hans oft
og tíðum þar sem hann fylgd-
ist með Gerells Växelkontor-
bankanum við Malmtorgsgötu
3 í Stokkhólmi.
Árið 1910, 5. janúar nán-
ar tiltekið, lét Johan til skarar
skríða og rændi bankann og
barði skrifstofustúlku að nafni
Victoria Hellsten svo illilega
að henni varð ekki lífs auðið.
Upp úr krafsinu hafði Johan
andvirði 6.000 sænskra króna í
sænskri og erlendri mynt og
hafði náð að eyða einhverjum
hluta fjárins þegar hann var
handtekinn. Rannsóknin var
ekki flókin því sumir seðlanna
sem fundust í fórum Johans
voru þaktir blóði auk þess sem
morðvopnið tengdi hann við
glæpinn.
Reyndar gerði Johan til-
raun til að slá ryki í augu yfir-
valda við réttarhöldin og full-
yrti að hann hefði fengið féð
frá óþekktum útlendingi sem
hann hafði hitt á hótelinu sem
hann bjó á í Stokkhólmi. Johan
játaði aldrei sekt í málinu en
var sakfelldur engu að síður og
dæmdur til dauða.
Johan nýtti sér ekki þann
möguleika að áfrýja til Svía-
konungs en faðir Johans baðst
griða fyrir hönd sonar síns.
Faðir Johans hafði ekki erindi
sem erfiði og því hlotnaðist
Johan Alfred Anderson Ander
sá vafasami heiður að verða
sá fyrsti sem tekinn yrði af
lífi í Svíþjóð eftir tíu ára hlé á
þeirri iðju. Að auki varð Johan
sá eini sem endaði ævina und-
ir fallöxinni í Svíþjóð, en hann
var tekinn af lífi 23. nóvember
1910.
Johan virtist rósemdin
uppmáluð þegar hann stóð
frammi fyrir böðlum sínum
og heilsaði þeim með virktum:
„Góðan daginn, herrar mínir.“
Johan vildi tjá skoðanir sín-
ar um dauðann en fékk ekki
leyfi til þess og var leiddur án
tafar að fallöxinni sem virkaði
með miklum ágætum; togað
var í reipið, blaðið féll niður og
höfuð Johans skildist frá lík-
amanum og féll ofan í þar til
gerða körfu.
Aftakan var sú síðasta sem
framkvæmd var í Svíþjóð
og böðullinn Albert Gustaf
Dahlman gat því sest í helgan
stein. Af Albert Gustaf er það
annars að segja að hann and-
aðist árið 1920 og dauðarefs-
ing var afnumin í Svíþjóð árið
eftir.
En það er önnur saga.
Missti höfuðið
n Johan Alfred Anderson framdi bankarán vegna fjárskorts n Stundum er betur heima setið en af stað farið„Upp úr krafs-
inu hafði
Johan andvirði
6.000 sænskra
króna í sænskri og
erlendri mynt.
Johan Alfred Fjárhagserfiðleikar hans höfðu alvarlegar afleiðingar.
Victoria Hellsten Rán Johans
kostaði hana lífið.