Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Side 48
48 | Lífsstíll 23.–25. september 2011 Helgarblað Allt á einum stað! Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir Þú færð fría olíusíu ef þú lætur smyrja bílinn hjá okkur Komdu með bílinn til okkar og þú færð fría ástandsskoðun Fljótlegar hafrakökur n 4 msk. smjör n 3 msk. sykur n 2 msk. hveiti n 1 tsk. vanilludropar n 1/4 tsk. salt n 6 msk. hafrar Hitið ofninn í 180°C. Blandið öllum hráefnum sam- an. Notið teskeið til að setja á bökunarpappír. Bakið í 12–15 mínútur. Slaufuæði Slaufur eru að koma sterkar inn í hausttískunni og hver stjarnan á fætur annarri hefur sést skarta slaufum af mis- munandi gerðum. Yfirleitt eru þær utan á flíkunum en ganga líka sem hárskraut. Í þessari tískubylgju virðist reglan því stærra því betra gilda og hefur til dæmis tískugyðjan Kate Moss sést skarta svörtum sam- festingi með stórri slaufu þvert yfir brjóstin. É g veit hvað þetta er hollt fyrir hana og þessar stundir okkar eru svo fal- legar,“ segir Lilja Helga- dóttir sem er með dóttur sína, Kolbrúnu Elvi, á brjósti þótt hún sé komin 34 vikur á leið með sitt annað barn. Lilja segir marga líta þær mæðgur hornauga þegar Kol- brún Elvi, sem verður tveggja ára í október, biður um bobb- ann sinn. „Viðbrögðin eru ansi misjöfn. Ef við erum í sturtu- klefanum í sundi og Kolbrún Elvi sér bobbana sína þá vill hún auðvitað fá að súpa. Eldri konur brosa oft til okkar þegar ég beygi mig niður til hennar en aðrar sjokkerast. Ég fæ samt bara að heyra þetta jákvæða, hvað þetta sé krúttlegt og hvað hún sé heppin,“ segir Lilja, en bætir við að bæði barnalæknar og meltingasérfræðingur hafi spurt hana hvort ekki væri nóg komið. „Þeir hafa spurt hvort ég ætli ekki að fara að hætta þessu en ég læt það ekkert stoppa mig enda veit ég betur.“ Skipta á milli sín Lilju langar til að hafa Kol- brúnu Elvi á brjósti eftir að nýja barnið fæðist. „Ég vil að við eigum okkar stund- ir áfram þótt litla barnið sé komið í heiminn. Ég ætla svo að fara að venja hana af þessu upp úr áramótum án þess að vera að stressa mig eitthvað. Ég mun allavega ekki rífa brjóstið af henni. Ég er þegar farin að undirbúa hana undir komu litlu systur og við ræð- um um það, bæði þegar hún er á bobbanum og þegar hún er ekki að súpa, að þegar litla barnið fæðist muni það líka fá bobba. Hún tekur því bara vel og bendir á annað brjóstið og segir að litla barnið megi fá þennan bobba en hún hinn,“ segir Lilja brosandi og bætir við að hún óttist ekki að Kol- brún Elvi eigi eftir að drekka broddinn frá litla barninu enda séu tvíburar vanir að þurfa að skipta mjólkinni sín á milli. Lilja segir að það sé ekki algengt að barnshafandi konur séu með barn á brjósti. „Það gerist samt alveg, sem betur fer. Oft hefur maður heyrt að bragðið á mjólkinni breytist og að sum börn vilji ekki súpa síðustu vikurnar en oftast byrja þau þá aftur eftir fæðinguna,“ segir hún og bætir við að sumir verði hreinlega hissa að konur mjólki þegar þær eru barns- hafandi. Fallegt og rómantískt ferli Lilja stefnir á að fæða heima en hún gerði tilraun til þess þeg- ar Kolbrún Elvi kom í heiminn. „Eftir 20 tíma ferli kom í ljós að hún var í framhöfuðstöðu svo ég fór á sjúkrahús og fékk mænurótardeyfingu. Fæðingin var samt eðlileg að öðru leyti og Kolbrún Elvi var hvorki tek- in með töngum né sogklukku. Fæðingarhormónið oxytocin myndast einnig við brjóstagjöf og ég hef verið að ræða við ljós- móður og brjóstagjafaráðgjafa hvort Kolbrún Elvi geti jafnvel hjálpað mér í fæðingunni. En svo veit ég ekkert hvort ég verði tilbúin til að gefa henni brjóst í miðri fæðingu. Við stefnum allavega á að leyfa henni að taka þátt og ætl- um að gera þetta saman fjöl- skyldan. Ég er alveg viss um að nærvera hennar hjálpar mér. Þegar Kolbrún Elvi var að koma í heiminn voru hér allir, afinn, amman og systir mín og bróðir með sín börn og meira að segja langafinn kíkti við. Þetta var afskaplega fallegt og rómantískt ferli og þótt við fær- um svo upp eftir til að fæða var þetta alveg æðislegt og alveg eins og ég vildi hafa það.“ Hvorki óeðlilegt né krípí Lilja segir manninn sinn styðja sig í því að vera ennþá með Kolbrúnu Elvi á brjósti. „Hann vissi lítið um brjóstagjöf áður en hún fæddist en eftir að ég fór að fræða hann er hann sáttur við þessa ákvörðun og styður mig fullkomlega, sem er mjög mikilvægt. Ef ég hefði hann ekki á mínu bandi þá væri þetta ekki hægt. Ég veit samt að mörgum í kringum okkur finnst þetta mjög furðu- legt og jafnvel ógeðslegt og láta eins og maður sé með tólf ára barn á brjósti. Mér finnst það viðhorf bara fyndið og læt sem ég heyri það ekki,“ segir Lilja og bætir við að henni komi ekki við hvað aðrar konur kjósi að vera með sín börn lengi á brjósti. „Ég var sjálf í 19 mánuði á brjósti og í fyrstu stefndi ég á þann tíma. Þegar þangað var komið ákvað ég að vera með hana í tvö ár en eins og staðan er í dag stefnum við á að vera hættar um tveggja og hálfs árs aldur. Ekki að mér finnist það eitthvað óeðlilegt eða „krípí“ að vera með hana lengur. Þá verður bara kom- ið nóg og ekkert nema jákvætt um það að segja.“ indiana@dv.is Ófrísk með barn á brjósti n Fær misjöfn viðbrögð þegar hún gefur dóttur sinni brjóst á almannafæri n Segist láta gagnrýnisraddir sem vind um eyru þjóta af því að hún viti betur Samrýnd fjölskylda Lilja og eiginmaður hennar, Hörður Reynir Þórðarson, ásamt Kolbrúnu Elvi sem verður tveggja ára í október. Mynd Gunnar GunnarSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.