Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Side 51
Lífsstíll | 51Helgarblað 23.–25. september 2011
B
laðamaður hittir Lene
í Baðhúsinu þang
að sem hún er kom
in til að fræða konur
um hvernig þær geta
komið jafnvægi á orku sína og
þyngd. Sjálf á hún lífsreynslu
að baki sem gefur henni
innsæi og skilning á aðstæð
um og líðan þeirra kvenna
sem hún talar við. Hún var
nefnilega sjálf eitt sinn í of
þyngd.
„Ég var eitt sinn tuttugu
kílóum þyngri, segir Lene frá.
„Mér leið afar illa og orkan var
í lágmarki. Ég þjáðist af miklu
ofnæmi og var með mikinn
bjúg. Ónæmiskerfið starfaði
ekki sem skyldi og ég var oft
veik. Andlega líðanin var held
ur ekki eins og skyldi og ég var
þunglynd og svartsýn á eigin
getu.“
Lene var í stöðugum megr
unarkúrum og eins og aðr
ir sem fara í slíka kúra, léttist
hún og þyngdist á víxl. „Fæst
ir megrunarkúrar taka tillit til
heilsufars þíns og því þyng
istu oft aftur þegar þú hættir á
kúrnum – og jafnvel bætir á þig
fleiri kílóum. Þannig var það í
mínu tilfelli,“ segir Lene.
Léttist um 20 kíló
Lene segist hafa rekist á
ameríska speki þar sem mælt var
með því að setja fæðuna saman
á breyttan máta og hún ákvað að
prófa. Hún sleppti öllu kjötáti og
reyndar öllum mat sem er nær
ingarsnauður, svo sem hvítum
sykri, brauði og hvítum grjónum
og pasta. „Ef ég hefði vitað þetta
fyrr,“ segir Lene og brosir. „Þeg
ar líkaminn fékk loks næringar
ríkan mat til að vinna úr, hollan
og fitusnauðan frá náttúrunnar
hendi, þá hreinsaði líkami minn
sig af úrgangsefnum á ótrúleg
um hraða. Ég léttist um 20 kíló,
þau runnu af mér,“ segir hún og
hlær. Hún segir það vera raun
ina þegar mikill úrgangur og
vatn hefur safnast fyrir í líkam
anum. „Fólk grennist mjög hratt
þegar það gerir lífsstílsbreytingu
sem þessa. En breytingin hef
ur marga aðra kosti. Fæðuvalið
bætir ónæmiskerfið. Í mínu til
felli þá þurfti ég aldrei framar að
taka ofnæmislyf og varð í raun
og veru heilbrigð. Ég hætti að
finna fyrir öllum þessum verkj
um og andlegu þyngslum sem
ég hafði glímt við. Og það besta
var að vegna þess að ég hafði
þrautseigju til þess að halda mig
við þennan breytta og bætta lífs
stíl þá varð heilsubótin til fram
búðar.“
Lene ákvað í kjölfarið að
breyta um starfsvettvang og
hefur síðan unnið við næring
arráðgjöf. Hún segir alla geta
gert breytingar á lífi sínu til hins
betra með því að breyta matar
æðinu.
Þeir sem hafa áhuga á því að
fara að ráðum Lene Hansson
geta keypt bókina Léttara líf eða
kynnt sér sérstakt Lene Hans
sonnámskeið sem Linda Pét
ursdóttir býður upp á í Baðhús
inu í vetur.
Verkirnir hurfu með
breyttu mataræði
n Hefur unnið við næringarráðgjöf í 21 ár og gefið út fjölda bóka
n Allir geta breytt lífi sínu til hins betra með breyttu mataræði
Léttist sjálf um 20 kíló
Lene léttist mjög hratt um 20
kíló við það að breyta fæðuvali
sínu og samsetningu fæðu.
Á
gústa Gunnarsdóttir sál
fræðingur hefur haldið
sjálfstyrkingarnámskeið
fyrir konur með ADHD
og segir skort á sjálfstrausti og
tilfinningar á borð við skömm
og hræðslu algengar með
al kvenna með athyglisbrest.
„Þær skammast sín fyrir það að
geta ekki haldið heimilinu fág
uðu, margar þeirra hafa ekki
náð að klára nám eða hafa gert
það á lengri tíma en venjulegt
þykir og þá skammast þær sín
fyrir það. Þær upplifa oft ákveð
ið getuleysi og gleyma þeim
fjölmörgu kostum sem athygl
isbrestur hefur í för með sér.
Þetta eru til að mynda oft fram
úrskarandi frjóar konur. Þær
eru oft brotnar eftir skólagöngu
sem tekur ekki mið af kostum
þeirra eða eftir árekstra í sam
búð eða í vinahópi. Það þarf
að hjálpa þeim að finna leiðir
til þess að koma markmiðum
sínum í farveg en á sama tíma
þurfa þær að öðlast sjálfstraust
og sjá sig í réttu ljósi.“
ADHD félagið hefur vak
ið athygli á því að stúlkur með
ADHD séu ósýnilegur hópur á
Íslandi og gaf nýverið út bækl
ing þar sem fjórum tegundum
athyglisbrests hjá stúlkum er
lýst, hljóðlátu gerðinni, ofvirku
og hvatvísu gerðinni, blönduðu
gerðinni og ofureinbeittu gerð
inni.
Stúlkur sem glíma við at
hyglisbrest af hljóðlátu gerð
inni ná ekki athygli kennar
ans, eru dreymnar, feimnar,
líta út fyrir að vera að fylgjast
með. Þær eru oft óskipulagðar,
gleymnar og hræddar um að
gert sé grín að þeim fyrir óreið
una sem oft einkennir líf þeirra.
Ofvirku og hvatvísu gerðina
er auðveldast að greina. Þær
eru á iði eins og strákarnir, eru
háværar, grípa fram í samtöl og
er oft lýst sem strákastelpum. Á
unglingsárum geta þær tileink
að sér áhættuhegðun svo sem
drykkju, eiturlyf og áhættu
sama kynlífshegðun.
Þá er það blandaða gerðin,
en stúlkur með þessa gerð af
ADHD eru bæði ofvirkar, hvat
vísar og með athyglisbrest. Þær
geta virst háværar og eirðar
lausar. Andstætt ofvirku gerð
inni hafa þessar stúlkur getu
til að einbeita sér, jafnvel tím
unum saman. Þeim er oft lýst
sem sveiflukenndum í skapi,
pirruðum og með lítinn þol
inmæðisþröskuld. Að lokum
eru til stúlkur með ADHD sem
hafa ofureinbeitingu. Þær eru
mjög samviskusamar og nota
svo mikinn tíma og orku í að
einbeita sér að náminu að þær
eiga ekkert eftir til að slappa
af eða eiga í félagslegum sam
skiptum.
Konur með athyglisbrest skammast sín
n Fjórar tegundir ADHD hjá stúlkum
Hljóðlát gerð ADHD Stúlkur sem
glíma við athyglisbrest af hljóðlátu
gerðinni eru oft óskipulagðar,
gleymnar og hræddar um að gert sé
grín að þeim fyrir óreiðuna sem oft
einkennir líf þeirra.
Helgarlostæti að hætti Lene
Lax og lár-
perusalat
Lene Hansson mælir með því
að gera sérstaklega vel við sig
um helgar. Þá eru freisting
arnar fleiri og auðveldara að
falla fyrir þeim. Þess vegna er
tilvalið að huga að mataræði
helgarinnar í tæka tíð. Í bók
inni hennar Léttara og betra líf
er fjöldi spennandi uppskrifta
fyrir þá sem vilja huga betur
að heilsunni og fyrir þá sem
eiga þess kost að verða sér út
um góðan villilax er þessi upp
skrift algert lostæti.
Ofnbakaður lax með
steiktu grænmeti
og lárperusalati
300 g laxaflak með roði
Safi úr 1 límónu
Salt og pipar
1 msk. ólífuolía til að pensla fatið
1 knippi grænn spergill
2 stórar gulrætur
2 vorlaukar
1 msk. sesamfræ, helst blanda af
svörtum og ljósum
1 msk. ólífuolía
1 tsk. sojasósa
Kryddaðu laxinn með lím
ónusafa, pipar og salti, leggðu
hann í olíuborið eldfast fat og
bakaðu hann við 180°C í 20
mínútur. Undirbúðu græn
metið á meðan: Skerðu
sperglana í tvennt eftir endi
löngu, skerðu gulræturnar í
ræmur með flysjunarjárni og
skerðu rótina af vorlaukun
um. Snöggsteiktu grænmetið
og sesamfræin í 1–2 mínútur
við háan hita í blöndu af ólífu
olíu og sojasósu.
Lárperusalat:
2 lárperur, þroskaðar
Lófafylli af vætukarsa eða kletta-
salati
2 msk. graskersfræ
1 msk. sítrónusafi
½ tsk. kryddsalt
Skerðu lárperur og vætukarsa
fremur smátt og blandaðu
graskersfræjum, sítrónusafa
og kryddsalti saman við.
Uppskrift úr bókinni Létt
ara og betra líf.