Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Síða 52
52 | Tækni 23.–25. september 2011 Helgarblað
Þrívíddarprent-
arar fyrir börn
Á undanförnum mánuðum
hafa þrívíddarprentarar fengið
ótrúlega mikla athygli en þró-
un á þeim hefur farið gífurlega
fram að undanförnu. Þróuð
hefur verið prufuútgáfa af
Origo, sem er þrívíddarprent-
ari fyrir börn. Prentarinn hefur
ekki alveg jafnmikla mögu-
leika og hefðbundinn þrívídd-
arprentari en með honum er
þó hægt að prenta litla hluti
úr þunnum plasteiningum.
Með hefðbundnum þrívíddar-
prenturum er hins vegar hægt
að prenta nær hvað sem er, sé
prentarinn nógu stór, og hefur
umræða um vopnasölu með
þrívíddarprenturum meðal
annars gert vart við sig. Líklegt
verður að teljast að byssur séu
einn þeirra hluta sem ekki
verður hægt að prenta með
Origo-prentaranum.
Síminn
ákveður
kvöldmatinn
Vefsíðan All-
Recipes.com
hefur sent frá
sér sniðuga
snjallsíma-
viðbót, Din-
ner Spin-
ner, til að
hjálpa fólki
að ákveða
hvað það
eigi að hafa
í matinn. Viðbót-
in býður notendum upp á að
skilyrða valmöguleika, eins og
eldunartíma, hráefni og hvers
konar máltíð þetta eigi að
vera, og finnur svo allar þær
uppskriftir í gagnagrunni All-
Recipes.com, sem er vægast
sagt umfangsmikill, og kemur
svo með skýrar leiðbeiningar
um hvað þurfi að gera til að
elda máltíðina. Fyrir þá sem
eru sérstaklega óákveðnir er
líka boðið upp á uppskriftir af
handahófi.
Notaðu
iPad-tölvu
í eldhúsinu
Það getur verið þægilegt – en
ekki endilega hreinlegt – að
nota iPad-spjaldtölvur sem
matreiðslubók. Alls konar
vefsíður bjóða upp á upp-
skriftir á iPad-formi en auð-
velt og handhægt er að hafa
tölvuna við hlið sér í eldhús-
inu. Bandaríska fyrirtækið
Belkin hefur búið til sérstaka
græju sem hægt er að nota til
að fletta í iPad-tölvunni án
þess að koma nokkurn tíma
við hana. Græjan var sérstak-
lega hönnuð með það í huga
að hægt væri að nota tölvuna
sem uppskriftarbók. Um er
að ræða sérstakan stand fyrir
tölvuna og eins konar penna
sem hægt er að nota til að
stjórna iPad-tölvunni.
G
oogle hefur svo sem
ekki farið í launkofa
með áætlanir sín-
ar um að bjóða not-
endum upp á að nota snjall-
síma sína til að greiða fyrir
vörur og þjónustu. Fyrirtæk-
ið er þó fyrst núna að kynna
formlega áætlanir sínar um
Google Wallet. Nú þegar hef-
ur Google hafið samstarf við
alþjóðlega kortafyrirtæk-
ið Mastercard vegna Google
Wallet.
Google keypti nýverið far-
símaframleiðslu Motorola
og má leiða að því líkur að
Google ætli sér enn stærri
hluti á snjallsímamarkað-
inum en að bjóða upp á eitt
vinsælasta stýrikerfi fyrir
snjalltæki. Verður að teljast
líklegt að Google muni nota
Motorola til að þróa tækni á
borð við Google Wallet en til
að greiðslur með þessari nýju
þjónustu Google séu mögu-
legar þurfa snjallsímarnir að
vera búnir NFC-tækni, eða
Near Field Communication.
Það er þráðlaus leið fyrir mis-
munandi tæki til að hafa sam-
skipti á öruggan máta.
Með Google Wallet verður
hægt að gera kortagreiðslur
talsvert fljótlegri og örugg-
ari. Afgreiðslumaður sem
tekur við greiðslu sem greidd
er með Google Wallet sér
sjálfur aldrei kortanúmer-
ið, handleikur aldrei kortið
og þannig er hægt að tryggja
aukið öryggi viðskiptavin-
arins. Til að tryggja öryggi
handhafa Google Wallet
verður svo krafist PIN-stað-
festingar á öllum kaupum á
svipaðan hátt og Íslendingar
eru farnir að kynnast hér á
landi.
n Settu kortin niður í skúffu og borgaðu með símanum
Kynna Google Wallet til leiks
Aukið öryggi Með Google
Wallet eru viðskiptavinir öruggari
gagnvart því að kortanúmerum
þeirra verði ekki stolið.
U
mfangsmiklar breyt-
ingar voru gerðar
á notendaviðmóti
samskiptasíðunnar
Facebook í vikunni.
Breytingarnar felast fyrst og
fremst í breytingum á frétta-
veitu einstaklinga en núna
flokkar Facebook efni sem
birtist í veitunni eftir því hvað
síðan telur notandann hafa
gaman af.
Í raun hefur Facebook tekið
upp margar af þeim nýjungum
sem Google kynnti með sam-
skiptasíðunni sinni Google+.
Má þar meðal annars nefna
aukna stjórn á því hverjir fá
aðgang að einstaka stöðuupp-
færslum og valmöguleikann
að láta vita hvar maður er þeg-
ar maður skrifar inn stöðuupp-
færslur.
Ekki allir sáu
breytingarnar samtímis
Breytingarnar áttu ekki að
verða virkar fyrr en á f8 ráð-
stefnunni sem haldin er af
stjórnendum Facebook. Af
einhverjum ástæðum voru
breytingarnar virkar á mörg-
um Facebook-síðum en svo
virðist sem það hafi að ein-
hverju leyti stjórnast af því
hvaða tungumál notend-
ur hafa síðuna stillta á. Til að
mynda var um tíma ekki hægt
að nota nýja viðmótið þegar
notendur studdust við breska
útgáfu vefsins en þeir sem not-
uðust við íslensku útgáfuna
sáu breytingarnar.
Með nýjustu breytingun-
um á síðunni gefst notend-
um einnig kostur á að fylgjast
betur í rauntíma með því hvað
vinir þeirra eru að gera. Í hlið-
arslánni þar sem spjallkerfi
vefsíðunnar er nú að finna
er búið að koma fyrir nokk-
urs konar beinni útsendingu
af því hvað vinir notenda eru
að gera hverju sinni, við hvað
þeim líkar og hvað þeir eru að
skrifa athugasemdir við.
Hörð gagnrýni vegna
breytinganna
Mjög stór hluti vestrænna
vefnotenda er skráður á
Facebook. Undantekningar-
laust þegar breytingar hafa
verið gerðar á vefsíðunni hafa
heyrst óánægjuraddir með
breytingarnar. Þessar nýjustu
breytingar eru þar alls ekki
undanskildar og hafa hávær-
ar óánægjuraddir heyrst síð-
an breytingarnar voru kynnt-
ar til sögunnar. Hafa sömu
stöðuuppfærslurnar geng-
ið manna á milli á Facebook
þar sem stjórnendur síðunnar
eru hvattir til að draga til baka
þær breytingar sem hafa verið
gerðar.
Ólíklegt verður að teljast
að notendurnir nái að sann-
færa stjórnendur Facebook
um að draga breytingarnar til
baka. Það hefur að minnsta
kosti ekki tekist hingað til.
Breytingarnar eru í raun ekk-
ert nema aukin þjónusta og
einföldun á fréttaveitu not-
enda, sem er það fyrsta sem
notendur sjá þegar þeir skrá
sig með hefðbundnum hætti
inn á síðuna.
n Umfangsmiklar breytingar gerðar á Facebook n Nýjungar sem kynntar voru
með Google+ komnar á Facebook n Óánægjuraddir farnar að gera vart við sig
Facebook eins
og Google+
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Netið
Frumkvöðull en hermir
nú eftir Mark Zuckerberg var
frumkvöðull á sviði samfélags-
vefja en nú virðist hann vera
farinn að taka Google sér til
fyrirmyndar. Að minnsta kosti
upp að vissu marki.